Morgunblaðið - 29.12.1961, Síða 13
Föstudagur 29. des. 1961
MORGTNBL4Ð1Ð
13
©
í
§
I
ð
I
i
!
f
i
f
f
I
ÍTv
O
8>
£
I
I
I
I
I
£
I
|
i
I
i
8
Luthuli var fagnað sem höfðingja
Kungálv, 8. des.
LAUGARDAGINN 2. des sl.
efndi Sænsk-íslenzka félagið
í Gautaborg til fullveldis-
fagnaðar. Samkoman hófst
með sameiginlegu borðhaldi.
Formaður félagsins, Peter
Hallberg, docent, bauð fé-
lagsmenn og gesti velkomna
og flutti auk þess snjallt
ávarp í tilefni dagsins. Aðal-
ræðuna flutti Thor Vilhjálms
son, rithöfundur, en hann
kom hér við á leið heim úr
suðurgöngu. Hann hefur
dvalizt í nokkra mánuði
suður á Ítalíu. Ræða Thors
Vilhjálmssonar var með af-
brigðum myndauðug og
skemmtileg. Hann kom víða
við. Ritari félagsins, Ás-
mundur Brekkan, læknir,
upplýsti í ávarpi, sem hann
flutti, að félagar Sænsk-ís-
lenzka félagsins væru nokk-
uð á annað hundrað og aldrei
hefðu svo margir sótt full-
veldisfagnað á vegum félags-
ins og nú eða um 90 manns.
Meiri hluti félaganna eru
Svíar.
Hátíðin var hin ánægjuleg-
asta. Mikið talað, mikið
sungið og margt til skemmt-
unar. Sýnd var gullfalleg lit-
kvikmynd úr Þjórsárdal, —
mynd Osvalds Knudsen. ís-
lendingar komu víðsvegar að
úr byggðarlögum Vestur-Sví-
þjóðar. Og skemmtu menn
sér hið bezta við söng og
dans fram eftir nóttu.
Bók Thors Vilhjálmssonar,
„Andlit í spegli dropans",
kom nýlega út hér í Svíþjóð
í þýðingu eftir Peter Hall-
berg. Bókin hefur fengið
góða dóma í sænskum blöð-
um.
Albert Lutuli fagnað
í Gautaborg
1 gær hylltu stúdentar í
Gautaborg Albert Lutuli og
konu hans, frú Nokukhanya
Lutuli, er þau komu hér við
á Forslandaflugvelli á leið
til Osló, en þangað sækir
Lutuli eins og kunnugt er
friðarverðlaun Nobels.
Um 500 stúdentar mynd-
uðu mikla skeifulaga fána-
borg á flugvellinum, ásamt
fulltrúum annarra æðri skóla
í borginni, fulltrúum frá fé-
lagi Sameinuðu þjóðanna í
Gautaborg, stéttafélaga og
ýmissa stjórnmálasamtaka.
Albert Lutuli og kona
hans voru boðin velkomin á
sænska grund með ræðum og
stúdentasöng. Lítil stúlka
færði gestunum fagra blóm-
vendi og var þeim óspart
klappað lof í lófa.
Yðar málstaður mun sigra
Formaður stúdentasamtak-
anna í <Jautaborg, Bengt
Sandkull, flutti ávarp. Hann
sagði m.a.:
„Ástandið í Suður-Afríku er
ískyggilegt. En yðar óeigin-
gjarna og þrotlausa starf
styrkir okkur í þeirri trú,
að engin ástæða sé til að ör-
vænta. Við vitum, að friðar-
verðlaunum Nobels hefur
verið úthlutað manni, sem
ríkulega hefur til þeirra
unnið. Fyrir nokkrum dög-
um var yður leyft að hverfa
úr fangelsi, en aðeins um
stundarsakir, skilyrðið var,
að þér skuldbynduð yður til
að snúa þangað aftur. Við
vonum, að sú samúð sem við
í dag viljum sýna yður og
málstað yðar muni veita yð-
ur styrk og einurð til þess
að halda baráttunni áfram —
baráttu fyrir frelsi, réttlæti
og bræðralagi meðal Afríku-
búa. Framtíðin er okkur
hulin, en það er sannfæring
okkar, að yður muni takast
að vinna bug á erfiðleikun-
um og yðar málstaður muni
sigra“.
Táknrænn atburður
Evert Svensson, þingmað-
ur í Kungalv, talaði fyrir
hönd annarra samtaka en
stúdenta. Hann benti m.a. á
það í ávarpi sínu, að þetta
væri í fyrsta sinn í sögunni,
sem Afríkumanni væru veitt
friðarverðlaun Nobels. Enn-
fremur sagði Evert Svens-
son:
„Samtímis fulltrúa okkar
eigin lands, Dag Hammar-
skjöld, munuð þér á sunnu-
daginn kemur veita friðar-
verðlaunum Nobels viðtöku.
Við skoðum þetta táknrænt.
Friður og frelsi er það
bezta, sem við getum óskað
Afríku!"
Blökkumaðurinn séra Wii-
fred Cele frá Suður-Afríku,
sem dvelst í Gautaborg við
framhaldsnám, ávarpaði Al-
bert Lutuli á hans eigin
máli, Zulu. Hann hóf mál sitt
með að lesa grein úr ritning-
unni, — Matt. 5:16.
Allir menn eiga jafnan rétt
til lífs og frelsis
Albert Lutuli flutti að lok-
um þakkarávarp. Hann var
greinilega hrærður yfir þeirri
samúð og þeim vinarhug sem
honum var sýndur. Hann
talar ágæta ensku.
Hann þakkaði móttökurn-
ar og hlýjar kveðjur en
harmaði að honum skyldi
ekki auðnast að dveljast
lengur en þessa stuttu stund
í Svíþjóð, þar sem ferð hans
væri vissum skilyrðum háð.
Gjarnan hefði ég viljað
dveljast lengur í Svíþjóð og
kynnast betur þeirr’ þjóð
sem hefur sýnt mér svo
mikinn heiður og vinarhug.
Mér er það sérstök ánægja
að hafa átt þess kost að
koma til þess lands, þar sem
tillagan um að mér yrðu
veitt friðarverðlaunin kom
fyrst fram.
Ég er staddur í lýðfrjálsu
landi, en eigi að síður hefur
ríkisstjórn minnar þjóðar
lagt hömlur á leið mína, svo
ég er ekki frjáls ferða
minna. En ég er sannfærður
um að þeir tímar koma, að
augu manna opnast fyrir
því, að það er óréttlátt að
gera greinarmun á fólki eins
og nú er gert í mínu ætt-
landi. Allir erum við menn,
þótt litarhátturinn sé frá-
brugðinn, — menn, sem eiga
jafnan rétt til lífs og frelsis.
Ég er hamingjusamur yfir
að vera meðal vina og það
er dásamleg tilfinning að
vera staddur í landi þar sem
frelsi og mannhelgi er í
heiðri haft. Við Suður-
Afríkubúar erum þess minn-
ugir, að Svíar styrkja unga
stúdenta, — blökkumw^. a#~
okkar hópi til framhaldsnáms
hér í Svíþjóð. Okkur er það
mjög mikils virði.
Ég og mínir þeldökku
samherjar fundu sárt til
þess, þegar sú harmafrétt
barst okkur að samlandi yð-
ar, Dag Hammarskjöld,
hefði farizt af slysförum í
Afriku. Hinir þeldökku
Afríkubúar áttu honum mik-
ið að þakka. Við starf hans
í þágu friðarins voru miklar
vonir bundnar. Honum varð
mikið ágengt í baráttunni
fyrir friði og öryggi í heimin
um þau ár, sem hann starf-
aði fyrir Sameinuðu þjóðirn-
ar. Ég er sannfærður um að
það er fyrst og fremst hann
sem á heiðurinn af því að
„kalda stríðið“ varð ekki að
opinni styrjöld milli stórveld
anna.
Ófrjáls ferða sinna
Að lokum þakkaði Albert
Lutuli enn á ný alúðlegar
móttökur, og heiðursvörður
stúdentanna kvaddi gestina
með húrrahrópum og söng.
Og SAS-vélin Atli Víkingur
hélt ferðinni áfram eins og
leið liggur til Óslóborgar.
Dvalarleyíi Lutuli-hjón-
anna í Ósló hljóðar upp á 7
daga. Lengur mega þau ekki
vera samkvæmt boði stjórn-
ar Suður-Afríku. Og ekki
mega þau fara út fyrir borg-
armörkin. Leyfið er bundið
við Ósló og stytztu leið
fram og aftur. Kristileg sam-
tök stúdenta í Svíþjóð vinna
nú að þvi að fá dvalarleyfið
framlengt um 5 daga, og ef
það tekst, verður Albert Lut-
uli boðið í fyrirlestrarferð
um Svíþjóð.
M. G.
l
3
i
i
I
l
l
I
mmiBm
Stúdentar með fánaborg heilsuðu Luthuli og frú á flugvellinum
Þekkt heildsölufyrirtæki hér í bæ óskar eftir
skrifsfofuhúsnœði
3—4 herbergi, sem næst Miðbænum frá áramótum.
Tilboð óskast send skrifstofu félags íslenzkra stór-
kaupmanna, Tjarnargötu K fyrir 5. janúar n.k.
Bélag íslenzkra stórkaupmanna
UIMGLIIMG.
van+ar til að bera blaðið í eftirtalið hverfi
FJÓLUGÖTU
TRULOFUNAR
H
R
I
N
G
A
R
ULRICIH FALKMER
AMTMANNSSTÍG 2
Jóhannes Lárusson
hæstaréítarlögmaður
lögfræðiskrifst. - fasteignasala
Kirkjuhvoli — Sími 13842
Magnús Thorlaeius
næstaréttarlögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Aðalstræti 9. — Sími 1-1875,
Coktail mondlur
fyrir hófdryggjuna um
áramótin, fást hjá
Silla & Valda, Kjörbúð SÍS
London, Austurvelli.
Heildsölubirgðir
Eiiikur Kelilson
Garðastræti 2 — Sími 23472