Morgunblaðið - 19.12.1961, Síða 1

Morgunblaðið - 19.12.1961, Síða 1
24 síður 48. árgangur 288. tbL — Þriðjudagur 19. desember 1961 Prentsmiðja Morgunblaðsins Rússar nota lygairéttina r til úrúsa ú Islendinga Ótrúlegt að tilviljun ráði frétt Pravda, segir Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra MOSKVUBLAÐIÐ PRAVDA birti í gær lygafrétt kommúnista frá 24. nóvember um það að Þjóðverjar sæktust eftir herstöðvum á Islandi. Notar blaðið „fréttina“ sem átyllu til árása á íslenzku ríkisstjórnina, sem það segir vera „skammsýna" og spyr, hvað Islending- ar hugsi sér að vinna með samvinnu við Vesturveldin. Er þannig komið í ljós, að Rúss- ar hyggjast ekki einungis nota aðstoð íslenzkra kommúnista í deilum sínum við Finna, beldur líka til árása á Islendinga. VIRÐA EKKI SKÝLAIJSAK VFIRLÝSINGAR í skeyti AP-fréttastofunnar til Morgunblaðsins segir: Moskvu, 18. des. — Rúss- neska dagblaðið Pravda gaf í skyn í dag að Vestur-Þýzka- land væri að reyna að fá heimild til að koma upp her- stöðvum á íslandi. Bætir blaðið því við að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Guðmundur í. Guðmunds- son utanríkisráðherra hafi neitað að segja hvort um- sókninni yrði hafnað. Blaðið ségir að Bjarni Benediktsson hafi neitað að gefa yfirlýsingu um að Vest- ur-Þýzkaland muni ekki fá að koma upp herstöðvum á íslandi. Segir það að ástæð- an, sem ráðherrann hafi gef- ið, væri sú að þesskonar yf- irlýsing væri frávik af ís- lands hálfu frá stefnu þess um hernaðarlega samvinnu við Vesturveldin. Pravda sakar íslenzku leið- togana um skammsýni og spyr: „Hvað eiga þeir von á að vinna“ með stefnu sinni um hernaðarsámvinnu við Vesturveldin? Asaka þA, sem mót- MÆLTU „FRÉTTINNI" 1 tilefni af frétt Pravda sneri Morgunblaðið sér í gær til Bjarna Benediktssonar, forsætis- ráðherra, og spurði um álit hans á ummælum blaðsins. Fer svar hans hér á eftir: „Jafnskjótt og Þjóðviljinn birti þessa lygafrétt mót- mælti utanríkisráðherra hennl afdráttarlaust og staðfesti ég þau mótmæli. Forystumenn kommúnista á Alþingd feng- ust þá ekki til að tilgreina heimildir fyrir fréttinni, né hefur Þjóðviljinn gert það siðan. Að svo vöxnu er ekki ástæða til neinna frekari yfir lýsinga um málið af hálfu is- ienzku ríkisstjómarinnar. En óneitanlega er það ískyggl- legt, að rússneskir ráðamenn skuli nú nokkrum vikum eft- ir að lygafregninni var ein- dregið mótmælt, rifja hana upp að nýju og einmitt með ásökunum á þá, sem henni mótmæltu. Því miður er ó- liklegt að það sé tilviljun ein, sem þessu ræður. Hvert tilefnið er, skal ég ekki um segja, en sannarlega hafa fslendingar hér fengið enn eina áminningu um að fylgj- ast náið með framvindu mála á alþjóðavettvangi og varast starfsemi flugumanna hér- lendis“. Fundur Tshombe og Adoula í Kongó Kosið í DanmÖrku? KAUPMANNAHÖFN, 18. des. (NTB) —i Viggo Kampmann, forsætisráðherra Dana, ritar í dag grein í stjómarblaðið Aktu- elt. Segir ráðherrann þar að til mála geti komið að efnt verði til nýrra þingkosninga í Dan- mörku um væntanlega aðild Dana að Efnahagsbandalagi Ev- rópu. — Elisabethville, 18. des, (NTB) EDMUND Gullian, ræðis- raaður Bandaríkjanna í Leo- poldville, fór í dag flugleiðis til Katanga til að sækja Mo- ise Tshombe forseta, en for- setinn mun á morgun ræða Katangamálið við Cyrille Adoula, forsætisráðherra Kongó. Fundur þeirra verð- ur í Kitona við ósa Kongó- fljót$. Nokkuð var um óeirðir i Elisabethville í dag og réðust indverskar og sænskar flugvél- ar SÞ nokkrum sinnum á bygg- ingar námufélagsins Union Min- iere í borginni. Einnig var sprengjum varpað að pósthús- inu og Leopold II hótelinu og varð eitthvað mannfall í þess- um árásum. Skriðdrekar SÞ óku um göt- ur Elisabethville og hröktu Flaug mannlaus Red Bluff, Kaliforníu, 18. des (AP) I , í DAG ætlaði flugmaðurinn Edg- ar Remington sjálfur að ræsa Piper Tri-Pacer flugvél sína með því að snúa skrúfunni. En hreyf- illinn tók strax við sér og flug- vélin rann mannlaus af stað. — Skipti það engum togum að flug- vélin tókst á loft og hvarf út í buskann. Flugturninn í Chico flugvelli í Kalíforníu sendi út aðvörun til allra nálægra flugvéla en ekkert heyrðist af mannlausu vélinni. — Talið er að hún hafi hrapað til jarðar eftir að eldsneytið þraut. leyniskyttur Katanga úr felum, og sagði yfirmaður hersveita SÞ í Katanga, Sean McKeown hershöfðingi, að hann væri mjög ánægður með framkvæmdirnar og vonaðist til að brátt yrði unnt að binda endir á aðgerð- irnar í héraðinu. Það var mikið um að vera í pósthúsinu í gær, ungir og gamlir komu þangað með jólabréfin sín. — Hér á myndinni sést ein af eldri kynslóðinni frímerkja bréf sín. — Ljósm. Mbl. Ól. K. M. Indverjar ráðast á Goa Nýju Delhi, Lissabon, New York, 18. des. — (AP-NTB) — INDVERJAR réðust inn í portúgölsku nýlenduna Goa á miðnætti sl. og sóttu í dag fram í áttina til höfuðborg- arinnar. Eru þeir að styrkja víglínu sína í kvöld og und- irbúa nýja sókn með morgn- inum. Hafa þeir tekið all- margar borgir og þorp í Goa og eru aðeins 12 km frá höf- uðborginni. Þá hafa Indverj- ar gert loftárás á flugvelli í Goa og herskip þeirra sökkt tveim portúgölskum her- snekkjum. Innrásin hefur víðasthvar mætt harðri gagnrýni nema í Sovétríkjunum, sem hafa lýst fylgi sínu við aðgerðir Indverja. Samkvæmt ósk Portúgala kom Öryggisráð SÞ saman í kvöld til að ræða innrásina. Var málið tekið á dagskrá þrátt fyrir mótmæli Zorins, aðalfulltrúa Sovétríkjanna, sem sagði innrásina innan- ríkismál Indlands. Þegar indverska hernum var skipað að stöðva sókn sína til morguns og tryg'gja aðstöðu sína í Goa var 'hann samkvæmt ind- verskum fréttum aðeins 12 kíló- metra frá höfuðborginni Panjim. Mótstaða Portúgala mun hafa farið vaxandi eftir því sem leið á daginn og mannfall orðið nokfc urt. Innrásin hófst á miðnætti að- Framhald á bls. 2. Aöild Kína frestað S.L. FÖSTUDAG fór fram at- kvæðagreiðsla í Allsherjar- þingi SÞ um tillögu Rússa um aðild Kína að samtökunum. Tillagan var felld með 48 at- kvæðum gegn 37, en 19 ríki, þeirra á meðal ísland, sátu hjá. í tillögu Rússa var ætlazt til þess að Formósa missti sæti sitt hjá SÞ í hendur kommún- istastjórnarinnar í Kína Áður en tillaga Rússa var borin und- ir atkvæði samþykkti Alls- herjarþingið að hér væri um það mikið stórmál að ræða að % atkvæða þyrfti til sam- þykktar. Komu úrslitin nbkk- uð á óvart, því búizt hafði verið við meira fylgi við til- lögu Rússa. Með tillögu Rússa greiddu atkvæði m. a.: Bretland, Nor- egur Danmörk, Svíþjóð, komm únistaríkin öll, Indland, Indó- nesía Og Arabíska Sambands- lýðveldið. Á móti tillögu Rússa voru m. a : Bandaríkin, Suður- og Mið-Ameríkuríkin öll nema Kúba, Kanada, Frakkland, Grikkland, írland, Ítalía og mörg Afríkuríki. Við atkvæðagreiðsluna gerðu nokkur ríki þann fyrirvara að þau væru í rauninni ekki and- víg aðild Kína að SÞ. Hins- vegar gætu þau ekki fallizt á að sæti Formósustjórnar yrði af henni tekið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.