Morgunblaðið - 21.01.1962, Side 5
Sunnudagur 21. jan. 1962
Moncriynr amð
5
<i> . ■ ■ ■ ■ --------------
Laukar og hnúðjurtir eru
blómfagrar og litauð'ugar
jurtir, breytilegar að lögun og
gerð, eftir tegundum og af-
brigðum, seim skipta hundruð
um eða jafnvel þúsundum. —
Margir hafa ánaegju af að
rækta lauka í görð'.im., og hef
ur útbreiðsla þeirra hér auk-
izt mjög hin síðari ár. Ýmsar
laukjurtir eru meðal fyrstu
plantna er blómgast á vor
in, já, stundum boða þær
komu vorsihs 'öngu áður en
þess er að vænta, t.d. ef hlýtt
er í veðri um nokkurt skeið
síðla vetrar. Þannig er t.d. með
Crocus eða dverglilju, eins og
hún er kölluð. Hún er út-
breiddasti vorboði garðagróð
urs hér. Dvergliljan er stöng
ullaus hnúðjurt 10—15 cm á
hæð, með þéttstæðum mjóum,
fagurgrænum blöðum, sem
oftast eru með Ijósri rák eftir
endilangri m-iðtauginni. Blóm
dvergliljunnar eru stór og
tregtlaga, ýmist blá, gul, hvít,
eða jafnvel tvílit.
í mesta skammdeginu, á
meðan ekki er unnt að rækta
fram rósir, nellinikkur %eða
annan þann blómigróður, sem
krefst mikillar birtu til að
blóm.gast, raekta garðyrkju-
menn okkar alls bonar lauk-
jurtir í gróðurhúsum sínum,
s.s. hyaciuthur, túlíipana,
páskaliljur, íris og drvergliljur,
sem sætta sig við mjög tak-
markað Ijós. Laukana (en á
vörum almennings eru laukar
og hnúðar eitt) kaupa þeir
heim frá Hollandi að hausti
til. En eins og mörgum mun
kunnugt eru Holléndingar
mestu blómlaukaframleiðend-
ur í heimi, og hafa haldið
þeirri forystu allt frá fyrstu
tíð, er laukaræktun hófst. —
Garðyrkjumaðurinn leggur
laukana í kassa, sem hann
geymir síðan á hæfilega köld-
um stað, unz hann telur tíma
bært að flytja þá inn í gróður
húsið til ylræktunar. Það mun
lítið um að alménningur hér,
geri sér far um að ylrækta
lauka. Það er þó hægt í heima
húsum, og tiltölulega auðvelt
hvað hyacinthur Og diverglilj-
ur snerti. Hinsvegar kostar
það nokkra fyrirhöfn, og
krefst bæði árverkni og að-
gætni ef vel á að takast. Þar
sem nú er hávetur og verzlun
með lauka til niðursetningar
um garð gengin að sinni, vil
óg ekki rita nánar um það mál.
Hitt langar mig aftur á móti
að benda á, að blómaverzlan
ir bæjarins hafa nú blóms-tr-
andi dvergliljur, og þeim til
ábendingar, er hefðu hug á að
njóta návistar þeirra vil ég
taka ffam eftirfarandi. Bezt
fer á því að setja dvergliljur
í flata potta eða frekar grunn
ar skálar. Nauðsynlegt er að
þekja hnúðana alveg með
mold eða mosa, sem haldið er
hæfilega röku. Dvergliljur
þurfa að standa frekar þétt
saman svo þær njóti sín; hæfi
lagt er að setja 4—5 stk. í
skál sem er 10 cm í þvermál.
Þess skal gætrt að setja þær á
kaddan stað á næturna, því
þá blómgast þær lengur. Hafi
dvergliljurnar verið settar í
mold, má reyna að setja hnýð
in til geymslu fram á vor, að
blómgun lokinni, og gróður-
setja síðan úti.
(Ó. V. Hansson).
Loftleiðir li.f.: Snorri Sturluson er
væntanlegur kl. 05:30 frá NY. Fer til
X.uxemborg_r kl. 07:00 Væntanlegur
aftur kl. 2 -.00. Fer tií NY kl. 00:30.
Þorfinnur Karlsefni er væntanlegur kl.
00:00 frá NY. Fer tll Osló, Khafnar og
Helsingfors kl. 09:30.
Flugfélag fslands h.f.: Millilandaftug:
Gullfaxl er væntanlegur til Rvikur kl.
15:40 I dag frá Hamborg, Khöfn og
Osló. Fer til Glasg og Khafnar kl.
08:30 í fyrramálið. Innanlandsflug: —
í dag er áætlaS aS fljúga ttl Akureyrar
og Vestm.eyja. Á morgun tll Akureyr
ar, Hornafj., ísafj. og Vestm.eyja.
Eimskipafélag fslands h.f.: Brúarfoss
er á leið til NY. Dettifoss er á leið til
Rvíkur. Fjallfoss er í Keflavík. Goða
foss er á leið til NY Gullfoss er á leið
til Hamborgar og Khafnar. Lagarfoss
er í Gdynia. Reykjafóss er á Akureyri.
Selfoss er á leið til tíamborgar, Trölla
foss er á leið til Rvíkur. Tungufoss
er í Rvík.
Jöklar h.f.: D^angajökull er í Ólafs-
vik. Langjökull ‘er í Hamborg. Vatna-
jökull er í Grimsby.
Eimskipafélag Rvikur h.f.: — Katla
er í Vaasa. Askja kemur til Osló í
fyrramálið.
Hafskip h.f.: Laxá lestar á N- og A-
landshöfnum. ■
Aftur hljómar ástar þýða raustin,
unga fólkið giftir sig á haustin:
margur sveinn í meyjararma flýr,
meðan kolin eru svona dýr.
CK. N.).
MENN 06
= mŒFNI=
leika hjá Þjóðleikihúsinu og út
varpinu. Ungfrúip lýfcur sín-
um prófum í vor og fer því
aftur til Þýzkalands á næst-
unni, hvað sem síðar verður,
því Gísli hefur boð um leik-
störf hjá Regidergleikihúsinu,
Múnchen, þar sem hann lék áð
ur en hann koim heim.
Þegar vorið vakti 1)10111111 ungu
og vögguljóðin kátir fuglar sungu,
en dansinn kveikti ástareld í sál:
á „Ice-Cream-Parlor“ slökktu menn
það bál.
Þessi unigtu hjón giftu sig 1
Keflavíkurfcirkju 13. jan. s.l.
Þau eru Gísli A-lfreðsson, leik
ari, soniur Alfreðs Gíslasonar
alþingisttnanns og bæjamstjóra
í Keflavik og Vigidisar Jakobs
dótitur, konu hans. Brúðurin er
Julianne Micheal, frá Baden-
Baden í Þýzkalandi. Bæði hafa
brúðhjónin undanfarið stund
að leiklistarnám við sama lei.k
skóla í Múnohen. Hefur Gísli
iokið sítnuim prófum með
prýði og er nú um tíma að
Keflavíkurkirkja var nær
fullsetin af vinum og frænd-
um, þegar sr. Garðar Þorsteins
son prófastur gaf brúðhjónin
saman. Móðir brúðarinnar, hin
þebkta þýzka leikkona Irm-
gard Miöhael vair viðstödd.
Rennismiðir
og rafsuðumenn óskast nú
þegar. Talið við verk-
stjóran.
Keilir hf.
Sími 34981.
Volkswagen bíll
óskast til kaups, helzt ekki
eldri en ’57 til ’58. Upp>.
í síma 24089.
Sængur
Endurnýjun gömlu sæng-
urnar, eigum dún og fiður-
held ver.. Seljum gæsa-
dúnssængur.
Dún- fiðurhreinsunin
Kirkjutep 29. Sími 33301.
Til sölu
litill sófi, Ijósgrár og dökla»
grár. Dívan 90 cm breiður,
klæddur með áklæði. —
Sanngjarnt verð.
Uppl. Sogavegi 100.
Kvenmanns stálúr
tcpaðist á Kópavogshálsi
s,. þriðjudag. Uppl. í síma
36926.
Rafha isskápar
eldri gerðin til sölu með
tækifærisverði. — Uppl. í
sima 35918.
Skemmtikvöld
verður í GT-húsinu
sunnudagskvöld
kl. 8,30—11,30.
Ó.M. og Agnes skemmta.
Ungtemplarafélagið
Hrönn.
Hvöt Sjálfstæðiskvennafélagið
heldur
SPILAKVOLD
fyrir konur og karla í Sjálfstæðishúsinu mánud.
22. jan. kl. 8,30 e.h.
1. Spiluð félagsvist
2. Ávarp: Frú Auður Auðuns
forseti bæjarstjórnar
3. Verðlaun veitt
4. Dans.
Aðgöngumiðar afhentir í miðasölu Sjálfstæðishúss-
ins í dag og á morgun frá kl. 3—6 og kl. 2—5 á mánu
dag verði eitthvað eftir.
STJÓRNIN.
Söngskemmtun
EINAR STURLUSON heldur söngskemmtun í kirkju
Óháða safnaðarins i Reykjavík við Háteigsveg sunnu
daginn 21. jan. kl. 9 s.d. ..
Undirleik annast Dr. Hallgrímur Helgason.
Aðgöngumiðar við innganginn.
Bl NGÓ
Kjör-Bingó að Hóliel Borgþriðjudaginn
23. 1. ’62.
Úrval kjörvinninga.
Lukkupottar 9.000.— vöruúttekt.
Borðpantanir í síma 11440.
TIL SOLU nokkrar
4 herb. íbúðarhœðir
um 110 ferm. hver í smíðum við Hvassaleiti. íbúð-
irnar seljast með miðstöðvarlögn eða tilbúnar undir
tréverk og málningu. Húsið verður fullfrágengið
að utan og allt sameiginlegt múrverk innanhúss
fullgert.
Nánari uppl. og teikningar til sýnis á skrifstofunni.
Nýja fasteignasalan
Bankastræti 7.
Símí 24300 og kl. 7,30—8,30 e.h. sími 18546