Morgunblaðið - 23.11.1961, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 23. nóv. 1961
MORGUNBLAÐIÐ
17
Sigríður Ágústsdóttir
frá Birtingarholti
F. 11. apríl 1902. D. 14. nóv. 1961.
Um þessar mundir eru dagarn
ir sífellt að styttast, og dimman
feer meiri og meiri völd. — Ein
imitt í dimmasta skammdeginu
göngum við þó til móts við þá
birtu, sem jafnvel hin fegursta
sumardýrð hlýtur að fölna fyrir.
— Blikandi stjarna, björt og
skær, lýsir um lönd og höf —
og vefur byggðir og ból yfir-
garðneskum ljóma. — Þá eru hald
in heilög jól, heims um gjörvalt
ból.
Fáar minningar greypast fast-
ar og lifa lengur í hjörtum oikk-
ar mannanna en þær, sem tengd-
ar eru jólunum. — Þær ylja svo
vel, þegar naþrir vindar næða —
°g þegar starað er í sortann, þá
gera þær götuna bjarta á ný.
Úr hafi minninganna stígur
jólamynd. —
Tveir ungir menn sitja við
jólaborð og gæða sér á því, sem
það hefir upp á að bjóða. — í
svip þeirra og fasi býr ákefð og
leftirvænting. Til þess er líka
ærin ástæða. Þeir bafa þýðingar-
miklu starfi að gegna. Hlutverk
(þeirra á þessum degi er að hjálpa
æskuglöðum hópum hinnar upp-
vaxandi kynslóðar til að koma
auga á Betlehemsstjórnina — og
íbeina hugum þeirra að undrinu
mesta og stærsta: Jólabarninu,
sem í jötunni liggur. —
En ungu mennirnir tveir eru
ekki einir í stofunni. Tii borðs
með þeim situr einnig húsfreyj-
an, — móðir annars þeirra. Hún
er fríð sýnum. Framkoma henn-
ar öll ber vott um tíguleik og
festu. Bjart bros leikur um var-
ir hennar. Ur augunum skín moð
urleg mildi. — Það er auðsætt, að
hugðarefni ungu mannanna á
sterkan hljómgrunn í hjarta
Ihennar. Orð konunnar, þau er
ttiún lagði til málanna ,voru allt
í senn: Fræðandi, hvetjandi og
uppörvandi. Þau voru sprottin af
sömu rót og móðurorðin, sem
forðum knúðu fram á varir
Matthíasar þessa ógleymanlegu
játningu:
„Aldrei skyn — né skilnings-
t kraftur minn
ákildi betur jóláboðskapinn".
A þann hátt getur enginn talað
nema góð og trúuð móðir. —
Konan, sem hér um ræðir, var
Sigríður Agústsdóttir fx-á Birt-
ingaholti. I dag verður útför
Ihennar gjör frá Keflavíkur-
kii-kju.
Sigríður er borin og barnfædd
í Birtingaholti í Arnessýslu, því
alþekkta höfuðbóli. Foreldrar
ttiennar voru hjónin Agúst Helga
son bóndi í Birtingaholti og
Móeiður Skúladóttir Thoraren-
sen frá Móeiðarhvoli. Hún var
ein hinna yngstu í hópi 10 syst-
kina. Elzt er Ragnheiður, hús-
frevja að Löngumýri á Skeið-
um. og siðan í aldursröð: Helgi,
starfsmaður við Kaupfélag Ar-
SVEINBJÖRN DAGFINNSSON
hæstaréttarlögmaður
EINAR VIÐAR
héraðsdómslögmaður
Málflutningsskrifstofa
Hafnarstræti XI. — Símj 19406.
1748
nesinga á Selfossi, Guðrún, fyrrv.
húsfreyja að Olvesholti í Flóa,
látin fyrir alllöngu, Skúli, starfs-
maður hjá Slátur’félagi Suður-
lands í Rvík, hann lézt á síðast-
liðnu vori, — Guðmundur, starfs
maður hjá Olíufélaginu í Reykja
vík, Magnús, læknir í Hvera-
gerði, þá var Sigríður, húsfreyja
í Keflavík, Asdis, einnig hús-
freyja í Keflavík, Aslaug, dó í
frumbernsku, og yngstur er Sig-
urður, óðalsbóndi í Birtinga-
holti. ,
Heimilið í Birtingaholti var al-
þjóð kunnugt fyrir frábæra reisn
á öllum sviðum. Búskapurinn
var rekinn þar með meiri glæsi-
brag en víðast annars staðar um
þær mundir. En þótt starfað væri
af kostgæfni og kappi, jafnt ut-
an sem innan dyra heimilisins,
þá var ekiki látið þar við sitja.
Birtingaholtsheimilið var hverj-
um þeim, er þar dvaldi, skóli, —
bæði i beinni og óbeinni merk-
ingu. Bræður Agústs þrír, er lang
skólanám stunduðu, og urðu síð-
ar þjóðkunnir mennta- og menn-
ingarfrömuðir, þeir síra Guð-
mundur í Reykholti ,faðir dr.
Asmundar fyrrv. biskups, síra
Magnús, skólastjóri við Kenn-
araskólann og síra Kjartan í
Hruna, dvöldu oft um lengri eða
skemmri tírna á bernskuiheimili
sínu — og miðluðu hinni upprenn
andi kynslóð óspart af þekkingu
sinni. Þótt Agúst legði aldrei
leið sína inn fyrir veggi hinna
æðri menntastofnana, þá mun
eigi að síður almælt, að hann
hafi ekki staðið bræðrum sínum
að baki, hvað gáfur og andlegt
atgjörvi snerti. Og ekiki lét hús-
freyjan, Móeiður, sitt eftir liggja.
Hún var kona stórvel gefin, glæsi
leg í útliti og fyrirmannleg í
fasi. Hún var létt og glöð f lund,
en gat verið mjög einörð og
ákveðin, ef því var að skipta
Sívinnandi var hún, og handa
vinnu leysti hún svo vel af hendi,
að fegurri sást ekki, og varð
verla betur gert. — í stuttu máli
má með sanni segja, að í Birt-
ingaholti hafi verið valinn mað-
ur í hverju rúmi.
Ur þessum jarðvegi var Sig-
ríður vaxin. I Birtingaholti hfði
hún sín björtu og glöðu bernsku-
og æskuár. — Þar ríkti óþving-
uð æskugleði, er birtist bæði í
sÖng og iéttum leik — og þrótt-
miklum átökum í önnum dags-
ins.
Það gat vart hjá þvi farið, að
styrkir og traustir stofnar yxu
upp úr þeim jarðvegi, sem Birt-
ingaholtsheimilið lét í té. Og það
því fremur, sem þessir ungu
stofnar voru umvafðir ástríki
foreldranna — og vermdir af ein
lægri trú. — Það hefir líka fyrir
löngu sýnt sig, að systkinahóp-
urinn stóri hefir í engu brugðizt
þeim björtu vonum, sem við
hann voru tengdar. —
Hinn 24. júní árið 1927 gift-
ist Sigríður eftirlifandi manni
sínum, Skúla Oddleifssyni frá
Langholtskoti í Hreppum. Hann
var sonur Oddleifs Jónssonar og
Helgu Skúladóttur, alþingis-
manns frá Berghyl.
Fyrstu tvö árin voru þau til
heimilis að Birtingaholti og unnu
að búinu þar. Til Keflavíkur
fluttu þau árið 1930 og hafa átt
þar heima upp frá því.
Fyrstu árin suður þar var
Skúli landformaður á fiskibátum,
vann síðan í allmörg ár í Drátt-
arbraut Keflavíkur. En árið
1951—1952, þegar kennsla hófst
í hinum nýja barnaskóla, var
Skúli ráðinn umsjónarmaður
þar, og þeim starfa hefir hann
gegnt óslitið allt fram á þennan
dag. — Lengst bjuggu þau í húsi
þvi, sem nú heitir að Vallargötu
19. Þar skapaði Sigríður fjöl-
skyldu sinni það heimili, sem var
helgidómur í vitund þeirra allra.
Þar átti óbrotagjörn hamingja
æðsta sætið.
Hjónabandið var hið farsæl-
asta. Það var grundvallað á gagn
kvæmum skilningi, virðingu, ást
og trausti.
Börn þeirra eru fjögur. Elztur
er Olafur, prestur og æskulýðs-
fulltrúi Þj óðkirkj unnar, búsettur
í Reykjavík, kvæntur Ébbu Sig-
urðardóttur, þá er Helgi, leikari,
býr einnig í Reykjavík, kvæntur,
Helgu Baehmann, leikikonu,
Móeiður Guðrún, gift Birni
Björnssyni lögreglumanni í|
1961
Undirritaðir útvega frá heimsfirmanu Villeroy & Boch, sem mun
vera stærsta og elsta framleiðslufirma sinnar tegundar, allskon-
ar hreinlætistæki, gólf og veggflísar úr harðbrenndu frost og
sýruþolnu postulíni.
Villeroy & Boch framleiða í 14 verksmiðjum með nær 15 þúsund
starfsmönnum og hafa yfir 200 ára reynslu að balci.
Jóh. Ólafsson & Co.
Hevrfisgötu 18, Reykjavík.
Keflavík og yngst er Ragnheið-
ur, ógift í foreldrahúsum.
Þau hjónin létu sér annt um
uppeldi barna sinna. Sigríður
vissi það og skildi, að „móður-
hönd, er vögguvéin rækir,/vega-
ljósin býr til fjærstu stranda“.
Og samikvæmt því innti hún
hlutverk sitt af hendi. Og um
börnin öll sem eitt, má óhikað
fullyrða, að þau hafa eigi brugð-
izt vonum foreldra sinna né ann-
arra, sem þau hafa fram til þessa
átt samleið með.
Samstaða heimilisins var ein-
stök. Það var sem foreldrar og
börn kepptust um að verða
hvort öðru til sem mestrar gleði.
Margar hamingjustundir átti
Sigríður hin síðustu árin með
barnabörnum sínum. En þau eru
nú fjögur. Guðrún Ebba og Sig-
ríður, dætur sr. Ólafs, Hallgrím-
ur Helgi, sonur Helga og óskírð-
ur sonur Móeiðar.
Hjarta hennar átti kappnógan
kærleiksyl handa öllum.
Andlát Sigríðar bar óvænt að
höndum. Það er mikill sjónar-
sviptir að slíkri konu, sem Sig-
ríður var. Stórt skarð er höggvið
í heimilið að Vallargötu 19. —
En þar er syrgt í von og trú, svo
að mildri birtu slær á húmdökk-
an harmanna himin.
Eg bið algóðan Guð að blessa
eiginmanninn og ástvini hans.
Megi huggun, hljálp og styrxur
veitast þeim öllum í rí'kum mæli
á ókomnum tímum.
Skammdegismyrkrið klæðir
landið okkar sínum þétta og
dökka hjúpi. Hin skammvinna
dagsbirta dvín óðum, á meðan
ég festi þessi fátæklegu minn-
ingar- og kveðjuorð á blað. En
dimman hið ytra fær engurn
fölva slegið á þá birtu, sem býr
mér í sál. Eg horfi nú á þá mynd,
sem minningin kallar fram í
huga minn af Sigríði Agústsdótt
ur, á sama hátt og ég horfði á
hana sjálfa og hlýddi á orð henn-
ar á jólunum fyrir níu árum, þeg
ar elzti sonur hennar og ég vor-
um að feta fyrstu skrefin á braut
þeirrar þjónustu, sem stóð
hjarta hennar sjáifrar allra næst.
I sál mér hljóma þessi sígildu orð
eins af skáldum okkar um móð-
urina: „Hún er engill,, sem Guð
oss gefur.“
Bj. J.
Sex nýjar
barnabækur
NYLEGA eru komnar út sex
nýjar barna og unglingabækur á
vegum bókaútgáfunar Setbergs,
sem ætlaðar eru misjöfnum ald-
ursflokkum.
Fyrst skal nefna bókina:
ÞRIR KATIR KETTLINGAR,
sem er í stóru broti og með
fallegum litmyndum á hverri
opnu. Þetta er saga um þrjá káta
ketlinga, þá Klóa, Gepil og
Snepil. Letrið er stórt og greini-
legt, enda er bókin ætluð yngstu
lesendunum.
Þá er það bókin MAMMA
SAGÐI MER SOGU. Þetta er
bók fyrir börn é aldrinum 6 til
10 ára. I henni eru stuttar og
lærdómsríkar sögur. Vilbergur
Júlíusson valdi sögurnar. Bókin
er prýdd 32 teikningum.
HELGA OG VINKONUR
HENNAR er skáldsaga um heil-
brigðar og tápmiklar stúlkur.
Þessi bók er eftir sama höfund og
bókin Friða fjörkálfur, sem gef-
in var út í fyrra og seldist upp.
Bókin Helga og vinkonur henn-
ar er skrifuð á léttu máli og
ætluð stúlkum á aldrinum 10 til
13 ára.
GUNNAR GEIMFARI er spenn-
andi drengjasaga um ævintýra-
lega ferð til stjörnunnar Marz.
Hún er ætluð strákum á aldrin-
um 12 til 15 ára.
HEIÐA OG BORNIN HENNAR,
sem er framhald bókarinnar
Heiða í heimavistarskóla. Bæk-
urnar um Heiðu, Pétur Klöru og
afa gamla á fjallinu. eru einhverj
ar vinsælustu barna og unglinga-
bækur, sem þýddar hafa verið á
íslenzku.
Þá er að síðustu bðkin ANNA
FÍA GIFTIST. — Þetta er þriðja
og síðasta bókin um Onnu Fíu og
vinkonur hennar. Hinar bækurn-
ar Anna Fía í höfuðstaðnum, sem
komu út í fyrra, vöktu strax,
hrifningu stúlkna á skólaaldri.
Þessar Onnu Fív bækur fjalla
um heilbrigðar og tápmiklar
stúlkur, skólann þeirra, heimilið
og þær sjálfar.
Freysteinn Gunnarsson skóla-
stjóri hefur þýtt allar bækurnar
um Onnu Fíu.
Visindi
Framh. af bls. 12.
þætturn upplýsingum a?
vinna, komandi frá flesturr
löndum Jarðar eða gerfihnötl
um sveimandi fyrir ofan loft-
lögin, að erfitt er orðið at
vinna úr þeim öllum, „áðux
en veðrið er skollið á“.
Við stærstu flugvelli heims
ins er flugumferðin smám san
an að komast í öngiþveiti
vegna hins sívaxandi fjöldí
flugvéla, sem sveima á loft
leiðunum. Radartseki með raf
eindaiheila á bak við sig, serr
gæti fylgst með allri umferð
inni og gefið til kynna, þegai
eitthvað óvanalegt gerðist, t.d
flugvél viki af sinni fyrirfrarr
áætluðu leið, er það sem flug
umferðastjórnunum dreymir
nú um.
Bionics mun hjálpa til vic
að gera þennan draum að verv
leika og með hinar stöðugv
framfarir í framleiðslu fín
gerðra raftækja í huga, er
ekki úr vegi að ljú'ka þessar,
grein með þessum þönkum
Hver veit, nema að eftir oa
tíu ár hafi veðurspámaðurinn
flugumferðarstjórinn og heixns
meistarinn í skák eitt sameig-
inlegt. Það, að þeir séu allii
vélar.
Valgarður Kristjánsson
héraðsdómslögmaður
Eskihlíð 20.
Öll venjuleg lögfræðistörf —
Fasteignasala.
Viðtalstími kl. 18—19 alla daga
nema laugardaga kl. 14—17-
Simi 3-84-81.