Morgunblaðið - 03.12.1961, Side 16
16
MORCVNRLJfílÐ
Sunnudagur 3. des. 1961
Mamma
segðu
l^KnSSKÁlDSACA
Litlu
Ijónshvolparnir
•M*
WKWOI%»
Ný bók eftir Jónas Árnason, TEKIÐ í BLÖKKINA,
eru endurminninigar Jóngeirs D. Eyrbekk sjómanns
í Hafnarfirði. Jónas Árnason hefur flestum öðrum
rithöfundum fremur lagt sig fram um að skrifa um
sjó og sjómennsku. Flestar bækur hans lýsa lífi sjó-
manna, sem hann, hefur kynnzt af eigin raun og við
störf á fiskiskipum. Svo er einnig um þessa bók.
Jóngeir D. Eyrbekk er sjómaður í orðsins beztu
merkingu. Hann kemur víða við í frásögn sinni,
segir frá æskustöðvunum í Skagafirði, en> þó fyrst
og fremst frá veru sinni á fiskibátum og togurum
félögum á sjónum og sérkennilegum samferðamönn-
um. Meginkosf.ir þessarar bókar er hispurslaus frá-
sógn pg framúrskarandi frásagnargleði.
AFREK OG ÆVINTÝR heitir ný bók,
sem Vilhj. S. Vilhjálmsson hefur þýtt
og endursagt, en þar er að finna 9 frá-
sagnir af stórviðburðum, hetjudáðum
og mannraunum. Þekktir rithöfundar
segja frá afrekum og ævintýrum, sem
þeir sjálfir hafa unnið, upplifað, tekið
þátt í, verið áhorfendur að eða rann-
sakað. Hér er lýst áhrifamiklum at-
burðum í lífi einstaklinga og þjóða. Bók
in spennir vítt svið og lýsir örlagastund
um í sögu mannkvnsine, dularfullum
atburðum í frumsógum, styrjaldarógn-
un, ótta, angist, slysum og frábærum
afrekum.
Þá er einnig komin út ferðabókin
FLJÓTIN FALLA í AUSTUR eftir am-
enska ferðalanginn Leonard Clark.
Ferðin hefst í Perú í Suður-Ameríku.
Framundan er Amazónsvæðið, græna
vitið, með öllum sínum ógnum. Vikum
saman brjótast þeir gegnum óendan-
; leik frumskógarins, en alls staðar býr
hættan: krókódíllinn í vatninu, villi-
dvrið í kjarrinu og hinn innfæddi bak
' við runnann.
|
;
LJÓSMYNDABÓKIN er fyrst og fremst rituð fyrir
byrjendur og þá, sem eitthvað hafa áður fengizt við
ljósmyndun. Bókin er rituð um ljósmyndun almennt
og hún krefst einskis af útbúnaði nema þess, sem
sérhver áhugaljósmyndari getur aflað sér. I bókinni
er sýnt á einfaldan hátt í texta og myndun, hvaða
átt er við með orðunum: brennivídd, Ijósstyrkleiki,
ljósop, ljósmælir, hliðarsjónskekkja, sambandið
milli ljósops og Iýsingartíma. Hér er ekki aðeins sagt
trá því, hvernig taka skal góðar og skýrar ljósmynd-
ir, heldur og um notkun leifturljósa, framköllun,
kópíering og margt fleira. Hjálmar R. Bárðarson
þýddi og staðfærði, en 265 myndir eru í bókinni,
efninu til skýringar.
Einnig er ný útkomin læknaskáldsagan
ENGINN SKILUR HJARTAÐ. Kjörin
gjafabók fyrir stúlkur og konur á öll-
um aldri.
Allt nýjar jólabækur.
SETBERG
FREYJUGÖTU 14. SÍMI 17667.
REVKJAVÍK.
Og svo höfum við gefið út margar nýjar, skemmti-
Icgar barnabækur, t. d.: MAMMA SEGÐU MÉR
SÖGU, en það eru 7 valdar sögur með 32 myndum.
Bók fyrir börn á aldrinum 6—10 ára. Vilbergur
Júlíusson valdi sögurnar. Sömuleiðis hefur Vil-
bergur þýtt og endursagt bókina ÞRÍR KÁTIR
KETTLINGAR, sem er litprentuð bók í stóru broti
með skýru letri. Þá eru komnar 4 nýjar bækur í
hókaflokknum um Snúð og Snældu, þær eru nr.
13, 14, 15 og 16 og heita HVOLPURINN KOLUR,
LITLU LJÓNSHVOLPARNIR EF ÉG VÆRI . . . og
LAPPI LÆRIR AÐ SYNDA. Þetta eru ajlt smá-
barnabækur, sem Vilbergur Júlíusson hefur þýtt
og endursagt.
Arkitektar — Verkfræðingar
Teiknari óskar eftir atvinnu nú þegar eða eftir
áramót. Tilboð sendist til blaðsins fyrir miðviku-
dagskvöld merkt: „Teiknari — 7665“,
Kópavogsbúor
hef opnað skovinnustofu að
Borgarholtsbraut 5 (áður skó-
vinnustofa Maríusar Pálsson-
ar) Bý til ballettæfingaskó eft
ir pöntun.
Einar Ásmundsson
hæstaréttarlögmaður
Lögfræðistörf - Fasteignasala
Austurstr. 12 3. h. Sími 15407
Minnispeningar
Jóns Sigurðssonar
Kosta kr. 750 fást í bönkum, pósthúsinu
og hjá ríkisfchirði. — TILVALIN JÓLAGJÖF.
LIMGLIIMGA
vantar til að bera blaðið í eftirtalið hverfi
FJÓLlGÖTU
KJARTANSGÖTU
FÁLKAGÖTU
fdiorawiíítaíitíi