Morgunblaðið - 21.01.1962, Side 2
2
MORGVTSBL ÁÐIÐ
Sunnudagur 21. jan. 19-62
Frá afhendingu „Berge Edda“ í Stavanger. Á myndinnl til vinstri eru J. D. Behrens forstjóri
skipasmíðastöðvarinnar og Sig. Bergesen (í dökkum frakka), en til hægri er yfirlitsmynd yf-
yfir skipið. „Berge Edda“ er 234 metrar miili stafna.
Stærsta skip Noregs
ÞRIÐJUDAGINN 16. þ. m. af-
henti Rosenberg mek. Verk-
sted í Stavanger útgerðar-
félaginu Sig. Bergesen d. y. &
Co stærsta skip Noregs,
„Berge Edda“, sem er 51.430
lestir. Var skipið afhent við
hátíðlega athöfn á skipasmiða
stöðinni.
Forstjóri útgerðarfélagsins,
Sig. Bergesen, skýrði frá því
við afhehdinguna að skipið
hefði kostað tæp 50 sterlings-
pund á smálest og væri það
e' ki hærra verð en tíðkaðist
annarsstaðar. Nýlega hefur
útgerðarfélagið tekið við
öðru nýju skipi „Berge-
bonde“. sem er 51.000 lestir og
eru bæði skipin skuldlaus
eign félagsins.
„Berge Edda“ hefur verið
leigt Esso olíufélaginu til sjö
ára, en útgerðarfélagið hefur
gert samninga um smíði átta
skipa til viðbótar og eiga tvö
þeirra að vera 51.000 lestir,
eitt 58.000 lestir, þrjú 80.000
lestir og eitt 100.000 lestir.
Vélar allra skipanna eru frá
Burmeister & Wain, en vél-
arnar í „Bergebonde" og
„Berge Edda“ eru stærstu
dísilvélar heims í dag, hvor
um sig 21.000 b.h.
Félagsmálastofnunin
FIMMTUDAGINN 18. jan. tók
Félagsmálastofnunin til starfa, og
af því tilefni boðaði forstöðumað-
ur hennar og eigandi, Hannes
Jónsson, M.A., fréttamenn á sinn
fund og skýrði frá tilgangi stofn-
unarinnar. í framtíðinni er ætl-
unin að reka hana sem óháða
sjálfseignastofnun, tengda laun-
þegasamtökunum og tveimur
menntastofnunum.
Tilgangur Fél^gsstofnunarinn-
ar er:
1) að annast alþýðufræðslu um
félags-, efnahags og verka-
lýðsmál með rekstri fræðslu-
námskeiða um þessi og skyld
efni:'
t) að annast rannsóknarstörf á
sviði félags- og efnahagsmála
og fylgjast með þróun kaup-
gjalds, verðlags og vinnu-
deilna á íslandi.
3) að annast útgáfustarfsemi.
Þegar er hafinn un-dirbúningur
að rekstri firrum fræðslurrám-
skeiða á vegum Félagsmálastofn-
unarinnar, en þaiu eru:
1) Fundarstjórn, rökfræði og
ræðugerð.
2) Erindaflokkur um vepka-
lýðs- og efnahagsmál.
3) Hagfræði.
4) Þj óðfélagsfræði.
5) Fjölskyldan og hjónabandið.
Tveir fyrstu námsflokkarnir
hefjast í marzmánuði en þrío: síð-
ari fldkkarnir hefjaist í október.
Auk fastra námsflokka, sem
einstaklingar geta innritast í, tek-
Á ÖLLU hafsvæðinu, sem
kortið nær yfir, er nú élja-
veður. Mjög kaldur loft-
straumur frá norðurhéruðum
Kanada leggur leið sína aust-
ur yfir hafið frá strönd
Labrador. Smám saman hitar
sjórinn það og bætir í það
raka, sem safnast saman í
stóra klakká, er áusa síðan úr
sér slyddu, hagli bg snjó. í
gær voru horfur á', áð lægðin
suðyestan við landið múndi
lítið færast úr stað. Fari svo,
mun hún sveifla kuldaskilun-
um norður fyrir land. Þar
mun þá létta til. en suðlæg
átt og éljagangur verða í dag
á Suðurlandi.
ur Félagsmálastofnunin að sér
rekstur námlsifloikka fyriir ein-
stök verkalýðsfélög, starfsmanna
félög og önnur samtök. StarÆsemi
stofnunarinnar hefst t.d. roeð því,
að rekinn verður námsflokkur í
fundarstjórn, rökfræði og ræðu-
gerð fyrir símvirkjadeild Félagis
ísl. símamanna, en í febrúar hefst
hliðstætt námskeið, sem rekið
verður fyrir Samband íslenzkra
bankamanna. Samningar standa
yfiir um rekstur slíkra námskeiða
fyrir fleiri félög.
Rannsóknarstörf Félagsmála-
stofnunarinnar munu einkum
miða að því að safna gögnum
um þróun kaupgjaldis, verðlags
og vinnud'eilna á íslandi, en
einnig um sögu og þróun ein-
stalkra verkaáýðsfélaga, þannig
að safnað verði á einn stað drög-
um að heildarsögu og þróun laun-
þegasamtakanna á íslandi.
Að tilhlutan Félagsmálastofn-
unarinnar göfur Prentsmið^an
Leiftur h.f. á næstunni út bókina
Málfundir, leiffbeiningar um fund
arstörf og mælsku, eftir Hannes
Jónsson, M.A. Verður hún notuð
sem kennsluibók á málfurudanám-
skeiðum stofnunarinnar. Fleiri
bækur eru í undirbúningi.
— Kongó
Frh. af bls. 1.
hafi rekizt á flokk Kongóher-
manna skammt frá þorpinu, og
hafi flokkurinn verið á leið í
áttina til Kongolo. Kongóher-
mennimir hófu skothríð á flug-
vélarnar er þeir sáu að tékið
hafði verið eftir þeim, en flug-
mennirnir svöruðu ekki skot-
hríðinni.
Verið er að undirbúa sókn
gegn þeim, sem fyrir árásunum
á trúboðsstöðvarnar standa, en
ekkert hefur verið gefið upp um
væntanlegar aðgerðir enn sem
komið er.
Engin ný bólutilfeili
Londion, 20. jan. (AP).
EKKI hefur orðið vart við
nein bólusóttartilfelli í Bret-
landi síðasta sólarhringinn, en
bólusetningu er haldið áfram.
1 dag. kom bólusetningarefni
flugleiðis frá Bandaríkjunum
til Bretlands og nægir það tU
að bólusetja 400.000 manns.
Þá hefur brezka stjómin þegið
tilboð stjómarinnar í Argen-
tínu um kaup á 1 milljón
skömmtum af bóluefni. Verður
það sent flugleiðis frá Buenos
Aires á sunnudag.
Brezka stjómin bendir á
það í sambandi við kaupin á
bólusetningarefninu, að ekki
sé neinn skortur á því í Brét-
landi eins og er, en þessi við-
bót sé fengin til að endur-
nýja birgðirnar.
Bólusóttinn barst til Bret-
landis í lok desember og voru
það innflytjendur frá Pakist-
an, sem báru sóttina þangað.
Sex manns hafa iátizt í Bret-
landi af bólusóitt.
Nokkur lönd, m.a. Tyrkland,
Kýpur, Spánn, Ítalía, Vestur-
Þýzkaland, Austurrí'ki, Finn-
land og Svíþjóð krefjast bólu-
setningarvottorða af öllum
ferðamönnum, sem frá Bret-
landi koma.
— Salk
Framh. af bls. 1.
ónæmi án minnstu sjúkdóms-
einkenna, benti Saik á að
lömunarveikibóluefni úr dauð
um veirum hefur ráðið niður-
lögum lömunarveíkinnar sem
farsóttar. Bóluefnið hefur
ekki aðeins verndað þá bólu-
settu, heldur fækað veirum í
almenningi stórlega. Þetta hef
ur varið óbólusetta mikið,
því ella hefðu Verið margfalt
fleiri lömunarveikitilfelli 1960
til 1961, að sögn Salks.
ÁSTAND OG HORFUR
Vísindanr.enn vita nú, sagði
Salk, gegn hvaða sameindum
mótefni myndast. Mótefni þau,
sem líkamann verja, eru mynd
uð gegn eggjahvítuiaginu ntan
um veirurnar, en ekki gegn
innri kjarnanum. Með því að
nota aðeins meinlaust eggja-
hvítulagið mætti mynda
ónæmi án minnstu áhættu.
Eitt bóluefni gegn mörgum
sjúkdómum mætti framleiða
með því að blanda hreinunn-
in eggjahvítuefni frá fjölda
veirutegunda. Sem stendur er
einmitt verið að vinna að því
að aðskilja veirueggjahvítu
frá kjarnasýrunum. ,
Sumar veirur geta orsakað
krabbamein, og aðrar skemmt
taugakerfið. Nokkrar gætu
hleypt krabbanum'af stað, en
horfið síðan. Aðrar gætu or-
sakað hægar breytingar í Iif-
ur, hjarta eða öðrum líffær-
um. Veirur gætu valdið trufl-
unum á hreyfitaugum, hegð-
un eða sjálfvirka taugakerf-
inu, enn aðrar efnasklptasjúk-
dómum eða ofnæmi.
„Allt þetta," sagð! hann,
,,bendir til þess, hve æskilegt
værí að rjúfa hina keðju-
bundnu smitun sýkjandi sanv
einda (þ.e. veira) svo ræki-
lega, að vald næðist á veiru-
sjúkdómum. ÖH þessi rök-
færsla er ætluð til að benda
mönnum á, að rækiiegar rann-
sóknir á veirusýkingum gæti
leitt til að ónæmisaðgerða,
se'm færðu mönnum vald á
sjúkdðmum, sem okkur grun-
ar ekki nú, að séu veirusjúk-
dómar, Og þá hefði allt erfiðið
margborgað sig.“
®------------------------------
— G/enn
Frh. af bls. 1.
Áætlað er að Glenn lendl
Mercurygeimskipinu i nánd við
Grand Turk eyju um 1600 km
fyrir suð-austan Kanaveralhöfða.
Frúin fylglst með
í frétt frá Arlington í Virgin'u-
ríki í Bandarikjunum, er skýrt
frá því að eiginkona Glenns hafi
fengið þrjú ný sjónvarpistæki.
Astæðan er sú að för manns
hennar verður sjónvarpað um
þrjár sjónvarpsstöðvar, og langar
hana til að fylgjasit með öllum
sendingunum. Nú hefur frúin
fjögur sjónvarpstæki. Aðspurð
til hvers það fjórða væri, svaraði
hún: Það er til vonar og vara ef
einhver vill fylgjast með teikni-
myndunum.
Fá leikrit hafa hlotið betri dóma bæði hjá gagnrýnendum og
leikhúsgestum en „Húsvörðurinn" eftir Harold Pinter, sem
Þjóðleikhúsið sýnir um þessar mundir. Sýningin í heild er
mjög vönduð og leikur Vals, Gdnnars og Bessa í hinum erfiðu
hlutverkum með afbrigðum góður. — Myndin er af Val Gísla-
syni og Bessa Bjarnasyni í hlutverkum sínum. Næsta sýning
verður í kvöld.