Morgunblaðið - 21.01.1962, Blaðsíða 8
e
MORGVISBLAÐIÐ
Sunnudagur 21. jan. 1962
Skoðun íslenzkra vísindamanna
á Atlantshafsspr ungu n ni
SL. TIMMTUDAG var hér í blað-
inu sagt frá sprungum, sem
liggja eftir úthöfunum, bar á
meðal ein eftir endilöngu Atlants
bafi og þvert í gegnum ísland,
og kenningu erlendra vísinda-
manna um að upp um slikar
sprungur gubbist berg, sem breið
ist hægt út, og haisbotninn sé
Það er ekki 1 fyrsta sinni að
gjárnar og sprungukerfin á ís-
landi eru á dagsskrá, og raunar
má segja um margt af því, sem
blaðagreinarnar drepa á, að þetta
eru gamlir kunningjar. Ég get
gjarna rakið málið lítillega í
sambandi við blaðaskrifin.
1916 sett’. Alfted Wegener fram
Trausti Einarsson, prófessor
þá nýstárlegu kenningu, að jarð-
skorpan undir meginlöndunum,
50—100 km þykk, gæti runnið til
eða rekið líkt og jakar á þykk-
fljótandi dýpri lögum, og hefðu
meginlöndin breytt mjög afstöðu
á þennan hátt í sögu jarðar. Svip
uð kenning hafði raunar kom
ið fram hjá Baker 1911, en ekki
vakið athygli.
alltaf á hreyfingu. Hafi erlendir
visindamenn nú mikinn áhuga á
rannsóknum á sprungum á ís-
landi. eina þurra blettinum sem
slík sprunga liggur í gegnum.
Vegna þessara frétta höfum
við spurt þá prófessor Trausta
Einarsson og dr. Sigurð Þórar-
insson hvernig þeim lítist á þess-
ar kenningar. Próf. Trausti sagði:
Þessi lar.dflutningakenning gaf
sláandi skýringu á ýmsum stað-
reyndum og eignaðist marga á-
hangendur, en einr.ig marga and-
stæðinga. Aðalstoðir kenningar-
innar voru þær að dreifing jarð-
laga og fjallgarða, sem mynd-
aðir voru fyrir miðja Miðöld jarð
ar, þ.e. fyrir 150 milljón árum
og fyrr, varð svo eðlileg og skiij-
anleg, ef færa mátti Ameríku að
Evrópu og Afríku og draga Suð-
unpólslandið, Ástralíu og Ind-
land að Suður- og Austur-Afríku
og fella þessi brot saman í eina
heild. Á hinn bóginn tókst ekki
að benda á neina þá krafta, sem
'hefðu getað valdið sundurdrætt-
inum, svo að viðhlítandi væri.
Miðatlantshafshryggurinn, sem
liggur eftir miðju hafinu endi-
löngu, og er eitt af helztu jarð-
skjálftabeltum jarðarinnar, hlaut
strax í upphafi að verða dreginn
inn í umræður og talinn bend-
ing um áframhaldandi rifnun og
gliðnun. Wegener gerði og ráð
fyrir gliðnun á Norður-Atlants-
hafi og Norðuríshafi allt til nú-
tímans, enda benti og samanburð
ur á eldri og yngri lengdargráðu-
mælingum á Grænlandi til þess.
En hinar gömlu mælingar reynd-
ust of ónákvæmar og loka-
niðurstöður dönskr. landmælinga
stofunnar um þetta atriði fyrir
10—15 árum urðu þær, að engu
vesturfærslu Grænlands væri að
finna. Síðan eru komnar nákvæm
ari mæliaðferðir. Sólmyrkvamæl
ing Bandaríkjamanna hér á iandi
1954 var ein tilraun til nákvæm-
ustu lengdarmælingu, en á síð-
ustu árum hafa þeir beitt HIRAN
aðferð svokallaðri til að mæla
vegalengdi rnar Grænland-ísland-
Færeyjar-Skotland. sem er lang-
nákvæmasta aðferðin, og er þá
prófun á landflutningakenning-
unni eitt að því, sem komið gæti
tram.
. Ekki man ég hvort Wegener
hafði augastað á sprungukerfum
fslands, en 1933 orðaði Niels
Nielsen þá hugmynd, að sprung-
urnar mætti skilja í ijósi Wegen-
erskenningarinnar og væri vott-
ur um áframhaldandi gliðnun.
1938 kom svo hingað þýzkur leið-
angur undir stjórn O. Niemczyks
til þess gagngert að kanna gliðn-
unina, sem Þjóðverjarnir virtust
trúa sterklega á. Nákvæmt þrí-
hyrninganet var lagt frá Fnjóska
dal austur á Hólsfjöll og mæli-
punktar varanlega auðkenndir,
því að 10 árum liðnum skyldi
mælingin endurte’. ' i og gliðnun-
in fundin. En svo kom stríðið og
margir mælipunktarnir voru eyði
lagðir eftir fyrirskipun herstjórn
ar, að mér hefur skilizt. Mun hún
hafa talið þá einhv?r léynimerki,
enda trúðu margir því, að þýzki
leiðangurinn hefði verið njósna-
leiðangur. Eftir stríðið ætlaði
Nierr.ci.. .: að endurtaka mæling-
una, en hætti við er skemdirnar
komu í ljós. Bernauer, sem var
einn af leiðangursmönnum,
mældi víddir gjánna í Gjástykki
og taldi, að samanlögð vídd
gjánna svaraði til gliðnunar á
tímanum eftir ísöld. þ.e. á eitt-
hvað 10 þús. árum. Þannig fann
hann meðalgliðnun á öld.
f sambandi við rannsóknir mín
ar á Heklugosinu fékk ég áhuga
fyrir gjám og sprungum og kann
aði þær talsvert. Komst ég þá að
þeirri öruggu niðurstöðu, að í
gjánum felst oft alls engin gliðn-
un og oftas miklu .ninr.i en svar-
ar til víJiar gjánna. Á þetta hefi
ég drepið I einni Hekluritgerð-
inni og ég fjalla jafnan um þetta
í háskólaker.nslrnni - jarð- og
jarðeðlisfraði. Gjárnar eru nefni
lega oft yfirborðsfyrirbigði' og
byggjast að nokkru á niðurfaili.
Á Suðurlandi stafa þær ekki af
tognun landsins þvert á sprung-
urnar. þ.e. til SA og NV, heldur
af hliðrun NA og SV. Þær eru
„sker“-krafta, er. ekki fyrst og
fremst -jgkraftafyrirbrigði. Ég
get og tekið.það fram að Atiants
hafs.iryggurinn er vafatítið sams
konar fyrirbrigði.
Síðasta stigið í rannsókn Mið-
atlantshafshryggjarins kemur
með bergmálsdýptarmælinum og
tilbúnum jarðskjálftum og hefur
Lamontstofnunin { Bandaríkjun-
um unnið þar þrekvirki. Hún hef
ur gjörkannað landslagið á sjáv-
arbotninum og kom bá í ljós nið-
urfall iangs eftir öllum hryggn-
um, en ekki er þörf á að túlka
það sem gliðnun.
f kringum 1930 var farið að
tala. um hugsanlega strauma í
djúplögum undit skorpunni og
gat þar verið það afl. sem flutti
meginlöndin samkvæmt Wegen-
erskenningunni. 1936 sýndi Pek-
eris fram á að slíkir straumar
eru ekki aflfræðilega óhugsandi
enda þótt efnið sé harðara en
stál. Ein straummyndin, sem
menn hafa látið sér detta i hug er
uppstreymi undir Atlantshafs-
hryggnum, en ekki lýst mér á
hana. Á síðasta áratugnum hefur
loks bergsegulmagn. einkum í
eldri lögum en frá tertier, gefið
athygliverðar bendingar um
færslu meginlanda. en túlkunin
er erfið þar eð greina verður
milli landaflutninga og pólflutn-
inga og verður enn um stund að
biða ljósari niðurstaðna.
Hafsbotninn er 3/5 af yfirborði
jarðar og öllum er Ijóst, að marg
ar ráðgátur í jarðfræði og jarð-
eðlisfræði bíða rækiiegrar könn-
unar hans. Bandaríkjamenn hafa
þegar unnið stórmerkilegt sfarf á
þessu sviði og ég vona, og efast
raunar ekki um, að þeir muni
Ég vil ekkert úttala mig um
jarðeðlisfræðileg atriði þessa
máls, sagði dr. Sigurður Þórarins
son. En hins vegar get ég upp-
lýst, að það er gömul skoðun að
ísland sé að gliðna í sundur. í
fyrsta lagi eru allar sprungur
frá Reykjanesi og norður í Þing-
eyjarsýslu tognunarsprungur,
sem gapa. Þetta bar mjög á góma
á öðrum tug aldarinnar á grund-
velli Wegeners-kenningarinnar,
um það að löndin flytu. En
Wegener tókst ekki að benda á
Dr. Sigurður Þórarinsson
þau öfl, sem þessu gætu valdið.
Síðan hefur verið bent á ýmis-
legt sem því gæti valdið, eins og
þessa strauma, sem nú er um
rætt.
Fyrir stríð var gerður út þýzk
ur leiðangur til íslands undir for-
leggja sig alla fram eftirleiðis.
Þess vegna kom það nokkuð flatt
upp á mig, sem blöð hafa hermt,
að nú eigi að koma upp á yfir-
borðið og beina athyglinni að
okkar litla hólma. En vissulega
mundum við fagna samvinnu við
hina ágætu vísindamenn um
rannsókn á íslandi, og hygg eg
þá að það væri heppileg verka-
skifting, að okkar mannafli væri
fullnýttur við hin islenzku við-
fangsefni.
ustu próf. Niemczyhs frá Berlín-
arháskóla og átti hann að gera
mælingar þvert yfir sprungu-
svæðið frá blágrýtissvæðinu við
Eyjafjörð og að blágrýtissvæðinu
á Hólsfjöllum. Var Tómas
Tryggvason með í beim leiðangri.
Nokkuð af merkjunum, sem þá
voru sett upp, eyðilögðu Bretar
á stríðsárunum. Eftir stríð var
áhugi fyrir að mæla þetta aftur,
en ekki hefur orðið af því. Nú er
Niemczyhs orðinn gamall maður.
Það eru því engar mælingar til
á þvj hvort sprungurnar eru að
gliðna, en það þyrfti að rannsaka.
Hins vegar má með öskulaga-
rannsóknum finna aldurinn á
sprungunum og þá er hægt að
vita hvort þær hafa verið að
myndast á löngum tíma eða hvort
þær tilheyra bara ákveðnu
skeiði. Æskilegast er þó að endur
taka þýzku mælingarnar og kom-
ast að raun um hvort gjárnar
eru raunverulega að víkka.
Svona mælingar eru nú orðið
orðnar svo nákvæmar að það
ætti að vera hægt að skera úr
þessu.
Ég hefi enga persónulega skoð-
un á þeim kenningum sem hér
um ræðir. Maður verður að bíða
eftir að mælingar skeri úr. Þær
verða vafalaust framkvæmdar
nú, annað hvort af Bandaríkja-
mönnum eða öðrum, ef íslending
ar gera það ekki sjálfir, því mál-
ið er svo mikið á döfinni þessa
stundina.
Þetta er eitt af dæmunum um
hversu þýðingarmikið svæði ís-
land er til lausnar ýmsum nátt-
i úrufræðilegum vandamálum. A
Sólar-Kaffi-
fagnaður ísfirðingafélagsins verður í Sjálfstæðis-
húsinu fimmtud. 25. þ.m.
— Beztu skemmtikraftar —
Aðgöngumiðar á aðeins 50 kr. afh. kl. 5—7 mið-
vikudag og fimmtudag. Borð tekin frá á sama tíma.
ísfirðingafélagið.
SILFURTUNGLIÐ
Sunnudagur
Gömlu dansarnir
Ókeypis aðgangur
Dansað til kl. 1.
Stjórnandi
Baldur Gunnarsson
Randrup og félagar
sjá um fjörið
Húsið opnað kl. 7. — Sími 19611.
takið EFTIR!
J.J. kvintett leikur frá
kl. 3—6 í dag í SILFURTUNGLINU.
OU nýjustu lögin!
Sendisveinn óskast
frá næstu mánaðarmótum.
IVfiagnus Kjaran
umboðs & heildverzlun — Sími 24140.
. Bifvélavirkjar
Bifvélavirkja eða menn vana bifreiðavið-
gerðum vantar okkur nú þegar.
F O R D - umboðið
Kr Kristjánsson h.f,
Suðuriandsbraut 2 — Sími 35300.
Vi irŒ) Œ OD Tf Z2
IMILLJÓN
Á árunum 1947—1961 hafa verið fram-
leiddir yfir Vz MILLJÓN loftkældir
DEUTZ dieselmótorar í stærðunum
5—340 hö. og með samtals yfir 25
MILLJÓN hestöfl.
HLUTAFÉLAGIÐ HAMAR
í gjdnum felst oit engin gliðnun
segir dr. Trausti Einarsson
Mælingar veiðu vafnlnust gerðor
segir dr. Sigurðui Þórarinsson