Morgunblaðið - 23.12.1961, Blaðsíða 6
6
MORGVTSBLAÐlb
Laugardagur 23. des. 1961
A-
Góðar
Skömmu fyrir jól kom til mín
frú Svava Þórhallsdóttir og átti
við mig erindi, sem márga Keyk-
víkinga mun gleðja.
Hún kvað ,þess þörf, að með
aukinni umferð og hávaða í mið-
bænum væri um það hafizt
handa, að friða Dómkirkjuna svo
sem föng væru á, svo að sem fæst
yrði til þess að trufla helgiihaldið
en hugir þeirra, sem I kirkjuna
koma til guðsdýrkunar, fyndu
frið og næði til helgihalds.
Frú Svava kvaðst oft hafa hugs
að um það, er hún sæti { kirkj-
unni, að mikil bót yrði að því, að
kirkjan fengi steinda—málaða—
glugga. Þeir myndu auka á helgi
blæ guðshússins, hamla trufl-
andi áhrifum að utan og gera
BÖÐULL
/0»
Aramótafagnaður
á Gamlárskvöld
Húsið opnað kl. 7.
Ókeypis aðgangur
KALT BORÐ
með léttum réttum
frá kl. 7—9.
Á Viðskiptavinir eru vin-
samlegast beðnir að panta
borð tímanlega. Borða-
pantanir í síma 15327 frá
kll. 5—7" daglega.
Hljómsveit
Abna elfar
ásamt
HAUKI MORTHENS
HAUKUR MORTHEIUS
syngur og skemmtir
Hljómsvett
*
Arna Elfar
Dansað til kl. 1.
Matur fra nreidclur frá kl. 7.
Borðpantanir í síma 15327.
gjafir
kirkjugestum við hverskonar
helgiabhafnir auðveldara að festa
hug við helgihaldið.
Og frúin minntist einnig á ann-
að: Þegar fagrar myndir væru
komnar í gluggana, yrðu þær að
sjálfsögðu lýstar innanfrá þegar
dimma tæki, og þá myndu lista-
verkin blasa við sjónum þess
mannfjölda, sem leggur leið sína
um þessar slóðir síðdegis og á
kvöldum. Frú Svava kvaðst trúa
því, að fögur listaverk í glugg-
um Dómkirkjunnar myndu hafa
uppeldisáhrif, sem_erfitt væri að
meta til fulis, einkum þar sem
Dómkirkjan sbendur á einu allra
fjölfarnasta svæði Reykjavíkur.
Með þessum ummælum afhenti
frú Svava mér 5 þús. kr. gjöf til
kirkjunnar í þessu markmiði,
sem minningargjöf um foreldra
sína, Þórhall Bjarnarson biskup
og Valgerði Jónsdóttur biskups-
frú. Með þessari minningargjöf
vildi hún stofna sjóð, sem hún
kvaðst vænta, að margir Reyk-
víkingar vildu efla með minning-
argjöfum um látna vini, eða í
minningu þess, sem þeir teldu
áig skulda hinni gömlu kirkju.
Mér var mikil gleði, að veita
viðtöku þessari gjöcf, og mér er
mikil gleði, að koma hinni fögru
hugmynd á framfæri.
Þegar ég tilkynnti frú Ólafíu
Einarsdóttur, formanni sóknar-
nefndar þetta, lét hún uppi mikla
gleði og bætti annarri gleðifregn
við.
Gísli Sigurbjörnsson fórstj.
hafði fyrir nokkuru tjáð henni,
að stjórn Elli'heimilisins hefði
samiþykkt að Dómkirkjunni væru
gefnar 30 þús. krónur í sama til-
gangi. Sú gjötf væri gefin í minn-
ingu um brautryðjendastarf sra
Sigunbjarnar Á. Gíslasonar að
stofnun og starfrækslu Elliheim-
ilisins. En hann er nú einn stofn-
endanna í stjóm heimilisins.
Hefði stjórninni þótt eðlilegt, að
með slíikri minningargjöf væri
Dómkirkjunnar minnzt, en for-
rnaður sóknarnefndar hennar
mun séra Sigurbjörn hafa verið
lengur en nokkur annar.
Þessa gjöf er Dómkirkjusöfnuð
inum einnig Ijúft að þakka. Senni
lega á sra Sigurbjörn Á. Gísla-
son allra núlifandi íslendinga
lengstan starfsaldur að kristin-
dóms- og líknarmálum, og auk
þess er hér gjöf, sem höfðings-
lund og hlýhugur í garð Dóm-
kirkjunnar gefur. •
Hér er svo stórmannlega af
stað farið, að væntanlega þarf
ekki að líða langur tími, unz
fyrsti steindi glugginn kemur í.
Dómkirkjuna, og síðan hver af
öðrum unz hin gamla, fagra
kirkja, sem sakir stíls í bygg-
ingu þolir ekki mikið veggja-
skraut, fær glugga sína prýdda
fögrum listaverkuim. Og þau
munu gjöra tvennt: auka á helgi-
blæ innan veggja, og gjöra kirkj
una að prýði Reykjavíkur í enn
ríkara mæli en fyrr, — með lýst-
Um listaverkum í öllum glugg-
um.
Sjóðurinn til að hrinda þessu
máli í framkvæmd er stofnaður
af minningargjöf um hin látnu
biskupshjón, herra Þórhall og frú
Valgerði, og nú bætist við kær-
komin kærkomin gjöf í minningu
manns, sem mjög hefir að mál-
um Dómkirkjunnar komið.
Hér er tækifæri, sem mörgum
Reykvíkingum verður kærkomið,
til að minnast lifandi eða iátinna
vina, og til að taka um leið hönd-
um saman um höfuðprýði fyrir
Dómkirkjuna og miðsvæði
Reykjavíkur, — hina gömlu
Ingólfsbyggð.
Jón Auðuns.
SVEINBJÖRN DAGFINNSSON
hæstaréttarlögmaður
EINAR VIÐAR
héraðsdómslögmaður
Málflutningsskrífstofa
Hafnarstræti 11. — Sími 19406.
Leigja teihni og
FYRIR nokkru tók til starfa hér
í bænum nýtt fyrirtæki, „Filmur
og Vélar“ og hefur það aðsetur
að Freyjugötu 15. Er þar gert við
kvikmyndasýningarvélar, og enn
fremur verzlar fyrirtækið með
ýmsa hluti þar að lútandi og leig-
ir út filmur.
Það eru tveir ungir menn sem
að þessu fyrirtæki standa, þeir
Gunnar J. Eyland og Jóhann V.
Sigurjónsson. en þeir hafa báðir
starfað lengi að viðgerðum á
sýningarvélum og eru slikum
störfum þaulkunnugir.
Fyrirtækið verzlar með ýmsa
varahluti í kvikmyndasýningar-
vélar, og hefur auk þess umboð
fyrir hinar þekktu Victor sýning-
arvélar hér á landi. Þá verzlar
fyrirtækið og með Ijósmyndavél-
ar frá Gevaert.
Síðast en ekki sízt leigir fyrir-
tækið út filmur, teikni- og gam-
anmyndir, og hefur sú leiga ver-
ið mjög vinsæl meðal almenn-
ings.
gomaiunyndir
Tvö skákmót
JÓLAHRAÐSKÁKMÖT verður
haldið í gagnfræðaskóla Austur-
bæjar. Mótið hefst miðvikudag-
inn 27. desember, og fer það eftir
keppendafjölda hve mörg kvöld
verður teflt. Því ráðgert er að
allir tefli við alla. Hver keppandi
fær fimm mínútur fyrir hverja
skák. Að gefnu tilefni eru vænt-
anlegir þátttakendur beðnir urn
að hafa með sér skákklukku, ef
til er. Einnig eru þeir beðnir um
að vera mættir stundvíslega til
skráningar, svo ekki dragist um
of á langin að mótið hefjist.
SKÁKÞING Reykjavíkur hefst
í Breiðfirðingabúð mánudaginn
8. jan. og stendur yfir til fyrsta
febrúar. Tefldar verða níu um-
ferðir eftir Monrad-kerfi. Nánari
fregnir um tilhögun mótsins
verða birtar síðar. En þess skal
getið hér að frestur til að skrá
sig í mótið rennur út 5. janúar.
Rauða Moskva
Ilmvötn — Spaðadrottningin — Demantinn — Sput-
nik o fl. Odýrar sápur —
Tollalækkunin er á myndavélum
Slæður í öllum litum.
Postulín — Skákklukkur.
F R Ö N S K U
ilmvöfnin
n ý k o m i n .
Helena Rubinstein
CJAFAKASSAR
USUZst tf J/,f/ ^
Reykjavíkur Apóteki — Sími 19866.
• Jólahátíð
og kauptíð
Þorláksmessa á rík ítök í
hugum okkar. Þá er allt á
ferð og flugi, húsmæðurnar
hamast við að ljúka jólaundir
búningnum, og í kaupstöðum
eru allar verzlanir fullar út
úr dyrum af fólki, sem ætlar
að kaupa eitthvað til þess að
gleðja náungann. Sumir eru
að kvarta yfir því, að of mik-
ill kaupsýslubragur sé orðinn
á jóla/haidinu; jólahátíðin sé
orðin að kauptíð.
Nú er það einu sinni svo, að
hátíðahaldi hlýtur jafnan að
fylgja einhver kaupmenska,
elia yrði hátáðin heldur dauf.
Og skyldi hátíðahaldið ekki
Verða þeim mun glæsilegra,
sem meira og fleira er til þess
keypt og ætlað?
Öðrum finnst, að jólagjafir
séu komnar út í öfgar, en ekki
er Velvakandi viss um það.
Það er fagur siður að færa
vinum sínum gjafir á jólun-
um, og ef menn hafa efni á
að gefa margar gjafir og dýr-
ar, hví skyldu þeir þá ekki
gera það? Tæplega gefur nokk
ur um efni fram.
• Þorlákur blótaður
Þegar líður að kvöldi Þor-
láksmessu, vilja menn fá eitt-
hvað gott í svanginn eftir
amstur og strit dagsins. Því
er það svo að átveizlur jól-
anna hef jast á íslenzkum heim
ilum- þegar á Þorláksmessu,
einum degi fyrr en með öðrum
þjóðum. Þá fá menn sér gjarn
an hangikjöt eða kæsta skötu,
og fæstir láta bragðsterkar
veigar skorta með. Eftir kvöld
mat rangla eiginmenn á milli
verzlana hressir og hýrir. Það
roun nokkuð almennt hér, að
menn blóti heilagan Þorlák
rækilega þenan dag, en uni
svo rólegir heima hjá sér á að
fangadag og helgustu nótt árs
ins. Virðist það mun æskilegra
en það, sem víða tíðkast er-
lendis að menn klingi staup-
um á aðfanga dag.skvöid.
• Ártíð Þorláks biskups
Þorláksmessa hin síðari er
ártíðardagur hins sæla bisk-
ups Þorláks Þórhallssonar, en
hann „andaðist á Þórsdag,
einni nátt fyrir jólaaftan, sex-
tíu vetra gamall. og hafði 15
vetur biskup verið. Þá var
liðið frá burði Krists eáitt
þúsund eitt hundrað nítíu og
þrir vetur“, segir í sögu Þor-
láks biskups.
Hann þóttist eiga góða heim
von, því að fyrir andlát sitt
mælti hann svofeldum orðum:
„Vil ég yður í því hugga, að
ég þykist víst vita. að eigi
muni guð mig helvítismarm'
dæma“.