Morgunblaðið - 22.12.1961, Blaðsíða 2
2
MORCZJNBLAÐIÐ
Fostudagur 22. des. 1961
— Bæjarsfjórn
Framhald af bls. 1.
einstöku stofnanir Reykjavíkur-
borgar og framkvæmdir á þeirra
ivegum, svo sem Áhaldahúsið,
grjótnám, malbiksstöð, og pípu-
gerð, vatnsveituna, bæjarþvotta-
húsið, hitaveituna, rafmagnsveit-
una, strætisvagnana og hafnar-
mál.
Upplýsti borgarstjóri m. a., að
ætlunin væri að sameina rekstur
grjótnámsins, malbiksstöðvar og
pípugerðar meir og betur en ver-
ið hefur á undanförnum árum.
Sagði hann nauðsynlegt að flytja
pípugerðina úr íbúðarhverfinu
við Langholtsveg þangað sem
grjótnámið er staðsett, og sömu-
leiðis að byggja nýja malbikun-
arstöð 1 nágrenni grjótnámsins.
if Sparnaður í rekstri
rafmagnsveitunmar
í yfirliti sínu um rekstur Raf-
magnsveitu Reykjavíkur gat borg
arstjóri þess, að á árinu hefði ver
ið unnið að því að koma fyrir
sparnaði í rekstri Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og nefndi hann sér-
staklega í því sambandi m. a. eft-
irfarandi atriði:
~gr
Á- Starfsmonnum fækkað
1) Markvisst hefur verið unnið
að því að fækka starfsmönnum.
2) Til þess að það væri mögu-
legt hefur verið lögð áherzla á að
sameina allar skrifstofurnar und-
ir einu þaki og verða nú skrif-
stofurnar sameinaðar í byrjun
næsta árs aiiar í Hafnarhúsinu, i
stað þess að vera á 4 eða 5 stöð-
um í bænum áður.
3) Unnið er að því að sam-
eina aðrar bækistöðvar Raf-
magnsveitunnar til þess að
koma á samsvarandi sparnaði á
því sviði.
hj Tækjum fækkað
4) Rafmagnsveita Reykjavíkur
tekur þátt í samvinnu um sam-
eiginlegt áhaldahús bæjarstofn-
ana. Ætti þetta áhaldahús að
geta sparað Rafmagnsveitunni
töluverðar upphæðir.
5) Bifreiðum og tækjum hef-
ur verið fækkað, þannig að eldri
tæki og tæki, sem dýrari eru í
rekstri, hafi verið tekin úr
notkun og seld, en ný tæki
fengin.
Á’ Rétt tekjuáætlun
Að lokinni ræðu borgarstjóra
kvaddi sér hljóðs Guðmundur
Vigfússon (K). — Gerði hann
grein fyrir allmörgum breyt-
ingartillögum við frumvarp
borgarstjóra að fjárhagsáætlun-
inni og jafnframt nokkrum á-
lyktunartillögum, sem hann
sjálfur flytur. Tók hann fram,
að þessar breytingartillögur
væru veigalitlar, þar sem hann
teldi tekjuáætlunina nú rétíari
en verið hefur á undanfömum
árum. Má segja, að breytingar-
tillögur bæjarfulltrúa Alþýðu-
bandalagsins gefi nokkra hug-
mynd um hina góðu fjármála-
stjórn, sem nú ríkir hjá
Reykjavíkurborg, því að þar
ber einna hæst tillögur um
lækkun pappírskostnaðar og
burðargjalda á skrifstofu borg-
arstjóra." Má til gamans geta
þess, að þrátt fyrir yfirlýsta
sparnaðarviðleitni sína leggja
bæjarfulltrúar Alþýðubandalags
ins þó til, að framlag til Skák-
sambands Islands vegna þátt-
töku í skákmótum erlendis
hækki um 30 þúsund krónur,
og eru ástæðumar fyrir þessari
hækkunartillögu að leita í því,
að fyrir dyrum stendur skák-
mót í Búlgaríu.
* Viðurkenndi haldleysi
verkfallastefnunnar
Að öðru leyti var ræða Guð-
mundar mikið til árásir á nú-
verandi ríkisstjóm. Vakti þar
mesta athygli sú yfirlýsing hans
— sem stefnt var gegn ríkis-
stjóminni, en hitti þó auðvitað
verkfallspostula komanúnista
fyrst og fremst — að launþegar
stæðu nú í sömu spomm, ef
ekki verr, heldur en fyrir kaup-
hækkanirnar á sl. sumrk
Koma Ingrid Bergman
og Lars Schmidt ?
EFTIR áramótin kemur leik- í tal, er hann ræddi við þau
stjórinn Svend Aage Larsen og samdi endanlega við Lars
til landsins og verður þá haf Sehmidt í Stokkhólmi í sum
ist hanida um að velja í hlut- ar um 20% lækkun á greiðslu
verk og æfa söngleikinn My fyrir sýningarrétt hér á landi.
Fair Lady. Svíinn Lars Sögðu hjónin þá að þau lang
aði til að koma til íslands, en
hvað úr því yrði kvað þjóð-
leikihússtjóri alveg óráðið.
Sohmidt, sem kvæntur er leik
konunni Ingrid Bergman,
hefur leikstjórnarrétt fyrir
verkið í allri Evrópu og
samdi þjóðleitohússtjóri við
hann um sýningarréttinn á
fslandi.
Blaðið spurði Guðlaug
Rósinkranz að því í gær,
hvort þessi frægu hjón mundu
koma til íslands vegna sýn-
ingarinnar. Hann kvað þau sýningin þar
vera vön að koma á frumsýn- dóma. Þaðan
Leikstjórinn, sem hingað
kemur, Svend Aage Larsen,
hefur í umlboði Lars Schmidts
sett leikinn víðast hvar á
svið, t. d. I Svíþjóð, Dan-
mlörku og Hollandi og nú ný-
lega í Berlín. Hefur frum-
fengið góða
fer hann til
ingu eða einhverja aðra sýn- Hollands, til að færa hann
ingu á leiknum þar sem hann upp aftur og kemur svo hing-
er sýndur. Hefði það borizt að eftir áramót.
Þórður Björnsson (F) fyldi mætti gera til sparnaðar, þó að
hlaði nokkrum breytingar-
tillögum, sem hann gerir við
frumvarpið að fjárhagsáætlun
og ályktunartillögum, sem hann
flytur einnig. Varði hánn veru-
legum hluta tíma síns til gagn-
rýni á rekstri einstakra bæjar-
stofnana, sem hann kvað í
mörgu ábótavant.
Ræðumaður vék.að upplýsing-
um þeim sem borgarstjóri gaf við
1. umræðu fjárhagsáætlunar um
starfsmannatoald bæjarins. Sagði
hann það ekki vera fullgilda
sönnun fyrir því að „skrifstofu-
báknið“ hefði ekki þanizt út, þótt
starfsmönnum hefði ekkj fjölgað.
Hann gagnrýndi ræstingarkostn-
að í skólum, en kvaðst fagna
yfirlýsingu borgarstjóra um að
unnið væri að læbkun þess kostn-
aðar.
Vildi Iækka styrk til
Simfoniuhljómsveitar.
Þórður Björnsson rædidi sér-
staklega um styrkinn til Sinfóníu
hljómsveitarinnar.' Sagðist hann
verða að hætta á þetta, þótt hann
kynni að verða nefndur „menn-
irtgaróvinur." Kvaðst hann vilja
lækka þennan styrk úr 880 þús-
undum í 700 þús. en tók sérstak-
lega frarn að þetta vœri algjör-
lega persónuleg tillaga, „sem ég
vil ekki láta kenna minn flokk
við að neinu leyti.“ Síðan vék
hann að framfærslumálum og
kvað eðlilegt að nefna þau í beinu
framhaldi af umræðunum um
Sinf óníuhl j ómsveitina.
Bæjarfulltúinn kvaðst lengi
hafa barizt fyrir þeim megin-
málum, sem borgarstjóri legði nú
átoerzlu á, þ.e.a.s faitaveitu í allan
bæinn, áætlun um að fullgera
götur og heildarskipulagi bæjar-
ins. Fagnaði hann því, að þetta
skyldu vera þau mál, sem nú
væru mest áherzla lögð á-
Magnús Ástmarsson flutti
nokkrar breytingartillögur við
fjárhagsáætluna. Var helzta
hækkunartillaga hans sú, að' fram
lag til byggingarsjóðs verka-
manna yrði 3.5 millj. í stað 1,3
millj. Hann lagði til að manntals-
skrifstofan og hagfræðideild bæj
arins yrðu sameinaðar Og ýmsir
bifreiðastyrkir lækkaðir.
Ræðumaður sagði, að ýmislegt
Siskó á f lækingi
ÚT ER komin hjá forlagi Jóns
Helgasonar barnabókin „Siskó á
flækingi“ eftir dönsku skáldkon-
una Estrid Ott.
Eins og menn minnast, var
þessi saga framhaldssaga í út-
varpinu fyrir nókkru, og náði
miklum vinsældum meðal barna
Og unglinga. Sagan fjallar um
7 ára gamlan i>ortúgalskan dreng,
sem verður heimilislaus o,g legg-
ur af stað út í heiminn. Sagan er
fallega sögð og fræðir lesandann
jafnframt um umfaverfi Siskós.
— Pétur Sumarliðason, kennari,
hefur þýtt söguna af Siskó-
hann teldi sig ekki hafa verulega
trú á að hægt væri að draga úr
launagreiðslum, og ekki væri
heldur heppilegt að hafa svo
mikið starfslið að aldrei þyrfti
að vinna aukavinnu.
Þeir Alfreð Gíslason og Guð-
mundur J. Guðmundsson, bæjar-
fulltrúar kommúnista, fluttu f jöld
an allan af tillögum og fylgdu
þeim úr hlaði með ræðum. Yfir-
leitt er nú unnið ötullega að flest-
um þeim málum, sem þeir viku
að, svo að tillögur þeirra miða
naumast að því að breyta þar
nokkru um.
Þeir ræddu um gatnagerðar-
mál, vistheimili, leikskóla, al-
menningsnáðhús, aukna heilsu-
vernd, gatna- og sorphreinsun,
aukningu fiskiskipaflotans, hafn-
armál, félags- og tómstundar-
heimili o. fl.
Þegar blaðið fór í prentun stóðu
umræðurnar í bæjarstjórn enn.
Togarasölur
TIL viðbótar fréttinni, sem
birtist í Mibl. 1 gær um síðustu
togarasölur fyrir jól, má geta
þess, að Ágúst seldi (á miðviku-
dag) í Grimsby 171 lest fyrir
12-344 sterlingspund. Búizt er við
að tveir togarar selji í Bretlandi
milli jóla og nýjárs.
Þá hafa alls selt í Bretlandi,
það sem af er desembermánuði,
13 togarar fyrir 122.200 sterlings-
pund. Á sama ’tíma hafa 18 tag-
arair selt í Þýzkalandi fyrir
1.626.300 mörk. Þar af hefur síld
verið seld fyrir 613.800 mörk.
Ferðir á landi og
í lofti um jólin
BLAÐIÐ spurðist fýrir um það
í ,gær hjá Bifreiðastöð Islands dg
Flugfélagi íslands hvemig ferð-
um frá þessum stöðvum yrði
háttað um jólin og fara þær
upplýsingar hér á eftir.
Þorláksdagur
Bifreiðar Norðurleiðar fara
héðan kl. 8 að morgni og síðari
hluta dagsins er ætlunin að taka
upp þá nýbreytni að fara aðra
ferð kl. 17. Er þetta gert vegna
fclks, sem vinna þarf til hádegis
eða lengur og á því elcki heiman-
gengt um morguninn.
Þá fer bifreið að Laugarvatni
og í Biskupstungur kl. 13. Ferðir
til Keflavíkur og í Mosfellssveit
verða eins og venjulega þann
dag. Ferð verður í Hveragerði og
til Þorlákshafnar kl. 24 á mið-
nætti. Bílamir á Snæfellsnes fara
síðustu ferð sína fyrir jól kl. 10
fyrir hádegi. Þá verður einnig
farið í Dali kl. 8 um morguninn
Og að Kirkiubæjarklauistri kl. 10
f. h.
Flugferðir á Þorláksdag
Flogið verður, ef veður leyfir,
til Akureyrar. Húsavíkur, Vest-
mannaeyja, ísafjarðar. Egils-
staða, Sauðárkróks og Ákureyrar
aftur um kvöldið.
Aðfangadagur
Til Borgarness fara bifreiðar
kl. 10 f. h. og að Reykholti kl. 13.
Síðasta ferð til Hveragerðis og
Þorlákshafnar verður kl. 14. Síð-
ustu ferðir í Mosfellssveit og
Hveragerði verða kl. 16. Til Vík-
ur í Mýrdal verður farið kl. 10
Rússar saka um
hlutleysisbrot
VlNARBORG, 21. des. — Ráð-
stjórnin hefur í orðsendingu til
austurrísku stjórnarinnar sagt,
að inntökubeiðni Austurríkis í
Efnahagsbandalag Evrópu sé
brot á hlutleysi landsins, þar eð
landið taki upp nána samvinnu
við V-Þýzkaland með inngöngu
í bandalagið. Ráðstjórnin segist
toyggja afstöðu sína á stórvelda-
samkomulaginu um hlutleysi
Austurríkis. Utanríkisráðherra
landsins, Kreisky, vísaði ásök-
unum Rússa á bug í dag og að-
ild að Efnahagsbandalaginu mið
aði einungis að efnahagssam-
vinnu við V-Þýzkaland.
's HA /5 hnúiar SV 50 hnutar X SnjUoma * osí*m V Skvrir K Þrumur Wiz, Js. KuUoM HHtskii
HHmt
Hæðin mikla, sem hefur ver
ið á svæðinu frá Bretlands-
eyjum til Grænlands, var
heldur að eyðast í gær, m
smáiægð hafði myndast við
NA-Græ:.land ofa þokaðist
toún suðaustur. Enn var þó
milt loft við landið. Yfir land-
inu var dálítil kuldahæ‘!'', þar
sem loftið jeig til allra hliða
og þomaði, svo víða var heif^
ríkt ,einkum austan lands.
Varð af þessu allmikil kæl-,
ing við jörð vegna útgeislun.
ar og var m. a. 13 stiga fro:t
í Möðrudal kl. 14, logn og
heiðskírt.
Veðurhorfur kl. 22 í gær-
kvöldi: Suðvesturland til
Breiðafjarðar og miðin: hæg-
viðri og skýjað fram eftir degi
á morgun, gengur sennilega í
norðan kalda með vægu frosti
annað krvöld. Vestfirðir til
Norðausturlands og miðin:
fyrst, norðan kaldi Og lítils
háttar él þegar líður á daginn.
Áustfirðir, Suðausturland og
miðin: hægviðri, víða léttskýj-
að.
f. h. og í Fljótshlíð á sama tíma.
Allar bílferðir falla niður á jóla-
dag, en á 2. dag jóla verða ferðir
í Mosfellssveit, til Keflavíkur,
Ilveragerðis, Selfoss og austur i
Fljótshlíð.
Eftir jól fara svo Norðurleiðar-
bílar fyrstu ferð sína á miðviku-
dag. bæði norður og suður.
Flugferðir á afffangadag
Fiogið verður til Akureyrar og
Vestmannaeyja, ein ferð á tovorn
stað. Sama verður á 2. dag jóla.
Þá verður einnig flogið til Akur-
eyrar og Vestmannaeyja.
Hannesi lóðs
forðað frá strandi
í FYRRAKVÖLD, er Vestmanna-
eyjabáturinn Hannes lóðs var á
leið inn til Grindavíkur, fór hann
vestur af leiðinni inn, yfir Sund-
boðssker Og tók niðri. Braut hann
hælinn og stýrið varð óvirkt.
Þarna var hörkuútfall og var
báturinn rétt rekinn upp í grýtta
fjöruna, þegar Hafrenningur GK
kom á vettvang, en hann hafði
verið með vélina í gangi í Grinda
víkurhöfn. Gekk greiðlega að
koma kaðli yfir í Hannes og dró
Hafrenningur hann úr hættunni.
Mátti engu muxa að þar færi
illa. ■
Um borð voru 8 menn. Hannes
lóðs var dreginn á þurrt, til að
hægt væri að athuga skemmdir,
en síðan var ætlunin að draga
hann til Eyja.
— Indland
Frh. af bls. 1
fyrir AHsherjarþinginu. En hann
varð of' seinn, því þinginu var
slitið í þann /rnund er ráðherr-
ann kom til borgarinnar — og
kemur það ekki aftur saman
fyrr en í janúar.
Menon sagði við fréttamenn,
að það væri alrangt, að frelsun
portúgölsku nýlendnanna hefði
veikt SÞ. Þvert á móti styrkt-
ust samtök SÞ í hvert sinn, sem
nýlenda hlyti frelsi.
Menon hefur óskað þess að fá
að ræða við U Thant og einnig
hyggst hann ná fundi Adlai
Stevensons.
Indversk blöð og almenning-
ur þar í landi gagnrýna mjög
afstöðu Bandaríkjanna í mál-
inu, sérstaklega ræðu Steven-
sons, sem var mjög harðorð í
garð Indverja.
Sama er að segja um Portú-
gala. í Lissaibon voru haldnir
fjöldafundir í dag til þess að
víta Breta og Bandaríkjamenn
fyrir að hafa ekki veitt Portú-
gölum aðstoð gegn Indverjum,
en fjöldagöngur á leið til sendi-
ráða Breta og Bandaríkjamanna
voru stöðvaðar af lögreglunni I
tæka tíð.
Utanríkisráðherra Portúgals,
Franco Nogueria kom heim 1
dag frá New York þar sem hann
sat fundi Öryggisráðsins um inn-
rás Indverja í portúgölsku ný-
lendurnar. Sagði hann við heim-
komuna. að nú væri hægt að
skipa Indverjum og Rússum á
bekk saman. Sjálfstæði og frelsi
þjóða byggðist nú einungis á þvi
hver sterkastur væri. Árás Ind-
verja er aðvörun til allra þjóða.
Það er nú ljóst, að Sameinuðu
þjóðirnar verja ekki frelsi eins
né neins. Þjóðirnar verða að
treysta á elvm styrk sér til varn-
ar.
Athugasemd
AÐ GEFNU tilefni skal það tek-
ið fram, að fréttin af slysinu i
Aðaldal, sem sagt var frá í blað-
inu í gær, er ekiki frá fréttaritara
blaðsins á Húsavík.