Morgunblaðið - 17.12.1961, Side 5
Sunnudagur 17. des. 1961
MORGUNBLAÐIÐ
5
*m
Kl
MMMMHMIMHMmMMHMÍMMMk
s
11 /gn
lli' i i
ð i
FYRIR skömmu kom út hjá
ísafold skáldsagan „Rauði
kötturinn" eftir Gísla Kol-
beinsson, sjómann. Það er
ekki daglegur viðburður, að
sjómaður gefi út skáldsögu,
þess vegna ræddum við
nokkra stund við Gísla á dög
unum.
— Hafið þér verið lengi
sjómaður? spyrjum við hann.
— Ég hóf sjómennsku á
unga aldri og var fyrst á ís-
lenzkum togurum. Síðan
réðst ég á flutningaskip og
hef verið í ’ siglingum í
fimmtán ár, bæði á norskum
skipum og íslenzkum.
— Þér hafið þá komið
víða?
-— Já. Ég hef komið í hafn
ir í Evrópu, Asíu, Afríku og
Ameríku.
— Eruð þér enn í milli-
landasiglingum?
— Nei, ég er nú búsettur
í Vestmannaeyjum og er for-
maður á mótorbáti, sem rær
þaðan.
— Er ekki erfitt að setjast
í helgan stein, þegar maður
hefur verið svona lengi í
siglingum?
— Ekki hef ég fundið til
þess. Það er sagt að menn
róist með aldrinum. Ætli
því ,sé ekki einnig þannig
varið um mig.
— Um hvað fjallar bókin?
— Hún gerist á Kúbu og
dregur nafn sitt af knæpu í
Havana. Hún fjallar um
kúbanskt fólk og íslenzka
farmenn og gerist á nokkr-
um dögum fyrir tveimur ár-
um.
— Þér hafið komið til
Kúbu?
— Já, ég hef komið þang-
að fimm sinnum og mér lík-
ar ákaflega vel við kúbanska
fólkið. Ég kom þangað bæði
fyrir uppreisnina, meðan á
henni stóð og eftir að henni
var lokið.
— Er minnzt á uppreisn-
ina í bókinni?
— Já, bókin gerist meðan
á henni stóð, en fjallar þó
ekki um uppreisnina. Hún er
í bakgrunninum, fólkið ræð-
ir um hana.
— Á sagan sér enga stoð-
í veruleikanumi
— Nei, nei, hún ber nafnið
skáldsaga með réttu. íslend-
ingarnir eru alger hugar-
smíð, en ég reyni að lýsa
kúbönsku fólki eins og það
kom mér fyrir sjónir.
— Hvað varð til þess að
þér skrifuðuð þessa ögu?
— Kúbá og íbúar eyjarinn-
ar eru minnisstæðasta landið
og þjóðin, sem ég hef heim-
sótt. En það sem fyrst og
fremst varð til þess, að ég
fór að skrifa var, að á sigl-
ingaskipum er mikill frítími,
sem þarf að drepa. Ég byrj-
aði að nota hann til að skrifa
óg auk þessarar bókar hef ég
Gísli Kolbeinsson
skrifað nokkrar smásögur,
sem birzt hafa í Sjómanna-
blaðinu.
— Eru það líka skáldsög-
ur?
— Já, og þær gerast allar
á íslandi.
— Ætlið þér að halda
áfram að skrifa?
— Já, það hef ég hugsað
mér.
Söfnin
Listasafn íslands er opið sunnudaga,
þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga
kl. 1:30—4 e.h.
Asgrimssafn, Bergstaðastræti 74 er
opið þriðjud., fimmtud. og sunnudaga
frá kl. 1.30—4 e.h.
Þjóðminjasafnið er opið sunnud.,
þriðjud., fimmtud. og laugard. kl.
1.30— 4 e. h.
Listasafn Einars Jónssonar opið
sunnudaga og miðvikudaga frá kl.
1.30— 3,30.
Minjasafn Reykjavíkurhæjar, Skúla
túni 2, opið dag'ega frá kl. 2—4 e.h.
nema mánudaga.
Ameríska Bókasafnið, Laugavegi 13
er opið 9—12 og 13—21, mánudaga, mið
vikudaga og föstudaga, 9—12 og 13—18
þriðjudaga og fimmtudaga
Bókasafn Kópavogs: — Utlán þriðju
daga og fimmtudaga í báðum skólun-
um fyrir börn kl. 6—7:30 og fullorðna
kl. 8:30—10.
velur að þessu sinni
Stefán Jónsson. Um val
sitt á ljóðinu segir hann:
S j ó r i n n er töluvert yrkisefni. Að því aflbuguðu hvað
landið okkar er tiltölulega lítið og láigt og að hafið þekur
70,8 prósent af yfirborði jarðar og er að meðaltali 3790 metra
djúpt, þá er það merki'leg tilviljun að ís’land sfculi vera
þurrlendi og ég hvorki fugl eða fisfeur.
Mér hefur alltaf þótt sjórinn merkilegur. Á Djúpavogi
fór öll málsimetandi bernska fram otfan í fjöru. Ég átti alltaf
von á sjóreknu djásni; hef enda hvergi séð önnur eins
undur og í flæðarmálinuu. Einu sinni sá ég þar marhnúta,
sem voru búnir að gleypa hvor annan og lágu á meltunni.
Á útfiri tíndum við úr flæðangrjótinu svo ófríðar mar-
flær að vermenn frá Norðfirði boguðu okkur fimmtíu auxa
í reiðu fé á stykkið — fyrir að gleypa þær. Svo náðu þessar
gleypingar hámarki sínu á aðfallinu. Þá kom sjórinn og
gleypti landið.
Ég á enmþá mitt ævintýri í hafsauga og partur af því er
spunninn upp úr þessu kvæði;
H r L D U R
eftir GRÍM THOMSEN
í dag 17. des., er frú Guðrún
'Árnadóttir 80 ára. Hún dvelst
í dag á heimili sonar síns að
Laugavegi 162.
80 ára er í dag frú Margrét
Björnsdóttir, Skeggjagötu 16.
Nýlega hafa opinberað trú-
lofun sína ungfrú Fjóla Guð-
mundsdóttir, Drápuhlíð 25 og
B.jörn Daníelsso.n íþróttakenn-
ari, Syðra-Garðshorni. Svarfað-
ardaL
U.iúpt í hafi
í höll af rafi
Huldur býr,
bjart er trafið,
blæjan skír;
opt í logni
ljósu sogni
iangspiiið hún knýr,
sindrar silfurvír.
Raular undir
Rán í blundi
rótt og vægt,
lognið sprundi
ljúft og þægt,
og í draumi
undirstraumur
ymur stillt og hægt,
haf er fagurfægt.
En i kalda
er kvikar alda,
kreppist glær,
hærri galdur
Huldur slær:
strengir hlymja
hrannir glymja
hvítar nær og fjær,
rymur sollinn sær.
Trúi’ jeg leiki
Faldafeyki
fiðlan snjöll,
eru á reiki
rastafjöll,
Ægisdætur
finna fætur
flytja’ um gáruvö?
hyltast boðaföll.
'■ar
Dunar sláttur,
dýrri’ er háttur
drósar brags,
tekur hiin brátt
til Tröllaslags:
Magnast stormur,
Miðgarðsormur
makka kembir íax, -
kenna knerir blaks
Meðan veður
valköst hleður
vogs um tún,
Huldur kveður
hafs í brún,
inn á víkum
yfii* líkum
einnig syngur hún
marga rauna rún.
Óm af hreimi
galdurs geymir
gígjan þá,
dregur hún seiminn
djúpt í sjá,
treinist lengi
tún og strengir
titra eftir á
dult í djúpi blá.
’
Eldhúsinnréttingar
Smíum eldhúsinnréttingar
og skápa. Vönduð vinna.
Hagstætt verð. Simi 37595.
Keflavík — Njarðvík
Stærri gerðin aí Rafha-
eldavél til sölu. Verð kr.
2000,-. Uppl. í sima 1736.
Ú Ipukápur
a 3ia til 8 ára.
VJW.
Austurstræti 12
Kaupmenn Atvinnurekendur
Vantar yður góðan starfsmann? Ég er þrítugur, þaul-
vanur afgreiðslu- og sölumaður. Ennfremur alivanur
gluggaskreytingum. Margskonar önnur störf koma þó
til greina. Get unmð sjálfstætt ef með þarf.
Ef þér hafið áhuga, hringið þá í síma 33746.
MANCHETTSKYRTUR
hvítar og mislitar, margar teg.
HÁLSBINDI
HÁLSTREFLAR
N Á T T F Ö T
N Æ R F Ö T
SOKKAR
SKINNHANZKAR
margar tegundir
HERRASLOPPAR
SPORTSKYRTUR
SPORTPEYSUR
RYKFRAKKAR
POPLÍNFRAKKAR
H A T T A R
H Ú F U R
VANDAÐAR VÖRUR
SMEKKLEGAR VÖRUR
Gjörið svo vel og skoðið í gluggana
CEVSIR H.F.
Fatadeildin