Morgunblaðið - 12.12.1961, Side 2
2
MORGVTSBL AÐIÐ
Þriðjudagur 12. des. 1961
Abyrgðarmaður kosníngablaðs
Alþýðubandalagsins sektaður
NÝLEGA HEFUR verið kveðinn
upp í Hæstarétti dómur í meið-
yrðamáli, er ákæruvaldið höfð
aði gegn Ármanni Jakobssyni,
hdl. á Siglufirði, en hann -var
ábyrgðarmaður kosningablaðs A1
þýðubandalagsins í júní 1959.
Málavextir eru á þá leið, að
í 3. tbl. 3. árg. ofangreindis kosn-
ingablaðs, sem út kom á Siglu-
firði 24. júní 1959, birtist viðtal
við Vigfús Friðjónsson, fram-
kvæmdastjóra, undir fyrirsögn-
inni: „Bannað að verja fisfcmeti
skemimdum með salti“. í viðtali
þessu fólust aðdróttanir og meið
yrði um Síldarútvegsnefnd, for-
mann hennar og varaformann, Er
lend Þorsteinsson og Jón Leopold
Þórðarson.
í rannsókn málsins reyndi Vig-
fús Friðjónsson að finna ummæl
um sínum stað, en héraðsdómur
komst að þeirri niðurstöðu í ítar
legri greinargerð, að ummælin,
sem í greinni birtust væru ósönn
uð, óréttmæt eða marklaus.
Ákærður, Ármann Jakobsson,
hdl. var ábyrgðarmaður kosninga
blaðs Alþýðubandalagsins. í hér
aðsdómi var talið, að hann bæri
ábyrgð á ummælum þessum eftir
reglurn laga um prentrétt, enda
birtist umrædd ritsmíð ekki und
ir nafni. Dómurinn fcomst að
þessari niðurstöðu, enda þótt Vig
fús Friðjónsson hefði tekið sér-
' staklega fram, að ummælin væru
rétt eftir sér höfð.
Ákæruskjal hafði að geyma
kröfur í 5 töluliðum. 1. Að ákærði
verði dæmdur til refsingar. 2.
Að ummælin verði dæmd ómerk.
3. Að ákærði verði dæmdur til
að greiða hæfilega fjárhæð til að
standast kostnað við birtingu
dóms í opinberu blaði eða riti. 4.
[Sýning i bók-
nm Oxford
University
Press
|l GÆR var opnuð á vegum
Ixfiord University Press og
fíbókaverzlunar Snæbjarnar
| Jónssonar & Co h.f. sýning á
íhelztu útgáfubókum Oxford
iUniversity Press í London.
?Sendiherra Bretlands á íslandi
»Andrew G. Stewart, ávárpaði
|sýningargesti og opnaði sýn
|inguna, sem mun standa til
>laugardags, 16. þ.m. Þann dag
| verða bækurnar seldar, en tek
íið er á móti pöntunum dag-#
|lega. Sýningartími er daglega 4
^frá kl. 2—10 síðd. Frá þessari É
>sýningu _verður sagt nánar í J>
XMbl., á næstunni.
— Katanga
Frh. af bls. 1
bethville. Þessir Balubamenn
eru eindregnir fjandmenn
Tshombes og óðfúsir að fá að
berjast. Ef SÞ tekst ekki að hafa
stjórn á þeim, segir Rikhye að
búast megi við blóðbaði í Kat-
anga.
Ilpingis
Sameinað Alþingi þriðjudaglnn 12.
des. 1961, kl. 1:30 miðdegis.
1. Fjárlög 1962, frv. — Frh. 1. umr.
2. Fjáraukalög 1960, frv. — 1. umr. Ef
leyft verður.
ÞÓRÓLFUR Beok, sem er nú
dáður atvinnumaður hjá St.
Mirren í Skotlandi er í skyndi
ferð til íslands. Kom hann á
laugardag og heldur utan á
miðvikudag.
í örstuttu samtali við Mbl.
Að ákærði verði dæmdur til að f
greiða þeim, sem umimælin beind |
ust að, miskabætur og 5. að
ákærði verðí dæmdur til greiðslu
alls sakarkostnaðar.'
I héraðsdómi voru allar þessar
kröfur teknar til greina. Ármann
Jakobsson var því dærndur til að ;
greiða kr. 2.000.00 í sekt til ríikis
sjóðs. Ennfremur kr. 1.500.00 í
fébætur til hvors um sig þeirra
Erlendar Þorsteinssonar og Jóns
Leopold Þórðarsönar, svo og kr.
200.00 til sömu manna til að
standast kostnað við birtingu
dóms. Umimælin skyldu dæm ó-
merk og ákærði að greiða allan J <|
sakarkostnað.
Máli þessu var áfrýjað til
Hæstaréttar. í forsendum dóms
Hæstaréttar segir, að fallast
megi á þá niðurStöðu héraðsdóms,
að þó að tiltekin ummæli séu í
greininni höfð eftir Vigfúsi, þá
verði hann samt ekki talinn hafa
nafngreint sig sem höfund henn
ar í merkingu 2. málsgr. 15. gr.
laga um prentrétt og skipti ebki
máli um það, þó að hann hafi
síðar kannast við, að ummælin
væru rétt eftir sér höfð. Ákærði
sé í blaðinu nafngreindur sem
ábyrgðarmaður blaðsins og beri
hann. því ábyrgð á efni greinar
innar.
Síðan ségir, að áksferuvaidið
eigi saksóknarrétt á hendiur á-
kærða að því er tekur til refsi-
kröfu, en stjórnarmenn Síldarút-
vegsnefndar séu öpinberir starfs
menn. Síðan segir: „í bréfi til
dómsmálaráðuneytisins hafði
þess verið æskt af hálfu þeirra
Erlends Þorsteinssonar og Jóns
L. Þórðarsonar, að ákæruvaldið
bæri fram í opinberu refsimóli
gegn fyrrgreinduim Vigtfiúsi Frið
jónssyni kröfur um ómerkingu
ummæla, miskabætur þeim til
handa og fégreiðslu til að stand
ast kostnað af birtingu dóms í
opinberu blaði eða riti. Hins-
vegar hafa þeir Erlendur og Jón
fekki farið fram á, að slííkar kröf
ur væru hafðar uppi í öpinberu
máli á hendur ákærða Ármanni
Jakobssyni. Ákæruvaldið á því
etoki sókn sakar um kröfur þær,
sem gerðar eru á hendur ákærða
í 2., 3. og 4. tölulið ákæruskjals.
Ber að fella hinn áfrýjaða dóm
úr gildi, að því er kröfur þær
varðar, og vísa þeim frá héraðs-
dómi.
Að öðru leyti var hinn. áfrýj-
aði dómur staðfestur, þ.e. ákærði
skyldi greiða kr. 2.000.0Ó í sekt
til ríkissjóðs og greiða allan
sakarkostnað.
Þórólfur í búning St. Mirren (t.h.) með bezta vini sínum
Gunnari Felixsyni. — Ljósm. Sv. Þormóðs.
Æfingarnar í atvinnuliði
hafa kostað Þórólf 8 kg.
sagði Þórólfur að þvi miður
yrði þessi heimsókn stutt „og
kannski aðeins ti'l þess að
endurvekja heimþrána".
— Hefurðu heimþrá?
— Ja, þetta er erfitt í fyrstu.
Allt nýtt, umhverfið, kunningj
arnir og meira að segja knatt
spyrnan.
— Hvernig kanntu við
skoaku knattspyrnuna?
— Þetta er að koma — við
erum að verða „diús“. En það
er mikill munur á, eins og
skiljanlegt er, þar sem hún
byggist svo mjög á atvinnu-
mennsku og öllu því sem kring
um hana er.
— Fól'kið í Paisley þykist
eiga í þér hvert bein?
— Það er mikið talað þar
um knattspyrnu og knatt-
spyrnumenn. Þar þykir eng-
inn maður með mönnum nema
hann geti rætt um knatt-
spyrnu. Allt snýst um fót-
bolta, getraunir og taktik o.fl.
o.fl.
— Og þú átt nóg af pundum
núna?
—- Þetta kemur efcki allt í
einu, kemur smámsaman.
:— Ertu búinn að fiá þér bíl?
— Nei, Eg hef efckert við
hann að gera. Eg kemst allra
minna ferða á mínum trveim.
Það er margt sem verður að
tooma á undan bílnum.
Og í samtalinu staðfesti Þór
ólfur að samningur hans, æf
ingar og annað væru með því
sniði er lýst hefur verið hér í
Mbl.
— Og ertu þá bara hér til
að lyfta þér upp?
— Jó, til þess fcom ég fyrst
og fremst. Efcki er tími eða
ráðrúm til að gera það úti.
Það er svo mikið æft, að ég
hef lagt af sem nemur 8—9
kg. En mér líður bara betur
á eftir. Og svo er gaman að
vera í hópi fjölskyldu og allra
gömlu kunningjanna. Það er
langt þangað til við sjáumst
aftur. Eg kem ekki fyrr en í
maí að afloknu keppnistíma-
bili, en get þá verið hér í allt
að 3 mánuði ef svo vill verða.
— A. St.
Unglingur ók ■ óleyfi
og slasaði 4 fél. sína
SÍÐASTLIÐIÐ laugardagskvöld
lentu fímm unglingar í árekstri
inni í Skeiðarvogi eftir að hafa
verið á flótta undan lögreglunni.
Bifreiðarstjórinn var 15 ára ungl
ingur og hafði tekið bifreiðina
í heimildarleysi. í bílnum voru
3 piltar og tvsér telpur. Telpurnar
NA 15 hnúiar ✓ SVSOhnutar X Snjihma » OSi \7 Skúrk K Þrumur W%, KuUaakii Hiiatkii H Hm» L Latqi
Lægðin víðáttumikla fyrir
S land var að grynnast í gær,
en ný lægð var um 1000 km
S af Reykjanesi á hreyfingu
NNA. Var stinningsvindur og
rigning allmikil á Austur-
landi, mældust t.d. 43 mm á
Hólum í Hornafirði. Frostlaust
var um alit Iand, hlýjast 8 stig
í Hornafirði.
Veðurspáin ki. 10 í gæ’rkvöldi:
SV-land, Faxaflói, Breiða-
fjörður og miðin: Breytileg
átt, víðast austan kaldi, rign
ing öðru hverju.
Vestfirðir og Norðurland: —
Austan og SA kaldi, úrkomulít
ið.
Vestfjarðamið til Austfj.-
miða; NA-land og Austfirðir:
A og SA stinningsþaldi, þoku
loft og dálítil rigning.
SA-land og miðin: SA gola
eða kaldi, skúrir.
slösuðust mest farþeganna, enda
klemmdust þær illa er bifreiðin
fór út af veginum og lenti á ljósa-
staur. Piltarnir mörðust og skrám
uðust nema bílstjórinn, sem slapp
ómeiddur.
Einn piltanna hafði ökuréttindi
og ætlaði að taka á sig skellinn
af að hafa ekið, en við rannsókn
kom í ljós hvernig í málinu lá.
Síðasta
sýning fyrir jól
Gamanleikurinn „Allir komu
þeir aftur“ verður sýndur í
síðásta sinn í kvöld óg verður
það um leið síðasta sýning
Þjóðleikhússins fyrir jól. —
Þetta er 35. sýning leiksins.
Um það bil 16.500 leilkhús-
gestir hafa nú séð þessa vin-
sælu sýningu. Æfingar standa
nú yfir á Skugga Sveini og
verður leikritið frumsýnt á
annan í jólum.
Sprenging
NAHA, OKINAWA, 7. des. AP.
Það slys varð í morgun að spreng
ing varð í bandarískri orrustu-
flugvél á æfingaflugi. Flugvélin
var stödd yfir þorpinu Kawasaki
þegar sprengingin varð Og hún
hrapaði með þeim afleiðingum að
þrír íbúar þorpsins biðu bana en
fimmtán særðust, sumir alvar-
lega. Flugmaðurinn komst lífis af
méð því að varpa sér út í fall'hlíf.
Kona varð f yrir bíl
LACST fyrir klukkan hálf
ellefu í gærmorgun varð eldri
kona fyrir bíi á Miklubraut
gegnt Lídó og slasaðist hún á
höfði.
Nánari atvik voru þau að
leigubíl var ekið austur Miklu-
braut, en konan mun hafa kom-
ið frá Austurveri og ætlaði suð-
ur yfir götuna. Bílstjórinn seg-
ir að hann hafi ekki reiknað
með að konan færi út á göt-
una en konan virðist ekki hafa
veitt bílnum athygli, gekk út
á götuna og varð fyrir vinstra
framhorni bílsins. Meiddist hún
á höfði, var flutt á slysavarð-
stofuna og síðan í Landákots-
spítala. Konan heitir Þórhanna
Árnadóttir, til heimilis að
Grænuhlíð 6.
Týndi
verkfæratöskunni
Á LAUGARDAGINN bar svo
við að maður nokkur fékk sér
í staupinu, sem ekki er í frá-
sögur færaiidi. En þar kom að
manninn skorti skotsilfur. Tók
hann það ráð að fara heim til
sín þar sem hann vissi að bróð-
ir hans geymdi dýrmæta verk-
færatösku. Mán maðurinn síðast
eftir því að hafa verið á gangi
í Slippnum með töskuna, sem
nú er týnö. Rannsóknarlögregl-
an biður þá, sem deili kynnu
að vita á töskunni, að gefa sig
fram.