Morgunblaðið - 21.11.1961, Side 17
Þriðjudagur 21. nóv. 1961
MORGVNBLÁÐIÐ
17
Danilíus Sigur&sson
Skipstjóri — Minningarorð
ÐANIL.IUS Sigurðsson skipstjóri
á Hellissandi lézt í Landspítal-
anum í Reykjavík 24. október s.l.
eftir þunga sjúkdómslegu. Kveðju
athöfn flutt af séra Arelíusi Níels
fiyni fór fram föstud. 3. þ.m. í Foss
vogskapellunni — en séra Magn-
ús Guðmundsson sóknarprestur í
Olafsvík jarðsöng hann að
Ingjaldshóli þriðjudaginn 7. þ.m.
að viðstöddu fjölmenni. Hjörtur
Cyrusson ílutti og kveðjuorð til
frænda síns í kirkjunni á Ingjalds
ihóli.
Danilíus var fæddur að Ond-
verðarnesi a Snæfellsnesi 14. júní
1895. Foreldrar hans voru þau
Guðrún Cyrusdóttir ljósmóðir og
Sigurður Gilsson, sem voru
mikilsmetin á Snæfellsnesi.
Tveggja ára flutti Danilíus með
foreldrum sínum á Hellissand, þar
sem hann dvaldi allan aldur sinn,
nema fá ár, sem hann dvaldi
imeð foreldrum sínum í Olafsvík.
Danilíus var fæddur sjómaður og
bar það nafn með prýði. Tvítug-
ur að aldri varð hann formaður
á Hellissandi og var síðan ýmist
skipstjóri á handfæraskipum eða
formaður á batum, sem gengu frá
Hellissandi. A fyrstu vetrarvertíð
sinni varð hcnn fyrir því láni að
bjarga stéttarbróður sínum Pétri
Guðmundssyni frá Brennu og
skipshöfn hsns, sem barst á úti
á miðum í róðri frá Hellissandi.
Danilíus var þá tvítugur að aldri,
fjórir skipverjar hans yngri en
hann, én fimmti háseti hans
Hjörtur Cyrusson rúmlega tví-
tugur. Þessí björgun þótti vel
og karlmannlega af hendi leyst
af óþroskuðum og lítt reyndum
sjómönnum — og þótti spá góðu
um hæfileika og giftu í ævistarfi
Danilíusar. eins og einnig reynd-
ist. Eftir þvi sem kunnugir hafa
tjáð mér var Danilíus sérstaklega
aðgætinn og öruggur stjórnari,
enda kom ekkert óhapp fyrir
hann á sjo þau rúm 40 ár, sem
hann gengdi skipstjórn. Hann var
mjög góður aflamaður.
Danilíus var kvæntur Svein-
dísi Hansdótiur frá Einarslóni og
iifir hún mann sinn. Reyndist hún
manni sínum í 47 ára hjónabandi
ágætur lífsförunautur í hví-
vetna, enda hjónaband þeirra far
sælt. Eignuðust þau hjónin 8
börn, sem öil eru á lífi. Þau eru:
Sigurjóna, búsett á Hellissandi,
gift Kristjóni Guðmundssyni bifr.
stjóra, Hans búsettur í Keflavík,
kvæntur Sólveigu Guðmundsdótt
ur frá Olaísvík, Vigfúsína, bú-
sett í Reykjavík, gift Baldri
Karlssyni b'freiðastj., Cyrus verk
stjóri, búsettur á Hellissandi,
kvæntur Guðríði Þorkelsdóttur,
Pálmi yfirþjónn til heimilis í
Reykjavík, Guðrún, búsett á Hell
issandi, girt Vilhjálmi Sigurjóns-
syni bifr.stj., Sjöfn, búsett í
Reykjavík, gift Hermanni Ragn-
arssyni frá Egilsstöðum. Einnig
ólu þau hjónin upp dótturson
sinn, sem ber fullt nafn afa síns,
Danilíus Sjgurðsson.
Yms opinber störf hafði Dani-
iíus með hóndum. Atti hann um
langt skeið sæti í sóknarnefnd.
Gegndi nann hreppsnefndar-
mannsstörfum í Neshrepp utan
Ennis og var skipaður hafnsögu-
maður í Rifi. Varð hann oft að
ieiðbeina skipum til hafnar í Ol-
afsvik Og til Grundarfjarðar,
þegar þess þurfti með. Þessi störf
rækti Daniiíus af skyldurækni,
eins og önnur þau störf, sem hon-
um voru falin.
Góður drengur óg dugandi er
genginn — og vissulega mun
Danilíusar minnst, er saga Nes-
hrepps utan Ennis verður skráð
— og hans getið þar, sem eins
þeirra manna, sem átti ríkan þátt
í að skapa þetta byggðarlag með
gifturíku starfi sínu að flytja
björg í bú stórrar fjölskyldu
sinnar og þeirra mörgu skips-
hafna, sem með honum störfuðu
í yfir 40 ar.
Eg vott hans ágætu eiginkonu,
börnum þeirra og öðru venzla-
fóÍKÍ samúð míns.
Biessuð sé minning hans.
Sig. Agústsson.
F. 14 júní 1895 — d. 24. okt. 1961.
Hinsta kveðja frá dóttur.
Þitt er hinzta kallið komið,
kæri faðir — hér á jörð.
Æviskeið a enda runnið.
Er svo saga lífsins gjörð.
Þú áður frjáls um sæinn sigldir,
yjómennskan var hálft þitt líf.
Aflamaður vinsæll varztu
og veittir mörgum stoð og hlíf.
Svo óvænt dauðinn að þér sótti
enn þótt væn dagur ljós.
1 minningu skal lengi lifa
lífs mins fyrsta morgunrós.
Þá sjúkdómsbölið orku eyddi,
undra skjótt þú hneigst á beð.
I þinni lausn frá líkamsþrautum
likn og huggun fé ég séð.
Þá alla, sem þér ástúð sýndu
og umhyggju í þrautinni,
bið ég góðan guð að blessa,
af gæsku sinni og ríkdómi.
Til æskudaga önd mín leitar,
til ails þess bezta, sem ég fann
og ungri snót má yndi veita
eignaðist ég í föðurrann.
Eg árin fimm var einkabarnið.
Astrikið ei fremur þraut
systkini míu sjö þó yrðu,
sæl og glöð ég bernsku naut.
Það mærin s.má í muna geymdi.
Eg man þig, elsku pabbi minn —
Oft vermdir þú kalda vanga
og lófa
og vafðir mig í faðminn þinn.
Langdvölum þótt sæktir sjóinn
um síðir kon.stu aftur heim
til mömmu og okkur sagðir sögur.
Sízt við gleymdum fundum þeim.
Og enn þú leggur út á djúpið
alheimsins um víða dröfn.
Drottinn við þinn
stjórnvöl styður
að stýra fleyi í lífsins höfn.
Þakkarkveðjan þér svo fylgi
þúsundföld af ströndum tveim
Uns við njótum endurfunda
á æðra sviði ijóssins heim.
Sigurlnug Sigurðurdóttir
Minning
SIGURLAUG Sigurðardóttir,
fædd 9. júlí, 1875, dáin 12. nóv.
1961. I dag fer fram að Eyvindar-
hólum, Austur-Eyjafjöllum jarð-
arför Sigurlaugar Sigurðardóttur,
fyrrum húsfreyju að Hrútafelli í
sömu sveit. Sigurlaug var fædd
að Hlíð ifinn 9. júlí 1875, dóttir
hjónanna Sigurðar Jónssonar
bónua þar og konu hans Guð-
laugár Jónsdóttur. Hún ólst upp
í foreldrahúsum ásamt 8 stystkin
um, og dvaldist með þeim þar til
hún hinn 19. nóvember 1904 gift
ist írænda sínum Tómasi Tómas-
syni frá Hrútafelli. Hófu þau síð-
an búskap Og bjuggu þar nærfellt
30 ár. Þeim hjónum varð 8 barna
auðið Og eru 5 þeirra á lífi.
Hinn 15. febrúar 1933 missti
Sigurlaug mann sinn. Hún bjó
þó aíram á Hrútafelli til ársins
1936, en þá fluttist hún hingað
til Reykjavíkur með börnum sín-
um. Eftir að þau stofnuðu sín
eigin heimili var hún áfram á
heimili SigríÖar dóttur sinnar til
dauðadags.
Eg kynmst Sigurlaugu fyrst
um 1940, og tókst þá þegar með
okkur sú vinátta, sem hélzt ætíð
síðan, og aldrei bar skugga á.
Sigurlaug var fríð kona, iiðlega
vaxin og kvik á fæti á yngri ár-
um. Hún var vel verki farin og
vandvirk með afbrigðum. Enn
munu margir minnast þess hversu
gott var að ieita til hennar, því
hún var ein af þeim, sem alltaf
hafði tíma til að rétta öðrum
hjálparhönd. Hún var greind kona
dul í skapi og hlédræg, en hlýtt,
aðlaðandi viðmót, gestrisni og
fórnfýsi gerði það að verkum, að
hún eignaðist marga góða vini,
sem nú munu minnast hennar
með þakklæti og virðingu. Sig-
urlaug skildi óskir og viðhorf
yngstu kynslóðarinnar mörgum
óðrum betur. Þótt hún væri kröfu
hörð við sjálfa sig, fór hún mild-
um höndum um yfirsjónir ann-
arra og var óþreytandi að halda
hHíð'arskildi yfir þeim, sem
minmmáttur voru. Hún átti allt-
af ráð við hverjum vanda þeirra
yngri, og ru.fði alltaf lag á því
að hugga og gleðja- breyta
áhyggjusvipnum í sólskinsbros.
En líf Sigurlaugar var ekki
ávallt dans á rósum. Tengdafor-
eldrar hennar, er bæði voru til
heimilis hjá henni, létust með
fárra daga millibili og voru lögð
sömu gröf. Arið 1912 gistir sorg-
in heimili hennar að -*nýju. Að
þessu sinni eru það þrjú af börn-
um hennar, er kveðja þetta líf
á einni og sömu viku. A bezta
aldri kennir hún síðan sjúkleika,
er þjáir hana um árabil og veld-
ur því, að hún gengur bækluð
upp frá þvi. Hausið 1932 tekur
maður hennar kvalafullan sjúk-
dóm, er leiðir hann til dauða á
nokkrum mánuðum. öllu þessu
tekur Siguriaug með því þreki
og rósemi, sem auðkenndi haná
alla tíð.
En: Skært geta leiftrin logað.
Liðin og myrkvuð ár
birtast i blárri móðu,
sem bros í gegn um tár.
Bak við heilaga harma
er himmninn alltaf blár.
segir eitt af okkar beztu skáld-
um, og ég iield mér sé óhætt að
segja, að Sigurlaug hafi hafi átt
góða ellidaga. Með henni og
börnum hennar var mjög kært,
og þar sem hún var, áttu þau Og
fjölskyldur þeirra ætío sitt annað
heimili. Einna kærast mun þó
hafa verið með henni og dóttur
hennar Sigríði, sem öllum öðrum
betur skyldi óskir hennar og þarf
ir og annaðist hana af aðdáan-
legn alúð og nákveæmni.
Fyrir nokkrum árum kenndi
hún fyrst þess sjúkdóms, er að
lokum varð hennar banamein.
Nú þegar hún er horfin er svo
ótai margs að minnast, sem þó
verður ekki rakið hér. Sæti
hennar er autt, Og verður vand-
fyllt. Eg kveð þig Sigurlaug Og
mun ætíð minnast því sem einn-
ar þeirra beztu konu, sem Island
hefir alið,
Far þú í friði.
Friður Guðs þig blessi, hafðu
þökk fyrir allt og allt.
Vinkona.
Fasteignasalar!
Bilasalar!
Óska eftir vinnu hjá ykkur
í 2—3 vikur í des. og eða jan.
Tilboð merkt. „Lagastúdent
— 7541“ sendist Mbl. fyrir 1.
defi-
I. O. G. T.
Ungtemplarafélagið Hrönn
heldur fund í kvöld kl. 8,30-
Ýmislegt til skemmtunar. Dansað
eftir fund. Hljómsveit Ó. M. leik-
ur. — Stjórnin
Fundur verður í
St. Georgs Gildi Reykjavíkur
samtökum eldri skáta og velunnara skátahreyfingar-
innar — þriöjudaginn 21. þ.m. ki. 21 í Skátaheimil-
inu við Snoriabraut (litla salnum). — Fundarefni:
Inntaka nýrra féiaga. Ýmiss féiagsmál, kvikmynd.
Félagsmeðlimir, eldri skátar og aðrir áhugamenn um
skátamál, mætið stundvíslega. — Stjórnin.
Byrja aftur að kenna
Frönzku — þýzku — ensku
Sérstök áherzla lögð a talæfingar. Undirbúningur
undir sérhveit próf.
Sími 34404 — Dr Melitta Urbanic.
MÁLVERKAUPPBOÐ í Sjálfstæðishúsinu sýnt í dag. — Selt á morgun.
Verk eftir: Kjarval, Árgrím Jónsson, Jón Stefánsson, Guðmund Einarsson,
Þorvald Skiilason, Jóhann Briem, Þórarinn B. Þorláksson, Svein Þórarins-
son, Magnús Jónsson prófessor Einar G. Baldvinsson og Jóhannes Geir
Jónsson. — Auk þess margt listmuna.— Opið frá kl. 2—6 í dag og 10—4 á
morgun. Listmunauppboð Sigurðar Benediktssonar
Vörður — Hvöt — Heimdallur
Öðinn
Spilakvöld
halda Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík
í Sjálfstæðishúsinu í kvöld 21. nóv. kl. 20,30.
Húsið opnað kl. 20.00 — Lokað kl. 20,30.
1. Spiluð félagsvist
2. Ávarp: Már Elísson, hagfræðingur
3. Spilaverðlaun afhent
4. Dregið í happdrættinu
5. Kvikmyndasýning
Skemmtinefndin.