Morgunblaðið - 16.12.1961, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 16. des. 1961
8
Ný sending — Nýtt verð — Nýjar gerðir
Jólagjöfin er Pierpont úr
• Glæsilegt
• árs ábyrgð
• dagatal
• óbrjótanleg
T. gangfjöður
• verð við
t . allra hæfi
• vatnsþétt
ARMBANDSÚR
HEFUR ALLA
KOSTINA:
• höggvarið
Sendi í póstkröfu um allt land
r
Garðar Olafsson, úrsmiður
Lækjartorgi — Sími 10081
AtGLYSIIMG
um umferð í Reykjavík
Samkvæmt 65. gr. umferðarlaga hefir verið ákveðið að
setja eftirfarandi takmarkanir á umferð hér í bænum á
tímabilinu 15. — 24. desember 1961.
1. Einstefnuakstur: ,. ,» ,tl>
í Pósthússtræti miili Austurstrætis og Kirkjustrætis
til suðurs.
2. Bifreiðastöður bannaðar á eftirtöldum götum:
A Týsgötu austan megin götunnar. 1 Naustunum
vestan megin götunnar milli Tryggvagötu og Geirs-
götu.
A Ægisgötu austan megin götunnar milli Vestur-
götu og Bárugötu.
3. Akreinaakstur verður tekinn upp á kafla á Lauga-
vegi austan Klapparstígs. Ennfremur neðar á Lauga
vegi, í Bankastræti og Austurstræti, þegar sérstök
þörf þykir vegna mikillar umferðar.
Athygli skal vakin á því, að bifreiðastöður verða
bannaðar, þar sem ekið verður á tveimur akreinum.
4. Umferð vörubifreiða, sem eru yfir ein smálest að
burðarmagni og fó.lksbifreiða 10 farþega og þar yfir,
annarra en strætjsvagna, er bönnuð á eftirtöldum
götum:
Laugavegi frá Höíðatúni í vestur, Bankastræti,
Austurstræti, Aðalstræti og Skólavörðustíg fyrir neð
an Týsgötu. Enníremur er ökukennsla bönnuð á
sömu götum.
Bannið gildir frá 15.—24. des. kl. 13—18 alla daga
nema laugardaginn 16. des. til kl. 22. 23. des til
kl. 24. — Þeim tiimælum er beint til ökumanna
að forðast óþarfa akstur um framangreindar götur,
enda má búast við, að umferð verði beint af þeim
eftir því sem þurfa þykir.
5. Bifreiðaumferð er bönnuð um Austurstræti, Aðal-
stræti og Hafnarstræti 16. des. kl. 20—22 og 23. des.
kl. 20—24.
Þeim tilmælum er oeint til forráðamanna verzíana,
að þeir hlutist til um að vöruafgreiðsla í verzlanir og
geymslur við I.augaveg, Bankastræti, Skólavörðustíg,
Austurstræti og Aðalstræti og aðrar miklar umferðar-
götur, fari fram fyrir hádegi eða eftir lokunartíma á
áðurgreindu tímabili frá 15.—24. des. n.k.
Lögreglustjórinn í Reykjavík,
14. desember 1961
Sigurjón Sigurðsson.
ÆVINTÝRALEIKIR
Ævintýraleikir I.—II.
Sigrún Guðjónsdóttir
teiknaðí myndimar.
I. bimdi 1960. II. bindi 1961.
FJÓRIR ævintýraleikir eru í
hvoru bindi. I.: Stjarnan, Hlini
kóngsson, Dóttir skýjakonungs-
ins og Nátttröllið. II.: Brúðar-
slæðan, Eld vil ég fá, Hvíti ridd-
aiinn og Vélvakandi og bræður
hans. Leikirnir eru í tveim til
fjórum þáttum. Nöfn ævintýra-
leikjanna sýna, að val efnis er
f jölbreytilegt, eða frá heima-
fengnum bagga þjóðsögunum, um
alþjóðlegar barnabókmenntir, til
Nýja testamentisins. En höfund-
ur hefur farið þannig með efnið,
að alíslenzkt gæti verið. Enda
hafa sögur leikþáttanna verið
helgaðar bömum í einhverri
mynd kynslóð eftir kynslóð af
foreldrum þeirra eða aðstand-
endum og vinum, sem hafa fund-
ið til þeirrar ábyrgðar, að aldrei
iná annríki aftra því að talað sé
við börn og þeim sagðar sögur.
En bemskan bindur sig ekki
við landamæri. Börn eru sjálfum
sér lík, hvar í heimi sem er, og
hvaða litarhátt, sem þau hafa.
Það er kostur ævintýraleikja
þessara, að þeir hafa albernsku-
legt gildi að því stuðlar ævin-
týraformið. Ragnheiður Jóns-
dóttir er því heppin með grund-
völlinn, enda nýtir hún hann vel,
færir efnið í búning fagurs máls
og fágaðs stíls. Skáldkonan er
löngu orðin þjóðkunn sem rit-
höfundur bæði fyrir fullorðna
og börn. En það ætla ég, að hún
eigi stæ'rstan lesendahóp meðal
barna og unglinga.
Nokkurt áræði þarf til að ráð-
ast í ritverk sem þetta. Ragnheið
ur fer hér ekki troðnar slóðir.
Það er sem sé staðreynd, að við
erum raunalega fátæk af leik-
bókmenntum fyrir börn, sem
furðu má sæta af söguþjóð að
vera. Margar menningarþjóðir
hafa fyrir löngu skilið gildi þess,
að böm, t. d. á skólaaldri, fái
tækifæri til að lifa sögu og at-
burði í leik, eða fullnægja hug-
myndaflugi sínu í beinni leik-
tjáningu hugljúfs efnis, svo sem
ævintýraleikir eru. Engir leik-
endur taka hlutverk sitt af meiri
alvöru, engir njóta sín betur í
„rullunni" en börn og unglingar,
sé rétt að farið. Og engir áhorf-
endur eru skilningsviljugri og
þakklátari en börn á leiksýningu,
geðjist þeim efni og framsetning.
Um þroskagildi vel heppnaðra
barnaleiksýninga er ekki að ef-
ast. Þetta skilur Ragnheiðúr
skáldkona mæta vel, enda var
hún kennari um skeið og hefur
þá fundið þörfina. Æ-vintýraleik-
ir hennar haia margir- verið
vígðir reynslunni við Barnaákóla
Hafnarfjarðar með ákjósanleg-
um árangri. Vissulega er fieiri
skólum fengur að ævintýra-
leikjum þessum. Og leikþættirn-
ir em einnig vel fallnir til sanv
lestrar, en samlestur er mjög
þioskandi lestrarþjálfun á vissu
skeiði lestrarnámsins.
Höfundi og útgefanda verður
bezt þökkuð útgáfa þessara ævin
týraleikja með því, að skólar og
heimili taki hér mannlega á móti.
Mætti þá vænta þess, að brátt
roðaði fyrir degi. hvað leikbók-
menntir barna og imglinga í
þessu landi snertir. Og á þeim
grunni kynni svo að rísa barna-
leikhús, eða að minnsta kosti
leiksýningar að staðaldri fyrir
börn hér í höfuðborginni áður en
langt líður.
ísak Jónsson.
Fimm barnabækur
frá P.O.B.
BLAÐINU hafa borist fimm
barnabækur frá Bókaforlagi
Odds Björnssonar á Akureyri.
Hér er um að ræða „Saiómon
Svarti og Bjartur," framhalds-
barnabók eftir Hjört Gíslason,
segir þar frá hrútnum Saloanon
svarta og æfintýrum hans og
drengjanna í Eyrarkaupstað og
nú hefir hvítur hrafn bætzt í hóp
leikféJaganna. Halldór Pérursson
hefir prýtt bókina með teikning-
um.
Þá er drengjabók, sem heitir
„Vaskir vinir“ eftir Jennu ag
Ureiðar Stefánsson, en þau hjón
hafa áður látið frá sér fara 14
bainabækur, Halldór PéturSson
hefir einnig prýtt þá bók myncl-
um/
Þá hefir forlagið gefið út barna
iöguna Kardemommubærinn eft-
ir Thorbjörn Egner í þýðingu
Huldu Valtýsdóttur með Ijóða.
þýðingum eftir Kristján frá
Djúpalæk. Litprentaðar teikning
ar eru í bókinni eftir höfundinn.
Auk þessa koma út tvær barna
'bækur eftir Ármann Kr. Einars-
son, en þeirra hefir áður verið
getið í blaðinu. ,
NÚ SEM FYRR...
JÚLAFÖTIN
FRÁ OKKUR
BETRI FÖT
FALLEGRI FÖT
FÖTIN SEM
FARA BEZT
mm & IA0TH H.F.