Morgunblaðið - 21.11.1961, Qupperneq 2
2
MORGUNTJLAÐIÐ
Þríðjudagur 21. nóv. 1961
■ - -
• ís’lftd ' I
Nelson Rockefeller ríkisstjóri
Tengjast hlutlausu ríkin
Efnahagsbandalaginu?
Svíþjóð, Sviss og Austnrríki óska við-
ræðna um moguleg tensl við bandalagið
Genf, 20. nóv. (NTB-AFP)
TILKYNNT var á ráðherra-
fundi aðildarríkja Fríverzl-
unarsvæðisins, sem hófst í
Genf í dag, að Svíþjóð, Sviss
og Austurríki hafi ákveðið
að óska viðræðna um mögu-
leg tengsl við Efnahagbanda-
lag Evrópu. Munu löndin,
Fjölskylduharmleikur
Rockefeller ríkisstjóri og k'ona hans skilin
að skiptum eftir 31 ars hjónaband - og
sonur þeirra týndur í Nýju Guineu
Washington, 20. nóv.
NELSON Rockefeller, ríkis-
stjóri í New York fy-lki o>g
kona hans, fædd Mary Todd
Hunter Clark hafa ákveðið að
skilja að skiptum — en þau
hafa verið gift í 31 ár. Hjónin
eiga fimm uppkomin börn og
í dag kom Nelson Rockefeller
til borgarinnar Hollandia í
NÝju Guineu til þess að leita
eins sonar síns, Michael sem
óttast er að hafi farizt þar í
leiðangri.
Pilturinn sem er 23 ára, var
í leiðangri með mannfræðingn
um R. W. Wassing. Þeir höfðu
verið um borð í litluim báti,
sem hvolfdi undan strönd
Nýju Guineu og barst Michael
á brott með straumnum frá
félaga sínum Wassing, er bjarg
aðist aÆ fleka um 30 km frá
ströndinni.
Mioheal fór þennan leiðang
ur meðal annars til þess að
tafka upp á státþráð söngrva og
stríðshróp hinna innfæddu
íbúa eyjarinnar.
★
Tilkynningin um skilnað
Rockefeller-hjónanna hefur
vakið mikla athygli, ekki
hvað sízt á stjómmálasvið-
inu. Líkur hafa þótt fyrir^||
því, að Rockefeller yrði fram^V^
bjóðandi repúblikana tilH
næsta forsetakjörs í Banda-
ríkjunum, en þess má vænta
að skilnaðurinn hafi nú þau
áhrif, að hann verði að
vikja fyrri öðrum — þá e. t.
v. Nixon, fyrmm varaforseta.
Hinisvegar hefur lögfræðing
ur Rockefellers látið hafa eft®
ir sér, aff skilnaðurinn muni
í engu hafa þau áhrif á»
framboð Rockefellers við
kosningar ríkisstjóra New
York-fylkis næsta ár. Úrslit
þeirra kosninga hafa geysi-
mikla þýðingu varðandi mögu-
lega kosningu hans sem
frambjóðanda til forseta-
kjörsins.
hvert fyrir sig, fara þessa á
Ieit samkvæmt 238. grein
Rómarsamningsins.
Á þessum fundi í Genf verður
tekin ákvörðun um það, hver
skuli vera afstaða aðildarríkja
Fríverzlunarsvæðisins til Efna-
hagsbandalagsins með tilliti til
umsókna Bretlands og Danmerk
ur um fulla aðild og Nöregs —
sem og fyrrgreindra hlutlausra
ríkja —■ um takmarkaða aðild.
Verður rætt sérstaklega um
niðurstöður þeirra viðræðna,
sem hlutlausu ríkin hafa átt sín
í milli um það, hvort aðild
þeirra að Efnahagsbandalaginu
sé samrýmanleg hlutleysisstefn-
unni í utanríkismálum.
í forsæti ráðherrafundarins er
nú Jens Otto Krag, en hann
mun gera grein fyrir afstöðu
Danmerkur.
Loks verður rætt um hvemig
samræmdar verði tollalækkanir
Fríverzlunarsvæðísins og Efna-
hagsbandalagsins, en fyrirhugað
er að aðildarríki hins síðar-
nefnda lækki aðflutningstolla
sina um 10—20% 1. janúar 1962.
Ofbeldisaðgerðir
Kínverja
Nýju Deihi, 20. nóv.
NEHRU, forsætisráðherra Ind-
lands, sem nú er kominn heim
skýrði indverska þinginu frá því
í morgun, að Kinverjar hefðu enn
beitt ofbeldisaðgerðum á landa-
mærum landanna. Sagði hann rik
isstjórnina hafa gert nauðsynleg-
ar ráðstafamr, en greindi ekki
nánar hverjar pær væru.
Adenauerkominn
til Washington
Frú Rockefeller
skilnaður eftir 31 ár
Kaupfélagstjórafundi
lokið
KÁUPFÉLAGSSTJÓRAFUND-
INUM, sem hófst sl. fimmtudag,
var haldið áfram á föstudag og
laugardag í Sambandshúsinu við
Sölvhólsgötu.
Nefndarfundir voru fyrir há-
degi en almennar umræður síð-
degis- Á fundinum á laugardag
lögðu nefndir fram álit sín og til-
lögur.
Um fjármál var lögð áherzla á
nauðsyn þess að samvinnufélögin
yrðu sem fyrst sjálfum sér nóg
um fjármagn til verzlunar og
framkvæmda, og á jafnréttis-
aðstöðu landbúnaðarins við ann-
an höfuðatvinnuveg þjóðarinnar,
sjávarútveg, hvað snertir lánsfé
og lánskjör.
Fundurinn lýsti ánægju sinni
yfir því hve Sjávarafurðadeild
hefi tekizt að hraða greiðslum
fyrir útfluttar fiskafurðir og
1 ^ sL'j
Walþingis
FUNDIR eru í efri og neðri deild
Alþingis kl. 1:30 í dag:
Efri deild: — Orlof ,frv. — 1. umr.
Neðri deild: — 1. Iðnaðarmálastofn-
un íslands, frv. — 2. umr. — 2. Skemmt
anaskattsviðauki 1962, frv. — 3. umr.
— 3. Byggingar íbúðarhúsa 1 kaup-
stöðum og kauptúnum, frv. — 1. umr.
— 4. Almannatryggingar, frv. — 1.
umr. — 5. Gatnagerð bæjar- og sveit-
arfélaga, frv. — 1. umr.
lagði áherzlu á að haldið yrði á-
fram á sömu braut.
Ýtarleg ályktun var samþykkt
um aðstöðu kaupfélaganna til
útvegunnar vörubirgða og dreif-
ingar um landið. sem leitt gæti
til meiri viðskiptahraða og hag-
kvæmni.
í ályktun um sölu véla og
áhalda var áherzla lögð á bætta
þjónustu í útvegun varahluta og
nauðsyn á viðgerðaverkstæðum
og fræðslu um vélar og áhöld.
Um fræðslumál var gerð sam-
þykkt um nauðsyn fjölbreyttrar
fræðslustarfsemi og kynningu á
sögu kaupfélaganna og S Í.S. svo
og á allri starfsemi samvinnu-
félaganna í landinu.
Fundinum lauk kl. 16 á laugar-
dag. Um kvöldið voru kaupfélags
stjórarnir og konur þeirra gestir
Sambandsins á árshátíð á Hótel
Borg. Var þar mikið fjölmenni.
Þar var það til nýmæla, að for-
stjóri S-Í.S., Erlendur Einarsson,
afhenti þeim starfsmönnum Sam
bandsins, sem unnið hafa í þjón-
ustu þess í 25 ár og lengur merki
S.Í.S. úr gulli og silfri ásamt
heiðursskjali og heiðurslaunum,
sem vott þakklætis og virðingar.
Gullmerki fengu þeir, sem unnið
höfðu í 40 ár eða lengur, silfur-
merki þeir, sem unnið höfðu í
2ó til 40 ár. Verða slíkar viður-
kenningar veittar árlega fram-
vegis, þeim. sem náð hafa 25 og
40 ára starfsaldri hjá S.Í S.
Fréttatilkynning frá S.Í.S.
„HreppaskiP4
Cuðmundar á
laugardag
ÞEIf, eru margir sem í sumar
haf i íerðast með Guðmundi Jón-
assyni, fjaiiabílstjóra, á jökla, í
öræfin og um sveitir landsins, en
hann hefur haft 6—7 stöðugar
bifreiðir. Nú á laugardag verða
hin árlegu „hreppaskil“, þeirra
sem með honum hafa ferðast,
sem kailað er. Eftir að sumarferð
urn er lokið, venjulega 1 nóvem-
bermánuði, komið saman í Skíða-
skálanum i Hveradölum, borðað
saman og sýndar myndir úr ferð
unum. Einnig segja þekktir ferða-
menn þá gjarnan frá. „Hreppa-
skilin“ hans Guðmundar hafa
æfinlega vénð mjög vel sótt, fólk
hefur r.,jög gaman af að sjá
myndir úr s’íkum ferðum og ann
arra og koma saman.
I þetta sinn er ætlunin að fara
upp eftir kl. 6 á laugardag og
þurfa menn að tilkynna þátttöku
sína í benzínafgreiðslu BSR.
Eldur í Dráttar-
braut Akraness
Akranesi, 20. nóv.
KLUKKAN rúmlega hálfþrjú í
dag e.h. kom upp eldur í Dráttar-
braut Akraness. Slökkviliðið var
kallað á vettvang, og tókst því
snarlega að slökkva. Kviknað
hafði í vélbátnum Fram, — í
lúkarnum. Starfsmenn við bát-
inn voru að skerpa á katlinum á
kabyssunni. — Oddur
Washington, 20. nóv. (NTB-AP)
VIÐRÆÐUR þeirra Kenne-
dys, Bandaríkjaforseta, og
Adenauers, kanzlara Vestur-
Þýzkalands, hófust í kvöld.
— Meginumræðuefni þeirra
verða Þýzkalandsmálin og
varnir vestrænna ríkja.
Adenauer kom til Washington
í gær og sagði þá við blaða-
menn, að hann væri hliðhollur
þeirri stefnu, sem Bandaríkja-
menn teldu líklegasta til lausn-
ar Berlínardeilunni. Er við-
ræðna þeirra leiðtoganna beðið
með eftirvæntingu, því að und-
anfarið hefur það verið almenn
skoðun stjórnmálafréttaritara að
þá Adenauer og Kennedy greindi
allmikið á í Þýzkalandsmál-
unum — en hinn síðarnefndi
ætlaði aftur á móti að reyna að
telja Adenauer á að taka upp
sveigjanlegri stefnu en fyrr.
Áður en viðræðurnar hófust í
kvöld áttu báðir langa fundi
hvor með sínum ráðgjöfum. —
Talið er víst, að fari svo, að
Kennedy og Adenauer komizt að
samkomulagi um sameiginlega
stefnu í Þýzkalandsmálunum
muni það hafa mikil áhrif á de
Gaulle, sem til þessa hefur lýst
sig andvígan því að Vesturveld-
in hefðji viðræður við Sovét-
ríkin um Berlínarmálið.
— Berl'm
Framh. af bls. 1.
komu í heimsókn til Berlínar —•
er austur-pýzkur hermaður kast-
aði að honum steini.
Fulltrúar Vesturveldanna komu
saman til fundar í dag og ræddu
hinar nýju aðgerðir Austur-
Þjóðverja, en ekki hefur verið
ákveðið enn bvort mótmæli skuli
send. Þykir ekki fullljóst hvort
með þessu er aðeins verið að
styrkja fange’sismúrinn vegna
íbúanna eða hvort tilgangurinn
sé annars eðlis.
/'NA/Shnútor / S/SOhnútor Snjókomo f OSt V Strúrir K Þrumur 1S KutíaskH Hiiaskif
H Hmt 1
L íÍ!J
LÆGÐIN yfir Grænlandi var
á hreyfingu norðaustur í gær
og var komið skúraloft til
vesturstrandarinnar en lítið
farið að kólna. Geysimikil
rigning fylgdi sums staðar
skilunum, sem lágu yfir land-
inu, og mældust 60 milli-
metrar 1 fyrrinótt í Kvígindis-
dal, en þess er skemmst að
minnast, að þar rigndi meira
en 100 mm á einum sólar-
hring. Verður nóvember sýni-
lega mikill úrkomumánuður
að þessu sinni. Þessu raka
lofti fylgdu mikil hlýindi- Var
þannig 11 stiga hiti á Akur-
eyri klukkan 14.
Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi
SV-land til Vestfjarða og
miðin: SV átt, sums staðar
allhvasst fram eftir nóttu,
skúrir.
Norðurland og miðin: SV
átt, sums staðar allhvasst
fram eftir nóttu, skúrir vest-
an til.
NA-land, Austfirðir og mið-
in: SV og vestan átt, sums
staðar stinningskaldi, létt-
skýjað á morgun.
SA-land og miðin: SV átt,
rigning og sums staðar all-
hvasst í nótt, vestan stinnings
kaldi og skúrir vestan til á
morgun-