Morgunblaðið - 29.09.1962, Síða 15

Morgunblaðið - 29.09.1962, Síða 15
Laugardagur 29. sept. 1962 Mnnnrvnrjfíifí 15 r» I Fallhlífur Eftir Lynn Poole, Xhe Johns Hopkins University. ÞBGAR John Glenn kom svíf- andi aftur inn í gufuhvolfið í geimfarinu sínu eftir þrjár hrinigferðir umhverfis hnött- inn, var það rneðal annars eitt af elztu tækjum flugtækn- innar, sem notað var til þess að minníka hraða hans og draiga úr fallinu, þeigar hann lenti í sjónum. Það var fall- hlíf. Nú eru fallhlífar örugg og góð tæki. Þær hafa bjangað lífi ótal flugmanna. Þær eru ómissandi í nútíma- hernaði og loks hafa þær jafn vel skapað nýja og skemmti- iega íþróttagrein — loftdýfing ar. Þetta hefur þó ekiki ætíð verið svo. Þannig var það t.d. í fyrri heimsstyrjölddnni, að flugmenn bandamanna notuðu ekki fallhlífar, því að þær voru taldar of hættulegar. Þó voru skoðanir þá mjöig skipt- ar um nytsemi fallhlífanna fyrir flugmenn. Hættan við notkun fallhlífa var aðallega í því fóligin, að fyrst í stað voru þær notaðar þannig, að flugmennirnir urðu að skríða út á flugvéla- bolinn eða vænginn. Síðan áttu þeir að kippa í fallhlífar strenginn og við rykkinn, sem varð, þegar fallhlífin opnað- ist lyftist hann upp af flug- vélinni. Augljóst er, að hætta hefur verið á því, að snúrur fallhlífarinnar flæktust í flug vélinni. Þegar leið að stríðslokuim, voru þýzkir flugmenn farnir að nota fallhlífar með góðum árangri. Síðustu tvær vi'kur stríðsins skaut sóknarsveit ameríska flughersins niður 11 þýzkar flugvélar — oig flug- mennirnir komust allir lífs af með því að stökkva út úr flugvélunum í fallhlíf. Banda menn voru aftur á móti enn að bræða með sér, hvort heppi legt mundi vera að nota fall- hlífar, þegar vopnahlésdagur- inn rann upp. Allir þeir, sem séð hafa garnlar stríðsmyndir, þekkja sætafallhlífarnar, ' sem farið var að nota í Bandaríkjunum 1919. Um svipað leyti fór það að tíð'kast að flugmennirnir stukku út úr flugvélunum og kipptu síðan í strenginn, þeg- ar þeir voru lausir við flug- vélina. Þetta dió nokkuð úr hættunni af því, að fallhlífar- strengirnir festust í flugvél- inni. Einn galli við notkun fall- hlífa kom fram á fyrstu dög- um farþegaflugs. Sum flug- félög hikuðu við að leyfa flug mönnum, sínum að nota fall- hlífar, því að komið hafði fyrir, að þeir stufcku út úr flugvélunum, jafnskjótt 'og þeir lentu í vondu veðri. En með tímanum breyttist þetta. Þó að fallhlífar séu nú ein- göngu notaðar í sambandi við flug, eru þær í raun og veru eldri en flugvélar. Minnis- bækur Leonardos da Vinci sýna, að hann glímdi við að finna aðferð til þess að stýra falli — en ekki hefur verið hægt að komast að því, hve- nær og hvar fyrsta fallhlífar- stökk heppnaðist. Sagt er, að 1783 hafi fransk ur uppfinningamaður, Louis Sebastien Lenormand, tekizt að stökkva í fallhlíf úr háum turni á ónafngreindum stað í Frakklandi. Landa hans, And ré Garnerin að nafni, er þó yfirleitt gefinn heiðurinn af fyrsta fallhlífarstökkinu. Það var árið 179^ þegar hann' stökk úr loftbelg. Meira en öld leið, áður en fyrstu flugvélarnar hófu sig á loft, og það var ekki fyrr en 1912, að Bandaríkjamaðurinn Albert Berry stökk fyrstur manna úr fallhlíf frá flugvél yfir borginni St. Louis. Þau 50 ár, sem liðin eru síðan Berry þessum heppnað- ist þetta sögulega stökk, hefur fallhlífin reynzt okkur af- burða vel, og á síðustu árum hafa orðið miklar endurbæt- ur á þeim samhliða framför- um á öðrum sviðum flugtækn- innar. H aínarfjörður Stúlka óskast í verzlun hálfan daginn. Einar Þórðarson & Co. VT 4LFLUTNINGSSTOFA Aðalstræti 6, III hæð. Einar B. Guðmundsson Guðlaugur Þorláksson Guðmundur Péturrsun Stúlka óskast í sælgætisgerð. — Upplýsingar að Hverfis- götu 78 í dag kl. S — 3. ............. Lakkrísgerðin KRUMMI skar tgripa ver zlun. Siglingafræði STÝRIMENN OG SKIPSTJÓRAEFNI. Eins og að undanförnu tek ég nemendur til kennslu í siglingafræði á hausti komanda ef næg þátttaka fæst. Þeir sem leggja áherzlu á góða kennslu tali við mig strax. Upplýsingar í síma 37697 eftir kl. 20. 5—6 herb. hæð eða einbýlishús óskast til leigu í minnst tvö ár, helzt í Austurbænum. Fyrirframgreiðsla. Tilboð merkt: „Tvö ár — 3430“ sendist Mbl. Cetebe Cefebe Orðsending frá ísienzk-erienda 2 pólskir verzlunarmenn frá fa. Cetebe, Lodz, herra Bednarek og herra Kaczorski eru staddir hér og verða til viðtals á skrifstofum vorum næstu viku. Þeir eru með ný tilboð og sýnishorn af margskonar tilbúnum fatnaði. * Islenzk-erlenda Verzlunarfélagið h.f. Tjarnargötu 18 — Símar 20400 og 15333.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.