Morgunblaðið - 23.11.1961, Side 10
10
MORCVNVLAÐIB
Fimmtudagur 23. nór. 1961*
i
Stokkseyri. — T>að er ágætt
að halda sambandi við kenn-
arana, sagði húri. Eg er að
íorvitnast um frammistöðu
uppeldissorar míns; mín börn
fimm að tölu eru öll komin
a legg. Það er gaman að því,
að kennari hans er sami kenn-
arinn og kenndi föður hans á
Stokkseyri, og hlakka ég til
að heilsa upp á hann.
Við hlið hennar stóð dönsk
kona, Guðrun Frederiksen.
Hún hefur verið búsett á Is-
landi í fimmtán ár og á fimm
börn, og þar af eru þrjú í
Miðbæjarbarnaskólanum. Hún
kvað þetta fyrirkomulag, að
kennarinn og foreldrarnir
ræddust við um börnin, tíðk-
ast einnig í sínu heimalandi
og gæfist mjög vel.
Fanney Long: — Sambandið
milli heimila og skóla er ot
lítið.
að vinnubækur barnanna
liggja frammi, og geta for-
eldrarnir skoðað þær og bor-
ið þær saman við bækur ann-
arra barna í bekknum).
§ Gott að tala við
foreldrana
Að siðustu ræddum við
stundarkorn við einn kennar-
ann, Hjalta Jónasson. Hann
sagði, að yfirleitt væri gott
að tala við foreldrana og tækju
þeir það ekki óstinnt upp, þó
eitthvað væri fundið að börn-
unum. Venjulega væru það
gallar, sem foreldrarnir hefðu
þegar fundið, því framkoma
barna væri sú sama á heim-
ilinu og í skólanum. — En
verst þykir rnér, sagði Hjalti
að þeir foreldrar, sem við
þyrftum helzt að tala við, láta
sjaldnast sjá sig, af einhverj-
um ástæðum. Taka ber með í
reikninginn, að margar hús-
mæður eiga ekki heimangengt
á þessum tíma og feðurnir að
vinna — en foreldradagur er
nú ekki nema einu sinni á ári,
og þeir sem hafa áhuga á að
fylgjast með námi barna sinna
ættu að geta séð af þessari
st.und.
♦
Okkur var ekki Iengur til
setunnar boðið í kennslustof-
unni, því úti á ganginum biðu
foreldrar eftir viðtali við
kennarann. Sumar konurnar
höfðu tekið tal saman, meðan
þær biðu, og voru orðnar mál-
kunnugar. Aðrar voru þögul-
ar, sumar kviðnar, nokkrar ó-
þolinmóðar og fannst viðtölin
óþarflega löng o. s. frv. Fá-
einum karlmönnum sást
voru í miklum meirihluta,
bregða íyrir, en konurnar
sem eðliiegt er. Og erindi allra
var hið sama — að fylgjast
með frammistöðu barna sinna
í skólanum. — Hg.
• Móðirin brosti
En þó þessi dagur væri helg
aður foreldrunum, sáum við
nokkrum börnum bregða fyr-
ir við og við. Sum voru í fylgd
með foreldrunum, aðrir komu
í forvitmsskyni. — Er mamma
þín að tala við kennarann?
spurðum við einn, Gísla Garð-
arsson að nafni, sem er í 11
ára E. — Hún er farin, sagði
hann, búin að skoðá krotið. —
Hvernig var hún á svipinn,
þegar hún kom út? — Apægð,
sýndist mér, hún var brosandi.
(Þess má geta til skýringar,
„Foreldrarnir, sem viö þyrftum
helzt að tala við, koma sjaldnast"
I GÆR var hlutunum snúið
við í Miðbæjarbarnaskólanum.
Börnin fengu frí, en foreldr-
arnir streymdu í skólann til
fundar við kennarana. Þar var
svonefndur foreldradagur. —
Miðbæjarbarnaskólinn var
fyrstur skóla til að efna til
foreldradags og hafa flestir
barnaskólar í bænum fylgt
hans foraæmi.
Þegar biaðamaður og ljós-
myndan Morgunblaðsins
komu i skólann laust fyrir
ellefu um morguninn, voru
gangarmr þéttsetnir fullorðnu
fólki, mr.stmegnis konum, sem
biðu eftir að fá viðtal við
Kennarana,
Og i emni kennslustofunni
urðum við áheyrendur að sam
trli mil!i foreldra og kenn-
ara.
• Dálitið masgefin
— Það er allt í ágætislagi
með telpuna, sagði kennarinn,
það eina sem að henni má
finna er að hún er dálítið
masgefm, en það er víst kven-
legur eiginleiki, bætti hann
við brosandi. Þetta er kurteis
og goður krakki og ég hugsa
að hún sé ekki í hættu í vor.
Reikningurinn og islenzkan
eru einu fallfögin og hún
stendur sig vel í reikningnum.
— Svo langar mig til að
minnast á það, að börnin eiga
að hafa með sér nesti í skól-
ann. Þau verða svöng af að
sitja svona, og ef þau fá sér
ekki bita í löngu frímínútun-
um, veröur siöasti tíminn þeim
ónýtur.
• Þá ei eitthvað í ólagi
A ganginum tókum við tali
nokkrar konur, sem biðu eft-
ir að röðin kæmi að þeim.
Fanney Long sagói, að sér
fyndist sambandið milli skól-
anna og htimilanna of lítið, og
væri þvi kærkomið tækifæri
að fá að ræða ofurlitla stund
við kennara barna sinna einu
sinni á ári. Frú Fanney kvaðst
eiga einn son hér í skólan-
um sem væri í 2. bekk C. —
Hvort það væri ekki leiðin-
legt að heyra að börnin stæðu
sig illa? — Nei, nei, alls ekki
svaraði frúin, þá veit maður
að eitthvað er i ólagi og reyn-
ir að bæta úr þvi.
A efri g&nginum hittum við
Aðalheiði Eyjólfsdóttur frá
— Ég tolli ekki á filmu, sagði Aðalheiður Eyjólfsdóttir
frá Stokkseyri (t.v.), þegar ljósmyndarinn bjó sig undir
að taka af henni mynd. Við hlið hennar stendur Guðrún
Frederiksen, ásamt syni sínum.
(Ljósm.
tók
Hjalti Jónasson, kennari, gefur upplýsingar um námsfranr-mistöðu barns.
Sveinn Þormóðsson).
Atvinnurekstur án verkstjóra
GREIN sú sem hér birtist er
skrifuð til umhugsunar fyrir
þá menn er nú sitja og ráðsk
ast um hve langt skuli geng-
ið til móts við kröfur verk-
stjóra um bætt kjör. Og til
þess að kynna almenningi
þýðingu verkstjóranis fyrir
Þjóðarbúið.
Atvinnurekstur án verkstjóra? 1
TIL skamms tíma hefir það viljað
brenna við að í orðinu verkstjóri
fælist sú merking að þar væri um
að ræða mann sem hefði það gott,
mann sem hefði komizt í þá að-
stöðu að geta helst setið á stól, og
látið aðra vinna störfin. Og eftir
þessarri hugsun virðast atvinnu-
rekendur að miklum meirihluta
starfa þegar þeir sín á milli og
í viðræðum við fulltrúa frá sam-
tökum Verkstjóra ræða um og
ákveða laun verkstjórans. I þess-
arri hugsun felst mikill misskiln-
ingur: sem þarf að breytast, ef
ekki á illa aö" fara í framtíðinni.
Við skuium nú athuga þetta
mál lítillega og sjá hvað felst í
orðinu Verkstjóri. Og athuga
hvað er stari hans og hver er
ábyrgð hans. Verkstjóri sér um
daglegan rekstur þeirrar deildar
fyrirtækis þcss er hann starfar
fyrir. Deild su getur verið stór
eða lítil eftir atvikum. Hann hefir
með hendi umsjón með þeim
mönnum, véium og vörum sem
undir hans deild heyra. Hann er
tengiliður milli æðstu stjórnar
fyrirtækis síns og þeirra manna
sem hann á að stjórna. Hann
er talsmaður atvinnurekandans.
Hann er maður sem út á við er
fulltrúi fyrirtækis síns gagnvart
þeim aðilurn sem þurfa við hann
að skipta. Undir honum getur
venð komið hvort þjónusta sú
er fyrirtækiö veitir sé til fyrir-
myndar eða ekki, en mikið er
iagt upp úr því nú á tímum.
Verkstjóriiin er uppalandi, i gegn
um sitt starf þarf verkstjóri að
taka á móti geysilegum fjölda
ungra marna. sem eru að fara
sínu fyrstu íerð í starf hjá óvið-
kom&ndi aðiJa, í flestum tilfellum
óharðnaöir unglingar, tilfinninga-
næmir og veikir fyrir mótlæti
svo veikir fyrir því, að ef ekki
er rétt á haldið þá gæti svo farið
að æskumaðurinn bíði þess
aldreí bætur og yrði aldrei jafn
góður þjóðfélagsþegn og ella
hefði orðið. Og fámenn þjóð sem
við rslendingar höfum ekki efni
a því að missa neinn af okkar
sonum frá starfi fyrir hand-
vömm.
Verkstjóri þarf að vera mann-
þekkjari. Hann þarf á sem styttst-
um tíma að geta komist til botns
í hvern mann nýr starfsmaður
hefir að geyrr.a og hvaða tökum
á að taka hann svo hann verði
fyrirtækinu og þjóð sinni að eins
miklu gagm og hægt er.
Verkstjóri þarf að vera stjórn-
samur án pess þó að vera vinnu-
harður. Veriístjóri þarf að vera
hagsynn bæöi hvað snertir með-
ferð i vinnusíli, vélum, verkfær-
um og óðru því sem að starfi
hans iýtur.
Starf verkstjórans krefur í flest
um tilfellurn ef ekki öllum, að
nann sé skóiaður, hann þarf að
annast vinnuskýrslur, útreikning
á launum og ýmsar aðrar skýrsl-
ur og reikmr.gsfærslur og útreikn
inga, sem starfimf fylgja. Og síð-
ast en ekki sízt, verkstjórinn þarf
að vera áhugasamur. Þar komum
við að kjarna málsins. Víðkunnur
erlendur sálfræðingur hefir sagt:
maður sem hefir misst áhugann
fyrir að bæta sín kjör eða hefir
fengið neitun um að fá bætt léleg
kjör sín hjá vmnuveitanda sínum
missir smátt og smátt áhugann
fyrir starfinu Þetta mun vera
rétt að miklu ieyti og ef svo færi
er illa farið. Hér á okkar landi
virðist mikið af því gert að hossa
hinum og þessum menntamönn-
um, og virðist þar í engu skifta
hvort þeir hafa slampast í gegn-
um skóla og náð prófi með lítil-
fjörlegum úrangri, eða hvort um
er að ræða hæfileikamann sem
hefir staðið sig með prýði.
Þeir hinir lélegri hafa staðizt
próf að visu og náð því að geta
kallað sig eitt og annað sem getur
lyft þeim til emhverra metorða.
Aliar skriístofur, bankar og
önnur slík fyrirtæki svo ekki sé
minnSt á opinberu skrifstomrnar
allt er orðið uppfullt af slíkum
mönnum. Stór hluti þessara
manna vinaur óhagnýt störf í
þjóðfélaginu þar sem afrakstur
starfs þeirra nægir vart til að
greiða laun þeirra. Þetta fólk þarf
ekki að skila nema hluta af þeim
starfstíma serr. verkstjóri þarf að
skila á viku hverri. En samt er
það betur launað og allur aðbún-
aður betri en hjá verkstjórástétt-
inni í heild. Verkstjóri sem legg-
ur sig fram í' starfi skilar ekki
aðeins þeim vinnustundum er
hann telur sér fram til launa
heldur á starfið stóran hluta af
frístundum nans, er hann skipu-
leggur starfið fyrir næsta dag
jafnvel fyrir viku eða mánuð
írarr í tímarm.
Verkstjórar þeir sem nú eru
í starfi hafa almennt ekki mikla
sérskólamenntun til síns starfs,
en peir hafa aðra menntun ekki
síðri, þeir eru aldir upp og próf-
aðir í skóla lífsins og reynslunn-
ar.
Allflestir verkstjórar hafa
unnið sig upp í starfi frá þvi
að starfa undir annars stjórn þar
til að lokum þeir sjálfir tóku við
verkstjórn á vinnustaðnum og þá
einkum vegna hæfileika sinna og
reynslu sem að dómi atvinnuveit-
enda hljóta að hafa verið fyrir
hendi.
Framhald á bls. 23.