Alþýðublaðið - 16.12.1929, Blaðsíða 3
*L!>Y01fB&A»m
8
Sjómannafélag Reykjavikur.
Fundur
í kvöld kl. 8 í Iðnó uppi. •— Aðalumræðuefni: Línubátakjðrin.
STJÓRNIN.
HII
lí
ISOkassar
af kafttbrauðl gefins.
M Sá, sem kaupir fyrir 15 kr. fær 4 pd, kökukassa gefins
10 2 -r- _ —
5 — — 1 _ — __
||| AV. Til að kynna yður verð á nokkrum tegundum skal
§§j fátt eitt talið, svo sem: Smjörlíki á 85 au. 1/2 kg. Palmin
§§ á 90 au. 1/2 kg. Egg til bökunar á 18 au. Egg til suðu á
§§ 25 au. Sultutau frá 85 au. krukkan og alt til bökunar
= með bæjarins lægsta verði. Epli, ný, á áð eins 75 au. 1/2 kg.
Fjölbreytni og vörugæði eru viðurkend.
Gerið kaup yðar í tíma, 'því búðin er lítil.
M Komið beint í nýlenduvörudeildina.
= Verzlun
I Bamboto, Langavegi 45.
= Sími 332.
HJallabMin..
llll
Heiðroðo oiðskiftavinir!
Gerið svo vel og sendið
sem fyrst pantanir yðar
á öli til jólanna, svo hægt
verði að afgreiða pær í
tæka tíð.
Ölgerðin Egill Skailagrímsson,
Frakkastíg 14.
Simar: 390 og 1390.
Hveitl, i smápokum og lausri
vigt.
Ásgrímur sé af mörgum talinn
meðal beztu landslagsmálara á
Norðurlöndum. Nú er það auð-
vitað, að ekki getið ‘þér frekar
vitað, hvað ég kunni ekki að vita,
helduT en ég get vitað hvað þér
kunnið að vera fádæma fáfróður
— eða margfróður, en ég skal
játa, að ég hefi aldrei heyrt það
af munni neins, sem getur talað
eins og sá, sem vald hefir.
Sama er að segja um konur
þær, er þér nefnið, og Eggert
Laxdal. Þér segið að Kristín hafi
málað „Stilliben", og er það satt.
Auðvitað eru það ekki landslög,
en i eðli sínu mjög svipuð þeim,
geta sýnt listræni málarans, en
ekki andagift. Um blómamyndir
er alveg sama að segja, þær geta
sýnt listræni, litasmekk og form-
festu o. fl., en andagift ekki.
Þegar þér falið að telja upp við-
fangsefni Jóns Stefánsso'nar, þá
teljið þér hann ásamt öðru fleiru
hafa málað landslagsmyndir,
bæja, hafna, háfjalla, sléttna og
skýjamyndir. En því sundurliðið
þér þetta svona? Þetta er, eins
og 'þér vitið alveg eins vel og
ég, einu heiti kallað landslags-
myndir. Það verður ekki hrakið,
að Jón er landslagsmálari.
(Frh.)
Guðbr. Jónsson.
Færeyjapfstfll.
(Frá íslenzkum sjómanni.)
Alþýðufræðsla er á góðu stigi
i Færeyjum, þegar litið er á ýms-
ar ástæður eyjabúa. Börn eru
skólaskyld 8—14 ára. Skólatim-
inn er 10—11 mánuðir árlega.
Er það talsvert langur skólatími
og vafasamt hvort betra er að
láta börn stunda 11 mánaða nám
eða 7—8, eins og hér mun tíðk-
ast viða i kauptúnum. Leikfimi
er eigi kend þar alment við skól-
ana og sömuleiðis var mér tjáð,
að söngkensla í barnaskólum
væri ekki almenn. Víða eru skóla-
fcennarar danskir, a. m. k. yfir-
kennaramir, en hinir færeyskir.
Prestar eru þar flestir danskir og
fara allar messur fram á dönsku,
Virtist mér sem flestir, er ég
kyntist, létu sér það vel líka og
sögðu mér jafnvel sumir, að þeir
myndu ekki láta sér betur líka,
þótt messað væri á færeysku.
Guðræknir eru Færeyingar mjög
og virtist mér þeir trúa nokkuð
bókstaflega „skriftinni“, eins og
jþeir kalla biblíuna. Hafa sjómenn
flestir bibliur eða nýja testament-
Ið með sér á skúturna'r og ýms-
BT guðsorðabækur að auki. Eigi
íiska þeir á helgum dögum og
fcalda hvíldardaginn vel heilagan
heima. Kirkjur þeirra hafa verið
smáar og lélegar, en nú er óð-
um verið að koma upp nýjum
kirkjum. Er fyrir nokkru bygð
stór og falleg kirkja í Trangis-
vaag og stór kirkja og fögur
var bygð í vot( í Vaag. Eru þeir
Vogar báðir í Suðurey. í Kirkju-
bæ, þar sem Joannes Paturson
býr, er gömul kirkja, nýlega upp-
bygð, nefnd Ólafskirkja, kend við
Óláf helga. Minnir mig, að Pat-'
urson segði mér, að kirkjan sjálf
væri 600—800 ára gömul. Var
gat á veggnum rétt við predik-
unarstólinn, og er sagt, að til
forna hafi líkþráir menn verið
látnir standa úti og hlýða messu
gegnum þetta op á veggnum. Þar
á Kirkjubæ er kirkjutóft, kölluð
á færeysku „kirkjumúrurinn".
Mun hún vera 600 ára gömul,
Var hún nefnd Magnúsarkirkja
og var dómkirkja Færeyinga um
langt skeið. í kirkjutóftinni er
innmúraður steinn, holur innan.
Eru geymdir í honum þrír helgi-
dómar, meðal annars, að því er
sumir trúa, hluti úr serk Maríu
meyjar.
1 Kirkjubæ var prestaskóli til
forna. Stendur húsið enn þá og
er möTg hundruð ára gamalt. Á
ofanverðri 18. öld kom snjóflóð
og braut hluta úr byggingunnL
Hefir Paturson bygt þetta alt upp
og haldið öllu við með líku sniði
og áður var. Undir byggingunni
er upphlaðinn kjallari. í einum
hluta hans er klefi, mjög óvist-
legur og gluggalaus. Var hann
áður fyrr hafður fyrir fangaklefa.
Var mér sagt, að fyrir nokkru
hefði klefinn verið mokaður upp
og hefðu þá fundist þar manna-
bein. Uppi yfir hinni fomu skóla-
stofu er nú skrifstofa Patursons
og var það biskupsstofa til foma.
Er hún enn, að því er virðist,
með sama sniði og fyrr á tímum.
Hefir Paturson sýnt réttan skiln-
ing á að geyma þetta fqrna setur
sem bezt og halda hinum forna
stíl sem bezt við, þó lagfært sé
að nýju.
Sjúkrahús hafa þegar verið
reist nokkuð víða um eyjarnar.
Stærst er „Dronning Alexand-
rine“-spítalinn í Þórshöfn. Enn
fremur er berklaveikrahæli rétt
utanvert við Þórshöfn. Hafa Dan-
ir styrkt ríflega þessar stofnanir
í orði og á borði.
Berklaveiki er talsvert útbreidd
um eyjarnar. Er mér sagt, að
hún færist í vöxt. Almennar
sjúkTatryggingar eru þar og
borga t. d. hjón víst gjald á ári,
hvort sem þau eiga mörg börn
eða fá, og eru börnin styrkt, ef
þau veikjast innan 16 ára ald-
urs. Borga sjúkrasamlögin
íslenzkt smjör, Borgarfjarðar.
Hangikjöt, verulega gott,
Saltkjöt.
Rullupylsur.
Akraneskartöflur i sekkjum og
smávigt,
Gulrófur.
Riklingur.
Súr hvalur.
Nýorpin egg.
Ger.
Dropar og allskonar krydd til
bökunar. alt frá Efnagerð
Reykjavíkur.
Ávextir. nýir og niðursoðnir.
Súkkulaði og margskonar sael-
gætisvörur.
Þnrkaðir ávexir.
Barnaleikföng. Jólatrésskrant. Búsáhöld.
Vindlar í laglegnm nmbúðum. Vindlingar.
SpM — Kerti.
Molasykur 32 7a kg. — Kandís 35 x/a kg.
Siðast: Strausyknr á 25 aura V2 kg.
Theodór N. Sigurgeirsson,
Simi: 951. Nönnugötu 5. Sími: 951.