Morgunblaðið - 24.11.1961, Side 24
Fréttasímar Mbl.
— eftir lokun —
Innlendat fréttir: 2-24-84
Erlendar fréttir: 2-24-85
SUS-síða
Sjá bls. 15
267. tbl. — Föstudagur 24. nóvember 1961
Vegir
illfærir
Sjómenn í bátum sín-
um í Ölafsíjarðarhofn
Akureyri, 23. nóv.
H É R um miðbik Norður-
lands hefur verið grenjandi
stórhríð í allan dag og hef-
ur veðrið valdið ýmsum erf-
iðleikum, þjóðvegir orðið ill-
færir og rafmagnsskortur
orðið m.a. á Laxárveitusvæð-
inu. Um tjón er ekki vitað
enn sem komið er.
Á Sauðárkróki byrjaði að snjóa
í nótt og hefir kingt þar niður
allmiklum snjó svo og í útsveit-
um Skagafjarðar. Samgöngur
hafa þó ekki teppzt að neinu
ráði nema Siglufjarðarskarð,
sem hefir lokazt. Bátar frá Sauð-
árkróki og Hofsósi hafa stundað
róðra undanfarið, en svo heppi-
lega vildi til að enginn bátur var
á sjó í nótt.
Menn í bátunum
í Ólafsfirði byrjaði veðrið
með rigningu í gærdag, en er á
kvöldið leið jókst frostið og gerði
þá mikia hríð, jafnframt óx sjó-
gangur. í alla nótt og dag hafa
sjómenn orðið að vera í bátum
sinum í höfninni tilbúnir að
fjarlægja þá, ef með þyrfti- Eng-
ir skaðar hafa þó enn orðið, en
versni veðrið eitthvað að mun er
bátunum mjög hætt. Vegurinn
frá Ólafsfirði er ófær en stórum
bifreiðum er fært um bæinn.
í>etta er versta veður, sem þar
hefir komið á þessum vetri.
Færð þung
Hér á Akureyri byrjaði að
snjóa í nótt sem leið og hélzt all-
mikið norðan hvassviðri með
snjókomunni allt fram á kvöld,
en nú er hægara og minni úr-
koma. Sæmileg færð er enn um
bæinn en nokkrir erfiðleikar á
samgöngum út frá bænúm, eink-
um austur og vestur um heið-
arnar.
Síðdegis í dag fór að bera á
Framh. á bls. 23.
Veðurhæð mikil
Nokkrar kindur vantar á hvem bæ,
en ekki óttast um þær enn
HÚSAVÍK, 2. nóv. — Eftir tæp-
lega hálfsmánaðar hlýindi og
góðviðri breytti í gær um veður-
far hér og gekk til norðanáttar,
fyrst með slyddu og síðan snjó-
komu, er á daginn leið og í dág
er allsstaðar hér um slóðir stór-
hríð, en þó ekki mikil fannkoma
en aftur á móti mikil veðurhæð.
Nokkrir bátar voru á sjó í gær,
en enginn í dag.
I gær var víða smalað sauðfé
í sveitunum hér í kring og mun
Konu vart hugað líf
og hestur drepinn
Þrjú umferðarslys urðu í yær
BLAÐINU var kunnugt um að
þrjú bifreiðaslys urðu í gær og
eitt þeirra, að minnsta kosti, mjög
alvarlegt.
Vart hugað lif
Um kl. 5 gærdag var tilkynnt
um arekstur til lögreglunnar í
Hafnarfirði. Mun hann hafa skeð
nokkru fyrr á Krísuvíkurvegi.
I>ar ientu saman vörubifreiðin
G-2401 og jeppabifreiðin G-2404.
Jeppabifreiðin stórskemmdist
og bifreiðarstjórinn, sem var
kona, slasaðist svo mjög, að í
gærkvöldi var ekki vitað hvort
hún mundi lifa slysið af. Kon-
an liggur í Landakotsspítala. —
Þeir sem í vörubifreiðinni voru
slösuðust ekki.
Gekk meiddur
Snemma í gærmorgun kom
maður illa haldinn að Leirvogs
tungú í Mosfellssveit og bað
hjálpar, eftir að hafa gengið
nokkurn veg í stormi og kulda.
Hafði hann ekið sendibifreið út
af veginum skammt sunnan
Kollafjarðarár og lenti hún á
kletti þar og er talin nær ónýt.
Bifreiðin var R-9267. Bifreiðar-
stjórinn var meiddur á fæti og
skrámaður í andliti.
Drap hest
í gær var piltur á leið út ölf-
usið riðandi og rak á undan sér
3 hesta- Á móti þeim kom fólks-
vagn og sá bifreiðastjórinn hest-
ana ekki fyrr en hann var kom-
inn fast að þeim. Tókst honum
ékki að hemla í tíma og skipti
það engum togum að einn hest-
anna lenti framan á bifreiðinni,
lagði saman hlífina, braut glugg-
ann og lenti allt upp á þak bif-
reiðarinnar. Féll hann síðan út
af henni en var þá dauður. Bíll-
inn stórskemmdist og tveir far-
þeganna, sem í henni voru slös-
uðust skárust á andliti og fengu
heilahristing. Var þar um að
ræða konu og 7 ára barn.
flest hafa náðst í hús, en þó mun
á mörgum bæjum vanta nokkrar
kindur, sem menn óttast þó ekki
um þar sem snjór er ekki enn
það mikill að þær fenni, ef veðr-
ið verður ekki því langstæðara.
Annars var það vont fyrir féð að
óveðrið byrjaði með bleytuhríð.
Fyrsti snjórinn í Grimsey
Grímseyingar telja þetta eigin-
lega fyrstu snjóana á vetrinum,
en þar hefir verið mjög óstillt
tíðarfar undanfarið og hefir ekki
lengi gefið á sjó. Kindur voru
þar fyrst í gær hýstar á þessum
vetri.
Áætlunarbíllinn fór ekki
Mjólkurbíll kom til Húsavíkur
í dag úr Köldukinn og gekk á-
N
Samningar um
útflutnings- -
síldinn
t GÆR tókust samningar
milli verðlagsráðs L.Í.Ú. og
;jómannasamtakanna i n n a n
A.S.f. og F.F.S.Í. við félag
islenzkra botnvörpuskipaeig-
enda um verð á síld tii út-
flutnings í ís.
í>á hefir verið samið um
alla þætti málsins og má þá
telja líklegt að sjómannafélög
þau, sem hafa boðað til verk-
fails frá og með 26. þ. m- af-
lýsi verkfallinu. Verkalýðs-
félag Grindavíkúr aflýsti verk
fallinu í fyrradag, því þar átti
að hefjast verkfall frá og með
t kvöldi þess 22. nóv.
Hið umsamda verð á síld-
inni er 1,57 kr. miðað við inn-
vegið magn, (þ. e. upp til
hópa).
gætlega, en'á morgun eiga þeir
að koma úr öllum sveitunum hér
í kring. Áætlunarbíllinn frá Ak-
uxeyri, sem kom í gærkvöldi
lenti í stórhríðarveðri bæði á
Vaðlaheiði og Fljótsheiði, en bíll-
inn, sem átti að fara í morgun
fór ekki. Menn telja að ekki
muni mikill snjór vera kominn
á vegi vegna þess hve veður-
hæð hefir verið mikil muni hann
ekki hafa náð að festa nema á
stöku stað.
J Þessa mynd tók fréttaritari
1 blaðsins í Borgam-esi, Hörður
Jóhannesson, að Neðra-Nesi í
Stafholtstungum í gær. Á
myndinni sést kýrin Laufa,
sem er rauðsk jöldótt og • ber
nafn sitt af þvi, og kálfarnir
hennar þrir, tveir tarfar og
' ein kviga. Þetta er hin mynd-
arlegasta fjölskylda eins og
sjá má og móðirin kostagrip-
ur, mjólkaði 19 merkur er
hún stóð upp frá burði.
Sild veiðist í Miðnessjó
Sandgerði, 23. nóv.
I GÆR fóru allir bátarnir héðan
út á síldveiðar og fundu þeir
síld í Miðnessjónum og fengu þar
nokkrir bátar sæmilega veiði.
Einnig fóru nokkrir bátar suð-
ur fyrir Reykjanes eftir að vind-
ur fór vaxandi og urðu þar einn-
ig varir við síld. Síldin í Miðnes-
sjónum er sæmileg en síldin í
Grindavíkursjó er mjög smá og
fer öll í bræðslu.
Þrír bátar komu hingað með
2141 tunnur. Það voru Víðir II.
1328, Jón Gunnlaugs 263. Þessir
bátar fengu síldina í Miðnessjó
og Guðbjörg 550 tunnur úr
Grindavíkursjó. — Páll.
AÐEINS þrír bátar lönduðu síld
hér í dag, samtals 1080 tunnum.
Þetta er smásíld og blönduð
millisíld og fór öll í bræðslu-
Síldina fengu þeir Miðnessjó
35 sjómílur út af Garðskaga á
Hólamiðum. Síld fékkst og í
Skerjafirði suður og út af Eldey.
Aflahæst bátanna hérna var Sig-
rún með 580 tunnur, sem hún
fékk í Grindavíkursjó en þar
voru miklar lóðningar. Sigurður
AK. fékk 350 og Ólafur Magnús-
son 150. Höfrungur H. fékk 300
en kom ekki inn.
Þegar fréttist um síldina suður
frá í gær komu hingað inn firnm
bátar gagngert til að skipta um
nót og fá aðra smáriðnari. Þegar
Sigurður Ak kom inn í morgun
hristu þeir mikið af síld úr nót-
inni uppi á bátabryggjunni. Kom
ið er mokfiski úr fiskileitum Ak-
urnesinga úr Forinni og allt suð-
ur að Gróttu. Er það ýsa og fisk-
aði þilfarsbáturinn Yngvi í gær
á fjórða tonn af ý®u- Sjö trillur
reru og hér í gær. Hæstur var
Bensi með IV2 tonn.
Norskt skip lestaði hér í morg-
un rúm 300 tonn af lýsi.
— Oddur.
Aukaþing B.S.R.B.
AUKAÞING BSRB verður sett í
Hagaskóla i dag kl. 5 síðdegis.
Þingið mun fjalla um launa-
mái og samningsrétt opinberra
starfsmanna.
Voru tvo
sólarhringa;
Akureyri, 23. nóv.
STÓR flutningabifreið fór
héðan frá Akureyri á
þriðjudag sl. áleiðis aust-
ur á Austfirði með vam-
ing. 1 bifreiðinni voru
þrír menn, bifreiðarstjóri
Órn Pétursson.
Ferðin gekk sæmilega
austur fyrir Möðrudals-
fjallgarða, en þá fór veð-
ur að versna og gekk ferð
in þó sæmilega allt að
Lagarfljótsbrú.
Leizt þeim félögum ekki
á veðrið og losuðu því
varningin í skyndi og
héldu til baka og komu
seint í nótt í Möðrudal.
Héldu þeir þegar áfram í
Mývatnssveit og síðdegis í
dag komust þeir niður i
Reykjadal og munu gista
þar í nótt. Þótti þeim ekki
ráðlegt að halda lengra,
enda búnir að vaka rúma
tVo sólarhringa.