Morgunblaðið - 19.12.1961, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 19. des. 1961
MORGUNBLAÐIÐ
11
(A
5"
23
a.
3
o
<Q
3
3
Q.
C
3
1000 - þúsund - bókategundir til gjafa frá 50.00
Opnum alla lagera þessa viku fyrir viðskiptavini okkar
í Onuhúsi, Veghúsastig 7 (sími 16037)
Tómas Guðmundsson
Skáld höfuðstaðarins
Skáld þjóðarinnar
Skáld heimsins
með fcók sinni Fagra veröld gerðist T. G.
skáld höfuðstaðarins. Með nýjum
kvæðum, eignaðist hann smáim saman
hjörtu alþjóðar. Nýlega voru flutt eftir
hann nokkur kvæði í útvarpið í Dan-
mörku, er vöktu slíka athlygli að allir
keppast við að setja hann á bekk með
fáum höfuðskáldum heims. í formála að’
nýrri útg. verka Tómasar, ritar útg.
Kristjan Karlsson mjög ítarlega um
skáldið og kemst þar meðal annars svo
að orði. „Ljóðrænir töfrar kvæða hans
bjóða heim hlýjustu lofsorðum málsins".
Fegurri og klassískari gjöf en ljóðasafn
T. G. með ritgerð K. K. er ekki unnt
að finna.
Nýjustu bækurnar
Sögur að norðan
perlur í ísl. smásagnagerð eftir
Hannes Pétursson.
Sj álfsævisaga Pasternaks
Ein merkasta ævisaga aldarinnar
Grýttar götur
nýjar snilldarsögur
eftir Jakob Thorarensen.
Mín liljan fríð
Stórspennandi róman
eftir Ragnheiði Jónsdóttur.
Svipur dagsins og nótt
tímamótaverk í isl. skáldskap
eftir Thor Vilhjálmsson.
Á þingvelli 984
Leikþættir eftir Sigurð Nordal.
Á Þingvelli 984
var flutt í sumar við komu Noregs-
konungs. Þetta stórmerka verk Sigurðar
Nordals, er svo margslungið og mikil-
úðlegur skáldskapur, að nauðsynlegt er
að lesa það oft og vandlega, enda komið
fram fjölmargar áskoranir að það komi
út í bók. Falleg og verðmæt jólabók.
Nýjar Laxnessbœkur:
Sjálfstætf fólk — Atómstöðin — Stromp!<zikurinn
Allar eldri bækur skáldsins i Unuhúsi
Fögur og vinsæl gjof er,
Muggs málverkabók
Ásmundarbókin
i stórgjafir
Sunnudagskvöld til
mánudagsmorguns
eftir Ástu Sigurðardóttur.
Þetta er bók fyrir unga kvenfólkið, sem
vill vita hvernig lífið er, sjá egta, misk-
unnarlausa mynd af því.
Metsölubækumar 1960 — I dögun og Paradísarheimt