Morgunblaðið - 25.04.1962, Síða 15
MiSvík'ucfágúr 25. apríl 1962
M n » fZ P /V B L 4 Ð I»
15
Salan handtekinn
SÚ FREON, sem einna mesta
athygli vakti um páskahelg-
ina, var handtaka Raoul Sal-
ans, hershöfðingjans fyrrver-
andi, sem undanfarna mánuði
hefur verið yfirmaður leyni-
félagsins OAS, samtaka, sem
staðið hafa fyrir hryðjuverka-
öldunni í Alsír. Það var á
föstudaginn langa, sem fransk-
ir hermenn tóku Salan hönd-
um, mótspyrnulaust, í íbúð
hans við Rue des Fontaines, í
miðhluta Algeirsborgar. Salan
var þá nýkominn til borgarinn
ar, frá lcynilegum dvalarstað.
og hugðist dveljast með konu
sinni og dóttur, yfir páskahelg
ina. Þær voru báðar handtekn
ar með honum, auk Jean Ferr-
and, fyrrverandi hershöfðingja
í franska hernum. Samdægurs
var flogið með fangana til
Parísar, og þeim varpað þar i
fangelsi.
DUL.BÚINN, MEÐ FALSKT
VEGABRÉF
Hermenn og lögregla um-
kringdu Saint-Saens íbúðar-
hverfið, í miðborg Algeirsborg
ar, skömmu eftir hádegi á
föstudag. Var síðan hafin
skipuleg leit í hverju ihiúsi, og
er lögreglan kom á fyrstu hæð
hússins nr. 23 við Rue des
Fontaínes, komu þeir að eldri
manni, kiæddum bláum föt-
um, hvitri skyrtu, á támjó-
um ítölskum skóm. Virtist hér
í fyrstu vera um að ræða rík-
isstarfsmann á eftirlaunum,
sem byggi þar með fjölskyldu
sinni.
Vegabréf það, er hann bar,
var falsað og lýsti honum sem
verzlunarmanni frá Frakk-
landi, Luuis Carriére er væri
í Algeirsborg, um stundarsak- =
ir. Kona hans, fyrrverandi
’hjúkrunarkona, og 15 ára dótt
ir þeirra hjónanna, Dominique
báru cinnig fölsuð vegabréf.
Eiginkona Salans situr nú í
Fresnes fangelsi, í útjaðri Par
ísar, og mun hún sæta ákæru
fyrir að bera röng skilríki.
Einnig er talið að til greina
komi, að hún verði kærð fyr-
ir stuðning sinn við OAS sam-
tökin.
Salan hafði breytt útliti sínu
látið sér vaxa yfirskegg, og
litað hár sitt dökkt. Engu að
síður töldu hermennirnir sig
vissa, að hér væri um yfir-
mann OAS að ræða, enda
höfðu náðst af honum myndir,
í hinu nýja gervi sínu. Salan
neitaði að viðurkenna hver
hann væri, og var hann þá
þegar i stað fluttur í bæki-
stöðvar hersins, við Reghaia,
um tuttugu mílur utan Algeirs
borgar. Þar hitti hann fyrir
yfirmann franska hersins í
Alsír, Charles Ailleret. Ailler-
et var á sinum tíma undirmað-
ur Salans, og bar þegar á hann
kennsl.
Handtakan átti sér stað urn
Raoul Salan
kl. 2, síðdegis, á föstudag, en
um tíu-leytið, sama kvöld, var
Salan kominn í Santé fangels-
ið í Paris. Þar situr fyrir Ed-
mond Jouhaud, einn af aðal-
forsprökkum OAS-samtak-
anna, sem handtekinn var fyr-
ir mánuði, og hefur nú
verið dæmdur til dauða.
Talið er víst, að yfirvöld-
unum hafi verið gert aðvart
um dvalarstað Salans, og hafi
einn af fyrrverandi samstarfs-
mönnum hans, sem nú er í
haldi í París, sagt til hans.
Jean Ferrandi, er handtek-
inn var með Salan, var einnig
fluttur til sama fengelsis, og
er búizt við að mál þeirra
verði tekið fyrir, er vika er af
maí.
MISKUNNARLAUS OG
ÓHEMJU METORÐAGJARN
Þannig hefur Raoul Sa.ían
verið iýst af fyrrverandi sam-
starfsmönnum sínum.
„Na part jamis sans bisquit“
— hann fer aldrei frá borði,
nema að taka með sér bita af
kökunni, — sagði Jean de
Lattre de Tassigny, um Salan,
þegar Tassigny var yfirmaður
franska herstyrkSins í Indó-
kína. Er hann féll frá, var Sal-
an látinn taka við yfirstjórn-
inni þar, árið 1952.
Eins og margir, sem tekið
hafa þatt í andspyrnunni gegn
DeGaulle, hefur Salan dvalizt
mestan hluta ævi sinnar utan
Frakklands. Hann barðist í
nýlendum Frakka, og fylgdist
síðan með, er Fra'kkar misstu
tökin á nýlendum sinum,
vegna breyttra stjórnmálavið-
horfa, scm Salan skildi ekki.
Þekking Salans á Frakklandi
sjálfu, stjórn þess og íbúum
er takmöi'kuð, enda hefur
hann ekki haft aðstæður til
þess að fylgjast með þróun
mála heima fyrir, vegna lang-
varandi dvalar í Afríku og
Asíu.
SÉRFRÆÐINGUR Á SVIBI
LEYNIÞJÓNUSTU
Fyrst fór Salan að geta sér
orðs, uir. 1935, er hann skipu-
lagði og stjórnaði víðtæku
leyniþjónustukerfi í Austur-
löndum. Þá tók hann að reykja
ópíum og safna fágætum stein
um. Hermenn hans gáfu hon-
um nafnið „Kínverski hers-
höfðinginn", eða „Mandarín-
inn“, og hann varð þekktur
fyrir að vera slægvitur, á
austunenzka vísu.
Salan hélt sig alltaf vel og
hvert sem hann kom, vakti
hann athygli fyrir framkomu
sína. Hann hlaut margvíslega
viðurkr-nningu fyrir störf sín,
og varð síðar sá franskra
hermanna, sem bar flest heið-
ursmerki.
Hann er álitinn kurteis, en
innhvertur, og var aldrei vin-
sæll, fyrr en hann öðlaðist vin
sældir meðal stuðningsmanna
OAS, á síðasta ári. Innan hers-
ins átt.i hann fáa vini, og flest-
ir umgengust hann af varúð.
YFIRMAÐUR í ALSÍR 1957
1957 var Salan gerður yfir-
maður franska heráflans í Als-
ír, af þá verandi stjórn vinstri
manna, undir forystu Guy
Mollet. Þá var Salan talinn
vinstri maður, og naut lítilla
vinsæída meðal öfgamanna til
hægri — svo lítilla — að þeir
reyndu að myrða hann í janú-
ar, það ár, er skotið var af
rakettubyssu inn á skrifstofu
hans. Salan slapp þó ómeidd-
ur.
Er herinn í Alsír gerði upp-
reisn 1953, var Salan enn tal-
inn hlynntur stjóminni. En
talið er, að tilræðið, sem hon-
um var sýnt, hafi átt nokkurn
þátt í þvi. að hann fór að
gefa gaum að röddum þeirra,
sem vildu að Alsir yrði áfram
franskt. Svo fór, að síðla árs
1958 tók Salan að gagnrýna
opinberlega stefnu DeGaulle.
Þá var hann látinn segja af
sér starfi sínu í Alsír.
ÚTLEGÐ Á SPÁNI—
ÞÁTTTAKA I BYLTINGU
HERSINS — YFIRSTJÓRN
OAS
Salan kaus þá að fara til
Spánar og þar dvaldist hann
í útlegð. þar til í fyrra, að
herinn gerði uppreisn sína,
22. apríl.
Herahöfðingjarnir 3, sem
mestan þátt áttu í uppreisn-
inni, Maunce Challe, Andre
Zeller og Edmond Jouhaud,
höfðu ekki leitað stuðnings
Salans, er þeir gerðu uppreisn
ina. Hins vegar lagði Salan
leið sína til Alsír, er uppreisn
in hófst, og endaði sem yíir-
maður OAS. Challe og Zell-
er hafa báðir verið handtekn-
ir, og verið dæmdir til 15 ára
fengelsis Jouhaud var hand-
tekinn fyrir nokkrum vikum,
og síðan dæmdur til dauða,
og nú hefur Salan verið tek-
inn, síðastur fjórmenninganna,
sem DeGaulle hefur álitið
mestan þátt eiga í uppreisn-
inni og andspyrnunni í Alsír.
BARÁTTUNNI HALDD
ÁFRAM — GARDY TEKUR
VIÐ STJÓRNINNI
Handtaka Salans er mikið
áfall fyrir stuðningsmenn OAS
samtakanna, og samtökm -
sjálf. Það er álit þeirra, sem
til þekkja, að Salan hafi sam-
einað starfsemi samtakanna
þannig, að fáir kunni að geta
leikið það eftir honum. Vitað
er, að talsverðs skoðanamun-
ar hefur gætt innan hreyfing-
arinnar, og stangast þar eink-
um á skoðanir fyrrverandi
hermanna, og borgara úr hópi
Bvrópumanna, sem starfa inn
an vébanda hennar.
Framh. á bls. 23
RENAIJLT
er bifreiðin sem öll Evrópa hefir þekkt um
áraraðir fyrir gæði.
• Renault Dauphine er 5 manna
• Renault Dauphme er 4ra clyra og með sérstök-
um öryggislæsmgum á afturhurðum.
• Renault Dauphine er sparneytinn 5,9 1. pr.
100 km.
• Renault Dauphine er með öflugri vatnsmiðstöð.
• Renault Dauphine er ryðvarinn
• Renault Dauphine kostar aðeins 117 þúsund.
• Renault Dauphine er fyririiggjandi.
• Renault Dauphine varahlutir eru ódýrir: svo
sem frambretti kr: 552.— framhurðir kr: 1065.—
framstuðari compl. kr. 1250,—
• Renault Dauphine varahlutir eru fyrirliggjandi.
Columbus h.f.
Brautarholti 20 — Símar 22116 — 22118
26 ÍBÚDIR
33 BIFREIDAR
1141 HÚSBÚNADUR
Heildarverðmæti vinninga kr. 18.720.000.oo
(60% af veltu)
Vinningar skattfrjálsir
Söluverð miðans kr. 40.00
Endurnýjunarverð kr. 40.00
Ársmiðinn kr. 480.00
Dregið 3. dag hvers mánaðar, nema janúar, þá 8«
Endurnýjun hefst 18. hvers mánaðar og stendur
til mánaðarmóta.
(jWvÁxíl/ e>v íy