Morgunblaðið - 07.12.1961, Side 22

Morgunblaðið - 07.12.1961, Side 22
Fimmtudagur 7. des. 1961 Hefur auk þess 24 punda laun á vikuj og aukagreiöslu fyrir hvern leik „ÉG ER MJÖG ánægður með lífið. Félagar mínir hér í St. Mirren eru hver öðrum betri sem félagar. Allir hafa tekið mér opnum örmum og sérlega vinsamlega“. Þórólfi Beck í Skotlandi Og sum- ir þeirra minnast á hina glæstu daga AJberts Guðmundssonar i því sambandj, en Albert var stjarna hjá Glasgow Rangers. — Fólk sem kynnst hefur Þórólfi lofar hann einnig fyrir góð- mennsku og góða siði. Þórólfur er án efa góður „ambassador“ fyrir ísland, segir Magnús Magn- ússon' ritstjóri að lokum. Sveitin sem setti metið. Þorsteinn Ingólfsson, Guðmundur Gíslason og Hörður Finnsson. Þeir bættu það um meira en 6 sek. Þessi orð mælti Þórólfur Beck við fréttaritara Mbl. f Glasgow,'Magnús Magnússon, ritstjóra eins af stærstu blöðum Skotlands, „The Scotsman“. Magnús hefur fylgzt með ferli Þórólfs Beck fyrir Mbl. og hefur nú sent sína fyrstu frétt um hann sem atvinnumann. Nýtur Majpiús við þetta starf aðstoðar íþróttafréttaritara sinna við „The Scotsman“. SAMNINGURINN Nú er Þórólfur Beck orðinn at- vinnumaður. Fyrsta leik sinn sem slíkur lék hann 2. des. sl. Það var 7. leikur hans með A-liði Mirren. Miðvikudaginn þar á undan ritaði hann undir samning við félagið sem atvinnumaður. Um samninginn segir Magnús. „William Reid framkvæmda stjóri St. Mirren bauð honum 2400 pund. en Þórólfur Beck hafnaði því boði og kvaðst ekki skrifa undir samning fyrr en á móti kæmi 3000 punda greiðsla. Mér skilst að lokasamningur þeirra hafi ver ið í kringum 3000 pund. Sem fullgildur leikmaður hjá Mirr- en í 1. deild, fær Þórólfur auk þess 24 punda kaup á viku fyrir hvern einasta leik sem hann leikur í 1. deild, og er sú aukagreiðsla meiri ef félag- ið vinnúr eða gerir jafntefli.“ * VEL UM ÞÓRÓLF HUGSAÐ í bréfi Magnúsar segir að ná- kvæm upphæð samnings Þórólfs og St. Mirren sé ekki gefin upp „staðfest". En vinir mínir meðal íþróttafréttamanna fullyrða að talan 3000 sé sem næst því sem undirskrifað var, segir Magnús. Þó að kaup Þórólfs á viku hverri, heldur Magnús áfram, sé ekki ýkja mikið miðað við ísl. krónur, þá held ég að hann megi vel við una. Hann hefur fengið góðan samning miðað við það sem hér gerizt og ég veit að St. Mirren metur hann mikils og vill hugsa vel um hann. • VINSÆLL LEIKMAÐUR Þórólfur Beck er orðinn mjög vinsæll meðal stuðningsmanna St. Mirren. Þeir kalla hann „Torry“ — stytting úr gælunafni hans Hann hefur skorað 4 mörk í 7 leikjum með Mirren. Venju- lega leikur hann stöðu hægri inn herja, en hefur einnig leikið sem vinstri innherji. Reid fram- kvæmdastjóri segir um hann. „Hann er sérlega góður knatt- spyrnumaður, Hann skortir enn- þá úthald — knattspyrnan hér í Skotlandi er harðari en hann á að venjast. En við erum fullviss- ir um að hann muni standa sig vel 1 framtíðinni." m LOFAÐUR AF GAGNRÝNENDUM Knattspyrnugagnrýnenidur í Skotlandi hafa farið lofsamleg um orðum um það hve fljótur Þórólfur er að átta sig á hlut- unum á Ieikvelli. „Hann er ennþá dálitið svifaseinn, en hann mun taka skjótum fram- förum er hann venst skozkri knattspyrnu. Sendingar hans eru sérlega glæsilegar, hann veit hvenær hann á að halda kniettinum og hvenær hann á að gefa samherja hann. Hann er fyrsta flokks knattspyrnu- heili“ sagði einn. „Hann er fæddur knattspyrnumaður“ sagði annar. Þetta er mikið lof í landi sem státar af sérstaklega góðum leik innherja í knattspyrnu. Þetta er fyrir Þórólf, „sem þráir knatt- spyrnu“ góð spá um bjarta fram- tíð. Ekki á það sízt við þar sem Reid framkvæmdastjóri segir mér að hann vaxi með hverjum leik. * TIL ÞRIGGJA ÁRA Samningur Þórólfs er til þriggja ára og á því tímabili hefur hann full laun hjá St. Mirren. Þetta þýðir að han.n verður að æfa 4 daga í viku hverri — tvo tíma á mánudög um og miðvikudögum og 4 tíma á þriðjudögum og fimmtu dögum. f 1. deildinni skozku eru nú 18 lið. Mirren gengur ekki vel þetta árið. Félagið hefur leikið 14 leiki og af þeim aðeins unnið 5 gert 2 jafntefli en tapað 7 leikjum. Af þeim 7 leikjum sem Þórólfur hefur leikið með í hef- ur Mirren unnið 3 en tapað 4. Þórólfur skoraði ekki í sínum fyrsta leik sem atvinnumaður, en átti góðan leik að dómi gagn- rýnénda. St. Mirren er nú í 12. sæti í deildinni. Sl. sumar (1960) vann liðið bikarkeppnina skozku og liðið á góða sögu að baki og getur verið gott. BJÖRT FRAMTÍÐ Knattspýrnugagnrýnendur hér spá því að björt framtíð blasi við Höröur vann bezta afrekið - en Guömundur var f jölhæfastur Frá sundmóti KR i fyrrakvöld SUNDMÓT KR — fyrsta; suhdmót vetrarins — lofar góðu um góð afrek í sundi á þessum vetri. Tvö met voru sett eftir að æfingar hafa staðið aðe'ins í 1% mánuð. — Ber met Harðar Finnssonar, Erlingur Jóhannsson KR — setti svip á. unglingasundin og færði KR 2 sigra. ÍR, sérlega hátt, þar sem hann bætti gamla metið — sem þó var aðeins nokkurra mánaða gamalt — um meira en sekúndu. Hitt metið, sem sveit ÍR setti í þrísundi karla, var rækilega slegið, ^enda var það 10 ára gamalt. „Viltu í nefið, nafni“ sagði Pétur Eiríksson við nafna sinn Kristjánsson er Pétur hafði sigrað í 50 m flugsundi. Pétur keppir nú 13. árið i röð og er alltaf jafn snar á 50 m sprctti. — Og Kristjánsson þáði boðið, og hnerraði. Sundfólk IR hafði verulega yfirburði á þessu móti. Það vann allar greinar fullorðinna — nema eina og það setti tvö ísl. met. Það vann auk þess þrjú beztu afrek mótsins og vann alla bikarana 3, sem um var keppt. Án þessa allt of fámenna hóps sundfólks ÍR hefði mótið verið harla lítils virði. Og það er einkennilegt hve fát't fólk laðast að sun.d- íþróttinni, svo skemmtileg sem hún er. Að vísu komu efnileg- ir unglingar þarna fram en engan veginn nógu margir. Heil félög virðast lögst í eitthvert dá. Ef fólkið vill ekki koma til æfinga, þá verða félögin að sækja fólkið. Fé- lögin verða að gera eittlivað. • Met Harðar Afrek Harðar Finnssonar í bringusundi var sérlega gott og var bezta afrek mótsins. Hörður hefur náð tökum á mjög árangurs ríkum sundstíl og hleypur nú fram í afrekum sem mörgum sekúndum munar. Er það spá okkar að á næstu mótum eigi Hörður eftir að ná sérlega athygl- isverðuhi árangri og framförum, fyrst framfarabylgjan er komin af stað. • Frábær afreksmaður Guðmundur Gíslason setti svip sinn á þetta mót. Hann gersigraði keppimautana í 200 m skriðsundi svo að munaði nær laugarlengd (sf 8 leiðum). Síðan brá hann sér í 100 m bringusund og hjó nærri gamla metimi. Þá sýndi hann glæsilegan flugsundssprett og var á tíma sigurvegarans, loks synti hann baksundið í boð- sundssveit ÍR og skapaði mest af því forskoti sem ÍR vann með. Engin íslenzkur sundmað ur gæti leikið þetta bragð eft- ir Guðmundi að synda allar sundaðferðir á sama móti — og vera við íslandsmet í hverri þeirra. Hrafnhildur Guðmundsdóttir vann Flugfreyjubikarinn og átti ágætan skriðsundssprett, keppnis laust. En bringusund hennar er verra nú en áður. Þar er hún algerlega ein á báti — engin keppni i nánd. Hörður Finnsson ÍR með bik- arana tvo, Sindrabikarinn og afreksbikar mótsins. • Unglingasumd Unglingar vöktu margir at- hygli þetta kvöld. Fyrstan skal telja nýliðan Davíð Valgarðsson ÍBK. Hann varð annar á 28,2 1/10 úr sek. á eftir Guðmundi Harðarsyni Æ í 50 m skriðsundi og setti drengjamet í 50 m flug- sundi á 32,7 sek. Þetta er mikið sprettssundmannsefni — og kannski meira éfni. Það ber fram tíðin í skauti sínu. Guðmundur Gíslason hefur nú hafið þjálfun í Keflavík. Þetta er fyrsti ávöxt- urinn. En það kemur niður á Guðmundi sem ekki hefur sama tíma til æfinga og fyrr. Sama má segja um Guðmund Harðarson svo Og Erling Jó- hannsson bnngusundmann hjá KR. Þetta eru mikil efni. Ung- lingar í Hafnarfirði lofa og góðu en eru óreyndir enn. • Fáir kunna baksunid Athygli vakti að aðeins 3 menn virtust kunna baksund af 10—20 sem syntu það þetta kvöld. Þessir voru Guðmund- ur Gíslason, Þorsteinn Ingólfa son og Siggeir Siggeirsson. — Hinir misþyrnetu svo sundstíl og allri fegurð að ógleði vakti Hvar er stílkennsla á við það sem kennd var í gamla daga? — A.St. Þórólfur Beck fékk 3000 pund fyrir 3 ára samning

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.