Morgunblaðið - 20.12.1961, Blaðsíða 1
24 síðair og JóSa-I«s5iók
48. árgangur
289. tbl. — Miðvikudagur 20. desember 1961
Prentsmiðja Mc ?gnnhlaðsins
Hefjumst handa
innan skamms
segir Súkarno Indonesíuforseti
Haag og Jákarta, 19. des.
— (AP) —
SÚKARNÓ, Indónesíuforseti,
sagði í ræðu, sem hann hélt
á fjölmennum útifundi í Ja-
karta í morgun, að hernum í
Indónesíu hefði verið fyrir-
skipað að vera reiðubúinn að
„frelsa hollenzku Nýju-Guin
eu úr höndum Hollendinga,
þegar er slík skipun yrði
gefin“. Ekki varð ljóst af
máli hans hvenær það yrði.
Súkamó rakti í ræðu sinni
deilur Indónesa og Hollendinga
og sakaði hina síðamefndu um
„endalausar lygar og svik við
gefin heit um að afhenda Indó-
nesuiA Nýju-Guineu“. Sagði
hann Hollendinga sýna meiri og
meiri heimsku með því að
daufheyrast sífellt við kröfum
Indónesa.
Framhald á bls. 2.
m---------------
FRÁ GÓA — Hermenn Portú-
gala undirbúa að sprengja upp
brúna yfir Talpona fljótið til
þess að seinka framgangi Ind-
verja.
Hernaðaraðgerðum í
með sigri, segja Indverjar
Portúgalar seg|a að enn sé barizt
Hans R. Hirschfeld, sendiherra ®-
Nýju Delhi, 19. desember.
(N TB-AP-Reuter)
TILKYNNT var í Indlandi í
dag, að hernaðaraðgerðum
Indverja í portúgölsku ný-
lendunum Goa, Daman og
Diu hefðu verið lokið í
morgun með algjörri upp-
gjöf Portúgala. Hefðu Ind-
verjar barið niður alla mót-
stöðu í höfuðborginni, Pan-
jim, í dögun í morgun. Hins-
vegar segir portúgalska
stjórnin í Lissabon, að portú-
galskir hermenn haldi áfram
hetjulegri andstöðu við of-
urefli liðs Indverja. Fregnir
Indverja um sigur í Goa séu
Skrif kommúnista um
Hirschfeld sendiherra
liður í áróðursherferð þeirra
Yfirlýsing frá sendiherra Þýzkalands á íslandi - og samtal
við sendiherrann
YFIRLÝSING:
„Fullyrðing Þjóðviljans um að
Hinschfeld sendiiherra h-afi verið
nazisti er auðsjánanlega liður í
áróðunsiherferð kommúnista
gegn Samibandslýðveldinu og
Atlantslhafsbandalaginu. Með
iþessu á vafalaust einnig að rýra
það góða álit, sem Hirsdhfeld
sendiherra nýtur á íslandi.
Sannleifourinn er sá að á naz-
istatímunum hafði Hinsdhfeld
sendiiherra náið samstarf í utan-
ríkisþjónustunni við þá menn,
sem voru ákærðir 20. júlí 1044
fyrir andstöðu við nazisma. Auk
'þess vann Hirsdhfeld sendiherra
sjálfur ötullega gegn áhrifum
nazista í þáverandi utanríkis-
þjónustu. En það hefði honum
verið ófoleift ef hann hefði ekki
að nafninu til verið meðlimur
í NSDAP, eins og svo mangir
aðrir virtir menn í andstöðunni
gegn Hitler.
ÞJÓÐVILJINN birti í gær
þriggja dálka „frétt“, sem
hann hefur eftir G.A.G.,
fréttaritara blaðsins í Berlín.
Segir þar að ýmsir forustu-
menn sendiráða V-Þýzka-
lands á Norðurlöndum,
þeirra á meðal Hirschfeld,
sendiherra í Reykjavík, hafi
verið nazistar á Hitlerstím-
anum. Þessar árásir Þjóð-
viljans eru ekkert nýnæmi,
því kommúnistablöð hafa
undanfarið lagt þýzka emb-
fettismenn í einelti. — Mbl.
barst í gær yfirlýsing frá
blaðafulltrúa vestur-þýzka
sendiráðsins um „frétt“ Þjóð
viljans. Fer yfirlýsingin hér
á eftir og auk þess samtal,
er fréttamaður blaðsins átti
við Hirschfeld sendiherra um
þetta máL
Sérstafolega voru færðar sönn-
ur á andstöðu hans við nazisma,
er honum var hinn 1. júní falin
jrfirumsjón þýzkra mála í sviss-
nesfou u tan rík isþ j ónustunni í
Bem.
Eftir að staðaryfirvöldin, sem
herstjórn Bandamanna skipaði,
höfðu rannsakað stjómmálaferil
herfa Hirschfelds, var hann árið
1948 kjörinn héraðsstjóri Rends-
burg/Schlesvig-Holstein.
Hernaðaryfirvöld Bandamanna,
sem rannsöfouðu ítarlega fortíð
hans. heftu aldrei frelsi hans né
fyrirskipuðu handtöku hans.
Einnig þegar hann gekk í utan-
ríkisþjónustu Sambandslýðveldis
ins 1950 lögðu yfirvöld Þjóð-
verja og Bandamanna fram sann
anir fyrir áreiðanleika hans í
stjórnmálum.
í rúmlega fimm ára þjónustu
sinni á ísliandi hefur hann æ,tíð
komið fram sem verðugur ful'l-
trúi hins nýja lýðveldis Þýzka-
lands."
(Sjá frh. á bls. 3 — Samtal við
Hirschfeld, sendiherra).
aðeins til þess gerðar að slá
rylö í augu umheimsins.
Fregnir af mannfalli eru álíka
ósamhljóða — Indverjar segja,
að aðeins hafi fallið átta her-
menn úr ldði þeirra og alit bendi
tii þess, að lítið mannfall hafi
orðið í liði Portúgla. Fréttaritari
brezka útvarpsins heldur hins
vegar, að þar sem bardagar voru
harðastir í suður-hluta landsins,
hafi mannfaH orðið mikið í liði
beggja. Portúgalska stjórnin seg-
ir mannfall mikið í liði Indverja,
en portúgalskir hermenn verjist
hetjulega. Viðbröigð Indverja
heima fyrir hafa yfirleitt ver-
ið mikil gleði og ánægja.
Segja indversk yfirvöld, að íbúar
nýlendanna hafi ekki aðeins sýnt
Indverjum velvilja, er þeir fóru
um löndin heldur beinlínis veitt
þeim margháttaða aðstoð.
Rétt mat, segir Nehru
Nehru, forsætisráðherra, átti
fund með fréttamönnum í Nýju
Delhi í dag og lýsti þar ánægju
sirrni yfir skjótum og velheppn-
uðum aðgerðum í Goa. Hann
sagði þá, sem nú dæmdu Ind-
verja harðast fyrir valdbeitingu
í Goa, augljóslega ekki vita
hvernig málum hefði verið hátt-
að í nýlendum Portúgala, skildu
ekki þá atburði, sem orðið hefðu
þar nú nýlega og einnig fyrst
Goa lokið
eftir að Indland var sjálfstætt.
Sagði hann. að hinn skjótunni
sigur sýndi, að Indverjar hefðu
metið ástandið rétt. PO.+Ú galska
stjómin hefði verið komin að falli
og hefðu Indverjar ekki látið til
skarar skríða nú hefði skapazt
gífurleg ringulreið, sem viss ötfl
í landinu hefðu ekki hikað við að
notfæra sér. Lýsti Nehru því
næst yfir, að allir borgarar í ný-
lendunum. hverrar þjóðar sem
þeir væru, skyldu njóta frelsis
og verndar Indverja.
Neitunarvald í 99. sinn
Varnarmálaráðherra Indlands,
Krishna Menon, lagði af stað tii
New York í dag, til þess að vera
þar viðstaddur ef Allsherjarþing
SÞ tæki innrásina í Goa til um-
ræðu. í gær fjallaði Öryggisráðið
um málið og urðu heitar um-
ræður. Bretar, Bandaríkjamenn,
Frakkar og Tyrkir báru fram til-
lögu um vítur á Indverja og
áskorun um að þeir drægju her-
lið sitt til baka. Sjö ríki greiddu
tillögunni atkvæði en fjögur á
Framhald á bls. 2.
Brot á hlutleysis-
stefnu
SOVETSTJ ORNIN hefur tilkynnt
stjórn Austurríkis, að hún telji
brot á hlutleysisstefnu landsins,
ef það gerist takmarkaður aðili
að Efnahagsbandalagi Evrópu. —
Hafði sovétstjórnin gert þetta álit
sitt kunnugt 11. des. sl. 11 klst
eftir að tilkynnt var um aðildar-
umsókn Austurríkismanna
Vfir 20 fórust,
þegar flugvél fréttamamis hrapaði
Sevilla, Spáni, 19. des. — (AP)
LÍTIL flugvél hrapaði í Se-
villa í dag með þeim afleið-
ingum að 21 maður beið
bana og um hundrað særð-
ust. —
Stór hópur manna hafði
safnazt saman til þess að bíða
komu bifreiðalestar, sem átti að
koma með klæðnað og mat-
væli handa því fólki er hafði
orðið harðast úti £ flóðum í Se-
villa síðasta mánuð.
Tímarit eitt í Sevilla leigði
litla flugvél fyrir fréttamann
sinn, sem átti að ljósmynda at-
burðinn og fylgjast með honum
úr lofti. Skyndilega steyptist
flugvélin til jarðar og lenti á
fólksþvögunni með fyrrgreind-
um afleiðingum. Flugmaðurinn
og fréttamaðurinn voru meðal
þeirra sem fórust.