Morgunblaðið - 03.12.1961, Side 20
20
MOP r.rNfíL 4ÐIÐ
Sunnudagur 3. des. tD61
Margaret Summerton
KÚSffi
VÍÐ
SJÖINN
Skáldsaga
L________'i______J
Þetta kvöld hélt ég, að þar
sem hún var- í London og þau
höfðu hitzt. þá ætlaði hún nú að
samþykkja skilnaðinn. Hann var
eitthvað svo uppnæmur í sím-
anum. En hann kom ekki. Ég
beið....og mér fannst tíminn
aldrei ætla að líða. Loksins fór
ég að ná í kápuna mína og í
sama bili kom hann þjótandi inn.
Meira vissi ég ekki.... annað
en það, að nú var biðin á enda.
Hann sagði mér, að hann hefði
bílinn fyrir utan og við kyldum
tala saman þar. Það, sem hann
hafði að segja mér var það, að
Eleanor hefði sagt, að hún mundi
aldrei skilja við hann, svo að við
yrðum að bjarga okkur án þess.
Það var dálítið erfitt að renna
huganum til baka til þessa tíma-
bils ævi minnar, sem kom mér
nú fyrir sjónir eins og eyðimörk.
Ég lauk því sögunni eins fljótt og
ég gat: Þetta kvöld sá ég hann
i siðasta sinn. Líklega hef ég haft
það á undírmeðvitundinni, að
svona myndi fara og það hafi
gert mig hálfbrjálaða. Það var
beinlínis ein's og ævi mín væri
að líða á enda og ekkert fram
undan nema gálginn....
Ég brosti til hans. Já, þetta er I
heldur ómerkileg saga; það I
finnst mér lika sjálfri nú. Trú-
irðu mér?
Já, ég trúi þér. Ég sá þig sjálf-
ur, eins og þú veizt.
Og þú hefur auðvitað reiðzt
mér? hélt ég áfram.
Já, það gerði ég. Hann horfði
fast á mig sem snöggvast. Mér
fór eins og manni fer venjulega,
sem er yfirgefinn á þennan hátt.
Varð fyrir.miklum vonbrigðum.
Eins og ég sagði þér, hafðirðu
haft mikil áhrif á mig, meiri en
nokkur stúlka nokkurntíma fyrr.
Ég veit ekki, hvernig ég á að
skýra það, og hef aldrei vitað. En
vitanlega jafnaði ég mig með
tímanum. _____
Mark tók upp vindlingaveskjð
sitt og bauð ttiér, og er ég hristi
höfuðið, sagði hann: Já, ég man
það annars enn, að þú reykir
ekki. Hann hló. Þarna sérðu,
hvor.t þú ert ekki minnisverð.
En kannske hefur það verið
vegna þessarar ástríðu, sem þú
þjáðist svo' af. Kannske ' var
ég líka bara afbrýðissamur.
Það væri heimskulegt.
Kann að vera. En veiztu, að
ég hef oft hugsað um það, hvað
stúlka, sem hefur verið svona al-
varlega ástfangin, eigi eftir. Ég
sneri mér við og var næstum
orðin reið, en hann endurtók:
Geturðu kannske sagt mér það.
Jæja, gott og vel, ég skal segja
þér það. Það sem svona stúlka
á eftir er mæíikvarði, strangur
mælikvarði, sem leyfir henni
ekki framvegis að líta við nema
því allra bezta — ósvikinni vöru.
Ja, hjálpi mér sá, sem vanur
er! hraut út úr honum. Ef þú
ætlar að eyða ævinni í að verða
skotin og afskotin í náunga eins
og Phiiip Lester. sem giftist tíu
árum eldri konu en hann var
sjálfur, til fjár, þá læt ég það
svona rétt vera.
Já, finnst þér ekki það komi
mér mest við sjálfri? Rödd mín
var hvöss.
Hann sendi mér ilikvitnislegt
bros. Jú. Ég biðst fyrirgefningar.
Að minnsta kosti var það allt
búið að vera fyrir löngu. Ég
horfði á hann með vaxandi for-
vitni. Nú finn ég, að þú ert guð-
sonur hennar ömmu minnar.
Ertu hérna bara í kurteisisheim-
sókn?
Já, meira og minna. Föður-
bróðir minn. James Halliwell, er
er fólkið að hrópa svona mikið ?
lögfræðingur hennar, og afi minn
var það á undan honum. Hún
þurfti á ráðleggingum hans að
halda, en svo vildi til, að hann
lá veikur, svo að ég kom hingað
á föstudaginn, til svo sem tveggja
daga dvalar til að vita, hvort ég
gæti nokkuð hjálpað.
Það verða ein til tvær vikur
þangað til hann kemst á f úur
aftur, svo að honum datt í hug,
að ef hann sendi mig og hún gæti
yhaft eitthvert gagn af því, þá
mundi hún að minnsta kosti ekki
deyja úr eintómri óþolinmæði á
meðan.
Svo þú ert þá lögfræðingur,
eða, hvað?
Nei guð forði því. Ég er bóka-
útgef^ndi. Pabbi stofnaði fyrir-
tækið með'Ted Bracken, og þeg-
ar hann svo dó fyrir tveim árum,
tók ég við hans hluta. Annars
þckkti hann mömmu þína, og
það gerði James frændi reyndar
líkaj
Ég svaraði með ákafa: Þá haf-
ið þið líka vitað, að ég var til.
TÖluðu pabbi þinn og frændi
nokkurntíma um mig?
Ja.... hann hikaði.... ja, jú,
liklega hafa þeir gert það. Jú,
eitthvað hafa þeir víst minnzt
á þig. En ef ég á að vera hrein-
skilinn, þá.... Hann brosti aftur
....þá hafði ég gleymt, að þú
varst til þangað til ég kom hing-
að og Edvina frænka sagði mér,
að hún hefði gert boð eftir þér.
Og vitanlega var engin ástæða
fyrir mig til að setja Charlotte
Elliot í neitt samband við Jane
Elliot.
Allt í einu datt mér eitt í hug.
Þú þekkir þá Esmond?
Já, ég þekkti hánn. Svarið kom
kæruleysislega, og vonin sem
hafði snögglega risið hjá mér,
var hjöðnuð niður áður en hann
hélt áfram. Hann var þrem ár-
um yngri en ég, svo að enda þótt
við gengjum í sama skóla, vorum
við ekkert saman sem strákar.
En hann var þó einstöku sinnum
hjá okkur í fríinu sínu í London
og ég kom hingað nokkrum sinn-
um á sumrin.
Þegar við vorum orðnir upp-
komnir, vorum við engir sér-
stakir kunningjar en höfðum þó
nokkurt samband okkar í milli
... ,og... ,en það hefur nú kann-
ske bara verið af því að ég var
handbær þá var ég svaramaður
hans þegar hann giftist Lísu. En
þá er’líka hér um bil upptalinn
allur okkar kunningsskapur.
Þetta var sjálfsagt ekki nema
sönn lýsing á sambandi þeirra,
sem unglinga og uppkominna
manna, len samt fann ég alveg á
mér, að ekki komu öll kurl til
gi afar.
Til þess að segja eitthvað,
spurði ég: Þekktirðu Lísu áður
en þau giftust?
Nei. Ég hitti hana í fyrsta sinn
hjá fógetanum og svo fóru þau
til Ródesíu strax eftir brúðk-.up-
ið og eftir að þau komu aftur,
sá ég þau ekki nema svo sem
tvisvar. Einu sinni í London og
svo síðustu hvítasunnu, þegar ég
var hér yfir helgina. Þú ert enn
eitthvað vonsvikin. Hversvegna?
Og nú valt það út úr mér,
hálfnauðugri, en liklega af ein-
hverri innri þörf á því að segja
það upphátt við einhvern. Ég
hafði búizt við því, að þegar ég
væri komin til Glissing, ; rðu all-
ir alltaf að tala um Esmond, og
ég fengi alla ævisögu hans í eyr-
un. En það var öðru nær. Enginn
nefndi hann á nafn.
Ég kom nú hingað í engum öðr
um tilgangi en að fræðast um
Esmond, því að mig langar að
vita eitthVað um'hann.... Nú
kom svo einkennilegur svipur á
Mark, að mér hnykkti við,'en ég
herti bara á ögruninni: Mér
finnst ég eiga fullan rétt á því.
Já.... já, auðvitað.
Hann stóð snöggt upp og gekk
út að gluganum. Ég sneri mér á
stólnum og horfði á bakið á hon-
um. Fyrir einu andartaki hafði
hann verið vingjarnlegur, en nú
var ég ekki eins viss um það.
Hvað er þetta_, sem þú ert að
gera fyrir Edvinu? spurði ég.
Hún virtist eitthvað einkennileg
og jafnvel reið við þig í gær-
kvöldi.
Já, hún þarf nú ekki mikið til
þess. Þú mátt ekki taka það of-
alvarlega þó að hún skipti skapi
af litlu tilefni.
Hann talaði án þess að líta við
og ég varð hálf-kvefsin við þess-
ar undaníterslur hans og sagði:
Hvaða fyrirætlun er. það, sem
hún hefur á prjónunum? Hvað
ertu raunverulega að' gera
hérna?
Nú sneri han* sér við, gekk
hægt að borðinu aftur, en séttist
þó niður. Gera hér? Ja, hvernig
aetti ég að útskýra það? Hann
hugsaði síg um og teygði fram
ncðri vörina. Maður gæti sagt,
að ég væri að gæta hagsmuna
hinna dauðu. Dramatískt, finnst
þér ekki? Hann brosti háðslega.
En það skrítna er, að þetta er
bókstaflega satt.
Hagsmuna Esmonds?
Hann hlepti brúnum. Nei, ekki
Esmonds. Þér verður tíðrætt um
hann, finnst þér ekki?
Hann var nú tvíburabróðir
minn.
Hann leit hvasst á mig. Þið
hittuzt aldrei. var það?
Nei aldrei frá því við vorum
smákrakkar. Ég setti frá mér
kaffibollann. Ef þú ert ekki að
gæta hagsmuna Esmonds, hvers
þá?
ajUtvarpiö
Sunnudagur 3. desember
8:30 Létt morgunlög.
9:00 Fréttir.
9:10 Veðurfregnir.
9:20 Morgunhugleiðing um músik: —
„Ahrif tónlistar á sögu og siði“
eftir Cyril Scott; VII. (Árni Krist
jánsson).
9:35 Morguntónleikar:
a) Orgelkonsert nr. 5 I g-moll
eftir Thomas Arne (Albert de
Klerk og kammerhljómsveitin
í Amsterdam leika; Anthon
van der Horst stj.).
b) Sónata fyrir tvær fiðlur, víólu
da gamba og sembal (Gullna
sónatan) eftir Purcell (Isolde
Menges, William Primrose,
Ambrose Gauntlett og John
Ticehurst leika).
c) Pavane og Chaconne eftir
Purcell (Hátíðarhljómsveitin 1
Luzern leikur; Rudolf Baum-
gartner stj.).
d) Enskir og ítalskir madrigalar.
e) ,,Góði hirðirinn", svíta eftir
Hándel (Konunglega fílharm-
oníusveitin í Lundúnum;
Beecham stjórnar).
11:00 Messa í Hallgrímskirkju (Prest-
ur: Séra Jakob Jónsson. Organ-
leikari: Páll Halldórsson).
12:15 Hádegisútvarp.
13:15 Úr sögu stjörnufræðinnar; T. er-
indi: Náttúruspeki og stjörnu-
fræði frá Pýþagórasi til Brúnós
(Þorsteinn Guðjónsson).
14:00 Miðdegistónleikar: Síðari hluti
>f >f X-
GEISLI GEIMFARI
>f >f >f
—Nú fer Mystikus metallikus að
svara seinni spu?ningu Lúsí Fox....
,— Lúsí Fox, maðurinn við hlið
þér er
svikari!
— Vilduð
ekki frændi þinn, heldur bæta, herra Fox?
þér nokkru við þetta
óperunnar ,,AidaM eftir Verdi
(Tomislav Neralic, Christa Lud-
wig, Gloira Davy, Jess Thomas,
Josef Greindl, Sieglinde Wagner
o. fl. syngja með kór og hljóm-
sveit Berlínaróperunnar; Karl
Böhm stjórnar. — Þorsteinn
Hannesson flytur skýringar).
15:30 Kaffitíminn: — (16:00 Veðurfr.).
a) Magnús Pétursson og félagar
hans leika.
b) Renato Bery og hljómsveit
hans leika létt lög.
16:15 Á bókamarka^ðinum (Vilhjálmur
Þ». Gíslason útvarpsstjóri).
17:30 Barnatími (Anna Snorradóttir):
(18:20 Veðurfregnir).
. a) Hvað veiztu um Chopin?: Svör
frá prófi.
b) Ævintýriaskáldið frá Óðinsvé*
um; sjötta kynning: Ævar R.
Kvaran les úr ævintýrum
Andersens.
c) ..Ljúfa álfadrottning", nýtt
framhaldsleikrit með söngvum
eftir Ólöfu Árnadóttur; I.
þáttur. — Leikstjóri: Klem-
enz Jónsson. Söngstjóri: Sig-
urður Markússon.
d) Lesið úr þremur nýjum barna
bókum ísl. höfunda.
19:00 Tilkynningar.
19:30 Fréttir og íþróttaspjall.
20:00 Tónleikar: Pólski þjóðlagaflokk-
urinn ,,Slask“ syngur og leikur.
20:10 Hugleiðing: Heimkoma (Eggert
Stefánsson söngvari).
20:25 Léttir'kvöldtónleikar:
a) Leonard Pennario leikur á
tvö píanó.
c) Capitol hljómsveitin leikur
vinsæl óperulög.
20:55 Hratt flýgur sturid: Jónas Jónas-
son efnir til kabaretts í útvarps-
sal. Hljómsveitarstjóri: Magnús
Pétursson.
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:05 Dánslög.
23:30 Dagskrárlok.
Mánudagur 4. desember
8:00 Morgunútvarp (Bæn: Séra Emil
Björnsson. — 8:05 Morgunleik-
fimi: Valdimar Örnólfsson og
Magnús Pétursson. — 8:15 Tón-
leikar — 8:30 Fréttir. — 8:35 Tón-
leikar. 9:10 Veðurfregnir. — 9:20
Tónleikar).
12:00 Hádegisútvarp — (Tónleikar.
12:25 Fréttir og tilk.).
13:15 Búnaðarþáttur: Magnús Marteins
son vélfræðingur. talar um diesel
vélar landbúnaðarins.
13:30 ,,Við vinnuna": Tónleikar.
15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilfc,
— Tónleikar. — 16:00 Veðurfr. —
Tónleikar. — 17:00 Fréttir).
17:05 „í dúr og moll“: Sígild tónlist
fyrir ungt fólk (Reynir Axels-
son).
18:00 Rökkursögur: Hugrún skáldkona
talar við börnin.
18:20 Veðurfregnir.
18:30 Þingfréttir. — Tónleikar.
18:50 Tilkynningar.
19:30 Fréttir.
20:00 Hannes Hafsteln: Aldarmfnning,
Dr. Bjarni Benediktsson forsæt'*
isráðherra og Bernharð Stefáns-
son fyrrum alþm. flytja erindf,
Lesið úr ræðum Hannesar Haf-
steins og minningum Matthíasar
Ólafssonar, Jóns Stefánssonar og
í>orsteins Gíálasonar um hann,
svo og nýrrl ævisögu hans eftir
Kristján Albertsson. Sungin lög
við kvæði eftir Hannes Hafstein,
— Vilhjálmur Þ*. Gíslason út-
varpsstjóri undirbýr dagskrána,
Auk hans lesa leikararnir Valur
Gíslason og Gestur Pálsson.
21:30 Útvarpssagan: ,,Gyðjan og ux-
inn“ eftir Kristmann Guðmunds
son; XXXII. (Höfundur les).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 HljómpKjtusafnið (Gunnar Guð-
mundsson).
23:00 Dagskrárlok.
l»riðjudagur 5. desember
8:00 Morgunútvarp (Bæn: Séra Emil
Björnsson. — 8:05 Morgunleik-
fimi: Valdimar Örnólfsson og
Magnús Pétursson. — 8:15 Tón-
leikar — 8:30 Fréttir. — 8:35 Tón-
leikar. 9:10 Veðurfregnir. — 9-:20
Tónleikar).
12:00 Hádegisútvarp — (Tónleikar.
12:25 Fréttir og tilk.).
13:00 „Við vinnuna": Tónleikar.
15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk,
— Tónleikar. — 16:00 Veðurfr. —
Tónleikar. — 17:00 Fréttir).
18:00 Tónlistartími barnanna (Jón Cr.
Þórarinsson).
18:20 Veðurfregnir.
18:30 Þingfréttir. — Tónleikar.
18:50 Tilkynningar.
19:30 Fréttir.
20:00 Kórsöngur: Karlakórinn ,,Adolp-
hina“ í Hamborg syngur.
20:16 Framhaldsleikritið „Hulin augu'*
eftir Philip Levene, I þýðingu
Þórðar Harðarsonai;; 7. þáttur;
Dularfullt fyrirbrigði í Penwood,
— Leikstjóri: Flosi ‘Ólafsson. —
Leikendur: Róbert Arnfinnsson,
Haraldur Björnsson, Helga Val-
týsdóttir, Indriði Waage, Brynj-
ólfur Jóhannesson, Klemenz Jóne
son og Jónas Jónasson.
20:56 Tónleikar: Lítið næturljóð 1 G«
dúr (K525) eftir Mozart (Hljóm-
sveitin Philharmonia I Lundún-
um leikur; Colin Davis stjórnar).
21:16 Ný ríki I Suðurálfu; II: Franska
samveldið (Eiríkur Sigurbergsson
viðskiptafræðingur).
21:40 Píanómúsik eftir Liszt: Mersjan-
off leikur þrjár etýður, kenndar
við Paganini.
21:50 Formáli að fimmtudagstónleik-
um Sinfóníuhljómsveitar íslanda
(Dr. Hallgrímjar Helgason).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Lö& ungafólksins (Kristrún Ey-
mundsdóttir og Guðrún Svavars-
dóttir).
23:00 Dagskrárlok.