Morgunblaðið - 17.12.1961, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 17. des. 1961
Minning um Skagastrandarbræð-
urna, sem fórust á Húnaflóa
I> A Ð er gömul og ný saga í
landi voru, að í baráttunni við
að afla sér brauðs af sjófangi
úr djúpi hafsins falla menn oft
! lí valinn fyrir aldur fram. Norð-
ur á Skagagrunni, hinum fornu
fiskislóðum Hafnabúða, hefur
farizt bátur.
j Áður fyrr var fjöldi land-
róðrabáta á þessum og öðrum
miðum hér fyrir landi frá hin-
um ýmsu fiskiverum hér á
ströndinni. Þau eru nú öll horf-
in og á liðnu sumri var síðasti
sjómaðurinn í Kálfshamarsvík
‘lesinn til moldar. Var það Jó-
; toann Einarsson í Hátúni á Kálfs
fcamarsnesi. Er nú ein verstöð
við austanverðan Húnaflóa,
: Skagaströnd. Hefur þar á seinni
úrum fjölgað litlum þilfarsbát-
um, er hin gömlu fiskimið tóku
við sér eftir ágengni stærri
skipa á grunnmiðum.
M Undanfarið hafa haustvertíðir
verið aflasælastar og svo hefur
nú verið. En margt ber við á
sæ. Þann 7. nóv. féll maður fyr-
| ár borð á bátnum Vísi frá
i Skagaströnd, var það Gunnar
[ 'Pálmason, 17 ára, hinn hraust-
esti piltur, fannst hann og náð-'
i Sst eftir 25 mínútur og má telja
! einstakt, þó veður væri hið
■ bezta. Formaður á bátnum var
Sigurður Árnason.
t En undarlegur er gangur lífs-
Ins. Þann 7. nóv. 1948 eða upp á
dag fyrir 13 árum, voru bræður
Sigurðar Árnasonar á bát sín-
um, Voninni á sjó frá Skaga-
strönd. Féll þá fyrir borð faðir
þeirra bræðra, Árni Guðmunds-
son, 53 ára, alvanur sjómaður
og formaður. Hann náðist eigi
xié fartnst, enda var vont veð-
ur, máttu þeir bræður þá sigla
; |>á döpru ferð heim föðurlaus-
ir. En þeir Árnasynir, Þórhall-
ur, Baldur, Júlíus og Sigurður,
eru meðal hinna beztu sjó-
manna á Skagaströnd.
! * 1 hópi fengsælla sjómannahér,
hafa þeir Víkurbræður verið,
Hjartarsynir, Þórarinn er róið
, toefur einn á bát, og Sveinn og
Hjörtur á Skíða, systursonur
i þeirra er Gunnar Pálmason áð-
urnefndur, er bjargaðist. ■— í
ofviðri því er geisaði 22. nóv.
fórst báturinn Skíði, 8 tonna
vélbátur, eign þeirra bræðra.
;Var hann keyptur frá Dalvík
fyrir þrem árum.
á Með bátnum fórust þeir bræð-
nr, Hjörtur Ástfinnur, fæddur
23. marz 1925 í Bráðræði í Höfða
ikaupstað og Sveinn Guðvarður,
fæddur 17. apríl 1921 á Sauðár-
Jcróki. Voru foreidrar þeirra
Ásta Sveinsdóttir, er andaðist
um síðastliðin áramót og Hjört-
ur Klemenzson í Vík, 74 ára,
en hann hefur búið þar með
eonum sínum eftir lát konu
Sinnar.
\ • Þeim hjónum varð 16 barna
euðið og voru 13 þeirra á lífi
er þetta bar við. Hjörtur faðir
i jþeirra bræðra er maður veður-
; glöggur, þrekmaður mikill, sjó-
Bóknari góður og fiskisæll for-
xnaður jafnan. Þeim hjónum var
þungur róðurinn með þessa
miklu ómegð, en brátt skipti
um er börn þeirra komust upp.
Hefur eigi annað heimili tekið
meiri umskiptum í minni prest-
6kapartíð. Synir þeirra hjóna,
8 að tölu, eru flestir sjómenn,
dugmiklir og ósérhlífnir, enda
hafa margan fenginn flutt að
landi.
Þeir bræður, Sveinn og Hjört-
«jr, voru ókvæntir, þeir voru
alvanir sjómenn frá blautu
toarnsbeini og fengu hið bezta
©rð. Um þá mátti segja að þeir
voru framarlega í tölu hinna
yngri manna er hér hafa rekið
Bína útgerð á minni skipum með
góðum árangri. Er því mikill
mannskaði að þeim bræðrum
og tregi í sinni hins aldna sjó-
manns, föður þeirra. En mörg-
um þeim er gefast mörg æviár
og fjöldi barna mega oft sjá á
bak þeim.
Að liðinni óttu 22. nóvember
er sjómenn gengu til sjávar var
logn og veður hið bezta, en
fljótlega gekk hann upp til hafs
og lands og gerði margra daga
stórhríð og garð sem kunnugt
er. Þá er eigi gott að dvelja á
Hafnamiðum grunnbrotsins og
eigi landvar. En úthafsaldan
þylur sín dimmu ljóð við út-
sker og björgin en stundum
verður úr því hljómur sem úr
líkaböng. Vindátt og straumur
hafa skolað á land farviðum úr
skipi Nþeirra bræðra vestur á
yatnsnesi. Þeir voru í tölu
þeirra er léku sér ungir við
fjöruborð við kúfunga og heil-
ar eða brotnar skeljar. Margir
sigla skipum sínum heilum um
höf og til hafna en stundum
brjótum við þau, svo hefur hér
farið.
Á kyrrum vordögum er fag-
urt við Húnaflóa. Og fegurðin
mest á Hafnarmiðum um Jóns-
messuleitið. Er miðnætursólin
prýðir heimskautsbaug og hinar
nyrztu slóðir lands vors. Enda
hefur hér margur fermingar-
drengurinn, er vora tók farið til
sjávar og þroskazt til að mæta
harðviðrum vetrarins.
í tölu þeirra voru þeir Hjört-
ur og Sveinn, sem við eigum nú
á bak að sjá. Oftlega hefur mér
fundizt er eg hefi litið sólarlag
síðsumarsins við Húnaflóa, sem
ég sæi inn í ódáinsheima. Feg-
urð hlminsins er þá mikil og
hin gullroðnu ský næsta fögur.
Það er eins og þá að hverjum
aukist skilningur á sálminum:
„Ég horfi yfir hafi”
um haust að auðri strönd".
Jólafastan er gengin í garð,
senn koma jól. Þó hríðarveður
og frost gjöri vegu ófæra og
keyri hús vor í kaf, lifir ljós í
gluggum vorum. Uppljómuð hús
innan um snjódyngjur og skafla
er fögur sjón undir stjörnubjört-
um himni norðursins.
Hvergi var oft fegra skreytt
hús með ljósum á jólum, en í
Vík. Þar stóð jafnan með ljóm-
andi stöfum Gleðileg jól er
blasti við vegfarendum.
Guð gefi ykkur bræður gleði-
leg jól í upphæðum himins sala.
. Pétur Þ. Ingjaldsson
Höskuldsstöðum.
2 nýjar DODDÁ-bækur
Öll börn safna Doddabókunum.
Myndabókaútgáfan.
17
IMILFISK
vemdar gdEfteppin
því að hún. hefurnægilegt sogafl og af-
burða teppasogstykki, sem rennur
mjúklega yfir teppin, kemst undir
lægstu húsgögn og DJÚPHREINSAB
jafnvel þykkustu gólfteppi fullkom-
Itga, "þ. e. nær upp sandi, smásteinum,
glersalla og öðrum grófum óhreinind-
um sem berast inn, setjast djúpt í
teppin, renna til, þegar gengið er á
þeim, sarga undirvefnaðinn og slíta
þannig teppunum ótrúlega fijótt.
NILFISK slítur alls ekki teppunum,
þar sem hún hvorki bankar nié burst-
ar, en hreinsar aðeins með rétt gerðu
sogstykki og nægilegu sogafii.
■jc 106% hreinleg og auðveld tæm
ing, þar sem nota má jöfnum
höndum tvo hreinlegustu ryk-
geyma, sem þekkjast í ryksugum,
málmfötu eða pappírspoka.
Dæmalaus ending. NILFISK
ryksugur hafa verið notaðar hér-
lendis jafn lengi og rafmagnið,
og eru1’ flestar í notkun enn, þótt
ótrúlcgt sé.
berðaþjónustu önnumst við.
geraþjónustu önnumst við.
Afborgunarskilmálar.
Sendum um allt land.
Aðrir NILFISK yfirburðir m. a.:
Á Stillanlegt sogafl jc Hljóður
gangur Tvöfalt fleiri (10) og
betri sogstykki, áhaldahilla og
hjólagrind með gúmmíhjólum
fylgja, auk venjulegra fylgihluta
A Bónkústur, hárþurrka, máln-
ingarsprauta, fatabursti o. fL
fæst aukalega. . ^
Q
OINII X
Q. KORNERUP-HANSEN
Vegleg jólagfdf
nytsöm og varanleg!
Sími 12606 — Suðurgötu 10.
Gagn 6g
gaman
fer saman
þegar þið kaupið jólagjöf
handa börnunum, eins og
skólatöflu.
Verðið ótrúlega lágt.
FÁST HJÁ
Verziunin
Björn Kristjánssnn
og víðar
r\ i i i i i i i r i i i i i i r
LESIÐ ÞETTA
MYNDATÖKUR I LJÖSMYNDASTOFUNNI
MYNDATÖKUR í HEIMAHÚSUM
STUDIO GESTUR EINARSSON
^fcLAUFÁSVEGI 18 SÍMI 24-0-28
FYRIR OFAN FRÍKIRKJUNA
ii i 11 j i i L.u. um