Morgunblaðið - 24.11.1961, Blaðsíða 1
24 siour
#tgmM$fafa
48. árgangur
267. tbl. — Föstudagur 24. nóvember 1961
Prentsmiðja Mon jtfOlaðsins
Sovjet-börn
tóku á móti Kekkonen
með blúmvendi
Moskvu, 23. nóv.
KEKKONEN, Finnlandsfor-
seti, kom i dag til Novosi-
birsk, en þar ræðir hann við
Krúsjeff á morgun. Ýmsir
framámenn kommúnista í
bænum tóku á móti Kekk-
onen, flugvöllurinn var
skreyttur rússneskum og
finnskum fánum — og rúss-
liesk börn færðu finnska for-
setanum blóm, sagði í Tass-
frétt. —.
f morgun itti Kekkonen fund
með-iiange utanráðisráðh. Norð-
manna í Moskvu, skömmu áður
en þeir héldu þaðan, en Lange
fór í fjögurra daga heimsókn
til Uzbekistan.
Róstur
Ciudad Trujillo, 23. nóv.
MARGIR létu lífið í óeirðum í
Dominikanska lýðveldinu í dag.
Mannfjöldinri lagði eld í hús
þriggja meðlima Trujillo-fjöl-
skyldunnar og braust inn í hús
fjórða fjölskyldumeðlimsins.
Krúsjeff kom í morgun til
Barnaul í Altai, sem er í Sí-
beriu suðvestanverðri, um 160
km frá Novisibirsk. Ekki er ná-
kvæmlega vitað hvenær Krús-
jeff kemur til Novosibirsk til
fundarins með finnska forset-
anum, en hann verður á morg-
un. —
Dœmdir til
þrœlkunar
MOSKVU, 23. nóv. — Tveir ung-
ir V-Þjóðverjar voru dæmdir til
12 ára hegningar í dag, fundnir
sekir um njósnir í Rússlandi.
Var þeim gefið að sök að hafa
ferðazt um Rússland sem venju-
legir ferðamenn, en í rauninni
stundað njósnir fyrir Bandarík-
in. Sagði saksóknarinn, að þeir
hefðu tekið myndir af hernaðar-
lega mikilvægum mannvirkj-
um.
Bæði Bandaríkjamenn og V-
þýzk yfirvöld hafa neitað því
harðlega, að þessir menn hafi
stundað njósnir, en þeir voru
báðir dæmdir til 3 ára fang
elsissetu og 9 ára þrælkunar.
Rússar tóku
unglinginn
Berlín, 23. nóv.
RUSSNESKIR hermenn stöðv-
uðu í nótt járnbrautarlest, sem
flutti bandaríska hermenn og
fjölskyldur þeirra frá Vestur-
Berlín til Vestur-Þýzkalands.' —
Sögðu þeir, að a-þýzkur flótta-
maður leynoist í lestinni og kröfð
ust þess, að hann yrði framseld-
ur.
Eftir mikla leit fannst flótta-
ma'Jurinn, sem hafði falið sig vel
í einum vagnanna. Var það ung-
jingur ^em stokkið hafði upp í
lestina, er hún fór í gegn um
smábæ einn t Austur-Þýzkalandi.
Tóku Rússarnir hann í sína
vörzlu. Varð samt bið á að lest-
in fengi að halda ferðinni áfram
og loks eftir hálfrar fimmtándu
stundar töf var hægt að halda
aftur af stað — áleiðis til Frank-
furt.
Myndin er tekin á einni af breiðgötum Elisabetville í Katanga þar sem brynvarin bifreið
S. Þ. hefur skotið á tvær vopnaðar Jeppa-bifreiðir Katanga stjórnarinnar og eyðilágt þaer.
Munnleg loforö Rússa
einskis virði
Vesturveldin kref jast samninga um
bann við kjarnorkutilraunum
London og Washington,
23. nóvember.
FORMÆLANDI brezku stjórn-
arinnar sagði í dag, »<V Bretar
mundu ekki fallast öðru sinni á
stöðvun kjarnorkutilrauna án
samnings þar að lútandi og ör-
uggs eftrlits. Rússar hefðu byrj-
að fyrirvaralaust að sprengja
kjarnorkusprengjur í andrúms-
Ioftinu og skellt skollaeyrum við
öllum áskorunum um að hætta
þeim leik. Bretar ætluðu ekki að
treysta neinum loforðum í þessu
efni framar-
Hins vegar var því fagnað, að
Rússar lýstu sig fúsa til þess að
hefja aftur viðræður við Breta
og Bandaríkjamenn í Genf 28.
þ. m. um samning um bann við
kjarnorkutilraunum og það ylti
á Rússum, hvort samkomulag
næðist. Ef þeir sýndu samkomu-
lagsvilja væri hægt að gera samn
ing og hann yrði fyrsta skrefið
í átt til allsherjar afvopnunar.
Formælandi Bandaríkjastjórn-
ar tók í sama streng í dag. Það
kemur ekki til mála, að við föll-
umst munnlega á stöðvun k}«
orkutilrauna. Við teljum okkur
hafa fulla heimild til þess «0
gera kjarnorkutilraunir hvenær
sem er, ef það reynist nauðsyn-
legt vegna öryggis þjóðarinnar.
Rússar brutu hið munnlega lof-
orð um stöðvun tilrauna þann 1«
september meðan við sátum emnt
á rökstólum um bann við til-
raununu
Viðræðunum í Genf var sw>
ekki slitið fyrr en 9. september,
en frá því að Rússar byrjuðu að
sprengja í septemb«r hafa þeir
sprengt yfir 30 sprengjur í and-
rúmsloftinu, sagði formælandi
Bandaríkj astj órnar.
Vill framlengja
kjörtíma Kekkonens
en tillagan íær daufar undirtektir -
Ottast um Skagastr andarbátinn
Leit illframkvæmanleg vegna veðurofsa
Hjthttnr Hjartarson
Skagaströnd, 23. nóv.
Á miðvikudagsmorgun voru
10 bátar á sjó frá £>kaga-
strönd, tveir stórir, Húni og
Máni, og 8 minni bátar frá
4—20 tonn. Landlega hefur
verið hjá bátunum síðan um
helgi vegna sunnanáttar. —
Veðurspá hafði ekki verið
góð á þriðjudagskvöld, lægð
á leiðinni, sem valda mundi
norðanátt daginn eftir.
Stóru bátarnir höfðu farið á
sjóinn á þriðjudagskvöld, Máni
lagt línuna í Miðflóann og Húni
á Kolkugrunni. Minni bátarnir
fóru ekki fyrr en á tímabilinu
3—6 á miðvikudagsmorgun og
allir frekar stutt nema Skíði H.U.
8 lestir áð stærð og Svanur HU
4, ellefu lestir að tærð.
Fóru um 18 mílur norður
Þeir fóru norður fyrir Skallarif
Framhald á bls. 23.
HELSINGFORS, 23. nóvember —
Fagerholm, forseti þingsins og
helzti andstæðingur Kekkonens í
siðustu forsetakosningum, lagði í
dag tU, að væntanlegum forseta-
kosningum yrði frestað og kjör-
timabil Kekkonens framlengt um
sex ár með sérstökum lögum.
Tillaga þessi kom mjög á óvart,
en hún kom fram í bréíi, er Fager
holm, sem er úr socialdemokrat-
isika flokknum skrifaði floikkum,
þeim sem styðja Olavi Honka
til kjörs í næstu forsetakosning-
um. — Segir Fagerholm, að for-
dæmi sé til fyrir þvi að forseta-
kosningar hafi verið felldar nið-
ur í Finnlandi með sérstökuim
Morðingjarnir
hlupu til skógar
Leopoldville, 23. nóv.
ALLT bendir niú til þess, að
Kongómennirnir, sem myrtu
ítölsku flugmennina 13, séu gengn
ir úr greipum Sameinuðu þjóð-
anna. Strax ef tir morðin tilkynnti
herstjórnin, að Kindu-héraðið
yrði einangrað og Kongó-her-
mennirnir afvopnaðir.
En Kongómennirnir voru
hlaupnir til skógar áður en her-
sveitum SÞ tókst að koma þessu
í iramkvæ>"id — og herforinginn,
Framh. á bls. 2.
lögum, þegar aðstæður voru 6-
venju erfiðar.
Segir hann, að vegna hins al-
varlega ástands — og þeirra erfið
leika, sem framundan séu í t*t-
anrí'kismálum- Finnlands, þá sé
nauðsynlegt að taka til íhugunar
hvort ekki beri að fella forseta
kosningarnar niður að þessu
sinni. Försetinn ber samkvæimt
stjórnarskránni höfuðábyrgð á
utanrí'kismálum landsins vm oig
það væri sanngjarnt að veita hon
um tækifæri til þess að helga
þessum málum alla starfskrafta
sína. Það væri ekki heppilegt að
ríkisleiðtoginn þyrfti að standa í
harðri kosningabaráttu þegar
jafnalvarlega horfir og nú.
Fyrstu viðbrögð annarra stjórn
málaleiðtoga voru neikvæð. -=
Sukselainen, formaður bænda-
flokksins, sagði að tillagan væri
ekki nægilega rökstudd. Engin
ástæða væri til að víkja frá lands
lögum. — Formælandi social-
demokratiska andstöðuflokksins,
Simonen, sagði að Fagerholm
hefði áður reynt að bjarga þeim
stjórnmálamönnum, sem enga
framtíð ættu fyrir sér, og vara-
formaður kommunistaflokksins,
Hertta Kuusinen, sagði að til-
lagan speglaði upplausnina í
hægri flokkunum. Engin ástæða
væri til að fresta kosningum.