Morgunblaðið - 17.12.1961, Síða 24
7
DACAR
TIL JÓLA
7
DACAR
TIL JÓLA
287. tbl. — Sunnudagur 17. desember 1961
Aldrei meiri békasala:
Hannes, Hundaþúfan og
Huglækníngar seljast mest
Rætt við bóksala
MORGUNBLAÐH) hringði til
nofckurra bókabúða í gær, til
þess að forvitnast um bókasöluna.
Verzlunarstjórunum bar öllum
saman um það, að meiri sala væri
nú en í fyrra. Fólk virðist hafa
meiri fjárráð og keypti mun
meira af bókum en áður. Spurt
var um pað, hverjar íslenzkra
bóka hefðu selzt bezt, og nefnðu
þeir þessar eftir söluröð:
Lárus Blönðal:
eftir Ólaf
Krist-
1. Huglækningar
Tryggvason.
2. Loginn hvíti eftir
mann Guðmundsson.
3. Hús m álarans, samtalsbók Jó
hanneser Helga og Jóns Eng-
ilberts.
4. Hannes Hafstein, ævisaga,
eftir Kristján Albertsson.
Snæbjöm Jónsson:
1. Hundaþúfan og hafið, sam-
talsbók Matthíasar Johannes-
sen og Páls ísólfssonar.
2. Hús málarans.
3. Huglækningar.
4. Sonur minn Sinfjötli, eftir
Guðmund Daníelssön.
HelgafelU:
1. Huglækningar.
2. Loginn hvíti.
3. Séra Friðrik segir frá, eftir
Valtýs Stefánsson.
4. Hundaþúfan og hafið.
Bókabúð Braga:
1. Hundaþúí'an og hafið.
2. Huglækningar.
3. Æviminningar Bernharðs
Stefánssonar.
4. Hús málarans.
t
Sigfús Eymunðsson:
1. Hannes Hafstein eftir Krist-
ján Albertsson.
2. Hundaþúfan og hafið.
3. Séra Friðri'k segir frá, eftir
Valtý Stefánsson.
4. Huglæikningar.
ísafolð:
Sigríður Sigurðardóttir verzl-
imarstjóri ísafoldar sagði, að sal-
an hefði aldrei verið meiri; fólk
hefði ekki nokkurn tíma keypt
eins mikið af bókum og á þessoi
toausti. Hann sagði, að eftirtald-
ar fimm bækur hefðu selzt bezt,
en ekki væri að marka röðunina,
nema á Hundaþúfunni. Hún hefði
bókstaflega flogið út. Orrustan
um Atlantshafið kom fyrsit í búð
ir í gær, en seldist mjög vel þá.
Huglæfcningar kom út á undan
ýmsum öðrum og hefur selzit vel
alla vikuna, en Orrustan átti met
ið í gær. Metsöl-ubækur ísafoldar
eru því þesear:
1. Hun-daþúfan og hafið.
2. Orrustan um Atlantshafið.
3. Huglækningar.
4. Sonur minn, Sinfjötli.
5. Æviminningar Bernharðs
Stefánssonar.
Bókhlaðan:
1. Huglækningar.
2. Loginn hvíti.
3. Hundaþúfan og hafið.
4. Öldin átjánda.
—★—
Verzlunarstjióri Bókihlöðunnar
tók fram, að ekki seldist minnst
af barnabókum fyrir jólin, og
bæri þar helzt á Tom Swift-
bókunum og Heiðubókunum.
Frumvarp um
Verölagsráð sjávarútvegsins
samþykkt sem lög frá Afþingi
Á FUNDI efri deildar Alþingis
í gær var frumvarp um Verðlags
ráð sjávarútvegsins samþykkt
sem lög frá Alþingi, eins og það
kom frá n.eðri deild. Nafnakall
var viðhaft um frumvarpið og
greiddu allir þingmenn deildar-
innar atkvæði með frumvarpinu
gegn þingmönnum Alþýðubanda
lagsins.
Um frumvarpið urðu nokkrar
umræður í deildinni, en þær,
ásamt breytingartillögum þeim,
sem fram komu, voru mjög á
sömu lund og í neðri deild og
rakið hefur verið hér í Morgun-
blaðinu. Þessir þingmenn tóku
til máls: Jón Árnason (S), fram-
sögumaður meirihluta sjávarút-
vegsnefndar, Sigurvin Einarsson
(F), Björn Jónsson (K) og Emil
Jónsson sjávarútvegsmálaráð-
herra.
f lok fundarins tilkynnti for-
seti deildarinnar, Sigurður Óli
Ólason, þingmönmum, að þetta
mundi að öllum líkindum síðasti
fundur deildarinnar fyrir jól.
Óskaði hann þingmönnum góðr-
ar heimkomu og gleðilegra jóla.
Karl Kristjánsson kvaddi sér
þá hljóðs og kvaðst vita, að
hann mælti það fyrir munn allra
þingmanna, er hann þakkaði for
seta þrúðmannlega försetastjórn,
árn^ði forseta heilla og tóku þing
menn undir það með því að rísa
úr sætum.
Nýlega kom Greta Garbo, sem
nú er 55 ára og býr á Miðjarðar-
hafsströndinni, til Parísar, og þa3
þótti í frásögur færandi að hún
reyndi ekki að fela sig bak við
dökk gleraugu, eins og hún er
vön. Ferðin var farin til að líta
inn til listaverkasala, þar sem
Greta keypti málverk eftip
Cezanne, en hann dó sama áriS
og hún fæddist. Hér sést hún
stíga upp í bifreið sína eftir að
hafa keypt myndina.
Óttast um fé í
Þernuvík
ÞÚFUM, N-ísf, 16. des. — Góð-
viðri er nú við djúp, snjór lítili
og greiðar samgöngur. Ekki var
vitað fyrr en fyrir stuttu, að fé
vantar í Þernuvík. Óttazt er, að
15 fjár þaðan hafi farizt í óveðr-
inu í nóvember. — P.P,
Hestur fyrir bíl
ÞAÐ sJys varð á Eyrarbakkavfegi
á móts við bæinn Stekka um kl.
hálfsjö á laugardagskvöld, að
hostur varð þar fyrir Volkswag-
en-bifreið. Hesturinn sla-saðist
svo mikið, að lóga varð honum.
Bíllinn skemmdist mikið.
Leyft verði að auka
hlutafé Iðnaðarbankans
LAGT hefur verið fram á Al-
þingi frumvarp til laga um breyt-
ingu á lögum um Iðnaðarbanka fs
lands. Segir svo í 1. grein frum-
varpsins:
„Lögmætur hluthafafundur get
ur ákveðið að'auka hlutaféð og
skulu hluthafar hafa forkaups-
rétt að aukningunni í réttu hlut-
falli við hlutafjáreign sína. Hafi
hluthafi eigi neytt forkaupsréttar
síns innan þriggja mánaða frá
auglýsingu bankaráðs um hluta-
fjárauka, skal heimilt að bjóða
út innanlands það sem á vantar
samþykktan hlutafjárauka".
í greinargerð segir m. a.:
„Á aðalfundi Iðnaðarbanka fs-
lands h.f. 3. júní s. 1. var sam-
þykkt svofelld tillaga:
„Aðalfundur Iðnaðarbanka ís-
lands h.f, haldinn í Reykjavík 3.
júní 1961, beinir þeirri áskorun
til Félags ísl. iðnrekenda og
Landssambands iðnaðarmanna að
athuga í samráði við iðnaðar-
málaráðherra og stjórn bankans
fyrir næsta aðalfund, möguleika
á því að auka hlutafé bankans
og gera þær ráðstafanir, sem nauð
synlegar teljast til þer.s að aukn-
ing hlutafjársins geti farið fram
í samræmi við álit ofnagreindra
félagssamtaka iðnaðarins“.
Voru þeir Guðmundur Hall-
dórsson, forseti Landssambands
iðnaðarmanna, Sveinn B. Valfells,
formaður Félags isl. iðnrekenda
og Guðmundur Ólafs, banka-
stjóri, kjörnir í nefnd til þess að
undirbúa máxið. Sneru þeir sér
til iðnaðarmálaráðherra með ósk
um, að hann hlutaðist til um flutn
irg framangreinds frumvarps.
í gildandi lögum um Iðnaðar-
banka íslands h.f. er ákveðið, að
hlutafé hans skuli vera allt að
6V2 millj. króna. Hér er lagt til,
að þetta hámark verði fellt niður,
þannig að hluthafafundur geti
samþykkt aukningu hlutafjár og
eflt þannig bankann, auk þess
sem trygging innistæðueigenda
vex að sama skapL
Sjopróf vegna Geirs goða
SJÓPRÓF fóru fram í Hafnar-
firði í gær vegna strands Geirs
goða, og mun málið síðan verða
sent dómsmálaráðuneytinu til
fyrirsagnar. í ljós kom við próf-
in í gær, að báturinn var stadd-
ur 30 sjómílur undan Garðskaga,
þegar skipstjóri ákvað að halda
í land. Þá var kl. 7 um kvöldið.
Skipstjóri gaf stefnuna A að N,
% N, en lagði sig síðan til
svefns. Þá var ágætt veður og
bjart. Skipstjóri gaf fyrirmæli
um að vekja sig, þegar skipið
nálgaðist land og í seinasta lagi
kl. 10. — Kl. 10 var skipstjóri
ræstur. Þá var m.b. Sæfari að
kalla á Geir goða, og fór skip-
stjóri í talstöðina. Segist hann
hafa verið að tala í hana í u.þ.b.
5 mínútur. Síðan fór hann fram
í brú og sá þá, að Sandgerðis-
vitinn sýnir grænt ljós, og að
brýtur á bakborða. Skipar hann
þá að snúa hart í stjóm, en
það var um seinan, því að á
sama andartaki strandaði bát-
urinn. Háseti hafði verið við
stýrið og áætlað stefnuna, en af
einhverjum ástæðum var komið
of sunnarlega upp í land. —
Dimmt var, en mikil ljós í
landi, og hefur það e.t.v. ruglað^
stýrismann.
Gúmmíbjörgunarbáturinn mun
hafa blásizt eðlilega út í fyrstu,
en síðan slegizt við síðuna, þar
sem naglar stóðu út úr borðun-
um. Kom þá þumlungsstórt gat
á hann, 3vo að hann varð ónot-
hæfur.
Eins og fyrr segir, mun mál-
ið verða sent til fyrirsagnar í
dómsmálaráðuneytið.
Minni vnnhöld
n fé í Kjós en
ætlnð vnr
VALDASTÖÐUM. 16. des. —
Minni vanhöld hafa orðið, en ætl
að var, eftir norðanáhlaiupið í
nóvember, en þó vantar ennþá
nokkrar kindur. upp í fimm-sex
kindur á sumum bæjum, fáum þó.
Fyrir fáum dög. fundust 3 dauð
ar kindur í Dælisá, sem hafa
sennilega farizt á álilaupaveðr-
inu, þótit þær fyndust ekki fyrr
en þetta. Þær voru frá Meðal-
feili. Nokkrar kindur hafa fund
izt lifandi frá ýmsum bæjum. —
St. G.
Lítil
síldveiði
LÍTIL síldveiði var aðfaranótt
laugardags. Til Reykjavíkur bár-
ust t. d. ekki nema um 900 tunn-
ur samtals. Aflahæstur var Pétur
Sigurðsson með 350 tn. Aðfara-
nótt sunnudags leit illa út meS
veiði. Bræia var á miðunum suð
ur undan Eldey, og létu skipitt
reka þar.
Fró Akranesi bárust þessar
fiéttir:
AkranesL 16. des. —
Sex bátar héðan voru úti í nótt,
ailir vestur undir Jökli, og fisk-
uðu samtais 400 tunnur. Sigurð-
ur AK pg Sigurður SI fengu sín-
ar 150 tunnurnar hvor. Farsæil
fékk 100 tunnur. Allir bátarnir
fóru út ‘ morgun, en þó lítur
ekki út fyrir, að veðiiveður sé.
Engir hafa snúið aftur enn. ÞaS
var gola í morgun, nú er hann á
land sunnan 4 vinstig. — Oddur,