Morgunblaðið - 05.12.1961, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 05.12.1961, Qupperneq 11
Þri'ðjudagur 5. des. 1961 MORCT’*r*r 4 rt I Ð n FRA SKUGSSJA Lúðvík Kristjánsson: 'Á slóðum Jóns Sigurðssonar Vegleg og fögur bók um ævi og störf Jóns Sig- urðssonar forseta. Allt efni bókarinnar er byggt á rannsókn frumheimilda og i bókinini eru fleiri myndir af skilríkjum, varðandi Jón Sigurðsson, en áður hafa komið fyrri almenn- ingssjónir. Þetta er tvímælalaust merkasta rit, sem skráð hefur verið um Jón, og ættu allir, sem kynnast viija frelsisbaráttu íslendinga á 19. öldinni, sögu þjóðarinnar og ævi og störf- um Jóns Sigurðssonar, að eignast þessa bók. Guðmundur Gíslason Hagalín: Tötrar draumsins Saga um ástir og lífsdraum karlas og konu, töfrar lífsblekkingarinnar og óskhyggjunnar, þá töfra, sem Jöngum hafa verið í skjólið í hretum og hríðum hversdagsleikans, einmanaleika og vonbrigða. Rammíslenzk skáldsaga, sem gerist að mestu í íslenzku sjávarplássi. Ef til vill bezta skálasaga Hagalíns. Guðmundur Gíslason Hagalin: Það er engin þörf að kvarta Endurminningar Kristínar Kristjánsson, sem fædd er í Borgarfirði, en fluttist ung að aldri til Vesturheims og bjó í íslendinigabyggðum Kanada i 17 ár. Kristin er merk kona og stór- brotin og mörgum kunn fyrir skyggni sína og dulargáfur. og auk þess svo mikillar gerðar, að allt, sem fram við hana hefur komið, engu siður illt en gott, hefur aukið á reisn hennar og styrkt hana. Þetta er mikil saga, frásagnir úr tveimur heimum og tveimur heimsálfum. Gretar Fells: Það er svo margt Safn erinda um margvísleg efni, sálfræðileg, heimspekileg, dulfræðileg og fagurfræðileg. Bókin er mótuð guðspekilegu lífsviðhorfi, en ekki sáluhjálparboðskapur eða áróður, heídur frjálsar hugleiðingar um háleit og mikilvæg efni, sem allir verða fyrr eða síðar að taka afstöðu til. Alfred Eansing: Harðfengi og hetjulund Hin ótrúlega hrakndngaför Ernest Shackletons til Suðurskautsins „. . . einhver mesta ævin- týraferð vorra tíma . . . hrottalegur lestur, en eigi síður hrífandi", segir í ritdómi í Neiv Vork Times. Stórfengleg lýsing á hetjubaráttu og þreki manna, sem virtust vera í vonlausri aðstöðu og ofurseldir hungn og kulda. Peter Freuchen: Sléttbakurinn Frásagniir af hinu miskunnarlausa og harða lífi hvalveiðimanna við Grænland á tíinum segl- skipanna. Æsileg saga harðgerðra og ófyrir- leitinna manna í stórbrotnu og miskunnarlausu umhverfi. Hörkuspeninandi og harðsoðin sjó- mannabók, ósvikinn Peter Freuchen. Margit Söderholm: Saman liggja leiðir Ný skáldsaga eftir höfund hinna vinsælu Hellubæjabóka. Heillandi frásögn um örlög og ástríður sundurleits hóps samferðamanma. Lesandinn Kynnist nýrri hlið á höfundarferli þessarar snjöllu skáldkonu. Eva Ramm: Allt fyrir hreinlœtið Ein fyndnasta og skemmtilegasta bókin á markaðnu'n. Sagan af frú Svendsen, sem þvær og skúrar svo gólfin hennar verða gerilsneydd. En hún þvær burt allan motaleikann af litla notalega heimilinu, nuddar gyllinguna af ást- inni og hellir hamingjunni út með uppþvotta- vatminu. En af hverju gerir frú Svendsen þetta? Jörgen Bitseh Sandur og sól Fróðleg og skemmtileg ferðasaga frá Arabíu, landi himna miklu auðna, fornlegu lífshátta, fátæktar og auðæfa. Þar ríkir unaður og áþján miðaldanna enn við hiðina á nútíma lúxus og framförum. Þar eru enn við líði refsingar eins og húðstrý kingar og limlestimgar, og þar má enn ekki taka ljósmyndir, þar sem spámaður- inn hefur bannað það. Eigi að síður eru í þessari bók 55 stórfagrar litmyndfr. Taylor Galdwell: Lœknirinn Lúkas Töfrandi skáldsaga og heillandi og stórbrotið verk um lækninn og guðspjallamanninn Lúkas. Lesandinn kynntist taumlausum veizluhöldum í keisarahöll, takmarkalausri fátækt hafnar- borganna við Miðjarðarhaf, hann ferðast um glæstar marmarahallir Rómaveldis og kynnist eymd og fátækt galeiðuþræla. En yfir allt gmæfir marmkærleikur Lúkasar og leit hans og þrá eftir því, sem gott er og fagurt. Formála fyrir þessari fögru bók hefm séra Bjarni Jóns- son, vígslubiskup ritað. Theresea Charles: Seiður hafs og ástar Fögur ástarsaga, um unga stúlku, sem giftist rikum manni, til þess að sjálfri sér og syst- kinum sínum farborða. Em ástin lætur ekki að sér hæða. Daginn sem sem hún sá Byrne, íturvax inn, útitekinn og brosandi, þar sem hann stóð um borð í hinum fagra báti símum, varð breyt- ing hið innra með henni . . . Ingimar Óskarsson: Fiskar í litum Falleg handbók, með nær 200 litmyndum af fiskum. Myndirnar eru prentaðar erlemdis, en texti Ingimars sniðinn við íslenzka staðháttu og gefur gieinagóða lýsingu á fiskunum, lifn- aðarháttum þeirra, útliti og venjum. Þessi bók er ætluð öilum, ungum sem gömlum, atvimnu- fiskimönnum og sportveiðimönnum og yfir- leitt öllum þeim sem skyggnast vilja undir yfirborð vatna og sjávar og kýnnast nýjum, fögrum heimi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.