Morgunblaðið - 13.05.1962, Side 23

Morgunblaðið - 13.05.1962, Side 23
Sunnudagur 13. maí 1962 MORGVNBLAÐIÐ £3 - Jakob Kristinsson Frh. af bls. 8. vel að lifa eftir göfugum kenningum og samkvæmt eig- in predikunum, hvað þá bet- ur. Sjálfsaginn er furðuleg- ur og viljastyrkurinn frábær. Mannvit og þekking hafa þar öruggt taumhald á hverri þrá og hneigð líkama og huga, og sveigja mikið skap og heitartil- finningar til þjónustu við fagra lífsskoðun og einlæga trú. Jakob Kristinsson ber aldur sinn ágætlega, hann er ennþá léttur á fæti og kvikur í hreyf- ingum, lundin hlý og glöð, áhug inn á menningar- og trúmál- um sami og áður, og hugurinn opinn fyrir umhverfinu. En heyrnarleysið er þar slæmur þrándur í götu. Hefði það og nokkur líkamleg vanheilsa ekki lamað þrekið, mundi hann enn fær til mikilla starfa. En ég aetla, að heilsa Jakobs hafi aldrei verið sterk, og líkamleg hreysti hefur ekki skipað hon- um á bekk afurða manna, held- ur andlegir yfirburðir hans. Ég hygg, að afmælisbarnið áttræða sé barn mikillar ham- ingju, ekki einungis vegna frá- bærra vöggugjafa, heldurmiklu fremur vegna þess að það hef- ur borið giftu til að þroska þær sjálfum sér og þjóðinni til gagns og gæfu. Hann hefur átt ágæt heimili og frábæra lífs- förunauta, ástríkar eiginkonur, sem hafa stutt hann til mikilla starfa og nauðsynlegrar hvíld- ar. Fyrri konu sína, HelguJóns dóttur, missti hann eftir þung- bær veikindi árið 1940, en seinni kona hans, Ingibjörg Tryggva- dóttir, hefur skapað honum sér- staklega gott og fagurt heimili, friðsælan bvíldarstað efri ára, og þaðan hygg ég, að hann — sáttur við fortíðina — horfi nú ókvíðinn fram til komandi tíma. Það er ekki ætlun mín að rekja hér hinn fjölþætta starfs- feril Jakobs Kristinssonar á sviði menningar og trúmála, eða æfiatriði hans. Það munu aðrir gera mér færari. En ég vildi aðeins — við þessi merku tíma- mót í æfi hans — rifja upp nokkur persónuleg kynni mín af honum — og taka fram myndir sem frásögn annarra og eigin reynsla hefur mótað í huga mínum. Ég þakka þér, Jakob Kristins- son fyrir öll okkar kynni. Sam- vistin við þig minnir mig á þjóð sögur um skyggna menn, sem tóku óskyggnt fólk undir hönd sér, og sá það þá með þeirra sjónum fjöllin opnast og dýrð- lega byggð huldra vætta. Undir hönd þinni sáu og sjá enn hin- ir mörgu aðdáendur orðsnilldar þinnar, ekki einungis björgin opnast, heldur líka að mann- heimar eru fögur byggð, sem hverjum einum ber að bæta og fegra — og að engin ástæða sé til að efast um að það takist, almættið kærleiksríka sér um það — tíminn skipti þar engu jnáli. Bið ég nú blaðið á þessum merkisdegi að flytja þér Jakob, og frú Ingibjörgu konu þinni, innilegar óskir mínar og míns fólks um fagrar og góðar stund- ir. — Rifjast nú aftur upp fyrir mér fyrstu kynnin af þér, mynd in sem vegfarendur drógu upp í frásögn sinni, er ég vann að vegagerð á unglingsaldri á Þverárbökkum, áður en þeir þeystu austur sléttlendið móti „silfurbláum Eyjafjallatindi, sem jgnæfði hátt yfir sveit og sval- aði björtu höfði £ himinblámans fagurtærri lind, glæstur gull- rauðum loga síðdegis sólar*‘. Þessi mánaðardagur, 13. maf, hefur orðið þjóðinni mikill •uðnudagur. Hann hefir fært þessari kynslóð tvo fyrrverandi fræðslumálastjóra, brautryðjend ur og frábæra leiðtoga á sviði pkóla- og menningarmála, þá Ásgeir Ásgeirsson, núverandi for Beta íslands og sr. Jakob Krist- insson. Skyldi hann eiga eftir að færa þjóðinni þriðja leiðtog- ann? Bjarni M. Jónsson. Útboð Tilboð óskast í að tryggja og fullgera, Haimraíhlíðar- skóla, 3. áfanga, hér í borg. — Útboðslýsingar og upp- drátta má vitja í skrifstofu vora, Tjarnargötu 12, IH. hæð, gegn 1000,00 króna skilatryggingu. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar IJppháir strigaskór Stærðir 27—35. — Vöggu- Og unglinga og fullörðins sængurver. — Dömu- og telpnahanzkar. Verzlunin Miðhús Vesturgötu 15 Einbýlishús til sölu við Heiðagerði. — Á 1. hæð eru 2 saml. stofur, eldlhús Og W. C. á Ii. hæð 4 herb. og bað. Geymsluris. Stór bílskúr, girt ræktuð lóð. FASTEINGA- og LÖGFRÆBISTOFAN Tjarnargötu 10 — Sími 19729 Jóh. Steinason. sími heima 10211 Har. Gunnlaugsson, sími heima 18536 Reglusamur maður sem unnið hefur við mafreiðslu í mörg ár, óskar eftir einhverskonar atvinnu. — Upplýsmgar r síma 19427, eftir kl. 5 næstu daga. Til sölu 4 olíufýringar með öllu tillheyrandi til húshitunar. Upplýsingar í Húsgagnavinnustofu Þorsteins Sigurðs- sonar, Grettisgötu 13, simi 14099. Saumastúlkur óskast KLÆÐAVERZLUN ANDRÉSAR ANDRÉSSONAR Chevrolet vörubiifreið — 4% tonn — Smíðaár 1955, er til sölu. Bifreiðin verður til sýnis frá kl. 8—10 ejh. mánudag- inn 14. maí á bílasíæðinu við Vesturgötu 2 (Tryggva- götu-megin). IXiathan & Olsen hf. DÖMUDEILD Austurstræti 14 — Sími 14260 Nýkomið mikið úrval a£ töskum Nýjustu gcrðir Nýjustu litir Póstsendum um allt land Velkomin til Reykjavíkur Ferðafólk — Skólafólk Fcrðahópar — Pantið í tíma í síma 10-3-12. FÍ.JÓTT OG ÓDÝRT S J ÁLFSAFGREIÐSLA ★ Siikkulaði m/Rjóma Milk Shake-ís Ö1 — Gos Kaffi — Te ★ Heimabakað kaffibrauð ★ Smurt brauð ★ Fjölbreyttur heitur matur l\latstofa Austurbæjar Laugavegi 116 — Simi 10312 — Laugavegi 116. r 10.—24. júní 18.62 Kaupstefna fimm heimsálfa. Ákjósanlegasti staður fyrir viðskipti austurs og vesturu. — Almenn vörusýning. Stærð sýningarsvæðis 230.000 ferrn. 18 höllum Og 110 sýningarskálum. Niðursett fargjöld- túlkar- upplýsingar um viðskipta- sambönd- tækni- upplýsingar- blaðaauglýsingar. Þátttaka árið 1961: 57 lönd, 36 samsýningar. Erlend þátt taka á 56% af öllu sýningarsvæðinu. Tala gesta var 450.000 frá 66 löndum. Tækni-ráðstefnur - alþjóðlegur kliibbur - veitingasalir. Gjörið svo vel og biðjið um frekari upplýsingar frá: Board of P. 1. F. Ponzaii, Glogowska 14. Pólland. Aðal tízkulitirnir MARKABURINN Hafnarstræti 11 CAFETERIA OPIÐ 7—11.30 HRAÐI-GÆÐI .ÞÆGINDI ATH.: EKKERT ÞJONL’STUGJALD

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.