Morgunblaðið - 09.11.1961, Blaðsíða 24
Erlent fjármagn
Sjá bls. 13.
Brét frá New York
Sjá bls. 8.
254. tbl. — Fimmtudagur 9. nóvember 1961
Allir
seldu vel
NtJ MUNXJ 35 íslenzkir togarar
stunda veiðar og selja þeir ytra,
þegar markaðshorfur þyikja væn-
legar. 12 togarar eru ekki gerðir
út. — Fjórir togarar seldu erlend-
is í gær og fengu allir gott verð
fyrir aflann.
Marz í Hull, 149 lestir fyrir
13.711 pund. í Cuxiiaven seldu
Surprise, 115 lestir fyrir 94.566
mörk, og Pétur Halldórsson, 113
lestir fyrir 96.434 mörk. í Brem-
erhaven Þormóður goði, 127 lest-
ir fyrir 90.100 mörk. — í dag
selja tveir togarar í Bremerhav-
en, Þorsteinn Ingólfsson og Jón
íorseti. Fleiri selja ekki í Bret-
landi í þessari viku, en tveir
væntanlega á mánudaginn. —
Veðrið hefur verið mjög gott á
mörkuðum í Bretlandi og Þýzka-
landi undanfarna daga. Ástæð-
an er fyrst og fremst sú, að lítið
aflamagn hefur borizt á land, en
væntanlega aukast landanir mik-
ið næstu daga og er viðbúið að
verðið lækki þá á markaðnum.
Aðolfundur LÍÚ
hefst í dug
AÐALFUNDUR Landssambands
ísl. útvegsmanna hefst hér í bæn-
nm í dag kl. 14:00 í Tjarnarkaffi.
Mun formaður sambandsins,
Sverrir Júlíusson, setja fundinn
með ræðu.
Talið er, að fulltrúar á fund-
inum verði um eða yfir 80, víðs
vegar að af landinu.
Ætlunin er, að fundinum ljúki
næstkomandi sunnudag.
Blöndal Bengtson
— 29 ára músíkprófessor
Ffatfiskurinn bjargar togurunum
en þorskurinn virðist vera horfinn,
segir Þórarinn Olgeirsson
F Á D Æ M A lítið magn af
fiski hefur borizt á markað-
inn hérna undanfarna daga.
Þess vegna hefur verðið ver-
ið svona gott, sagði Þórarinn
Olgeirsson í Grimsby, er Mbl.
átti símtal við hann í gær. —
En búast má við, að löndun-
um fjölgi næstu daga og þeg-
ar kemur fram í næstu viku
— þá lækkar verðið. Það er
ekki hægt að búast við jafn-
háu verði og síðustu daga til
lengdar, bætti hann við.
• Bretarnir með minni afla
Brezkir togarar hafa verið með
sérlega rýran afla. Þeir koma
flestir af Isiandsmiðum, en nokkr
ir hafa verið í Hvítahafi og við
Bjarnarey. Þar er aflinn rýr.
Brezku togararnir, sem koma
Þakkar Tdniistarfélaginu
Örstutt samtal við Erling BlÖndal
Bengtson, nýbakaðan prófessor
FRÉTTARITARI Mbl. í Kaup
mannahöfn, Páll Jónsson, hitti
í gær að máli cellosnillinginn
Erling Blöndal Bengtson, í til-
efni þess, að hann hefir nú —
aðeins 29 ára að aldri — verið
útnefndur prófessor við Tón-
listarháskólann í Höfn. Fer
stutt samtal þeirra hér á eftir:
— Ég er hamingjusamur yf-
ir prófessorsembættinu —
fyrst og fremst vegna hljóð-
færisins, sagði Erling Blöndal
Bengtson, er ég hitti hann að
máli. — Þetta er fyrsta
danska ,>cello-prófessorsem-
bættið“, og þess vegna lít ég
á það sem viðurkenningu á
hljóðfærinu.
Ég skaut inn í, að prófessors
staðan væri veitt manni, en
ekki hljóðfæri og hlyti því að
skoðast sem viðurkenning á
list Bengtsons sjálfs. Svaraði
hann þá sem svo, að sjálfsagt
mætti líka segja það. — Ég
spurði, hvort það væri ekki
einstæður atburður, að 29 ára
gömlum manni væri veitt
prófessorsembætti við Tónlist
arháskólann.
— Ef til vill, anzaði Bengt-
son hóglátlega, — en ég hefi
ekki skýrslurnar við höndina/
Ég minnti þá á það* að hann
hefði aðeins 18 ára verið feng
inn til að gegna prófessors-
stöðu í Bandaríkjunum.
— Já, ég var þar í fimm ár,
sagði hann — og bætti við: —
Mér er nú óhætt að fullyrða,
að ef ég hefði ekki notið marg
víslegrar hjálpar og aðstoðar
Tónlistarfélagsins í Reykjavík
og Ragnars Jónssonar væru
aðstæður mínar nú aðrar en
raun ber vitni.
Þrír slösuðust í um-
ferðinni i gærkvöldi
Tveir menn fyrir bíl a Snorrabraut
ÞRÍR menn slösuðust í umferð-
inni með skömmu millibili í gær
kvöldi. Bíll ók á tvo menn á
Snorrabraut, og slasaðist annar
þeirra mikið, og ennfremur varð
maður á reiðhjóli fyrir bíl á
Skúlagötu.
Skyndihappdrætti
Sjálf stæðis f lokksins
STÖÐUGT styttist tím-
inn, þar til dregið verður
í Skyndihappdrætti Sjálf-
stæðisflokksins. — Nú eru
aðeins
6
dagar til steinu
Þrír bálar
til Sandgerðis
SANDGERÐI, 8. nóv. — Þrír
bátar komu hingað með síld í
dag, samtals 530 tunnur, Guð-
bjöfg 300 tn., Jón Garðar 130 og
Jón Gunnlaugsson 100 tunnur.
Síldin er bæði söltuð og fryst.
— Páll.
Laust fyrir klukkan átta í gær-
kvöldi urðu tveir menn fyrir bíl
á Snorrabraut. til móts við Osta-
og smjörsöluna. Voru þeir báðir
fluttir á slysavarðstofuna, og
annar þeirra, Ingóifur Skúlason
þegar fluttur þaðan á Landa-
kotsspítala. Hlaut hann opið fót-
brot og skaddaðist auk þess á
höfði. Hinn manninn, Ól„f Jóns-
son, sakaði minna. en var þó á
slysavarðstofunni enn er blaðið
frétti síðast til í gærkvöldi.
Báðir eru mennirnir strætis-
vagnabílstjórar.
Nokkrum mínútum áður en
þetta gerðist hafði maður á reið-
hjóli, Eyjólfur Gíslason, Njáls-
götu 82, orðið fyrir bíl á Skúla-
götu. skammt frá gatnamótum
Barónsstígs. Var hann fluttur í
slysavarðstofuna, en ekki er biað
inu kunnugt um meiðsli.
Eingöngu olíumálning
rennur af húsþökum
Litur og framleiðslustaður skipta engu
mdli - Fyrirbærið eingongu við sjdvarsiðuna
MORGUNBLAÐIÐ átti i gær tal
við Jóhann Þorsteinsson, efna-
fræðing hjá málningarverksmiðj
unni Hörpu, en efnafræðingar
verksmiðjúnnar vinna nú að því
að upplýsa orsakir þess, að máln
ing hefur runnið af þökum víða
um land. Sagði Jóhann að máln-
ing rynni af þökum um alla
Reykjavík. Væri það aðailega
olíumálning og skipti það engu
máli hvernig hún væri á lit né
frá hvaða framleiðanda hún
væri. Virðist því liggja í augum
uppi að um gallaða málningu sé
ekki að ræða.
Jóhann sagði að upplausnar
gætti í fleiri málningartegundum
Góöur árangur jarð-
hitaborana á Húsavlk
HÚSAVÍK, 8. nóv. — Tilrauna-
borun eftir heitu vatni á Húsavík
er lokið á þessu hausti og mun
hafa gefið góða raun, eða fylli-
Iega svo sem vænzt van Boraðar
hafa verið tvær holur.
Fyrri holan var boruð fyrir ut
an Draugadys og var þar borað
50 metra niður. Ekkert vqtn
fannst og enginn hiti enda mun
þessi hola fremur hafa verið bor-
uð með tilliti til jarðvegsrann-
sókna en að vonazt væri eftir
heitu vatni.
Síðari holan var boruð úti á
Háhöfða, á suðurbrún Laugar-
dals, og varð fljótlega vart þar
við hita. Þegar borað hafði verið
á 60 metra dýpi, var þar komið
30 stiga heitt vatn. Lengra mun
ekki verða borað með þessum
bor. en áætlað er að halda áfram
að bora þarna með nýja Norður-
landsbornum, en það verður
væntanlega á næsta vori.
— Fréttaritari.
en olíumálningu, en miklu
minna. Olíumálningin, sem leyst-
ist upp, væri mjög misgömu1
Eingöngu við ströndina
Jóhann sagði það athyglisvert
að fréttir um að málning rynni
af þökum kæmu eingöngu frá
sjávarsíðunni, en ekki hefði
frétzt af þessu fyrirbæri upp til
sveita.
Þá sagði Jóhann að geisla-
virkni gæti haft áhrif á máln-
ingu, en til þess þyrfti miklu
meiri geislavirkni, en mælzt hef-
ur hér. Samkvæmt upplýsingum,
sem Mbl. aflaði sér í gærkvöldi,
hafa verið sveiflur í geislavirkni
hérlendis frá 1—5 picocurie i
rúmmetra lofts undanfarna daga.
Hvort um gosefni væri að
ræða sagði Jóhann að væri hugs-
anlegt en taldi mjög ólíklegt að
um þau væri að ræða í þessu
tilfelli.
Málning rennur ekki í Vík
Jóhann sagði að austur með
landinu bæri ekki á að málning
ryrmi af þökum. Efnafræðingar
hefðu farið austur í Vík I Mýr-
dal, en þar hefur Harpa tilrauna-
stöð með mörgum tegundum
málningar. Bar ekkert á að máln
ing hefði runnið þar, né heldur
í þorpinu sjálfu.
Þetta mál er því enn óleyst og
fólki hin mesta ráðgáta. Einhver
lausn hlýtur þó að vera til og
kemur hún vafalaust á daginn
fyrr en síðar.
frá Islandi eru með þetta 1000—
1300 kits en allt niður í 70 kits.
Marz, sem seldi í Hull í morgun,
var með 2.344 kits (149 lestir) og
er það nieð því mesta, sem á land
berst ur einu skipi þessa dagana.
Isjenzku togararnir hafa yfirleitt
veríð með tiltöiulega mikinn afla
miðað við þá brezku — og þá
getið þið séð, að Bretarnir veiða
líllð, sagð'i Þórarinn.
En það sem hleypir upp söl-
unni, er gæðafiskurinn. Þorskur
sést yf:rleitt ekki lengur. Það
er sania hvaðan skipin koma.
Þorskurinn virðist uppurinn á öll
um miðuiii. Þeir koma með tölu-
veit af ýsu og flatfiski — og
karfinn þvæiist líka með.
• Eru fyrir vestan
Góðar þorskur, sem venjulega
seist á 4—5 pund kittið, hefur
komizt upp i 7—8 pund núna,
ýsan hefur farxð hærra og kolinn
allt upp í 13—14 pund kittið.
Brezku togararnir leggja líka
mikla áhcrzlu á að ná í kolann.
Þeir eru mikið fyrir vestan Is-
land. Einn var með 548 kits aí
kola, en heildaraflinn var ekki
nema 1.075 kits. Narfi, sem seldi
mjög ve1. í gær, var hins vegar
ekki með nema 300 kits af flat-
fiski, en afimn var samtals 1,897
kits.
En það er mjög ískyggilegt hve
ilia aflast á ölluxn veiðisvæðum
í Norðurhöfum um þessar mund-
ir — og aflinn virðíst fara æ
minnkandi.
Hallgrímur Valde-
marsson látinn
HALLGRÍMUR Valdemarsson,
einn kunnasti borgari Akureyr-
ar, andaðist í sjúkrahúsinu á
Akureyri snemma í gærmorgun,
85 ára að aldri. Hefði hann orðið
86 ára gamall 25. þ. m.
Hallgrímur Valdemarsson var
frá fyrstu tíð afgreiðslumaður
Morgunblaðsins á Akureyri og
fréttaritari þess í áratugi.
Hallgrímur hafði dvalið um
árabil á Elliheimilinu í Skjaldar-
vík. en veiktist skyndilega fyrir
hálfum mánuði og var fluttur i
fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri,
þar sem hann lézt í gærmorgun.
Hallgrímur var fæddur að
Litla-Hóli í Eyjafirði 1875, sonur
hjónanna Valdemars Hallgríms-
sonar og Guðrúnar Þorbergsdótt-
ur. Hann var meðal stofnenda
Leikfélags Akureyrar, og var
lengi í stjórn þess oig mörg ár
formaður. Var hann gerður heið-
ursfélagi leikfélagsins fyrir störf
í þágu leikhúsmála á Akureyri.
Gufumekkíi
MBL. hafði í gær tal af Pétri |
Jónssyni 1 Reynihlíð. Sagði
Pétux að einn bíll muni hafa '
haldið óleiðis til Oskju i, gær. I
Þá sagði hann að fólk á nokkr |
um bæjum 1 Mývatnssveit ,
hafi séð gufumökk leggja upp ,
frá fjöllunum í gær.