Morgunblaðið - 10.12.1961, Qupperneq 1
I
4B síður með Lesbók bamanna
48. árgai.gur
281. tbl. — Sunnudagur 10. desember 1961
Prentsmiðja Morgunbla'osins
Hefja Katanga-
menn gagnsdkn?
Elisabethville, Katanga, 9. des.
EFTIR því sem bezt er vitað
hér, hafa sænskar þotur Sí*
eyðilagt útvarpsstöð Kat-
angastjórnar í loftárás. —
Einnig mun aðalpósthús
borgarinnar nú vera í hönd-
um liðsveita SÞ. — Annars
Umsóknlr
til E.E.C.
STOKKHÖLMI. 9. des. —
Blaðið Dagens Nyheter segir
svo frá. að umsókn Svíþjóðar,
Sviss og Austurríkis um auka
aðild að Efnahagsbandalagi
Evrópu verði sennilega lögð
fram í Briissel nk. föstudag.
Af hálfu Svía er aðeins gert I
ráð fyrir stuttorðri beiðni um
viðræður samkvæmt 238. gr. ;
Rómarsáttmálans, sem fjallar ,
um aukaaðild ríkja að banda-
laginu.
ttöðvai' mik-
Íð brotinn
AKRANESBATURINN Böðv-
ar, sem strandaði á dögun
um., er nú oltinn á hliðina og
er mjög mikið brotinn —
jafnvel ónýtur að sjá úr lofti.
Blaðið fékk þessar upplýs-
ingar hjá mönnum frá Trygg-
ingarmiðstöðinni h.f., sem
veiðarfæri bátsins eru tryggð
hjá, en þeir flugu yfir strand-
staðinn upp úr hádegi í gær
með Birni Pálssyni.
Nótin liggur í fjörunni í
Beruvík, en hvort henni hef
ur skolað úr bátnum á land
eða menn frá Hellnum hefur
tekizt að ná henni á land, var
ekki vitað í gær.
Tryggingarmiðstöðin fól
mönnum frá Hellnum að
reyna að bjarga nótinni. Auk
þess eru menn frá Samábyrgð
á strandstaðnum, en Böðvar
er tryggður þar.
Myndin er af Böðvari á
strandstaðnunv.
„Damociesar-sverð “ Krjúsjeffs
Segir Sovétríkin eiga margar vetnis-
sprengjur meira en 100 megalestir að stærð
Moskvu, 9. des. (AP)
1 RÆÐU, sem Nikita Krús-
jeff hélt í dag á ráðstefnu
hins kommúníska alþjóða-
sambands verkalýðsfélaga,
lýsti hann því yfir, að Sovét-
ríkin ættu miklar birgðir af
risastórum vetnissprengjum,
þar á meðal margar, sem
hefðu meira en 100 mega-
lesta sprengikraft (jíafng. 100
millj. lesta af TNT-sprengi-
efni). — Við höfum ekki í
hyggju að nota þessi ægi-
vopn gegn ncinni þjóð, en
þau hanga yfir höfðum
stríðsæsingamanna vestur-
veldanna „eins og sverð
Damoclesar“ —— og ef árásar-
öflin gera alvöru úr fyrir-
ætlunum sínum, þá munum
við að sjálfsögðu láta þau
kenna á afli okkar, sagði
Krúsjeff.
Forsætisráðherrann bætti því
við, að Sovétríkin ættu „að
sjálfsögðu eldflaugar, sem flutt
gætu hinar ógnarstóru sprengj-
ur til hvaða staðar á hnettin-
um sem væri“.
★ Krúsjeff vonsvikinn
Krúsjeff vék að þeim um-
mælum vestrænna stjórnmála-
Framhald á bls. 23.
hefur geysilegt vatnsveður
gert það enn erfiðara en
nokkru sinni fyrr að fylgjast
að nokkru ráði með gangi
bardaganna í og við borgina
— og yfirlýsingar Tsjombe-
stjórnarinnar og SÞ stang-
ast algerlega á að venju.
♦-----------------------♦
SÍÐUSTU FRÉTTIR
í kvöld herma, að Katanga-
menn séu að endurskipu-
l®ggja lið sitt í Elisabethville
og draga að sér liðsauka —
og virðist vera að undirbúa
mikla gagnsókn gegn höfuð-
stöðvum SÞ í borginni. ■ í-
♦-----------------------♦
Engar áreiðanlegar upplýsing-
ar liggja fyrir um mannfall í
bardögunum undanfarna daga,
en þeir, sem bezt þykjast hafa
fylgzt með, gizka á, að fallnir
og særðir af liði SÞ séu 30—40,
en af Katangaher muni hafa
fallið a.m.k. 150—200. Ljóst
þykir, að mannfall í hópi hinna
síðarnefndu sé miklu meira,
hvað sem nákvæmum tölum
líður. Til dæmis féllu margir
Katangahermenn í morgun í
viðureign við indverskan her-
flokk SÞ við flugvöllinn í Elisa-
bethville.
SÞ-liðið hefur undanfarið
beitt sér mjög að því að ná
útvarpsstöðinni á sitt vald, en
hún hefur verið aðaláróðurs-
vopn Tsjombes og hans manna
gegn SÞ.
Talsmaffur SÞ, George Ivan
Smith, sagði í kvöld, aff her-
stjóm SÞ' hefffi ótvíræffar sann-
anir fyrir því, að hvítir mála-
liffar stjórnuðu aðgerffum Kat-
angahersins gegn SÞ.
Ferðir Albana til
Kína torveldaðar
! Belgrad, 9. desember.
— (NTB/Reuter) —
SOVÉTRÍKIN og Ungverja-
land hafa nú krafizt þess, að
albanskir embættismenn, sem
þurfa að ferðast yfir um-
rædd lönd, sæki um vega-
bréfsáritun viðkomandi
stjórnvalda. Þessar fréttir
hafa borizt hingað frá Tir-
ana, höfuðborg Albaníu. —
Engar slíkar takmarkanir á
ferðafrelsi hafa hingað til
gilt. —
Stjórnmálafréttamenn halda
því fram, aff þessar ráffstafanir
séu fyrst og fremst gerffar til
þess að torvelda albönskum
embættismönnum og stjórnar-
erindrekum aff komast til Kína,
en flugleiðin frá Albaníu til
Peking liggur um Búdapest og
Moskvu. Ekki er taliff ólíklegt,
aff ungversk og sovézk yfirvöld
kunni aff reynast treg til aff
veita vegabréfsáritun fyrir ýmsa
albanska embættismenn á leiff
til Kína, segja kunnugir.
Júgóslavneski rithöfundurinn Ivo Andric veitir í dag vifftöku Nóbelsverfflaunum í bókmennt-
um í Stokkhólmi. Þessi mynd af Andric og konu hans var tekin, er þau komu til Stokkhólms
á fimmtudaginn. — Myndir af öffrum Nóbelsverðlaunamönnum eru á blaffsíðu 12.
>