Morgunblaðið - 13.12.1961, Page 1
24 síður
X
48. árgangur
283. tbl. — Miðvikudagur 13. desember 1961
Prentsmiðja Moriunhlaðsin*
Moke lofar lokasigri
í Katanga
Deilt um flugvélasprengjur
í brezka þinginu
Elisabethville, 12. des.
E N N er barizt í Elisabeth-
ville og hafa bardagar stað-
ið þar í átta daga samfleytt.
Sprengjuvörpur SÞ héldu
uppi látlausri skothríð í borg
inni í dag, en yfirmaður
Katangahers, Norbert Moke,
hefur lofað hermönnum sín-
um lokasigri.
í Bretlandi hefur styrjöld-
iji valdið miklum deilum í
þinginu og í Belgíu hefur
Paul Henri Spaak ráðist á
SÞ fyrir hernaðarrekstur
þeirra í Katanga.
Utanríkisráðherrar Banda-
ríkjanna, Bretlands, Frakk-
lands og Vestur-Þýzkalands
eru um þessar mundir á ráð-
stefnu í París og er búizt við
að henni ljúki í kvöld. Talið
er að ráðherrarnir muni gefa
út sameiginlega áskorun um
vopnahlé í Katanga.
Árás á sjúkrahús.
Upplýsingamálaráðherra Kat-
anga, Albert Nyembo, sagði í dag
að flugvélar SÞ hafi gert árás á
sjúkrahús í Chinolobwe, sem er
skammt frá Jadotville. Hafi flug-
vclarnar skotið eldflaugum og
úr vélbyssum á sjúkrahúsið. Fjór
ir menn létust í árásinni og all-
marigir sserðust. Þá var Canberra
þota tvívegis send yfir pósthús
og járnbrautarstöð Elisabethville,
en ekkert varð úr árás á bygg-
ingarnar. Hermenn Katanga
skutu á þotuna úr riflum og hríð-
skotabyssum. Mun þotan hafa
verið send til að draga athygli
Katangamanna frá flutningaflug-
vél_ sem var að lenda á flugvelli
SÞ við borgina.
Úr vörn í sókn.
í dagskipan sinni til Katanga-
hers sagði Moke hershöfðingi að
herinn hefði hvergi hörfað und-
an SÞ frá því bardágar hófust.
„Við munum brátt snúast úr
vörn í sókn,“ sagði Moke. Hann
sagði að Katangaherinn væri nú
síðasta vömin gegn sókn komm-
únismans í Mið-Afríku, gegn
nýrri nýlendukúgun. sem ekki
væri unnt að bera saman við þá,
sem nýlega væri létt af Afríkubú
um.
Stjórn sænska SÞ-hersins í Kat
anga tilkynnti í dag að sænskum
orustuþotum hafi tekizt að eyði-
Framhald á bls. 2.
Heimta Heusing-
er framseldan
Grófur og hlœgilegur áróður,
segja Bandaríkjamenn
Kínverjar og
Albanír fjar-
staddir
Varsjá, 12. des. — (IÍTB) —
í D A G hófst í Varsjá ráð-
stefna efnahagsráðs komm-
únistaríkjanna í Austur-Ev-
rópu (Comecon) og voru þar
mættir fulltrúar frá öllum
ríkjunum nema Albaníu. —
Kína hefur venjulega sent
áheyrnarfulltrúa á ráðstefn-
ur Comecon, en gerir það
ekki að þessu sinni. Hins
vegar eru mættir fulltrúar
frá Norður Kóreu, Norður-
Vietnam og Ytri Mongolíu.
Ekki er búizt við að rætt
verði á ráðstefnunni um sam-
bandsslit Sovétríkjanna og Al-
baníu. En ekki verður hjá því
komizt að ræða viðskipti Var-
ejárbandalagsrikjanna við Al-
baníu. Heyrzt hefur að skip,
eem Albanir hafa fest kaup á
frá pólskum skipasmíðastöðv-
um, hafi ekki verið afhent og
að pólsk skip hafi átt í erfið-
leikum i albönskum höfnum.
Moskvu, 12. des. — (NTB-AP)
I ORÐSENDINGU, sem Banda-
ríkjastjórn var afhent í dag,
fara Sovétríkin fram á að fá
framseldan Adolf Heusinger
hershöfðingja, sem er formaður
fastanefndar Atlantshafsbanda-
lagsins í Washington. Segir í
orffsendingunni aff Heusinger
eigi aff mæta fyrir rétti í
Moskvu vegna striffsglæpa, sem
hann á aff hafa framiff í Sovét-
ríkjunum í siðustu heimsstyrj-
öld. —
Varnarmálaráðuneyti Vestur-
Þýzkalands hefur gefið út yfir-
lýsingu í sambandi við þessa
orðsendingu Rússa. Segir þar að
hér sé um að ræða enn eina
tilraun Rússa til að eyðileggja
samtök hins frjálsa heims með
því að bera fram ásakanir á
Vestur-Þjóðverja, sem ekki hafa
við nein rök að styðjast.
ENGIN TILVILJUN
Brezka stjórnin hefur ekki
látið uppi álit sitt varðandi orð-
sendinguna, en bent er á það
I London að tæpast sé um til-
viljun að ræða þegar orðsend-
Framh. á b)s. 2.
Saka hvorir
um árásir
Lissabon, 12. des. (NTB).
YFIRVÖLDIN í Portúgal mót-
mæltu í dag eindregiff ásökunum
Indverja um að portúgalskir her-
menn í Goa hefffi í frammi ögran
ir og yfirgang gagnvart Indlandi.
í tilkynningu stjórnarinnar
segir hinsvegar að hún hafi sann-
anir fyrir því aff indverskir
skæruliffar hafi veriff sendir til
Goa og séu þeir búnir indversk-
um vopnum. Þá segist stjórnin
hafa fengiff skýrslur um árásir
Indverja við iandamærin, skerff-
Rússar senda Dönum mótmæli
vegna sameiginlegrar herstjórnar
á Eystrasalti
Kaupmannahöfn, 12. des. (NTB).
í DAG var sendiherra Dana í
Moskvu afhenit orffsending stjórn-
ar Sovétríkjanna til stjórnar
Danmerkur. Ekki hefur efni orff-
sendingarinnar veriff birt en þó
veriff skýrt frá því aff í henni
mótmæli Rússar aðild Dana að
sameiginjegri dansk-þýzkri her-
stjórn á Eystrasalti.
Talið er að í orðsendingunni
komi fram sömu mótmæli og birt
voru í Izvestia, málgagni stjórn-
ar Sovétríkjanna, hinn 4. þ.m.
Sagði blaðið þá að sameiginleg
herstjórn Dana og Vestur Þjóð-
verja yrði til þess að gera ástand
ið á þessu svæði enn erfiðara en
áður. Sovétstjörnin geti ekki látið
sér á sama standa um þá stað-
reynd að stjórn nágrannaríkis
tekur ekkert tillit til glæpaað-
gerða vestur þýzku stjórnarinn-
ar. Þá sagði blaðið ennfremur að
nú geti þýzku stríðsæsingamenn-
irnir aftur hertekið Danmörku
vegna undanlátssemi yfirvald-
anna þar.
AÐEINS TIL VARNAR
Rússar hafa áður mótmælt sam
eiginlegri herstjórn Dana og Þjóð
verja. í ágúst s.l. sendi stjórn
Sovétríkjanna Dönum orðsend-
ingu þar sem hún lét 1 ljós
áhyggjur sínar vegna væntan-
legra samninga um sameiginlega
herstjórn. Kampmann forsætis-
ráðherra Danmerkur svaraði
þeirri orðsendingu í október og
benti á að hér væri ekki um ein-
hliða dansk-þýzka samninga,
heldur væri þetta ráðstöfun á
vegum Atlantshafsbandalagsins.
Sagði Kampmann að allar líkur
bentu til þess að yfirmaður her-
stjórnarinnar yrði Dani og hefur
það nú komið á daginn með skip-
un Hage Andersen hershöfðingja
úr danska flughernum í embætt-
ið. Lagði Kampmann þá áherzlu
á það að þessi sameiginlega her-
stjórn tæki aðeins við völdum
ef ráðizt yrði á NATO.
í frétt frá Osló er skýrt frá því
að sendiherrum Noregs og Sví-
þjóðar í Moskvu hafi verið afhent
afrit af orðsendingunni til Dan-
merkur.
ingu á loíthclgi Goa og affrar
ögranir.
Fulltrúi Goa í portúgalskrá
þinginu, Prinsoino Futtato, flutti
í dag ræðu þar sem hann gerði
deilu Indverja og Portúgala að
umtalsefni. Deildi hann harðlega
á Indverja fyrir árásir þeirra á
Goa og sagði að undir engum
kringumstæðum mætti innlima
Goa í Indland. „Enginn í Goa
óskar eftir öðru en portúgölskum
yfirráðum“, sagði hann.
Dagblöðin í Lissabon birtu f
dag fréttir um áleitni Indverja i
Goa og hefur eitt blaðið það
eftir fréttaritara sínum að íbúarn
ir hafi verið fluttir úr öllum ind-
Frh. á bls. 23
V W'
Areksfur
í lofti
BRÍÍSSEL, 12. des. — (NTB) —
Tvær flugvélar belgíska flug-
hersins rákust saman í lofti i
dag skammt frá Mons í Suður
Belgíu og fórust áhafnir beggja
vélanna, alls sex menn.
Slysið varð þegar stór flutn-
ingavél af gerðinni C-119 var 1
aðflugi til lendingar á sama
tíma og orustuþota var í flug-
taki frá flugvellinum Chievres.
Rákust vélarnar saman skammt
frá flugvellinum og dreifðist
brakið úr þeim yfir stórt svæði.
t