Morgunblaðið - 22.12.1961, Síða 1

Morgunblaðið - 22.12.1961, Síða 1
24 síður 48. árgangur Tshombe samdi við Adoula Heitir að framfylcgja samþykkt SÞ Unnið að sparnaði bæjarstofnana ^ BreYtingartillÖgur minnihlutaflokkanna |við fjdrhagsáætlun Rvlkur „veigalitlar“| staðfesting Katangaþings væri með öllu ónauðsynleg. Tshombe var mjög þreytulegur, jþegar hann steig upp í banda- rísku flugvélina, sem flutti hann frá Kitona til Ndola í Rhodesíu, en þaðan fór hann svo landveginn til Elisabethville. Hvað eftir ann- að lá við að upp úr viðræðum þeirra Adoula slitnaði — og eitt sinn hótaði hann að fara heim til Leopoldville, ef Tshombe gæfi ekki meira eftir. Það mun fyrst og fremst vera fyrir milligöngu bandaríska sendiherrans Gullion að ekki slitnaði upp úr viðræð- unum strax í byrjun. Skuldbinding sú, sem Tshombe undirritaði, var í 8 meginatrið- um og voru þau helzt, að hann viðurkenndi sambandsstjórnina sem stjórn allrar Kongó, Kasav- Comet fórst í gœrkveldi Ankara. 21. des. COMET-FARÞEGAÞOTA frá brezka flugfélaginu BEA fórst rétt utan við Ankara seint í kvöld og a. m. k. 29 manns biðu bana. Slysið varð tveimur mín- útum eftir flugtak. Mikil spreng- ing varð þá í þotunni og hrapaði bún til jarðar. Farþegar og á- höfn voru samtals 34 og voru 4 fluttir í sjúkrahús með lífsmarki. Ókunnugt var um afdrif eins farþega, þegar síðast fréttist. HAMILTON, Bermunda, 21. des. Kennedy, Bandaríkjaforseti ©g Macmillan, forsætisráðherra Bretlands, hófu viðræður hér síðdegis í dag og var Berlínar- málið efst á dagskrá. Þeir Dean Rusk og Home lávarður taka einnig þátt í viðræðunum ásamt fjölda ráðgjafa, en áætlað var upphaflega, að þær stæðu tvo daga. i Verið gctur, að skjótur endi F J ÁRH AGSÁÆTLUN Reykjavíkurborgar var til 2. umræðu í bæjarstjórn í gær. Hófst fundur kl. 2 e. h. og stóð enn, þegar blaðið fór í prentvm. Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, ræddi fyrst og fremst um starfsemi hinna ýmsu bæjarstofnana. Upp- lýsti hann, að ætlunin væri að sameina rekstur grjótnáms bæjarins og pípu- gerðar í sparnaðarskyni. Þá gat hann um rekstur Raf- magnsveitu Reykjavíkur. — Þar væri unnið að fækkun starfsmanna og hugmyndin að sameina allar skrifstofur undir einu þaki, en þær hafa verið á 4 til 5 stöðum. Fleiri sparnaðartillögur v æ r i nú verið að framkvæma. Borg- arstjóri gat þess einnig, að umræður færu nú fram um áframhaldandi sam veriði bundinn á viðræðumar, ef heilsu föður Bandaríkjafor- seta hrakar, því forsetinn mun þá fara þegar í stað flugleiðis til Palm Beach á Florida til þess að vera við sjúkrabeð föður síns, sem fékk siag í gær. Er líðan hans sæmileg, en læknar segja, að brugðið geti til beggja vona. Frondizi, Argentíunforseti, sem nú er á heimleið frá Asiu, gerir ráð fyrir að hitta Kennedy að aðfangadag jóla á Florida. vinnu Reykjavíkurborgar og ríkisins um þær stórvirkjan- ir, sem fyrirhugaðar væru. Minnihlutaflokkarnir fluttu ræð ur klukkutímunum saman og fluttu fjöldan allan af tillögum. Lítið kom þó nýtt fram í tillög- um þeirra, enda röggsamlega unn ið að flestu því, sem þeir gátu um. Geir Haligrímsson, borgarstjóri f UPPHAFI ræðu sinnar gerði Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, grein fyrir nokkrum tillögum til breytinga á írumvarpi að fjár- hagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 1962, sem bæjarráð hef. ur samþykkt síðan frumvarpið var til 1. umr. í bæjarstjórn fyr- ir hálfum mánuði. Má þar m. a. nefna hækkun á framlagi til Myndlistarskólans í Reykjavík í kr. 50.000,00 í stað kr. 40.000,00, sem áætlunin upphaflega gerði ráð fyrir. Ennfremur, að varið verði kr. 300.000,00 til sumardval- ar fyrir mæður og börn í stað kr. 250.000,00 og að framlag til nýrra leikvalla og útivistasvæða verði kr. 1.200,000,00 í stað kr. 900.000,00. Þá leggur bæjarráð til að teknir verði upp tveir nýir liðir, kr. 15,000,00 til bókasafns Dagsbrúnar, og kr. 100.000,00 til byggingar íþróttamiðstöðvar, er hugsað er sem fyrsta greiðsla af þrem. Breytingartillögur Sjálfstæðismanna Þá gerði borgarstjóri einnig grein fyrir tveim breytingartil- lögum, sem bæjarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins flytja, 1 fyrsta lagi að framlag til Verzlunarskóla íslands verði kr. 90'5.0CW,00 í stað kr. 800,000,00, eins og fjár- hagsáætlunin upphaflega gerði ráð fyrir. Þess má geta, að bæjar fulltr. Aliþýðubandalagsins leggja hinsvegar til, að framlag til Verzlunarskólans verði lækkað í kr. 550,000,00. í öðru lagi leggja bæj arfulltrúar Sj álfstæðisflokks- ins svo til, að framlag til kirkju- byggingarsjóðs verði kr. 1.200,000,00 í stað kr. 1.000,000,00, New York, Nýju Delhi og Lissabon, 21. des. TALSMAÐUR indverska hers- ins áætlar, að 20—25 manns hafi fallið í liði beggja, er Ind- verjar brntu portúgöisku ný- lendustjórnina í nýlendunum þremur á bak aftur. Lífið í Goa og hinum nýlendunum er nú að komast í eðlilegt horf að nýju, en portúgalskir hermenn eru fangar í herbúðum sínum og portúgalskir borgarar eru í stofufangelsi. Umferð um hafnarborgir í ný- lendunum var eðlileg í dag og öll almenn þjónusta í borgum þessara fyrrverandi nýlendna komst í eðlilegt horf í morgun — að undantekinni síma- og símskeytaþjónustu. Landamærin við Indland eru enn lokuð, en Indverjar senda tæknifræðinga til þess að lagfæra mannvirki, sem spilltust í bardögunum. en bæjarfulltrúar Alþýðubanda- lagsins leggja hinsvegar til aS þessi liður falli algjörlega niður. ic Rekstur grjótnáms, malbiks- stöðvar og pípugerðar sameinaður Að öðru leyti fjallaði ræða borg arstjóra í gær aðallega um hinar Framhald á bls. 2. y Kúba á línunni New York, 21 desember. —. ALLSHERJARÞINGIÐ lét f dag í ljós áhyggjur vegna þess, að grundvallarmannréttindi þjóð- arinnar í Tíbet væru enn fótum troðin. Ályktunartillaga þar að lútandi var samþykkt með 55 at- kvæðum gegn 11, en 20 sátu hjá. Einungis kommúnistaríkin og Kúba greiddu atkvæði gegn til- lögunni. Indverski varnarmálaráðherr- ann, Krishna Menon, kom í dag flugleiðis til New York til þess að skýra málstað Indverja Framhald á bls. 2. Brennuvorgnr- inn fundinn Niteroi, Rrazilíu 21. des. SVERTINGI nokkur hefur nú meðgengið að hafa valdið brun- anum mikla, sem banaði um 300 manns um helgina. Hann kveðst hafa kveikt í sirkus-tjaldinu stóra á meðan á sýningu stóð og ollí þetta einu mcsía manntjóni, sem orðið hefur í bruna. Enn eru ekki öll kurl komin til grafar, því gizkað er á að 219—313 manns hafi farizt, mikill hluti þcss konur og börn. Kennedy og Mac millan á Bermuda Kyrrð komin á í Goa Menon varð of seinn til New York Leopoldville, 21. des. EFTIR 2 stunda viðræður náðist loks samkomulag með Tshombe ©g Adoula. Forseti Katanga und- irritaði skuldbindingu um að við- urkenna sambandsstjórnina í Leopoldville og hvarf aið svo húnu til Eiisabethville. Við brott fórina frá Kitona herstöðinni þar sem viðræðurnar fóru fram, sagðt Tshombe, að samningurinn, sem hann hefði' gert við Adoula, forsætisráðherra sambandsstjórn- ariiunar, yrði að hljóta samþykki þingsins í Katanga. Talsmaður SÞ lýsti þvi hins vegar yfir, að skuldbindingin væri undirrituð cg fullgild. Það væri álit SÞ, að ubu forseta alls Kongóríkis og Katangaher lyti honura svo sem annar her Kongóríkis. Þá viður- kenndi hann samþykkt öryggis- ráðsins um að hvítir menn skyldu ekki vera í Kongóher — og lofaði hann að þeirri samþykkt yrði framfylgt í Katanga. Loks féllst hann á að senda fulltrúa sína til Leopoldville þann 3. janúar n.k. til þess að hefja viðgæður við stjórnarvöld þar um drög að nýrri stjórnar- skrá. Er þessi síðasti liður almennt túlkaður á þann veg, að Adoula vilji fyllilega taka tillit til hinn- ar erfiðu aðstöðu Tshombe. Hef- ur það verið gefið til kynna í Framh. á bls. 3. Þegar ljósmyndari blaðsins, Ól. K. Mag. kom niður á Faxagarð um 3 Ieytið í gær, lágu þar um 15 bátar, sem voru annað hvort að landa síld eða biðu löndunar. '

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.