Morgunblaðið - 12.12.1961, Blaðsíða 20
20
MORCVTSBL iÐlfí
Þriðjudagur 12. des. 1961
þjáðst af asma og þessar geðs-
hrseringar uliu oft köstum, svo
að hann varð að liggja dögum
saman.
Og svo verðurðu að muna, að
það var ekki einungis sjálfs sín
vegna, að hann þráði aurana
hennar Edvinu, heldur var það
vegna Lísu og Timmy. Það mátti
hann eiga að honum þótti mjög
vænt um konuna sína og soninn.
En henni þótti bara ekkert
vænt um hann þegar hann dó,
það er alveg af og frá, sagði ég
með ákafa.
Hann starði á mig. Hvernig
veiztu það?
Af því að hún er þegar skotin
í öðrum. svaraði ég umhugsunar-
laust.
Og hver ætti það 'að vera?
Tarrand.
Hann setti upp illkvitnislegt
bi os. Þetta gæti svo sem vel
verið rétt hjá þér. En hvernig
veiztu það?
Ég hristi höfuðið. Það gæti nú
orðið flókið mál að útskýra, en
ég er bara viss um það. Svo leit
ég á hann. Ef þú ættir fjögurra
ára son og mamma hans væri
dauð, mundirðu þá segja honum,
að á næstu jólum mundi hún
senda honum fallega jólagjöf?
Hvernig ætlaztu til, að ég geti
svarað svona spurningu?
Þetta er það sem Timmy hef-
ur verið sagt og hann trúir. Að
pabbi hans sé bara farinn að
heiman og að á jólunum muni
hann senda honum gufuvél.
Húsgögn
Sófasett með þriggja eða fjögra sæta sófa.
Hvíldarstólar með fótaskemmlum.
Stakir stólar fra kr. 1.875,00.
Kommóður með þremur, fjórum, fimm
og sex skúffum.
Unglingaskrifborð. — Sófaborð.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Sendum gegn póstkröfu um allt land.
HÚSGAGNAVERZLUNIN
Lækjargötu 6 a — sími 12543.
— Þegar maður sér hafið, þá gerir maður sér fyrst grein
fyrir því hve baðkerið okkar er lítið.
(--------------^
Margaret Summerton
HÚSIÐ
m
SJÚINN
Skáldsaga
19
V.-------------/
hefði aldrei verið til, eða þá hann
hefði fengið hann í hendur
snemma. hefði hann áreiðanlega
orðið heilbrigður maður.
Ég hreyfði höfuðið ofurlítið
og hann lét höndina falla. Auk
þess var hann ekki heilsugóður,
og þessi óvissa gerði þar illt
verra. Frá barnæsku hafði hann
Ég veit ekki. Hann hristi höf-
uðið og vissi sýnilega ekki hverju
^vara skyldi. Kannske er þetta
það gem kallað er að segja hon-
um fréttirnar vægilega. Lísa get-
ur talið það æskilegt að hann
gleymi pabba sínum sem mest,
áður en hann veit að hann er
dáinn. Því að Lísu þykir nú
vænt um Timmy, hvað sem um
hana mætti annars segja.
Finnst þér hún mjög slæm?
O. við skulum láta okkur
nægja að segja, að ég sé ekkert'
hrifinn af henni og hennar lík-
um.
Þessi orð hlýjuðu mér um
hjartaræturnar og ég varð glað-
ari í huga er. ég hafði nokkurn
tíma verið síðan ég fór frá Lond-
on.
Líður þér betur? Hann tók í
höndina á mér og gældi við fing-
urna. Það eina, sem þú þarft að
gera, er að steypa Esmond af
þessum goðstalli sínum.
Tiilit hans var blíðlegt en á-
hyggjufullt.
Ég hefði aldrei átt að koma
hingað, sagði ég kvíðin.
Já, það er von, að þú segir það.
Amma, sem er harðstjóri, kalt
hús og óþverra matur! Og ekk-
ert til að vega móti þessu öllu?
bætti hann við dauflega.
Jú, vitanlega er það, svaraði
ég hlæjandi og leit við. En í
guðanna bænum, rektu ekki mjög
mikið á eftir mér. eins og rétt
áðan.
Mér fannst ég ekkert vera að
reka á eftir þér. Mér fannst þetta
koma alveg af sjálfu sér. Líttu á
mig, Gharlotte!
Nei....nei, ekki ennþá..ekki
svona.
Gott og vel. Ég fer ekki fram
á annað eða meira en að þú seg-
ir, að þú sért ekki lengur að
hugsa um hann Philip Lester,
eða nokkurn annan mann.
Það er ég ekki.
Blessi þig íyrir það, sagði hann
lágt, en svo hækkaði hann rödd-
ina og bætti við: Við skulum fá
okkur eitt glas upp á það!
Ég hristi höfuðið og hann
fyllti sitt glas aftur. Þegar ég
leit á skrifborðið, sá eg, að við
hliðina á því stóð jafnskápur og
á honum lágu tvær hrúgur af
litlum grænum stílabókum —
dagbókunum hans Danny.
Hvað ertu kominn langt með
þær? spurði ég.
Talsvert langt. Með það fyrir
augum, að þær yrðu kannske
gerðar upptækar á morgun hljóp
ég yfir nokkur ár og las fáeinar
glefsur, sem eru nær nútímanum.
En það er seinlegt.
í þínum sporum.', hefði ég nú
byrjað á endinum þar sem hann
hefur sennilegast verið að skrifa
um fólk, sem þú þekkir.
Mér datt það sama í hug, en
svo þegar ég var byrjaður á
byrjuninni og varð hrifinn af
efninu, ásetti ég mér að vera
hygginn, þar sem ég myndl fá
óhlutdrægari ■ skoðún á. dagbók-
unum með því að pæla gegnum
þær frá upphafi til enda.
En þú hlýtur að koma að þeim
hluta, sem snýst um fólkið, sem
þú þekkir. Og ef þú færð Edvirn.
til að Xeyfa þér að gefa út dag-
bækurnar, hljóta þeir kaflar að
verða méð. er það ekki?
Vafalaust samþykkti hann.
Hafði hann eins mikla óbeit á
Esmond, Lísu og Tarrand majór
ög þau höfðu á honum? spurði
ég.
Ég býst við því, en líklega hef-
ur hann verið svo laginn að láta
ekki á því bera þegar Edvina var
einhversstaðar nærri.
En hann hefur þó áreiðanlega
látið uppi þessa óbeit sína í dag-
bókunum, hélt ég áfram.
Það er nú alveg sjálfsagt.
Og þú ert reiðubúinn að gefa
út uppljóstranir Dannys um fólk-
ið hérna í húsinu?
Hann andvarpaði. Charlotte,
við skulum nú vera hreinskilin.
Þér mundi vera fjandans sama,
hvað prentað væri um Lísu, eða
jafnvel Edvinu. .er það ekki rétt
hjá mér? Það er bara Esmond,
sem þér er sárt um.
Mér finnst þetta vera fáránleg
hugmynd yfirleitt, sagði ég.
Hann stóð upo og færði sig
yfir að arninum. hallaði sér svo
á olnbogann á arinhilluna. Horfði
svo á mig hugsandi, eins og hemn
16 mm
filmuleiga
kvikmyndavélaviðgerðir
og ljósmyndavörur
Ljósmyndavélar og
skuggamyndavélar
á nýja verðinu.
FILMUR & VÉLAR
Freyjugötu 15.
Allt í jólabaksturinn
Ódýrt hveiti í laustri vigt.
Ódýrir banariar. — Sendum heim.
IIMDRIÐABIJÐ
Þingholtsstræti !5.
>f Xr
— Berta, uppgerðarvinur yðar sæk
ist eftir fjármunum yðar!
■— Munið það frú Colby, að raf-
eindaheili getur ekki sagt ósatt!
GEISLI GEIMFARI
— Þeir óttast að þér munið arf-
leiða læknarannsóknir, sem geta
>f >f >f
— Gar læknir, á Mystikus við
rannsóknir yðar á ellinni?
komið mannkyninu að liði að eigum — Hver veit?
yðar.
væri í einhverjum vafa. Fyrir
tíu mínútum höfðum við sýnt
hvort öðru trúnað og jafnvel ást.
Nú var þetta horfið, en í staðinn
kominn spenningur og jafnvel
vantraust.
Hann spurði: Efaat þú kannske
um smekk minn?
Alls ekki....en mér finnst
bara það illa gert að gefa út um-
sagnir, og þær sennilega af-
skræmdar, .m fólk, sem þú
þekkir....og græða á því pen-
inga.
Snögglega færðist Ijómandi
bros yfir allt andlit hana og
feykti burt vafasvipnum. Þar er
ég alveg á sama máli. Setjum þá
svo, að þú treystir mér,
Charlotte. Hann leit frá mér og
á bókahrúguna hjá skápnum. En
fyrst um sinn ætla ég að nota
tímann til að komast að því,
hvað Danny hafði raunverulega
á samvizkunni og vildi sagt hafa.
ajlltvarpiö
Þriðjudagur 12. desember
8:00 Morgunútvarp (Bæn. — 805 Morg
unleikfimi. — 8:15 Tónleikar. —
8:30 Fréttir. — 8:35 Tónleikar.
— 9:10 Veðurfregnir. — 9:20 Tón
leikar).
12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. ^
12:25 Fréttir og tilk.).
13:00 „Við vinnuna": Tónleikar.
15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir, tilk. —
Tónl. — 16:00 Veðurfr. — Tónl.
— 17.00 Fréttir. — Endurtekið
tónlistarefni).
18:00 Tónlistartími barnanna: Jórunn
Viðar kynnir vísnalög með að-
stoð Þuríðar Pálsdóttur.
18:20 VeðuÞfregnir.
18:30 Þingfréttir. — Tónleikar.
18:50 Tilkynningar.
19:30 Fréttir.
20.00 Tónleikar: Kvintett í Es-dúr op.
11 nr. 4 eftir Johann Christian
Bach (Félagar úr Alma Musica
sextettinum leika).
20:15 Framhaldsleilcritið „Hulin augu'*
eftir Philip Levene, í þýðingu
Þórðar Harðarsonar; 8. þáttur:
Síðasta hálmstráið. — Leikstjóri:
Flosi Ólafsson- Leikendur: Ró-
bert Arnfinnsson, Haraldur
Björnsson, Helga Valtýsdóttir,
Indriði Waage, Brynjólfur Jó-
hannesson, Helgi Skúlason, Rúrik
Haraldsson, Guðmundur Pálsson,
Kristbjörg Kjeld, Bryndís Pét-
ursdóttir, Brynja Benediktsdótt-
ir, Karl Guðmundsson og Þor-
grímur Einarsson.
21:00 Skúli Magnússon landfógeti —»
250 ára minning:
a) Vilhjálmur Þ. Gíslason út-
varpsstjóri talar um ritstörf
hans.
b) Birgir Kjaran alþm., bregður
upp svipmyndum úr lífi Skúla.
21:50 Söngmálaþáttur þjóðkirkjunnar
(Dr. Róbert A. Öttósson söng-
málastjóri).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Lög unga fólksins (Jakob Þ.
Möller).
23:00 Dagskrárlok.
Miðvikudagur 13. desember
8:00 Morgunútvarp (Bæn. — 805 Morg
unleikfimi. — 8:15 Tónleikar. —
8:30 Fréttir. — 8:35 Tónleikar.
— 9:10 Veðurfregnir. — 9:20 Tón
leikar).
12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. ^
12:25 Fréttir og tilk.).
13:00 „Við vinnuna“: Tónleikar.
15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir, tilk.
Tónl. — 16:00 Veðurfr. — Tónl.
— 17:00 Fréttir. — Tónleikar).
17:40 FramburðarkennSla í dönsku og
ensku.
18:00 Útvarpssaga barnanna: „Bakka-
Knútur“ eftir séra Jón Kr. ís-
feld; V. (Höfundur les).
18:20 Veðurfregnir.
18:30 Þingfréttir. — Tónleikar.
18:50 Tilkynningar.
19:30 Fréttir.
20:00 „Haustlauí": David Rose og
hljómsveit hans leika létt lög.
20:20 Kvöldvaka:
a) Lestur fornrita: Eyrbyggja
saga; I. (Helgi Hjörvar rit-
höfundur).
b) íslenzk tónlist: Lög eftir Sig-
uringa Hjörleifsson og Kristin
Ingvarsson.
c) Finnbogi Bernódusson í Bol-
ungarvík flytur þátt af Sig-
urði glímukappa Þórarinssyni,
d) Margrét Jónsdóttir les sagna
þátt: „Stúlkan á Hamri'*,
skráðan af dr. Sigurði Nordal
eftir frásögn Ragnheiðar Stef-
ánsdóttur.
e) Kolbeinslag: Jóhannes Benja-
mínsson og Ormur Ólafsson
kveða; Magnús Guðmundsson
og Guðrún Árnadóttir lesa.
21:45 íslenzkt mál (Dr. Jakob Bene-
diktsson).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Upplestur: Dean Acheson rifjap
upp liðna tíð; V: Um Robert
Schumann (Hersteinn Pálsson
ritstjóri).
22:30 Næturhljómleikar: Frá tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar íslands í
Háskólabíói 7. þ.m. Stjórnandij
Jindrich Rohan.
Sinfónía nr. 5 í e-moll eftir Pet-
er Tjaikowsky.
23:20 Dagskrárlok.