Morgunblaðið - 13.05.1962, Qupperneq 20
20
MORCUNBLAÐ1Ð
Sunnudagur 13. maí 1962
GEORG'E ALBERT CLAY;
INA
Saga samvizkulausrar konu
------- 60-------
Hefðirðu það? spurði hann,
hissa. Hvernig það?
Aif því að þú ert maðurinn
minn. Aðra ástæðu þarf ég ekki
Kannske Gina hafi verið sama
sinnis.
Þetita hafði verið fyrir tveim-
ur mánuðum, tveimur löngum,
þreytandi mánuðum og enn einu
sinni fann hún sig vera í nútíð-
inni, flækta inn í endurminning-
amar um það, sem hún hafði séð
kvöldinu áður.
Hún svaf í einu framherberg-
inu í kjallaranum. og fór þaðan
sem allra minnst og helzt ekki
nema þegar Don Diego maeltist
til þess, að hún hjálpaði Lolytu
við eitthvert verk. Hún kveið
mest fyrir ef hún þyrfti að hitta
einhverja japönsku foringjana,
sem hún hafði þekkt, því að þeir
máttu ekki vita, hvernig komið
var fyrir henni, en raunveru-
lega var það þó óttinn, sem hélt
henni innilokaðri í herfoerginu
— óttinn við skæruliðana. Kato
hafði sagt hennii, að þeir vissu
alls ekki um hennar þátt í dauða
unga Diegos, en hún þóttist vita
betur. Hvarf svartsteins-
hringsins hafði sagt hennj það.
Einhverntíma hlutu þeir að
koma og sækja hana. Henni
þótti vænt um þessa fjóra veggi
í litla herberginu.
Hús Sffredos, þama við hlið-
ina var enn höfuðstöðvar leyni-
lögreglunnar, en margir foringj
amir og nokkrir dátar höfðust
við í húsi de Aviles. Þeir höfðu
lagt undir sig báðar hæðimar og
fjölskyldan varð að halda sig í
kjallaranum. Hann hafði sótt um
það hvað eftir annað, að fjöl-
skylda hans þyrfti ekkí að búa
í lögreglustöð en alltaí fengið
neitun, og það gat hann ekki
skilið, c.í Gina vissi mætavel, að
það var eingöngu til þess gert
að geta haft Don Diego undir
stöðugu eftirliti.
Hún gat séð út um háa glugg-
ann með því að standa upp á
stól, og horfði svo á foringjana,
tímunum saman, er þeir komu
og fóru. Stundum geymdu þeir
þama fanga, þegar hitt húsið
var fullt og það horfði hún á
líka.
Kvöldið áður hafði hún heyrt
óp og hlátra, löngu eftir að hún
var farin í rúmið, og hafði þá
dregið stólinn út að glugganum.
Rétt í því, að hún gat séð út
um gluggann, voru þeir að binda
fanga við eina tréð, sem þama
var úti fyrir. Þeir létu ljósin á
bilnum skína á hann, svo að hún
sá allt sem fram fór. Fanginn
hafði verið flettur öllum klæðum
og æpti af kvölum og Gina
fannst hún vera að horfa á með-
ferðina á unga Diego. Loksins
skreið hún aftur í rúm sitt, yfir-
komin af hryllingi.
Don Diego og Lolyta sátu þeg-
ar við morgunverðarborðið þeg-
ar hún kom inn til þeirra. Þau
voru að borða einhvern ólysti-
legan graut úr úrgangsrísi og
frú Lolyta vildi ekki segja henni,
úr hverju hún hefði búið til
svarta brauðið, sem þarna var
einndg á borðum. Þau drukku
foeitt vatn, því að hvorki var til
te eða kaffi. Þau voru alveg
ætt við rótina, sem þau höfðu
notað í kaffi stað, því að sumum
hafði orðið illt af henni.
Luisa er veik, mjög veik, sagði
Lolyta, og þetta var einmitt dag-
urinn, sem hún ætlaði með Diego
út á búgarðinn eftir kálmeti.
Gina hafði búizt við, að henni
yrði það erfitt að búa undir sama
þaki og Luisa, en sú hafði ekki
orðið raunin á. Þær töluðu lítið
saman, af því að þær höfðu lítið
um að tala, og Tim var aldrei
nefndur á nafn, því að enginn
vissi hvar hann var. Þær voru
sjaldan saman, af því að Gina
hélt sig mest inni í herberginu
sínu en Luisa var jafnan önnum
kafin og virtist helzt geta verið
allsstaðar í senn.
Henni hlýtur að batna bráð-
lega, sagði Don Diego. í dag verð
um við að fara.
Hversvegna ekki á morgun
eða hinn daginn spurði Gina.
Ég er bundinn við daginn í
dag, svaraði hann, og ég get ekki
farið einn. Luisa verður að fara.
Luisa má alls ekki fara á fæt-
ur, sagði Lolyta. Hún reyndi að
fara fram úr, en hún getur alls
ekki staðið á fótunum. Ég skal
fara með þér.
Don Diego leit á konu sína.
Þetta er alltof þreytandi ferða-
lag fyrir þig, og svo máttu ekki
fara frá sjúklingunum.
Ginu varð hugsað til heils
dags út í sveit — langt burtu frá
allri innilokuninni þarna í hús-
inu. Kannske ég gæti farið?
sagði hún.
Hjónin litu snöggt hvort á ann
að, eins og manneskjur, sem
verða að ákvarða sig fljótt.
Ég vil gjarna fara, sagði Gina
og bar ótt á. Ég hef ekki komið
út úr húsinu í tvo mánuði, og
mig langar að koma út, þó ekki
sé nema í einn dag. 1 gærkvöldi
horfði ég á þegar þeir voru að
pynda mann og .... Hún hefði
viljað segja meira, en gat ekki
komið upp orðunum.
Ég er búin að læra að líta í
hina áttina, Gina, sagði Lolyta
rólega. Það verður þú líka að
læra. Þú þarft ýmislegt að læra
núna, þegar þú átt ekki lengur
heima uppi á fjallstindi þar sem
þú getur ekkert ógeðslegt séð.
Hún sneri sér að manni sínum.
Ég held, að Gina gæti farið með
þér.
Það er of snemmt. Kannske
seinna, en ekki ennþá. Ég veit
ekki nema það væri ofmikil á-
hætta.
Það er enginn annar, sem get-
ur farið, sagði hún, en þú ættir
samt að tala við hana fyrst.
Hann fór með Ginu inn í lítinn
klefa þarna í kjallaranum, lokaði
dyrunum og sagði síðan við
hana: Þú veizt, að sumir okkar
berj ast enn við Japanana?
Já, þeir berjast auðvitað, en
sumir okkar hinna berjast líka
þótt öðruvísi sé. Vildir þú hjálpa
okkur? Vildir þú ganga í lið
með okkur?
Þeir mundu ekki þiggja mina
hjálp, sagði hún dræmt. Þú gleym
ir aðmírálnum og unga Diego
Hann var tekinn heima hjá mér.
Það var ekki þér að kenna, að
hann var tekinn, sagði gamli
maðurinn. Hann var að reyna að
ná sambandi við þig og mistókst
það. Hann vissd hvaða hættu
hann lagði í og var fús til þess
Gina skildi, að nú vax henni
óhætt. Hún þurfti ekki lengur
að óttast hefnd fjallamannanna.
Hún hafði engu að tapa en allt
að vinna. Hvernig get ég hjálp-
að? spurði hún.
Menn og konur safna ýmsum
smávægilegum upplýsingum um
alla borgina, sagði hann henni.
Sumir eiga heima við höfnina,
aðrir uppi á hæðunum og enn
aðrir við sölutorgin. Allt er svo
skrifað upp enda þótt það kann-
ske virðist fánýtt. Og hvert smá-
atriði kann að vera þýðingar-
laust, en þegar þau koma öll sam
SHUtvarpiö
Sunnudagur 13. mai
8:30 Létt lög. — 9:00 Fréttir.
9:10 Morguntónleikar: —* 10:10 Veð«
urfregnir).
a) Andrés Ségovia leikur á gít
ar tónverk eftir Rameau,
Castelnuovo-Tedeseo, Tans-
man og Albeniz.
b) Gérard Souzay syngur lög eft
ir Chausson; Jacqueline
Bonneau leikur undir á píanó.
c) „Gæsamamma", svíta eftir
Ravel (Sinfóníuhljómsveitin í
Betroit leikur; Jaul Paray
stjórnar).
d) Fiðlukonsert í D-dúr op. 35
eftir Tjaikovsky (Zino Frances
catti og Fílharmoníska sin-
fóníuhljómsveitin í New
York leika; Dimitri Mitropo-
ulos stjórnar).
11:00 Messa í Dómkirkjunni (Prestur:
Séra Óskar J. Þorláksson. —-
Organleikari: Dr. Páll ísólfsson).
12:15 Hádegisútvarp.
13:05 Erindi: Brezki fornleifafræðing
urinn og listfræðingurinn Willi-
am Gershon Collingwood og ís-
landsför hans sumarið 1897 —
(Haraldur Hannesson hagfræð-
ingur).
14:00 Miðdegistónleikar: Útdráttur úr
óperunni „Ævintýri Hoffmanns**
eftir Offenbach (Raoul Jobin,
Renée Doria, André Pernet,
Vina Bovy o.fl. syngja með kór
og hljómsveit Opera Comiqua
í París; André Cluytens stjórn-
ar. — t»orsteinn Hannesson kyna
ir).
15:30 Kaffitíminn:
a) Carl Billich leikur á píanó.
b) „Sumarleyfi í Alpafjöllum‘*J
Söngur og hljóðfæraleikur.
16:30 Veðurfregnir. — Endurtekið
efni: Árni Kristjánsson flytur
þýddan bókarkafla um Mozart
eftir Carl Nielsen og bregður
upp tóndæmum (Áður útv. sem
morgunhugleiðingum f marz).
17:30 Barnatími (Skeggi Ásbjarnar-
son):
a) Sólveig Guðmundsdóttir les
sögu: „Níels" eftir Fallc
Rönne.
b) Síðari hluti leikritslns
„Strokubörnin" eftir Hug-
rúnu (Áður útv. í fyrra). —
Leikstjóri: Ævar R. Kvaran,
16:30 ,,Til himins klukkur hljóma">
Gömlu lögin sungin og leikin.
19 K)0 Tilkynningar. 19:20 Veðurfr.
19:30 Fréttir.
20:00 „Sonur keisarans", óperettulög
eftir Lehár (Sonja Schoner.
Henz Hoppe og Giinther Arndt
kórinn syngja með hljómsveit
Borgaróperunnar í Berlín.;
Hansgeorg Otto stjórnar).
20:15 l>ví gleymi ég aldrei: Á vorferða
lagi um Hólsfjöll — frásaga —
Stefáns- Ásbjarnarsonar á Guð
mundarstöðum í Vopnafirði —^
(Andrés Björnsson flytur).
20:40 íslenzkir kvöldtónleikar:
a) Píanólög eftir Pál ísólfsson
(Gísli Magnússon leikur).
b) „Fornmannsvísur" eftir Sig-
urð Þórðarson (Sigurveig
Hjaltested, Guðmundur Guð
jónsson, Guðmundur Jóns-
son og Karlakór Reykjavídc
ur syngja; höf. stj.
c) Svíta 1 rímnastíl nr. 1 fyrir
fiðlu og hljómsveit eftir
Sigursvein D. Kristinsson
(Ingvar Jónasson og Sinfóníu
hljómsveit íslands flytja. —•
Jindrich Rohan stjórnar).
2i :20 Skáldið á Tjörn, — dagskrá um
Ögmund Sívertsen, saman tekin
af Aðalgeir Kristjánssyni bóka-
verði.
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Danslög — 23:30 Dagskrárlok.
Mánudagur 14. maf.
8:00 Morgunútvarp (Bæn: Séra Jón
Guðnason — 8:05 Morgunleik-
fimi: Valdimar Örnólfsson stj.
og Magnús Pétursson leikur und
ir. — 8:15 Tónleikar — 8:30
Fréttir — 8:35 Tónleikar — 10:10
Veðurfregnir).
12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar —•
12:25 Fréttir og tilkynningar).
13:15 Búnaðarþáttur: Agnar Guðna-
son ráðunautur talar urn illgrea
iseyðingu.
13:30 „Við vinnuna": Tónleikar.
15:00 Síðdegisútvarp (Fróttir og tök.
f—. Tónleikar — 16:30 Veðurfr,
— Tónleikar — 17:00 Fréttir
Tónleikar).
18:30 Lög úr kvikmyndum — 18:50
Tilkynningar — 19:20 Veðurfr,
19:30 Fréttir.
20:00 Daglegt mál (Bjarni Einarsson
cand. mag.).
20:05 Um daginn og veginn (Sverrir
Hermannsson viðskiptafræðing-
ur).
20:25 Einsöngur: Nanna Egilsdóttir
Björnsson syngur; Fritz Weiss-
happel við píanóið.
a.) Þrjú lög eftir Sigvalda Kalda
lóns: „Samtal fuglanna", —»
„í Svanahlíð" og „3>ú ent
eina hjartans yndið mitt“.
b) .-.Vögguvísa" eftir Pál í«-
ólfsson.
c) I»rjú lög eftir Richard
Strauss: „Du meines Herzens
Krönelein", „Die Nacht" og
„Die Georgine".
20:45 Leikhúspistill: Jean Vllar og A1
þýðuleikhúsið franska (Sveina
Einarsson fil. kand.).
21:05 Tónleikar: Píanókonsert nr. 2 f
A-dúr eftir Liszt (Samsoa
Francois og hljómsveitin Phil-
harmonia í Lundúnum leika;
Constantin Silvestri stjórnar).
21:30 Útvarpssagan „Þeir" eftir Thor
Vilhjálmsson; I. (Þorsteinn Ö.
Stephensen).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Hiljómplötusafnið (Gunnar Guð-
mundsson).
23:00 Dagskrárlok,
— Já, frú. Ég skal reyna hvað ég get til að koma þeim í
rúmið klukkan á.tta.
Bátur til sölu
M.b. Unnur HÚ 3, 11 smálestir af stærð, með 80 ha.
Penta dieselvél. Smíðaður í Hafnarfirði 1960. í bátnum
er dýptarmælir, gúmmíbjörgunarbátur Og talstöð. —
Talsvert af veiðarfærum getur fylgt. Bátur og vél í
góðu standi. Mjög hagstæð kjör. — Allar nánari uppl.
veitir.
FASTEIGNASALA
Áka lakobssonar og Kristjáns r.iríkssonar
Sölum.: Ólafur Ásgeirsson
Laugavegi 27 — Sími 14226.
r' +
ODYRT ODYRT
TELPIJKAPtR
2ja—14 ára. — Verð kr. 180,—, 210.—, 250,—, 290,—
MMMWMSMEÍ9
Smásaia — Laugavegi 81
X- XX-
GEISLI GEIMFARI
X- X >f
— Þú sérð það Lára, að ég hafði
á réttu að standa. Ég vissi að þeir
kæmu hingað í geimskipafélagið ....
og um þetta leyti. — Legðu frá þér
byssuna, Vandal! Þetta hjálpar þér
ekki .....
— Áttu við að gefast upp? Og
tapa fimm milljónunum, sem við
fengum fyrir durabilium? Kemur
ekki til mála, Geisli! Við Láraverð-
um að hugsa um okkur sjálf........
Og það þýðir að þið verðið að deyja!