Morgunblaðið - 25.11.1961, Blaðsíða 1
20 síður
kommúuista á örlagastundu Finna
Á ALÞINGI í gær kvacfdi Guðmundur í. Guðmundsson,
utanríkisráðherra, sér hljóðs utan dagskrár og vék að
„stórfrétt“ málgagns heimskommúnismans á íslandi um
það, að Þjóðverjar hefðu farið fram á herstöðvar hér á
landi. Utanríkisráðherra lýsti því afdráttarlaust yfir, að
frétt þessi væri uppspuni frá rótum og sýnilega húin til af
kommúnistum í þeim tilgangi að styrkja kröfur Rússa til
herstöðva í Finnlandi, enda birtist hún sama dag og Kekk-
onen, Finnlandsforseti, hefur viðræður við Krúsjeff.
Kröfur sínar um herstöðvar í Finnlandi hyggja Rúss-
ar á því, að Þjóðverjar seilist til hernaðarlegra áhrifa á
Norðurlöndum. Ekkert getur því komið Finnum verr en
fregn á borð við þessa, jafnvel þótt hún sé strax borin til
baka. En Einar Olgeirsson og Lúðvík Jósefsson sýndu hug
sinn til finnsku frænþjóðar okkar með því að dylgja um,
að fregnin væri rétt, þrátt fyrir skýlausar yfirlýsingar
ríkisstjórnarinnar.
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, benti á, að eng-
inn hefði ítarlegar en málgagn kommúnista hér á landi
fullyrt, að Finnland væri sett í hættu vegna ágengni Þjóð-
verja á Norðurlöndum. Minnti hann m. a. á eftirfarandi
ummæli hlaðsins:
„Við íslendmgar erum einnig aðilar að þeirri stefnu
að láta vestur-þýzku herstjórnina teygja griparma sína yf-
ir Norðurlönd og berum því okkar fullu ábyrgð á vanda
Finna“.
Kommúnistar væru því vísvitandi að veikja aðstöðu
Finna í hinum erfiðu samningum þeirra. Forsætisráðherra
benti á að Sovétstjórnin befði í kröfum sínum gegn Finn-
um fyrst og fremst rökstutt þær með því, að Þjóðverjar
væru að koma sér upp bækistöðvum á Norðurlöndum.
„Það getur því naumast verið tilviljun“, sagði forsætis-
ráðherra, „að Þjóðviljinn skuli einmitt sama daginn og við-
ræður Kekkonens og Krúsjeffs hefjast, birta með sínu
stærsta letri og á mest áberandi hátt, fregnir um það, að
Vestur-Þjóðverjar séu í þann veg að fá herstöðvar á Is-
landi“. —■
Guðmundur í. Guðmunds-
son, utanríkisráðherra, vék
að ósk Einars Olgeirssonar
þess efnis, að hann lýsti því
yfir, að íslendingar mundu
aldrei um alla framtíð fá
Vestur-Þjóðverjum n e i n a
hernaðaraðstöðu á íslandi og
sagði:
„IJt af þessari kröfu hans,
vil ég aðeins segja það, að
til slíkrar. yfirlýsingar er
ekkert tilefni, og ég er alls
ekki maður til þess að gefa
yfirlýsingu fyrir íslendinga
um alla framtíð í þessum
efnum. Slík yfirlýsing frá
mér væri að sjálfsögðu einsk
is virði. Hinu lýsi ég yfir,
og lýsi því afdráttarlaust yf-
ir, að allar fullyrðingar og
allar dylgjur um það, að
Aukaþing BSRB
hcfst í drg
! • maana tíkí* tig bæi# *eíi
Pi i ífsgftskóiawnn i dku kk a
Þíbgia FMt> fjotí* -tífrt
Vftlurþýzk síiéiria.ivöli haíi IciW tfmt tét am
Jf»S aS iiaa íái sðctóía tí! hetsttívi e<( heífcfinga
k islaadu Héi es enn sem komií «i aíeins nm 4- g%
jneíiinjai aí t*Sa. «9 h«hu vtrlí síretakiesa
i«íí víS GoSibubö t. GuSmandsson utamiháiáS-
h«rn og nohhia valdamenn »it». IHns vegat mna fafe
ctigin lonuSss heiSní haf* hoiiit wui, <m olihltttí ’Q
Forsíða Moskvumálgagnsins í gær.
nokkrar viðræður hafi átt
sér stað við Þjóðverja eða
nokkur málaleitun hafi kom-
ið fram af þeirra hálfu um
það að fá hér hernaðarað-
stöðu, eru tilhæfulausar með
öllu“.
Um þessar kröfur komm-
únista sagði Bjarni Bene-
diktsson, forsætisráðherra:
„Annars er það nokkuð
hlálegt, að fyrst halda þess-
ir háttvirtu þingmenn lang-
ar ræður um það, að ekki sé
að marka eitt einasta orð,
hvorki áf yfirlýsingum stjórn
arinnar, um hvort ákveðnir
atburðir hafi gerzt eða séu
að gerast né loforð þeirra
um framtíðina, en hins veg-
ar krefjast þeir loforða um
framtíðarathafnir, sem nú-
verandi ríkisstjórn vitanlega
hefur ekki á valdi sínu að
binda Alþingi eða komandi
ríkisstjórnir um“.
Um þá fullyrðingu Þjóðviljans,
að „örugig vitneskja“ væri fyrir
fregninni, komst Bjarni Bene-
diktsson forsætisráðherra m.a.
svo að orði:
„Eg verð því enn mjög ein-
dregið að fara þess á leit við
Einar Olgeirsson, að hann ann-
að hvort lýsi því yfir, að hér
sé um gersamlega staðlausa stafi
að ræða eða hann færi fram þá
öruggu vitneskju, sem hans eigið
málgagn telur sig hafa fyrir fregn
inni. Hv.þm. verður sæmdar sinn
ar vegna að gera annað hvOrt
og getur ekki sloppið með þeim
getsökum, sem hann hefur látið
sér nægja í málflutningi sínum
hingað til“.
Og Guðmundur í. Guðmunds-
son utanrikisráðherra komst svo
að orði um þessa „öruggu vitn-
eskju“ Þjóðviljans:
„Eg vil enn á ný skora á þá
kommúnistana og aðstandendur
Þjóðviljans, þó að þeir geri það
kannski ekki hér í dag, að gera
það þá í Þjóðviljanum á morg-
un, að gera þjóðinni grein fyrir
þvi, hver hún er, þessi örugga
vitneskja, sem þeir þykjast hafa.
Þjóðin á heimtingu á því að fiá
að heyra það og það því frem-
ur, þar sem um er að ræða svo
alvarlegt mál sem hér er á ferð-
inni“.
Það vakti mikla afihygli við
umræðurnar, að kommúnistarn-
ir treystust ekki til að upplýsa
heimildir sínar, þrátt fyrir marg
ítrekaðar áskoranir. Reyndu þeir
í þess stað að drepa málinu á
dreif með alls kyns diylgjum, en
áttu erfitt með að finna þeim
stað.
Umræðurnar verða raktar hér
á eftir.
ALGJÖRLEGA
TILHÆFULAUST
Utanríkisráðherra, Guðmundur
í. Guðmundsson, kvaddi sér
hljóðs utan dagskrár í gær og
sagði m.a.:
„í mórgun birtist í blaði Al-
þýðubandalagsins, Þjóðviljanum,
grein með fyrirsögninni „Vestur-
þýzkar herstöðvar á íslandi". 1
upphafi þessarar greinar segir
svo orðrétt:
„Þjóðviljinn hefur örugga vitn
eskju um það, að vestur-þýzk
stjórnarvöld ha-fi leitað fyrir sér
Framh. á bls. 3.
Ofsaveðnr n Norðurlandi
•jf Undanfarna nærfellt þrjá sólarhringa hef-
ur geisað eitt illvíðasta óveður sem lengi hefur ^
gengið yfir Norðurland, ofsalegur stormur og
hríð af norðaustan. Samfara þessu hefur verið
stórstreymt og hefur vindurinn rekið á eftir flóð-
þyígjunnk svo að á nokkrum stöðum hefur sjór
gengið langt á land upp og valdið stórskemmdum
á mannvirkjum. ^
Á Höfðaströnd kastaðist bátur á land upp.
Á Siglufirði braut bryggjur.
I Hrísey er láglendi allt undir vatni.
Á Ólafsfirði kastaðist 130 tonna skip upp í
sjálfan kaupstaðinn.
Á Dalvík braut 100 metra af nýjum hafn-
argarði og vegum skolaði burt.
Á Húsavík sökk bátur í höfninni.
En á Þórshöfn munu skemmdirnar vera
alvarlegastar. — Þar tók bíla á sjó út og
hafnargarðurinn brotnaði, þá reif undan
húsum og fyllti margar íbúðir svo að fólk
varð að flýja þær.
Samgöngur eru tepptar á sjó og landi.
-Á Heildarfrásögn frá hinum ýmsu stöðum
hefst á baksíðu blaðsins.