Morgunblaðið - 29.09.1962, Qupperneq 22
22
Laugar'dagur 29. sept. 1962
ÞÓRÓLFUR BECK stóð á flugr-
vellinum í Glasgow á þriðjudag
inn er Helgi Daníelsson kom
þangað til að athuga möguleika
á því að feta í fótspor Þórólfs
sem atvinnumaður í knatt-
spymu. Það urðu góðir vina-
fundir qg síðan tóku forsvars-
menn Motlierwell við Helga, en
Helgi er gestur þeirra í tvær
vikur, eins og kunnugt er.
Fréttamaður Mb'.. í Glasgmv
srieri sér i gær til Mofcherweil
og spurði frétta af Helga. BobDy
Anoheil framkvæmdastjóri Moth
erwell varð fyrir svörum og
sagði:
„Helgi hefur æft með liðs
mönnum okkar frá því hann
kom hingað. Við fyrstu sýn
íízt mér vel á hann, en end-
anlegan dóm getur maður
■ ekki fellt um leikmann fyrr
en hann hefur tekið þátt í
? eintim til tveimur „alvöru“-
leikjum. Hann á^r.jög góðan
ferii á íslandi, en standard-
inn þar er Iægri en hjá okk- |
ur r Skotlandi.
Ég er hihs vegar sannfærð-
ur um, að Helgi muni reynast
vel, hélt Bobby Ancell áfram
„og innan skamms ákveð
um við hvort Helgi flytur
hingað til Glasgow með konu
sína og bört»“.
| Helgi leikur sinn fyrsta
jleik í búningi Motherwell í
dag. Hann verður þá í marki
í varaliði félagsins, sem mæt-
ir Patrick Thistle í Glasgow.
Fréttaínaðurinn hitti einnig
Heíga, som þegar vekur atihygli
fyrir áð vera kröftuglega vaxinn
herðibreiður og hár.
— Ég mundi mjög gjarna vilja
komast áfram innan skozkrar
knattspymu og þetta er mjög
kærkomið tækifæri, sem mér
hefur hlotnast, sagði Helgi.
Fréttamaðurinn segir að Motih
erwell hafi viljað fá Helga fyrr
Motiherwell hefur lengi haft
orð á sér fyrir að leika fallega
knattspyrnu. Samleikur liðsins
er -tuttur og hraður og stingur
stúf við leik margra annarra
liða. Motiherwell hefur oft verið
meðal beztu liðanna í deildinni
skozku, en það sem af er bessu
keppnistímabili hefur liðin
gengið heldur illa. í fjórum leikj
hefur uppskeran aðeins orð
ið 3 stig.
Sameinað IMorðurlandalið
gegn Balkanlöndum að ári
Keppnin fer fram í Helsingfors í júlí
í HÖFUÐDRÁTTUM hefur nú
náðst samkomulag um keppni í
frjá.lsuin íþróttum milli Balkan
landanna og Norðurlandanna.
Stjórnarnefnd íþ.'óttasambands
Balkanlandanna hefur sair.þykkt
boð um að keppnin fari fram í
Helsingfors 16. og 17. júlí næsta
ár.
• Meðmæltir keppm.
í svari Balkanlandanna við
tilboði Norðurlanda segir: „Slík
keppni yrði kærkomin lokaraun
fyrir Bal'kanleikina, sem haidnir
verða í Soffíu í septembermán-
uði“.
Frá sjónarhóii Norðurlanda er
ein.ig ástæða íil að fagna keppi
inni. Finnar fagna þessari keppni
ekki sízt þar sem þeir bjóðast
til að standa fyrir henni. Norð
menn hafa tekið í sama streng.
Ekki er að efa að Danir og ís-
iendirigar fagni henni, því bar
gefst kærkomið tækifæri kepp
endum þaðan, sem bó fá ekki
allt of marga möguleika á góðri
keppni. Svíar einir hafa e-kki
sagt orð, en munu vart standa í
vegi fyrir keppninni.
sem hér um
í Aþenu fyri
• Endurgjald.
Slík keppni
ræðir fór fram
allmörgum árum. Standa Norð
urlönd því í skuld við Balkan-
ríkin um aðra keppni, sagði
skrifstofustjóri norska sam-
bandsins við fréttastofu NTB.
Eftir er að leita samþykkis hjá
stjórnum sambanda allra Norð
urland.mna og málið verður
sennilega tekið upp á ráðstefnu
norræna ilþróttasambandsins,
sem haldið verður í Stakkhólmi
27. og 28. aktóber n.k.
Fyrir dkkur Íslendinga er
þessi keppni ekki stórkostleg
röskun Eins og málin standa nú
munu aðeins tveir ísl. frjáls-
íþróttamenn hafa möguleika á
að komast í keppnina, þeir Vil
hj'álmur og Valbjörn.
IJrslit
Islands-
mótsins
aíhentur?
U M helgina fara fram tveir
þýðingarmiklir leikir í 1. deild
— og jafnvel þeir síðustu. Vera
má að síðdegis á morgun verði
íslandsmeistarar krýndir, en til
þess að svo megi verða, verða
þó KR-ingar, núverandi meist-
arar, að taka stig af Akurnes-
ingum og hrein úrslit að fást
í aukaleik Fram og Vals, sem
verður á sunnudag kl. 4. Báðir
Ieikirnir eru ákveðnir á Laug-
ardalsvelli, en rigni fyrir leik-
ina verða þeir fluttir á Mela-
völlinn. •, •
KR — Akranes
KR — Akranes mætast í dag
kl. 4. Leikurinn getur haft mik-
il áhrif á úrslit mótsins. Vinni
Akurnesingar eru þeir jafnir
Val og Fram og blanda sér í úr-
slitastríðið. Þá hlýtur líka KR
5. sætið á mótinu. Það vilja KR-
ingar ógjarna og munu því án
efa berjast vel fyrir sti-gi eða
stigum og hljóta með sigri 3.
sæti á mótinu. Nokkuð mun það
veikja liðin að Helgi Dan. verð-
ur ekki í marki Akraness og
Gunnar Felixson ekki með KR.
Báðir eru utanlands.
Fram — Valur
Leikur Fram—Vals verður á
sunnudag kl. 4 e. h. Það verður
hreinn úrslitaleikur mótsins, ef
KR tekur stig í leiknum í dag.
— Verði liðin jöfn eftir 2x45
mín. verður framlengt 2x15
mín. —
Verði leikur liðanna úrslita-
leikur mótsins og fáist úrslit
verður hinn nýi íslandsbikar af-
hentur í fyrsta sinn að ieik
loknum.
Danir unnu
Hollendinga 4:1
DANIR UNNU Hollendinga í
landsleik í knattspyrnu með 4
mörkum gegn 1. Er þetta finrjnti
landsleikssigur Dana í röð. —
Höfðu Danir miklar áhyggjur af
Notaði Patterson deyfiiyf?
!
VIL D I PatterscMi ekki
berjast? Var þessi hnefa-
leikakeppni sett á svið?
Var Patterson undir áhrif-
um deyfilyfja?
Þannig skrifar fréttamaður
stórblaðsins Daily Express,
Demond Hackett frá Chieago
og segir, að þessar og þvílíkar
spurningar fljúgi um borg-
ina. Þær rísa af því að hið
risavaxna ruddamenni varð
konungur hnefaleikara, án
þess að verða fyrir frekari
meiðslum en herdeild fær
sem gengur inn í virki and-
stæðinga er veifa hvítu
flaggi.
Patterson var barinn á 116
ev
sek. án nokkurrar mótstöðu.
í veði voru nær 6 millj. doll-
ara. „Eg veit“, heldur frétta-
maðurinn áfram, „að strax
eftir leikinn undirgekkst
Patterson 25 mín. læknis-
skoðun fyrir luktum dyrum.
Eg hef beðið um niðurstöðu
skoðunarinnar en mér var
sagt að „trúnaðarskýrslur"
þar um yrðu sendar íþrótta-
ráði Chicago, sem er ábyrgð-
araðili, keppninnar.
Blaðamaðurinn segir að
þegar Patterson loksins hafi
mætt kröfum blaðamanna
um fund eftir keppnina hafi
hann sogið hnefa sina, sem
ekkert gátu móti andstæð-
ingnum og hann segist hafa
punktað hjá sér eftirfarandi
iýsingu á Patterson.
„Augun eru hálflokuð en
þó ójöfn. Vinstra augnalokið
lafir mun meir. Hann lítur
út eins og drukkinn maður
eða sá er neytt hefur eiturs.“
En blaðamaðurinn bætir
við: — Svona gætu auðvitað
allir litið út eftir að hafa
mætt Liston.
Fjórum stundum síðar seg-
ist Hackett hafa hitt Don
Florio, þjálfara Pattersons.
Hann sat afsíðis og horfði á
tóman kaffibolla eins og hann
byggist þar við að finna lausn
vandamálsins, sem kramið
hafði hjarta hans.
„Floyd var í eins góðu
formi og er hann mætti Ingo
í þriðja sinn, harður af sér,
líklegur til alls. Eg yfirgaf
hann ekki allan daginn. Hann
virtist utan við sig í búnings-
klefanum. Og ■ þegar hann
kom í hringinn sagði hann
ekki eitt einasta orð alian
tímann sem við vorum þar
fyrir keppnina. Hann var
þjálfaður til að gera leiftur-
sóknir, slá hart og ótt frá sér,
en hverfa síðan frá undan
höggum risans. Hann gerði
enga sókn ,og hann vék aldrei
undan höggum Listons."
Þetta voru ummæli Flori-
os þjálfara að sögn Hacketts.
Um sannleiksgildi tilgátu
blaðamannsins veit enginn.
liði sín.u fyrir leikinn gegn Hol
lendingum, sem margir eru at-
vinnumenn, en á daginn kom að
sigur danska liðsins var fylli-
lega verðskuldaður og „það á-
nægjulegasta var“, segja Danir,
„sigurinn var ekki of stór“.
• Vítaspyrna.
Holiendingar höfðu frum-
kvæði í leiknum fyrstu 20 mín.,
en fengu aldrei góð færi og
skutu hræðilega illa. Síðan
náðu Danir tveggja marka for-
skoti og litlu síðar fengu þeir
sér dæmda vítaspyrnu er bak-
vörður Hollendinga varði með
hendi á marklínu. Vítaspyrnuna
brenndu Danir af og í stað þess
að ná 3:0 þá náðu Hollendingar
að skora sitt eina mark svo að í
hálfleik stóð 2:1.
• Danir hættulegri.
I síðari hálfleik bættu Dan-
ir 2 mörkum við og unnu bví
4:1. Henning Enoksen skoraði
tivö mörk Dana, Ole Madsen og
Carl Bertihelsen sitt hvor. Sókn
Dana var alitaf hættuleg og það
reið baggamuninn. Þeir áttu
mun fleiri tækifæri en mörkin
sýna. Úti á vellinum voru liðin
lík, en er að marki dró voru
Danir margfallt hættulegri og
verðskulduðu sigur