Morgunblaðið - 13.12.1961, Síða 8
8
MORGVWT1T 4Ð1Ð
Miðvikudagur 13. des. 1961
Fimmtugur í dag:
Páll Ó. Pálsson
útgerðarmaður, Sandgerði
EG HEF ekki átt því láni að
fagna að eiga við Pál Pálsson
samskipti nema örfá ár. Hins veg
ar hafa kynnin verið góð. Eg hefi
sannfrétt frá viðskiptavinum
hans á sviði útgerðar norðan
lands, að traustari mann eða ein-
lægari hafi þeir ekki átt saman
við að sælda. Framkoma Páls
er einlæg og fáguð á öllum svið-
um.
Mér er kunnugt um að Páll
lætur sér fátt óviðkomandi ef
hann telur sig geta léð góðu
máli lið. Um það ber vott hin
óþrjótandi barátta hans í félags-
málum Miðneshrepps og Sand-
gerðis. Eg læt verk hans á þessu
sviði óupptalin, enda óþarft þar
sem svo margir þekkja störf Páls.
Páll hefir ekki fremur en aðrir
farið varhluta af aðkasti, en hann
hefir ekki tekið það nærri sér.
Maðurinn er svo heilsteyptur.
Margir eiga honum mikið að
þakka hér heima fyrir, og þá
Jölakertin
Altariskerti
Ilmkerti
Ævintýrakerti
Skrautkerti
Veizlukerti
Kúlukerti
Blómakerti
Snjókerti
Antikkerti
Aðventukerti
Gotikkerti
Kubba o. fl. o. fl.
fUU fí l/ZMl
3/o herb. ibúð
óskast til leigu. Mikil fyrir-
framgreiðsla. Upplýsingar í
síma 1852.
fyrst og fremst þeir, sem erfitt
hafa átt í lífsbaráttunni. Ef fé-
lagasamtök og byggðarlög ættu
nokkra menn á borð við Pál,
stæðum við betur að vígi á mörg
um sviðum, sem búum í fámenn-
inu.
Eg færi með þessum orðum
Páli einlægar kveðjur frá við-
skiptavinum hans ög sameiginleg
um kunningjum og árna honum
heilla í framtíðinni.
Björn Dúason.
PÁT.T, Ó. PÁLSSON, útgerðar-
maður í Sandgerði, er fimmtug-
ur í dag. Frá blautu barnsbeini
hefir hugur Páls verið bundinn
við sjósókn og útgerð. Eftir að
Páll hætti að stunda sjó fór hann
að gera út. Hann var einn aðal-
hvatamaður að stofnun útgerðar
félagsins Hrönn h.f., sem verið
hefur farsælt útgerðarfélag. Út-
nes h.f. stofnaði Páll ásamt nokkr
um mönnum og var hann fram-
kvæmdastjóri þess félags frá
byrjun. Þá hefir Páll látið félags-
mál í Miðneshreppi mjög til sín
taka. T.d. hefir Páll verið for-
maður Sjálfstæðisfélags Miðnes-
hrepps og íþróttafélagsins Reyn-
is. Einnig var Páll lengi formað-
ur Verkalýðsfélags Miðneshrepps.
Pormaður skólanefndar og hafn-
arnefndar var Páll um árabil,
svo nokkuð sé nefnt. Páll er
drengur góður, og traustur og
vill hvers manns vanda leysa,
enda eru þeir orðnir margir,
sem Báll hefir liðsinnt. í dag
munu vinir Páls hér og annars-
staðar hugsa til hans, en þeir,
sem því geta við komið þrýsta
hönd, hans með þafeklæti fyrir
óeigingjörn störf unnin í þeirra
þágu og byggðarlagsins alls.
Með beztu kveðju og árnaðar-
óskum. Sig.
ÆVINTYRABÆKIIE
-£vúJ[ J) Lx^tow*
ÆVINTÝRABÆKURNAR eru vinsælustu barna-
og unglingabækur, sem út hafa komið á íslenzku
um langt skeið, eftirsóttar jafnt af drengjum sem
telpum á öllum aldri.
Ævintýrabækurnar eru prýddar samtals á þriðja
hundrað afbragðsmyndum, en bækurnar átta eru
þessar:
• Ævintýraeyjan
• Ævintýrahöllin
• Ævintýradalurinn
• Ævintýrahafið
• Ævintýrafjallið
• Ævintýrasirkusinn
• Ævintýraskipið
• Ævintýrafljótið
Óskadraumur allra barna og unglinga er að eign-
ast allar Ævintýrabækurnar. Það er enn þá hægt
en hversu lengi það verður veit enginn.
I Ð U N N Skeggjagötu 1 — Sími 12923.
Hólmfríður Júlíusdóttir
Fædd 17. júlí 1882
Dáin 3. des. 1961
HINN 3. þ.m. lézt í Fjórðungs-
sjúkrahúsi Akureyrar frú Hólm-
fríður Júlíusdóttir eftir langvar-
andi vanheilsu, 79 ára að aldri.
Banamein hennar var hjartaslag.
Hólmfríður var fædd að Tjarn-
rík móðir og amma. Hinir fjöl-
mörgu sveitungar hennar, frænd
ar-Garðshorni (nú Laugahlíð) í
Svarfaðardal, Eyjafjarðarsýslu
hinn 17. júlí 1882. Hún var elzt
margra systkina, dóttir Júlíusar
Daníelssonar, óðalsbónda Jóns-
sonar frá Miðkoti í Svarfaðardal
og konu hans Jóhönnu Maríu
Björnsdóttur Jónssonar frá Botni
í Þorgeirsfirði, síðar bónda að
Syðra-Garðshorni. Hólmfríður
var af góðu og traustu bænda-
fóliki brotin í báðar ættir. Hún
ólst upp í foreldrahúsum til tví-
tugsaldurs. Engan skóla gekk
hún í, nema lífsins skóla, þó mun
hún hafa fengið þá kennslu, sem
þá var veitt börnum undir ferm-
ingu hjá fræðimanninum Bene-
dikt Þorkelssyni, kennara. sem
taldi hana einhvern sinn gáfað-
asta nemanda.
Árið 1902 giftist Hólmfríður úr
föðurhúsum Jóhannesi Björns-
Nauðungaruppboð
Nauðungaruppboð það sem auglýst var í 80., 81. og
82. tbl. Lögbirtingablaðsins þ. á á eignarhluta Sig-
urðar Sigurbjörnssonar í húsinu nr. 27 við Smára-
tún hér í bæ, að kröfu Páls S. Pálssonar hrl. fer fram
föstudaginn 15. þ.m og hefst á skriistofu embættis-
ins Mánagötu 5 kl. 3 e.h.
Bæjarfógetinn í Keflavík 12. des. 1961
Eggert Jónsson
syni, hinum ágætasta manni, frá
Hóli í Urðasókn í Svarfaðardal.
Fyrstu hjúskaparárin áttu þau
heima ýmist þar í sveit eða á
Dalvík. Árið 1919 fluttu þau bú-
ferlum til Akureyrar og áttu þar
heima til æviloka, og nú mörg
hin síðari árin að Oddagötu 5.
Þungur harmur var kveðin að
Hólmfríði árið 1944, er hennar
ágæti eiginmaður íézt eftir
margra ára hamingjuríkt hjóna-
band. Þau hjón eignuðust fjög-
ur börn, tvíbura dreng og stúlku,
sem létust skömmu eftir fæð-
ingu, en hin tvö eru á lífi. Jó-
hanna verzlunarstjóri hjá Bern-
harð Laxdal á Akureyri, ógift,
og Júlíus siglingarfræðingur hjá
Flugfélagi fslands, kvæntur Ingi-
björgu Agnars, Og eru þau bú-
sett í Reykjavík.
Frú Hólmfríður var kona fríð
sýnam, gjörvileg og glæsileg í
allri framkomu, glöð og skemmti
leg í vinahóp. Þeir sem þekktu
hana minnast þess einnig hve
blíð og mild hún var og hve ást-
ur og vinir víðs vegar á landinu,
minnast og sakna gestrisni henn-
ar og gjafmildi, því að hún mátti
ekkert aumt sjá, án þess að rétta
hjálparhönd og bæta úr, eftir efn
um og ástæðum. Hólmfríður var
frábær starfsbona, sama að hvaða
verki hún gebk, allt lék í hennar
dverghögu höndum. Hannyrðir
hennar og allt handbragð bar
vott um gott fe'gurðarskyn og ó-
venjulega fjölhæfni. Hún var bók
hneigð kona og las mikið einkum
hin síðari æviár. Eg tel þessa
frændkonu mína eina af fjöl-
hæfustu konum, sem ég hefi
kynnzt á lífsleiðinni.
Að endingu votta ég og fjöl-
skylda mín, börnum, barnabörn-
um, systkinum, tengdadóttur og
öðrum ættingjum hinnar látnu
dýpstu samúð.
Frú Hólmfríður heitin verður
flutt til hinztu hvíldar heim til
æskustöðvanna að Tjörn í Svarf-
aðardal, að eigin beiðni, og fær
hún leg við hlið mannsins síns
sáluga.
Útförin fer fram í dag 13. des.
að Tjarnarkirkju.
Blessuð sé minning hennar.
Valgerður Björnsdóttir.
Keflavík — Suðurnes
Jélatré
og grenigreinar
— tollalækkun.
Jólaskraut
SÖluskálirm
Smáratúni 28. — Sími 1826.
Hvitabandið
heldur fund að Fornhaga 8
fimmtudag 14/12 kl. 8,30
Dregið í happdrættinu. —
Spiluð vist. Kaffidrykkja.
Stjórnin.
LÚÐVlK GIZURARSON
héraðsdómslögmaður
Tjar/iargötu 4. — Sími 14855
SPEGLAR — SPEGLAR
Speglarnir í TEAK-römmunum eru komnir.
Margar gerðir. — Einnig fjölbreytt úrval af BAÐ-
speglum, HAND-spegium og allskonar smærri
speglum.
SPEGLABÚÐIN — Laugavegi 15
Efnalaug
Hef kaupanda að góðri efnalaug eða þvottahúsf.
FASTEIGNASALA
Áka Jakobssonar og Kristjóns Eiríkssonar
Sölumaður: Ólafur Ásgeirsson
Laugavegi 27 — Sími 14226