Morgunblaðið - 16.12.1961, Blaðsíða 14
14
MORCUNBLAÐIÐ
Lattgardagur 16. des. 1961
Beifjamín Kristjánsson:
Kunningjabréf til Guð-
mundar Böðvarssonar
LEITT þykir mér það, vinur
minn Guðmundur, hafi ég
stórlega gert á hluta þinn, er ég
í gamni greip til kvseðis þíns:
Til þín Mekka í því skyni að
bregða ljósi yfir trúarfjálgleik
Stalinsdýrkeftda á fslandi á und-
anförnum árum. Frá því að ég
las fyrstu bók þína, hefi ég haft
miklar mætur á þér sem skáldi,
og mundir^þú geta séð merki
þess, ef þú heimsæktir mig og lit-
ir í bókaskápinn hjá mér, því að
þar eru ljóðabækur þínar allar
bundnar í skrautband.
Kvæði þetta, sem ég vitnaði í,
hefur mér þá líka alltaf þótt
skáldlegt og harla gott frá listar
innar sjónarmiði, og haggar það
engu um listagildi kvæðisins,
jafnvel þó að þú nú hefðir haft
Stalín í huga, því að eins vel
mætti heimfæra það til hinnar
eilífu leitar mannsandans í. trú
arbrögðum, skáldskap eða þjón-
ustu sannleikans. En þegar um
táknrænt Ijóð er að ræða, getur
jafnvel ekki höfundurinn sjálf-
ur ráðið nokkru um, hvernig les
endunum þóknast að skilja það,
nema útskýring fylgi kvæðinu,
og getur þá einn látið að tákna
þetta og annar hitt. Kvæðið getur
meira að segja verið því betra,
sem það gefur meira svigrúm að
þessu leyti. Þess vegna sagði
Goethe: Mitt er að yrkja, en ykk
ar að skilja. Og fyrir kemur, að
skáld skilja sig ekki sjálf.
Nú er það sanngjamt að gera
grein fyrir, hvers vegna mér
fannst ekki fjarri lagi að heirn-
færa mætti kvæði þitt til Stalíns
dýrkunarinnar. Af sumum
kvæðum þínum virðist mega
ráða, að þú værir hættur að sjá
nokkurt land í hinum forna menn
ingararfi veraldarinnar, hætt
væri þig að dreyma um himininn,
gleði þín, von og trú væri inni
brunnið, allt væri þér týnt, sem
þú trúðir forðum í tónum og
orðum, og kristindómurinn eins
og jólakort frá 1910.
Aftur á móti þykja þér þeir
vera litlir karlar, sem ekki „verja
Stalingrað" og eftir það snúast
hugsanir þínar mjög í austurátt
og sálufélag þitt og útgáfa á kvæð
um þínum öll á reipum þeirra,
sem hverju orði Stalíns trúðu
eins og nýju neti. Að þessu at-
huguðu, Og svo því, að ekki er
vitað, að skáldgyðjan sé fremur
í austurátt en annars staðar, né
hefur hún fyrr í bókmenntum ver
ið talin karlkyns (Allah), þá
lái mér hver sem vill, þó að það
sýnist geta eins vel komið heim
Og saman, að'Mekka væri sama
sem Moskva, Allah, sama sem
Stalín, og eyðimörkin, sem yfir
var farið, hið úrelda kristna þjóð
skipulag, þar sem sannleikur von
og kærleikur er enn ekki að
fullu fyrirlitið.
En hafir þú aldrei trúað á
Stalín og Co og alla hina rúss
nesku morðsögu, þá gleður það
mig innilega þín vegna, og er
sjálfsagt að taka góða og gilda
þína útskýringu á kvæðinu, að
þetta sé ekki annað en auðmjúk
og einlæg ástarjátning til guðs
listarinnar, enda skildi ég . það
þannig í fyrstu. En þá vildi ég
Barna — verkfœri
Útsögunarsett, Utskurðarsett.
Ódýr og hentug jólagjöf.
Lækkað verð.
LIJDVIG STORR & CO.
íHERMDs
RE6ISTERE0 TRADE MARK
Hitabrúsi |
No. 58Q
KAFFIKÖNNUR
HENTUGAR JÓLAGJAFIR
FÆST ALLSTAÐAR
Umboðsmaðiir:
JOHN LINDSAY — Reykjavík — Sími 15789
NÝ SENDING
Þýxkir prjónahaftar
GLUGGIIMIM
Laugavegi 30.
j||§ 1 Föt
frá Spörtu
m ' ' jakkar
: frá Spörtu
% i t terylenebuxur
% i Æ |ÍÍI|^3lF frá Spörtu
f. 'é %|i klœða drengina bezt
um jólin
4'" * * i Verzl. DANÍEL
tef4 vé&'- ''l *v feátó jS Veltusundi 3
Sími 1-16-16
benda þér á það í öllum vin- verið lítil, því að hvar eru þeir
skap, að ekki ríður minna á að þá staddir?
vera auðmjúkur gagnvart stað-
reyndum. En mér sýnist að enn
vanti talsvert á, að þú fáist til að
viðurkenna nokkrar staðreyndir
sögunnar, staðfestar af Krúsjeff
sjálfum, sem nafni minn fyrir
sunnan hefur látið sér um munn
fara, og munir þú í því efni bet
ur trúa sagnfræðingum Máls og
menningar.
Ef hinar f jórar höfuðáttir horfa
allar til guðs listarinnar, eins og
þú kemst fallega að orði, ætti
þá ekki öll mannleg viðleitni,
einnig skáldskapur, sé hann ein
lægur og falslaus, að leitast við
að tjá sannleika og skynja hinn
hinzta veruleika? Einmitt þess
vegna þykir mér það hörmulegt,
ef skáld gerast auðtrúa og blind á
staðreyndir og hylla stefnur,
sem stjórnað er af þorpurum.
Kalla ég það hundslega auð-
mýkt að láta slíka menn segja
sér enn fyrir verkum, löngu eftir
að viðurkennt er, að stjórn
þeirra hafi aldrei verið annað en
argasta harðstjórn, og hvergi
hafi verið níðst meira á mann-
réttindum en af kumipónum þess
um. Sjálfur kallar þú menn
þræla og böðla í kvæðum þínum,
og sé ég ekki að neitt sé verra
að kalla hundslegt það, sem
hundslegt er, en það er að halda
órofatryggð við glæpamenn.
Hundurinn er í raun og veru gott
dýr og hefur óvizku sína sér til
afsökunar. En hafir þú aldrei
trúað þannig, á þetta lýsingar-
órð ekki við þig. -En um það
upplýsir grein þín ekkert.
Þú reynir að láta liggja að því
í greinarstúf þínum, að hvorki
hafi ég vit á skáldskap né öðru,
og kemur mér ekki til hugar, að
vizka mín sé mikiL En ekki
ber ég þó kinnroða fyrir neitt
það, sem ég hefi skrifað um
Stalín, því að það hefur sagan
nú staðfest í öllum atriðum.
Hækkar það því ek'ki hróður
þeirra skáldspekinga, sem dingl-
að hafa aftan í Stalín alla sína
ævi, ef skarpskyggni mín hefur
Fyrir aldarfjórðungi eða meir,
harmaði ég það, er Jóhannes frá
Kötlum snerist frá kristindómi og
fór að trúa á Stalín. Hann brást
reiður við og orti um mig níð-
kvæði. Vel gat ég fyrirgefið hon
um þetta, því að ég vissi að ég
hafði rétt fyrir mér, en hann
rangt. Ef hann hefði gefið betri
gaum að orðum mínum þá, hefði
hann nú getað sparað sér það að
verða alþjóð að undri og at»
hlægi fyrir barnaskap sinn.
Eins reynir þú nú, af því að
þér sárnar við mig, að uppnefna
mig og nafna minn fyrir sunnan,
og er þér velkomið, fyrir mitt
leyti finnir þú ékki betri fyndni
eða röksemd í þessu mól. En
glöggt ættu þeir að skilja það,
sem sjálfir yrkja ádeilur, að
gagnrýni er ekki alltaf framkom
in af illvilja og sízt af öllu per-
sónulegum illvilja, heldur löng
un til að segja til betri vegar.
Sannast að segja undrar það
mig, að þeir sem trúað hafa á
Stalín eins og guð í þrjátíu ár,
skuli hér eftir geta litið upp á
nokkurn mann eða treyst dóm-
greind sinni í nokkrum hlut.
Slí'kir „skoðarar hlutanna" hafa
þó vissulega sannað grunnfærni
sína átakanlega.
Benjamín Krisjánsson. 1
ARIX3 O LD
keðjur og hjól
Flestar stærðir fyrirliggjandi.
Landssmiðjan
iTÍÉ Fi E j & Æ • dag laugardaginn 16. desember
m* m U IWl fullkontna KJÖRBIJÐ með öllum
HÁALEITESHVERFI nylenduvörum — hreinlætisvörum
BIJSTAÐAHVERFI kjötvörum — áleggi — niðursuðu
SIHÁÍBÚÐAHVERFI grænmeti og ávöxtum
KJÖRBÚÐ TÓMASAR
GRENSÁSVEGI 48
SÍMI 37780
JÓLAHANGIKJÖTIÐ FRÁ TÓMASI
t • '
ER FRÆGT JÓLAGÆSIR OG
ENDUR VALDAR HANDA YÐUR