Morgunblaðið - 08.12.1961, Side 5
/*t Föstudagur 8. des. 1961
MORGUNBLAÐIÐ
5
Guömundur Einarsson frá MWdal ogf mynd af örænlending; um, sem komnir eru af haftirö-
ilsveiðum.
UM þessar mundir heldur
Guðmundur Einarsson frá Mið
dal málverkasýning-u í vinnu-
stofu sinni að Skólavörðustíg
43. Sýnir hann þar olíumál-
verk og vatnslitamyndir. —
Margar myndanna eru frá
Grænlandi og norðurslóðum,
en þar hefur Guðmundur ferð
azt talsvert og fór hann síðast
í sumar til Grænlands.
Fréttamaður blaðsir ; hitti
Guðmund að máli upp á
Skólavörðustíg fyrir skömmu
og á vinnustofunni gat að líta
margt annað forvitnilegt en
myndir og málverk. T.d. eru
þar flöskur og box, sem kona
Guðmundar hefur skreytt
með skeljum, ýmsir sérkenni-
legir steinar og steingerfingar,
sedursviðarkista skreytt með
ópal-steinum. Sagðist Guð-
mundur hafa smíðað hana
handa konu sinni undir hátíða
búning hennar. Var mjög sér-
kennilegur ylmur af kistunni.
Guðmundur sagðist hafa feng
ið heilt sedrustré frá Ameríku
og m.a. notað það til að
klæða innan skála í su'marbú-
stað sínum.
— Er ég var unglingur,
dreymdi mig um að eiga hús
úr sedrusviði og hefur sá
draumur rætzt þó í smækk-
aðri mynd sé.
Á veggjum vinnustofunnar
hanga dýrahorn og þar getur
að líta margt fleira, sem of
langt yrði upp að telja.
Bak við hús sitt hefur Guð-
mundur.aðra vinnustofu, þar
sem hann geymir aðallega
höggmyndir og vinnur að
þeim. Þar var t.d. örn úr rauð
um jaspis, sém setja á upp í
flugturninum nýja, tveir ís-
birnir en sú stytta er fyrir
framan háskóla í Finnlandi og
margt annarra höggmynda.
bar geymir Guðmundur einn-
ig náhvalstönn, sem honum
var gefin í Grænlandi og er
um tveir og hálfur meter á
lengd. Sagði Guðmundur, að
hún væri ein af þremur
lengstu náhvalstönnum, sem
til væru í heiminum.
Við báðum Guðmund að
segja okkur frá síðustu ferð
sinni til Grænlands.
— Það var í ágúst í sumar,
sem nokkrir framámenn í flug
málum hér á landi fóru til
Grænlands og buðu þeir mér
með. Við dvöldumst á Græn
landi vikutíma við siiungs-
veiðar og höfðum fengið leyfi
hjá dönsku stjórninni - til að
veiða á mjög stóru svæði, 6^-
8 breiddargráðum. á N.-Aust-
ur Grænlandi. Við ferðuðumst
með katalínaflugbát og dvöld
umst t.d. nokkra daga í botni
Sauðnautafjarðar. Þar mæ,t-
ast botnar þriggja fjarða og
er þar mikið undirlendi og
margar ár. Við vorum í tjöld-
um. Engin mannabyggð er á
þessum slóðum, aðeins nokkr-
ir kofar norskra veiðimanna,
en þeim var leyft* að veiða
þarna samkvæmt Genfarsam
þykktinni.
Sauðnautin, sem nú eru al-
gjörlega friðuð eru mjög gæf
og komu þau nærri alveg að
tjöldum okkar.
Guðmundur benti á eing
myndina á veggnum og þar sá
ust þrjú þessara sauðnauta.
Á myndinn við hliðina á henni
voru rostungar, sem lágu í
flæðarmáli.
— Grænlendingar veiða mik
ið rostunga hélt Guðmundur
áfram. Eg hef ekki bragðað
kjötið a,f þeim, en það er sagt
mjög gott. Þeir koma upp á
land á vorin þegar þeir fara
úr hárum og eru þá tiltölu-
lega gæfir. En þeir eiga einsk-
is annars úrkosta, því að þeir
komast ekker.t. Á öðrum tím-
um, þegar þeir eru í sjónum,
eru þeir' miklu harðskeyttari.
Á einni myndinni voru
skarfahjón, en Guðmundur
sagði að þeir verptu mikið á
Grænlandi. Hjónin halda sam-
Wr
Ég ætlaði bara að sýna honum
hvernig fór fyrir drengnum.
Fyrirmyndarnemandinn kom of
seint í skólann.
— Hvernig getur þér dottið í
hug að gera þetta, drengur minn?
spurði kennarinn.
— Ja, það var nauðsynlegt.
— Hvað áttu við?
— Ég var að hjálpa gömlum
manni að leita að 10 krónum, sem
hann hafði týnt.
— Ágætt. Þú ert bekknum til
fyrirmyndar. Fannstu seðilinn?
— Já.
— Og varð gamli maðurinn
ekki ánægður?
— Ég veit það ekki, kennari.
Hann er ennþó að leita.
an og verpa í sama hreiðrið ár
eftir ár hlaða . alltaf upp
þangi og leir á sama stallinn
á hverju ári og getur hann
þar af leiðandi orðið nokkuð
hár.
Á næstu mynd ' oru þver-
hnýpt granít-fjöll. ,
— Þetta er úr Franz Jóseps-
firði, sagði Guðmundur, þar
ganga björgin í sjó fram
7—800 metra há. Guðmundur
benti á aðra mynd. — Þarna
sjást skriðjöklarnir, þeir
renna fram eins og ísfljót og
fjöllin standa upp úr eins og
skemmdir jaklar. Granitið
þarna er mjög litauðugt og
hef ég safnað mörgum stein-
um mismuViandi að lit á ferð-
um mínum til Grænlands.
Við spyrjum Guðmund um
fyrri ferðir hans til Græn-
lands.
— Ég flaug oft þangað á
árunum 1951—53 með flug-
vélum bæði frá Flugfélagi ís-
lands og Loftleiðum, en þær
fluttu vistir vísindamönnum,
sem voru við rannsóknir.
T. d. köstuðu flugvélar Loft
leiða vistum niður til leið-
angurs, sem var við rann-
sóknir á hájöklinum, miðja
vegu milli austur- og vestur-
strandarinnar. Sá leiðangur
var undir stjórn franska
landkönnuðarins P. E. Victor,
einnig fluttu flugfélögin vist-
ir til leiðangurs Lauge Koch,
sem hafði aðalbækistöðvar í
Scoresby-Sundi.
Guðmundur sýndi frétta-
manninum málverk af tveim-
ur Grænl idingum, sem voru
að koma af haftirðilsveiðum.
Frumdrögin af þessari mynd
gerði ég við Scoresby-Sund,
sagði hann. Ég er ekki mikið
fyrir að vlnna að myndum
mínum úti. Ég geri aðeins
skyssur í litla blokk, en mála
síðan heima eftir minni.
Já, Grænlendingarnir á
myndinni þarna eru að koma
af haftirðilsveiðum, en haft-
irðill þykir mjög mikið sæl-
gæti meðal þeirra. Þetta er
lítill fugl, sá minnsti af svart-
fuglum, nærri því ófleyg-
ur. Grænlendingarnir geyma
1 hann í selsbelg með lýsi og
á veturna frýs allt saman. Síð-
an borða þeir fuglinn hráan
og þykir hið mesta lostæti.
★
Sýning Guðmundar í vinnu
stofu hans stendur fram til 15.
des. Eru allar myndirnar til
sölu og sagði Guðmundur, að
sýningarskráin, sem hann lét
prenta áður en sýningin hófst
fyrir viku væri orðin úrelt því
að margir hefðu komið og
keypt myndir, sem senda
þurfti út á land eða til út-
landa fyrir jólin. Hefði hann
þá tekið þær myndir niður,
en bætt öðrum við í staðinn.
Auk myndanna frá Græn-
landi, sem mest hefur verið
rætt um hér, eru á sýningunni
myndir frá mör.gum stöðum
á íslandi og einnig- frá Lapp-
landi.
s
Húsgagnaframleiðendur
Nozak og tilheyrandi fittings
fynrliggjandi.
HALLDÓR JÓNSSON H.F.
Hafnarstræti 18. Símar 12586 — 23995.
Bókari
Viljum ráða vanan bókara, stúlku eða karlmann.
Mjög gott kaup. Upplýsingar gefnar í skrifstofunnh
Skipholti 33 milli kl. 5—7.
HILMIR H.F.
Vantar mann
Viljum ráða mann til snúninga. Kaup kr. 4.500,00 á
mánuði. Skellinaðra til umráða.
, VIKAN.
Trésmíðafélag Reykjavíkur
Skriflegar umsóknir um styrk úr elli og ekkna
styrktarsjóði. þurfa að berast skrfistofu félagsins
fyrir 12. þ.m. Umsókninni þarf að greina frá efna-
hag og ástæðum umsækjenda.
STJÓRNIN.
Frá almanna .
tryggingum Kopavogi
Útborgun bóta hefst mánudaginn 11. des. 1961.
Fjölskyldubætur með 3 börnum o. fl. frá 13. des.
og fjölskyldubætur með 1 og 2 börnum frá 15. des.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Kjólar
í miklu úrvali.
Skólavörðustíg 17 — Sími 12990.
Ódýr leikföng
Verzlunin
Miklatorgi við hliðina á ísborg.
EASY-OIM
LÍNSTERKJAN
sparar yður tíma og fyrirhöfn,
er einföld i notkun.
Nauðsynlegt sérhverju heimili.
Reynið „Easy On“ og kostirnir
koma í ljós.
Uniboðsmenn:
Agnar Norðfjörð & Co. h.f.
Lí*{ /nstUjJ;
for
sus