Morgunblaðið - 29.09.1962, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 29.09.1962, Qupperneq 24
FKÉTTAStMAR MBL. — eftir lokun — Erlendar fréttir: 2-24-85 Innlendar fréttir: 2-24-84 MDRGUNBLAÐIÐ Kvöldsala á blaðinu befst úr afgreiðslunni við Aðalstræti á hverju Iaugardagskvöldi kl. 9. 216. tbl. — Laugardagur 29. september 1962 í gærkvðldi héldu skipstjór ar á síldveiðunum síldarleit- armonnum hóf í Lído, Er myndin tekin af háborðinu. Fyrir miðju er Jakob Jakob- son, fiskifræðingur með konu sinni e sinn til hvorrar hand ar þeir Jón Einarsson og Bene dikt Guðmundsson, skipstjór ar á síldarleitarskipunum Fanneyju og Pétri Thorsteins syni, ásamt konum sínum. Bílþjófur veldur árekstri KLUKKAN 01:20 í fyrrinótt kom maður inn á lögreglustöð og til- kynnti að hann hefði ekið bíl sínum á gatnamótum Hringbraut- ar og Kaplaskjólsvegar. Hefði iþar stór, blá vöruibifreið ekið á bíl sinn og stungið af frá árekst- ursstað. Talsverðar skemmdir urðu á bíl mannsins. Klukkan hálf þrjú fann -lög- reglan vörubílinn, sem árekstr- inum hafði valdið. Stóð hann mannlaus á Ánanausti með full- um ljósum og hafði stefnuljós uppi að auki. Tengt hafði verið framhjá kveikjulásnum þannig að einsýnt var að bílnum hefði verið stolið, enda kom á daginn að umráðamaur bílsins var í fasta svefni og vissi ekki betur en a bíllinn væri á sínum stað. — Bílþjófurinn, sem vafalaust Ihefur verið drukkinn, er ófund- inn. 5 menn héldu toguronum faú —á meðan mannin um var bjargað UM fimmleytið í gærmorgun datt drukkinn maður milli skips og bryggju er hann var að fara um borð í togarann Frey. Kunningi hans hljóp þegar til og geri lögreglupni aðvart og bjargaði hún mann- inum. Fimm menn, sem stadd- ir voru á brygjunni, settu bök in í togarann til þess að halda honum frá á meðan mannin- um var bjargað. Varð honum ekki meint af volkinu. Kartöflumálið í GÆR var settur dómur vegna kæru Neytendasamtakanna á Ihendur stjórn Grænmetisverzlun ar landibúnaðarins Fyrir réttin- um mættu Sveinn Ásgeirsson fyrir Neytendasamtökin og for- stjóri Grænmetisverzlunarinnar. Niðurstöðu:^annsóknar Atvinnu deildar Héstíólans voru lagðar fram. Frystihús SÍS á Ólafs- vík hættir fiskmóttöku Fiskimjölsverksmiðja þess logð niður FRYSTIHÚS Kirkjusands h.f. á Ólafsvík hefur fyrir nokkrum dögum hætt að taka á móti fiski en þar hafa 5-6 bátar lagt afla sinn í sumar og munu hafa gert ráð fyrir að leggja þar upp á- fram. Þá hefur og fiskimjöls- verksmiðja frystihússins verið lögð niður og tveimur mönnum, sem við hana unnu, verið sagt upp starfi. Frystihús þetta er raunverulega eign Regins h.f., dótturfyrirtæki SÍS, en er leigt og rekið af öðru dótturfyrirtæki sambandsins, Kirkjusandi h.f. Mbl. átti í gær samtal við Eirík Þorsteinsson, fyrrv. alþm. forstjóra frystihússins. Sagði Barn fyrir bíl -ei hemlarnir biluðu f GÆRDAG varð það slys í Álf heimum að 5 ára drengur, Ingólf ur Guðmundsson, Álfheimum 30 varð fyrir bíl móts við fjölbýlis húsið nr. 32—36. Slasaðist dreng urinn svo að flytja varð hann í sjúkrahús. Málí tvik voru þau að stórri bandgrískri bifreið var ekið suð ur Álfheima. Sá bílstjórinn að drengurinn hljóp út á götuna, þvert í veg fyrir bílinn. Hemlaði ökuimaður þegar, og hemlaði bíll inn eðlilega fyrst, en síðan bil- uðu hemlarnir skyndilega, og bíll inn rann áfram á drenginn. Tel- ur ökumaður að ef hemlarnir hefð'u ekki bilað hefði honum tekist að afstýra slysinu. Drengurinn varð undir bílnum sem hélt áfram yfir hann, og nam loks staðar nokkrum met-- um frá slysstaðnum. Var dreng urinn xluttur í slysavarðstofuna en þaðan í Landspítalann". Hlaut hann mi'kinn Skurð á höfuð, en að öðru h ,/ti var Mbl. ókunnugt um meiðsl í gærkvöldi. Skyndíhappdrætti Sjálf stæðisf I okksins Miðar fást í Austurstræti. hann að ástæðan til þess að frysti húsið hefði hætt að taka á móti fiski væri að ekki fiskaðist nóg til þess að það borgaði sig að sirrni. Auk heldur væri illger- legt að fá fólk til vinnu vegna sláturtíðarinnar. Unglingar hefðu lagt til megnið af vinnukrafti í sumar, en nú væru þeir á förum í skóla. Um fiskimijöls- verksmiðjuna sagði Eiríkur að hana ætti að leggja niður, en um næstu mánaðamót tæki til starfa ný fiskimjölsverksmiðja, sem yrði sameign frystihiússins ins og Hraðfrystihúss Ólafsvik- ur. Feitmetistækin hefðu þegar verið flutt úr gömlu verbsmiðj- unni í þá nýju. Nokkrar tafir hefðu orðið á því, að nýja verk- smiðjan yrði fullgerð, en vonir stæðu til að hún gæti tekið til starfa um mánaðamóin október- nóvemlber. Slys í verksmiðju í GÆRDAG varð það slys í kexverksmiðjunni Tlsju að ' ' lka sem þai vinnur, lenti með hönd ina í vél og skaddaðist nokkuð. Var hún flutt í slysavarðstofuna. Þakjárn horfiö af húsum í Bakkaseli AKUREYRI, 28. sept. — Þegar gangnamenu gengu Öxnadal sl. viku og komu að Bakkaseli, urðu þeir þess varir að allt þakjárn af fjárhúsunum þar var horfið. Flatarmál þaksins mun vera um 200 ferm. Meginhluti þakjárnsins var nýlegur, en þó voru þarna nokkrar gamlar plötur og svo undarlega vildi til að þær höfðu ekki horfið af þakinu. Talið er útilokað að vindur hafi svipt þess um plötum upp, þar sem gangna mennirnir eða aðrir heimamenn í sveitinni hafa ekki orðið varir við neinar plötur, sem geta hafa fokið. Það má geta þess að Bakkasel er í eigu Vegagerðar ríkisins og þar er ekki búið, en hefur verið sæluhús undanfarin tvö ár. Menn sem nota þennan stað yfir vetur- inn kunna þessum spjöllum illa, ef þau eru af mannavöldum, því að Bakkasel er mikilvægur áfangastaður á leiðinni milli Skagafjarðar Og Eyjafjarðar. Er leitt til þess að vita, ef menn eru að gera það að gamni sínu að Slökkvistarfinu loks lokið Akureyri 28. sept. SLÖKKVISTARFTNU við Auð- brekku er lokið eftir tvo og hálf an sólarhring. Sáðustu slök'kviliðs mennirnir komu til Akureyrar upp úr hádegi í dag og var þá talið að allur eldur væri slökktur í hlöðunni, en hinsvegar er nokk urt magn af heyi inni enmþá. Þetta mun vera einn umfangs mes-ti bruni sem slökkviliðið á A’kureyri hefur haft afskipti af, því að þarna hefur verið stöðug vakt s'-ökfcviliðsmanna hótt á þriðja sólarhring. Talsvert af heyinu nóðist út úr hlöðunni. Mun það verða nothæft ef þurrk ur fæst á það, en hinsvegar er hlaðan talin að heita ónýt. Fjár- húsunum, sem áföst voru við hlöðuna, tókst að bjarga, en þau eru gömul. — St. E. Sig. Hey góð—Leitarmenn fá afsDyrnuveður STAÐARBAKKA, 24. sept. — Heyskap var almennt lokið hér um miðjan þennan mánuð og sumsstaðar nokkru fyrr. H > fengur mun víðast vera minni en var síðastliðið haust en menn gera sér vönir um aö hey séu góð, þar eð hvergi var úr sér sprottið, aldrei verulegir óþurrk- ar og hirtist því mikið til eftir hendinni. Hér í Miðfirði og Staðarhreppi var fjárleitum frestað um eina viku frá því sem venja er. Fóru leitir fram um síðustu helgi, én á sunnudag gerði eitt hið versta veður sem komið getur, afspyrnu rok og rigning með fádæmum. Töldu margir eldri menn sem farið hafa í leitir um áratugi að þeir hafi aldrei fengið eins slæmt veður í leitum þegar jörð hefur verið auð. Voru sumir leitar- menn allmjög þjakaðir af bleytu og kulda, er þeir komu til bæja um kvöldið. En ekki hefur þó heyrzt að neinum hafi orðið neitt meint af. Leitirnar munu þó hafa tekizt sæmilega, og á mánu- dag og þriðjudag fóru réttir fram eins og vera bar, í góðu veðri. Fé virðist með góðu útliti eftir sumarið og vanmetafé fannst ekkert í leitunum. — B. G. valda þar spjöllum. Það gildir sama um Bakkasel og sæluhúsin. á fjöllum eða skipbrotsmanna- skýlin, húsaskjól þar getur verið mikilvægt hröktu fólki í neyðar- tilfellum. —• st.e.sig. Mynd hættfa nð komo út DAGBLAÐIÐ Mynd skýrir] frá því í forsíðufrétt í gær að' blaðið muni hæta að koma út | I fréttinni segir m.a. svo: „Hér J hafa allir lagzt á eitt að geraj blaðið sem bezt úr garði, starfs' menn á ritstjórnarskrifstofun-1 um, prentarar og í einu orði | sagt, allt starfsfólk blaðsins / En það hefur ekki nægt. Marg* I hefur valdið því að svona fer; ■ marigvíslegir örðugleikar ogl skakkaföll, sem ástæðulaust ( er um að fjasa; byrjunarörð- , leikar, sem ráðið hafa örðug-j leikuim blaðsins.“ Ritstjóri Myndar hefur ver-í ið Björn Jóhannsson en út-( gefandi Hilmar A. Kristjóns- son. Kom blaðið út í 28. tölu-l blöðum og var fjórar síður í| stóru broti. Kominúnistar tapa í FYRRAKVÖLD var kosin stjórn í Félagi starfsfólks í veit- ingahúsum. Hafa kommúnistar ráðið í stjórn félagsins frá upp- hafi og ekki við mikinn orðstír, en á þessum fundi tóku lýðræðis- sinnar stjórnina. í stjórn voru kosnir Halldóra Valdimarsdóttir, formaður, Pétur Pétursson, Ragnheiður Guð mundsdóttir, Anna Einarsdóttir og Margrét Tómasdóttir. Námskeið í ýmsum greinum trygginga SAMBAND íslenzkra trygg- ingafélaga hefir ákveðið að halda náimskeið eða setja á stofn skóla í ýmsum greinum trygg- inga fyrir starfsmenn hinna ýmsu tryiggingafélaga innan sinna sam- taka. Þórir Bergsson, trygginga- fræðingur, mun veita skóla þess- um forstöðu og verður hann sett- ur í fundarsal Iðnskólans n.k, mánudag, 1. ofctóber, kl. 17. lö. Það gerist nú æ oftar í mikill iumferð að litlu Volkswagen- bílarnir lenda undir vöruþílspaUi. Myndin hér að ofan var tek- m í Hafnarstræti í gær. Liósm. Mbl.; ól. K. M.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.