Morgunblaðið - 17.11.1961, Síða 17
Föstudagur 17. nóv. 1961
MORGU'NBLAÐIÐ
17
Steingrímur Davíðs-
son sjötugur
NÚ A TlMUM er Oftast um marg
ar leiðir að ræða, þegar ungur
maður velur sér lífsstarf, en fyr-
ir hálfri öld var íslenzkt þjóð-
líf svo fábreytt, að ekiki var
margra kosta völ. Gekk þá marg
ur aðra götu eja girnzt hafði og
#tundum var aðeins um einstigi
að ræða, en það einstigi lá ekki
alltaf til þess óskalands, sem
hafði blasað við í dagdraumum.
örlögin eru á ýmsa lund og leiða
mann oft til annars landnáms en
setlað var í fyrstu. Vinur minn
t»g samstarfsmaður Steingrímur
Davíðsson, sem er sjötugur í
dag, hefur áreiðanlega haft bæði
iöngun, metnað og dugnað til
iangskólanáms í æsku, ef þess
hefði verið kostur, en fyrir hon-
um lá það að ganga ungur til
margsháttar verka heima í hér-
aði feðra sinna og veljast þar til
fjölbreytilegra forustustarfa. —
Hann er af gömlum og góðum
húnvetnskum ættum, sem eg
hirði ekki að rekja hér, enda
gerði eg það, er hann varð sex-
tugur.
Steingrímur tók próf frá Kenn
araskólanum 1915, var fyrstu ár-
in á eftir farkennari í Skaga-
firði og í Vindlhælishreppi, en
gerðist skólastjóri við barnaskól-
ann á Blönduósi 1920 og gegndi
J>ví starfi í næstum fjóra ára-
tugi. Snemma varð hann viðrið-
inn margs konar félagsmál í hér-
aðinu, einkum innan ungmenna-
félaganna og samvinnufélaganna
og var þar lengi í stjórn. Þá
hafði hann mikil afskipti af
Btjórnmálum, var um skeið for-
maður Framsóknarflokksins í
Austur-Húnavatnssýslu, en gat
um síðir ekki átt samleið með
tionum og gerðist einn af for-
ustumönnum Sjálfstæðisflokks-
ins í héraði. Mikið munaði um
hann, hvar sem hann beitti sér,
enda er hann kappsmaður mik-
ill, geðríkur og harður í horn að
taka, en nokkuð viðkvæmur af
svo miklum bardagakappa að
vera. Hann var snemma valinn í
hreppsnefnd og var oddviti
Blönduóáhrepps í um það bil tvo
ératugi, en í stjórn Rafveitu
Austur-Húnavatnssýslu frá byrj-
un og þar til er fyrirtækið var
selt ríkinu fyrir nokkrum árum.
Oft stóð um hann nokkur styr
og töldu sumir hann ógætinn í
fjármálum, enda má vera, að
framfarahugurinn hafi stundum
borið forsjálnina ofurliða, en
aldrei kom það að verulegri sök.
í*á þótti hann og ráðríkur, svo
að stundum olli það árekstrum,
en ekki þarf ég að kvarta und-
an því fyrir mitt leyti, því að í
þá tvo áratugi, sem ég var for-
maður skólanefndar, var sam-
vinna okkar um skólamál alltaf
ágæt, enda taldi ég mér skylt að
styðja baráttu hans fyrir þvi að
koma upp nýju skólahúsi, sem
reist var af miklum myndarbrag,
þótt nú sé það orðið of lítið, en
Steingrímur beitti sér fyrir þeirri
framkvæmd af miklum dugnaði.
Annað aðalstarf Steingríms var
yfirverkstjórn og umsjón með
vegamálum héraðsins fyrir' hönd
ríkis og sýslufélags. Því starfi
hefur hann gegnt í 45 ár. Varla
var um aðra akfæra vegi að ræða
í héraðinu, er hann tók við því
starfi, en kafla af þjóðveginum
um Ása og Langadal, en nú er
kominn sæmilegur bílvegur
heim á öll byiggð ból þar. Stein-
grímur var mjög vinsæll meðal
verkamanna sinna, enda lét hann
sér annt um þeirra hag og var
nærgætinn stjórnandi.
Steingrímur kvæntist 14. júlí
1918 Helgu, dóttur Jóns smiðs
og bónda á Gunnfríðarstöðum,
Hróbjartssonar, og konu hans
Önnu, Einarsdóttur, sem kennd-
ur var við Bólu, Andréssonar.
Þeim Steingrími varð 14 barna
auðið og lifa þar af 12, duglegt
fólk og myndarlegt, eins og kyn
stendur til á báðar hliðar. Öll
eru börn þessi nú uppkömin,
yngsti sonurinn við háskólanám.
Frú Helga er hin mesta merkis-
kona, mjög vel viti borin og hag-
mælt vel, eins Og margir af af-
komendum Bólu-Einars, föst í
skapi, einbeitt og tryggðatröll.
Þau hjónin hafa verið mjög sam-
hent í blíðu og stríðu og veitti
sízt af við að koma upp svo stór-
um barnahópi á erfiðum tímum,
áður en þjóðfélagið tók að létta
þar nokkuð undir. Starfsskilyrði
Steingríms sem skólastjóra voru
þá hin hraklegustu, laun _lág og
óviðunandi þrengsli í skólahús-
inu. En frú Helga er ein af þeim
konum, sem kunna að brýna
xnlenn sína, þegar þess gerist þörf,
en ekki síður að búa um sár
þeirra og græða, þegar af hólmi
er komið, og eru fáir jafningjar
hennar í þeim efnum.
Þau hjónin eignuðust fæðing-
arstað frú Helgu, Gunnfríðar-
staði, ög gáfu þá jörð nýlega til
skógræktar, en hún liggur vel
við til þess.
Margir, einkum Húnvetningar,
myndu kjósa að heimsækja Stein
grím Davíðsson á þessum merkis-
degi hans, en ekki munu þeir
hitta þau hjón heima. Eg vil fyr-
ir mitt leyti Og fjölskyldu minnar
færa þeim þakkir fyrir langa og
góða samfylgd, um leið og eg
óska þeim og öllum þeirra mörgu
afkomendum allra heilla. Stein-
grími sér í lagi vil eg óska þess,
að hérað okkar megi um ófyrir-
sjáanlegan tíma njóta góðs af
báðum meginþáttum ævistarfs
hans, þeim öðrum að gera færan
veg milli frænda og vina, og þeim
hinum að beina æskulýð á þá
*leið, sem liggur til þroska og
manndóms. Þau urðu örlög hans
að verða bæði brautryðjandi og
leiðsögumaður. Njóti þeir gagns
af, sem starf hans var helgað,
en hann sjálfur heiðurs.
P. V. G. Kolka.
Ms. Skjaldbreið
-__________ w
&KIPAUTGCRB RÍKISINS
fer til Ólafsvíkur, Grundafjarð-
ar, Stykkishólms og Flateyjar
hinn 21. þ. m. — Vörumóttaka
í dag og árdegis á morgun.
Félagslíi
Skíðadeild KR
Aðalfundur deildarinnar verð-
ur haldinn í félagsheimilinu
fimmtud. 23. þ. m- kl. 8.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
VINNA
Stúlka
yfir 18 ára óskast til hjálpar
móður. Nýtízku heimili. Önnur
hjálp fyrir hendi. Einhver ensku-
kunnátta nauðsynleg. Sendið
svar ásamt mynd til Mrs-
Edwina Kent, Fulwith Road,
Harrogate, England.
Afgreiðslustúlka oskast
Stúlka vön afgreiðslustöríum, getur fengið atvinnu
í sérverzlun strax. — Upplýsingar í síma 11788, eftir
kl. 6 í kvöld.
Heildverzlun
óskar eftir að festa kaup á skrifstofuhús-
næði 3—4 herbergi, helzt með lagerplássi
á sama stað.
Tilboð sendist afgreiðslu Morgunblaðs-
ins fyrir 25. nóvember n.k. merkt:
„Heildverzlun — 186“.
Stúlkur
Ódýrar hettukápur Verð aðeins kr. 790,—
Fallegir poplinkiólar. Verð aðeins kr. 495.—
Verzlunin
(Miklatorgi við hliðina á ísborg)
Sendisveinn
óskast hálfan eða allan daginn.
Bókaútgáfan HELGAFELL
Veghúsastíg 7. — Sími 16837
NÝ SENDING
Kvenkjólar
mikið úrval
Skólavörðustíg 17 — Sími 12990
í*ALL S. PALSSON
Hæstaréttarlögmaður
Rankastræti 7. — Sími 24-20(1
EGGERT CLAESSEN og
GUSTAV A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmen...
Þórshamri. — Sími 11171.
Magnús Thorlacius
næstaréttarlögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Aðalstræti 9. — Síroi 1-1875.
GISLAVED
H jólbarðar
FYRIRIJGGJANDI í
EFTIRTÖLDUM
STÆRÐUM:
Venjuleg dekk:
640x13
670x13
670x15 hvít
Nælon-dekk:
750x14
Snjódekk:
640x13
590x14
750x14
560x15
670x15
Aðalsföðin h.t.
KEFLAVIK
Benzínafgreiðslan
SViálverka- og lisimunauppboð
verður haldið í Sjálfstæðishúsinu n.k. miðvikudag 22. nóv. kl. 5 e.h. —
Listaverkin verða til sýnis á þriðjudag og miðvikudag. Enn er hægt
að taka á móti málverkum og munum á þetta uppbóð.
Listmunauppboð Sigurðar Benediktssonar, Austurstræti 12, sími 13715