Morgunblaðið - 12.12.1961, Síða 23
Þriðjudagur 12. des. 1961
MORGVNBLAÐIÐ
23
Fram vann IR og bik-
arinn með yfirburðum
FRAM vann auðveldari sig-
ur yfir ÍR í baráttunni um
Reykjavíkurtitilinn í hand-
knattleik karla, en vonir
stóðu til. Það var aðeins í
byrjun og fram yfir leikhlé,
sem ÍR veitti nokkra mót-
spyrnu. En Fram hafði J»ó
alltaf undirtökin í leiknum
og síðustu 10 mínúturnar
opnuðust allar gáttir að ÍR-
markinu og Fram vann með
yfirburðum, 19—11. Eru þeir
vel að sigri komnir í mót-
inu. —
Forysta frá upphafi
Fram skoraði fyrstu tvö
mörkin í leiknum og hafði síð-
an 1—3 marka forskot — og
tveggja marka forskot í leik-
hléi. Það minnkaði siðan í 1
mark. En þá var gæfa KR-inga
öll. Fram fann leiðina gegnum
vörn þeirra með árangursríku
línuspili og skoraði Kristján
Friðsteinsson og Sig. Einarsson
hvert markið af öðru, og breyttu
stöðunni úr 13-rlO í 19—10. —
IR hafði svo síðasta orðið og
leik lauk 19—11.
•fr Munur á markvörðum
Leikur Fram var allur
ákveðnari og formfastari. Þó
Var lítill munur á liðunum fram
yfir Ieikhlé, unz línuspil Fram
færði öruggan sigur. Unz sú
línusókn hófst, kom aðallega í
Ijós munur á markvörðum fé-
laganna. ÍR-markvörðurinn átti
slæman dag og missti alla knetti
í netið. Þorgeir f markí Fram
varði hins vegar vel.
5 félög
unnu
bikara
J SIGRARNIR í Reykjavíkur-1
4mótinu í handknattleik hafa
^skipzt mjög milli félaga.
<|Baldur Möller varaformaður;
4ÍBR afhenti verðlaunin efti
xleikina á sunnudaginn og urðu
^sigurvegar í mótinu þessir
4hinum einstöku flokkum:
Mfl. kvenna: Ármann.
2. fl. kvenna A: Ármann.
2. fl. fcvenna B: Víkingur.
Mfl. karla: Fram.
1. fl. -karla: Þróttur.
2, fl. karla A: Þróttur.
2. fl. karla B: Víkingur.
3. fl. karla A: KR.
3. fl. karla B: Ármann.
Fulmer vurði
titil siun
BANDARÍSKI hnefaleikakapp-
inn Gene Fulmer, sem að ein-
hverju leyti er sagður af ísl. ætt
um varði á sunnudag sinn „sér
staka“ heimismeistaratitil í milli
vigt. Sigraði hann Renny Paret
á rothöggi í 10. lotu. Titill Fulm
ers er ekki viðurkenndur af öll
um hnefaleikasamböndum Banda
rikjanna.
Úr Ieik Ármanns og Þróttar í m.fl. kvenna. Ása skorar — en
dómarinn sagði hana hafa stigið yfir línu. Myndin sannar
annað. — Ljósm. Sv. Þorm.
Á Víkingur — KR 12—11
Mun jafnari og harðari og
líkari úrslitaleik var leikur KR
og Víkings. Þar var barizt af
hörku og á köflum mjög vel
lei'kið. Víkingar höfðu alltaffor
Lokasfaða
í m .fl. karla
Lokastaðan:
Kram . .. 6 5-0-1 93-58 10
Vík. ... 4-0-2 70-64 8
ÍR 3-1-2 66-70 7
KR ... .. 6 3-0-3 77-59 6
Valur . .. 6 2-2-2 68-75 6
Ármann .. 6 2-0-2 69-78 4
Þróttur .. 6 0-1-5 54-93 1
Frakkland —
Spann 1:1
FRAKKLAND og SPÁNN gerðu
jafntefli í knattspyrnulandisleik
sem fram fór í París á sunnudag
inn. Skoraði hvort lið 1 mark.
Frakkland hafði yfir í hálfleik
(1:0).
Chile vann
Ungverja
5:1
CHILE Vann UNGVERJALAND
, knattspyrnulandsleik á sunnu
dag með 5 mörkum gegn 1. í
hálfleik var staðan 2:0. Leikur-
inn fór fram í Santiago. Ungverj
arnir skoruðu sitt mark þegar 5
mínútur voru til leiksloka.
ystu í leiknum, nema tvívegis
jafnaði KR. Rétt fyrir lokin
hafði Víkingur 3 mörk yfir en
KR gerði harða sókn og skall
hurð nærri hælum að þeim
tækist að jafna — en mark-
stengur Víkinga forðuðu því að
svo yrði. 12—11 urðu úrslitin
Víking í viL
Víkingar tryggðu með þessum
sigri 2. sæti sitt í mótinu. Þeir
eru vel að því komnir. Leika
áikveðið, fast og jákvætt spil en
nota lítið homin, þeim senni-
lega. til skaða.
Á Velur — Ármann 15—13
Valur og Ármann börðust
um 5. sæti í mótinu. Valur tók
snemma forystu og hélt henni
óslitið og sívaxandi í lygnum
leik og ekki ýkja átakamiklum.
— 15—13 urðu úrslitin.
I. O. G. T.
St. Sóey nr. 242.
Fundur í kvöld kl.'8.15.
Inntaka nýrra félaga.
Ýms skemmtiatriði á eftir.
Ath. breyttan fundar.tíma.
Æt.
Samkomur
K.F.U.K. ad.
Fundur í kvöld kl. 8.00.
Kaffi, -handavinna.
Allt kvenfólk velkomið.
Fíladelfía
Almennur biblíulestur kl. 8.30.
Arly Lund talar. Allir vel-
komnir.
NÝJA LJÓSPRENTUNAR-
STOFAN, Brautarholti ,22 (geng
ið inn frá Nóatúni) Sími 19222.
Góð bílastæði.
Ódýrar jólagjafir
Verzlunin
.hhVhhhl',
Miklatorgi við hliðina á ísborg
Ú tgerðarmenn
Skip óskast til að flytja 150 tonn af fiskmjöli til
írlands.
Uppl. í sjávarafurðadeild SIS Sambanashúsinu.
E ggjaframleiðend ur
Félagið Alifuglinn heldur fund í Aðalstræti 12
fimmtudaginn 14. des. 1961 kl. 8,30.
Áríðandi mál á dagskrá
STJORNIN
Nauðungaruppboð
verður haldið í bæjarþingstofunni að Skólavörðustíg 11,
hér í bænum, eftir beiðni Kristjáns Eiríkssonar o. fl.,
miðvikudaginn 20. des. n.k. kl. 11 f.h.
Seld verða eftirtalin verðbréf tilheyrandi dánarbúi
Stefáns Runólfssonar: 2 skuldabréf tryggð með öðrum
samhliða veðrétti í Félagsheimili Ungmennafélags Reykja
víkur við Holtaveg, bér í bænum, hvort að fjárhæð
kr. 100.000,00, skuldafcréf að eftirstöðvum kr. 30.000,00
tryggt með 4. veðrétti í kjallaraíbúð að Njálsgötu 92,
hér í bænum.
Skuldabréf að eftirstöðvum kr. 35.000,00, tryggt með
2. veðrétti í Birkihvammi 4, Kópavogi.
Þá verður selt eftir kröfu Hauks Jónssonar hrl., skulda
bréf tilheyrandi Georg Hólm, að fjárhæð kr. 56.000,00,
útg. af Magnúsi Andréssyni, Blönduhlíð 19 og Eggerti
Þorleifssyni, Öldugötu 59, hér í bænum.
Ennfremur eftir kröfu bæjargjaldkerans 18 víxlar sam
tals að fjárhæð kr. 22.000,00 útg. af Sveini Jónssyni,
Rauðarárstíg 38 og samþ. af Sveinbirni Tryggvasyni,
Kambsveg 8, Reykjavík, og loks samkv. ákvörðun skipta-
réttar Reykjavíkur útistandandi skuldir skuldafrágöngu
dánarbús Péturs Jensen að fjárhæð kr. 2.716,30.
Greiðsla fari fram við hamarshögg. «t,.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
JOLALJOSIIM
í Fossvogs»kirk]ugar5i
Verða afgreidd daglega í garðinum kl. 9 til 7 frá og
með fimmtudeginum 14. þ.m. til hádegis á þorláks-
messu.
(ATH.: Ekki verður hægt að afgreiða lengur vegna
frágangs á kerfinu.).
Guðrún Runólfs.
JÓLATRÉ, GREINAR OG KROSSAR verður selt
við inuganginn í kirkjugarðinn.
Örfá eintök af bókinni
Bör Börsson
1. og 2. bindi.
Hin fræga og vinsæla saga
er Helgi Hjörvar las í út-
varpinu og framhald henn-
ar fæst hjá útgefanda.
Bæði bindin, um 800 síður,
á kr. 100.00.
Óska að fá bókina Bör Börsson senda gegn póstkröfu
ARNARÚTGÁFAN, Kirkjuhvoli Rvík