Morgunblaðið - 17.11.1961, Qupperneq 12
12
MORCVNBL4Ð1Ð
Föstudagur 17. nóv. 1961
CTtgefandi: H.f Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (át>m.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og argreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
ÓTTAST RÚSSAR ÍSLENZKA
INNRÁS?
\T i ð fregnirnar af ógnunum*
" Rússa við Finna, rifjast
það upp, þegar hin litla,
finnska bjóð varð að heyja
styrjöld við austrænt ofur-
efli. Menn minnast þess, að
þá sem ella tók kommún-
istadeildin á íslandi afstöðu
með húsbændum sínum í
Kreml og sagði Finna hafa
ráðizt á Rússa. Enn í dag
halda kommúnistar hér-
lendis því fram, að Rússum
standi ógn af Finnum, og í
gær var skörin farin að fær-
ast upp í bekkinn, því að
Magnús Kjartansson, ritstjóri
Moskvumálgagnsins, heldur
því fram í grein, sem hann
ritar í blað sitt, að einnig
íslendingar hyggi á innrás í
Sovétríkia. Orðrétt segir rit-
stjórinn:
„Ástæðan til þess, að Sov-
étríkin krefjast nú trygging-
ar fyrir finnskri hlutleysis-
stefnu er sú, að verið er að
koma á laggirnar sameigin-
legri yfirstjórn vesturþýzka
hersins og herjanna í NATO-
ríkjunum á Norðurlöndum,
og Sovétríkin hafa ekki
gleymt því, þegar þýzkar
hersveitir höfðu bólfestu í
Finnlandi og herjuðu þaðan
langt inn í Sovétríkin. Við
íslendingar erum einnig að-
ilar að þeirri stefnu“.
í beinu framhaldi af þess-
ari „röksemdarfærslu“ segir
Magnús Kjartansson, að við
Islendingar berum fulla á-
byrgð á vanda Finna, eins
og hin Norðurlöndin, Noreg-
ur og Danmörk, sem eru í
Atlantshafsbandalaginu og
hafa herbúnað á Norður-
löndum. Þannig eru það
ekki lengur Bandaríkin,
Bretar eða Frakkar, sem
ógna Rússum, heldur Noreg-
ur, Danmörk og ísland! Finn-
ar gjaldi þess að hafa sam-
vinnu við þessar stríðsóðu
þjóðir, sem Rússar óttist svo
mjög að þeir þurfi á her-
stöðvum að halda í Finnlandi
til að verjast fyrirhugaðri
árás þessara illmenna.
Synd væri að segja að
afturför hafi orðið hjá
Moskvumálgagninu í þjón-
ustulipurð við Kreml, síðan
því var haldið fram að
Finnar hefðu gert árás á
Rússa. Nú eru íslendingar
farnir að undirbúa slíka árás
og auðvitað væri þá fullkom
lega réttlætanlegt að Rússar
krefðust hér herstöðva. —
Raunar er takmark komm-
únista að gera landið varn-
arlaust og þá þarf ekki að
krefjast neinna herstöðva. —
Þá verður landið hertekið.
HVAÐ MUNDi
ÞÁ SAGT?
T andsmenn eru farnir að
þekkja glymjandann um
það að Bandaríkjamenn og
Atlantshafsbandalagsþj óðim-
ar yfirleitt seilist til síauk-
inna áhrifa hérlendis og jafn
vel að við höfum stofnað
fullveldi okkar í voða með
þátttöku í NATO. Er því
ekki úr vegi að bera saman
samskipti okkar og banda-
lagsþjóða okkar annarsvegar
og Finna og Rússa hinsvegar.
Hvað mundi hér verða sagt,
ef Bandaríkjamenn kunn-
gerðu einn daginn, að þeir
krefðust stjórnarskipta á ís-
landi, annars mundu þeir
beita íslendinga harðrétti?
Hvað mundi vera sagt, ef
þing yrði að rjúfa á íslandi
vegna kröfu frá Washington?
Og hvað mundi verða sagt,
ef Bandaríkjamenn tilkynntu
að þeir mundu taka ráð ís-
lendinga í sínar hendur, ef
þeir ekki fylgdu þeirri utan-
ríkismálastefnu, sem Banda-
ríkjastjórn æskti?
Allt eru þetta spurningar,
sem hollt er að menn hug-
leiði, því að allt hefur þetta
hent í samskiptum Finna og
Rússa, á sama tíma og við
höfum algjörlega óbundnar
hendur um stjórnmál okkar
og getum hvenær sem við
óskum látið varnarliðið
hverfa úr landi.
Varnarliðið dvelst hér að
okkar óskum, svo lengi sem
við viljum, og heldur ekki
deginum lengur. Hitt er ann-
að mál, að allir ábyrgir ís-
lendingar óska eftir öflugum
vörnum, eins og ástandið er
í heimsmálunum í dag og
telja varnirnar fremur of
veikar en of miklar
„SAMDRÁTTUR-
INN" AUSTAN-
FJALLS
npíminn hefur af eðlilegum
ástæðum ekki getað svar
að þeirri spurningu Morgun-
blaðsins, hvar atvinnuleysis
gætti á landinu, sem sanni
kenningar Framsóknarmanna
um kreppu og samdrátt. —
Blaðið heldur þó áfram full-
yrðingunum um, að sam-
dráttur hafi orðið í fram-
kvæmdum, þrátt fyrir það
að hver maður hafi fulla at-
vinnu.
í gær birti Morgunblaðið
Tvær
konur
Tveir
menn
ELÍSABET Bretadrottning
er nú á ferð til ýmissa Af-
ríkjuríkja. Kom hún fyrst
til Ghana að heimsækja
Kwame Nkrumah forseta
og er meðfylgjandi mynd
tekin á flugvellinum í
Accra. Um tíma leit út
fyrir að ekkert yrði úr
heimsókn drottningar til
Ghana,- því talsvert var
þar um óspektir og spreng
ingar. En eftir nokkra at- I
hugun var þó ákveðið að |
breyta ekki fyrri áætlun
og kom Elísabet drottning
til Accra hinn 9. þ. m. í
ellefu daga heimsókn.
Drottningu var innilega
fagnað í Ghana og í höfuð
borginni söfnuðust um 500
þús. dansandi og syngj-
andi Ghanabúar saman til
að bjóða hana velkomna.
Nehru forsætisráðherra
Indlands kom. snemma í
þessum mánuði í opinbera
heimsókn til Bandaríkj-
anna. Ræddi hann þar við
Kennedy forseta bæði í sum
arbústað forsetans í Massa
chusetts og í Hvíta hús-
inu í Washington. Á mynd
inni hér að ofan er Nehru
að ræða við frú Kennedy
í garðinum fyrir framan
Hvíta húsið.
:
viðtal við Martein Björns-
son, byggingafulltrúa á Suð-
urlandsundirlendi. Þar upp-
lýsir hann, að framkvæmdir
í umdæmi hans séu með
allra mesta móti og sömu
fréttir berast víðsvegar að af
landinu.
í gær var einnig skýrt frá
því hér í blaðinu, að mjólk-
urmagn hefði aukizt um 1/10
hluta hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna, fyrstu 10 mánuði
þessa árs, miðað við sama
tíma í fyrra. Ekki ber það
heldur vott um mikinn sam-
drátt eða „Móðuharðindi“.
Sannleikurinn ar sá, að
framkvæmdir eru hvarvetna
með allra mesta móti, og
eftirspurn eftir vinnuafli
yfirleitt ekki fullnægt. Sam-
dráttaráróður Framsóknar-
manna er því bezti vitnis-
burðurinn um það, að við-
reisnarstefnan hefur orðið til
góðs. — Framsóknarmenn
finna engin önnur áróðurs-
efni en þau, sem jafnharðan
eru afsönuuð fyrir allra
augum.