Morgunblaðið - 03.10.1962, Síða 5
Miðvikudagur 3. okt. 1962
MÖRCUNBT/AÐIÐ
5
m/WM
II
HINN 8. október tekur dans
skóli Hermanns Ragnars Stef-
ánssonar til starfa á ný og
hefst þar með fimmta starfs
ár Skólans hér í Reykjaví'k.
Eins og undanfarin ár verða í
vetur kenndir barna- og sam-
kvæmisdansar fyrir börn á
aldrinum 4 til 12 ára í þrem-
ur aldursfloikkum, auk þess
sem skipt er í floikka eftir
því, hvort um byrjendur er
að ræða, eða þá sem lengra
eru komnir. Unglingum verð-
ur kenndur samkvæmisdans
og verður aðaláherzlan löigð á
suður-ameríska dansa. sér-
stakir flokkar verða fyrir hjón
en þeir hafa notið mikilla vin-
sælda á undanförnum starfs-
árum skólans, svo að aldrei
hefur verið hægt að anna allri
eftirspurn.
Hermann Ragnar er ný-
kominn heim úr kynnisferð
til Ameríku þar serp hann á-
sami þrem-ur öðrum áhuga-
mönnum um íslenzka æsku-
lýðsstarfsemi kynntu sér
starf bandarískra æskulýðsleið
toga í tveimur borgum þar
vestra.
— Hvaða aðili bauð ykkur
í þessa kynnisferð, Hermann?
- Upplýsinigaþjónusta Banda-
ríkjanna bauð okikur fjórum
fslendingum til að sækja fyr-
irlestra um æskulýðsstarf á-
samit fulltrúum frá öðrum
þjóðum, og var einnig miðað
að því, að við gætum unnið
á æskulýðsheimdlum í 10 vik-
ur.
— Er æskulýðsstarfsemin
vestra mjog fjölbreybt að sum
arlagi?
— Já, það er mikil áherzla
iögð á, að gera hana sem fjöl-
breyttasta og fjölsóttasta af
unga fólkinu. í Bandaríkjun-
um er það miklu meiri erfið-
leikum háð, allt að tvítuigu að
fá sumarstarf heldur en reynd
in er t.d. hér á landi. Það verð
ur að finna leiðir svo að þessi
ungmenni geti varið skóla-
leyfinu sem bezt og geti ver-
ið í góðum félagsskap og
þrozkast andlega og líkamlega
með hjálp sérfróðra manna,
sem vei'ta þeim tilsögn á sum-
arheimilunum.
— Hvernig er starfinu hátt-
að á þessum heimilum?
— Heimiilin eru opin fyrir
börn og unglinga á aldrinum
6 til 18 ára og er eðlilega
skipt niður í aldursflofcka.
Það er unnið daglega frá 9-5
og þá helzt stundaðar íþróttir
eð farið í ferðlög. Ég starfaði
með drengjahópi í Chicago og
það var mikil fjölbreytni í
dagskránni og áihugi strákanna
Hjónin Unnur og Hermann Ragnar Stefánsson ásamt kennurum k
sínum í dansskóla Arthur Murray í Chicago. Þau hjónin verða I
aðalkennarar í dansskóla Hermanns í vetur ásamt IngibjörguJ
Jóhannsdóttur og Rannveigu Ólafsdóttur. )
mikill. Eitt af því sem mikið
var lagt upp úr, voru sýn-
ingar á kvikmyndum um á-
kveðin tímabil eða viðburði
í sögu Bandaríkjanna. Og jafn
framt því sem við fengum
að vinna sóttum við fyrirlestra
um æskulýðsmál við háskóia
í Ohicaigo.
— Hafðirðu tækifæri til að
kynna þér einhverjar nýjung-
ar í dansi?
— Já, við fengum að bera
fram persónulegar óskir um
sérskóla, sem við hefðum á-
huga á að heimsækja og valdi
ég þá dansstudio. Síðan gafst
okkur Unni, eiginkonu minni,
þess kostur að stunda dans-
nám hjá Arthur Murray og
nutum þar kennslu tveggja
frægustu kennara skólarms,
þeirra Mr. Hunter og Mr. Van-
Straaten, en sé síðarnefndi
er Hollendingur og einn af
eftirsóttustu kennurum í
saimkvæmisdansi þar vestra
Við fengum tækifæri til að
komast í kynni við flesta
dansa sem komið hafa til sög-
unnar að undanförnu, en það
verður að taka þessu með mik
illi varúð, því að það er liðið
undir lok áður en maður veit
af. Við lærum mikið af svo-
kölluðum „restaurant“-spor-
um hjá þessum tveimur kenn-
urum, því að þau geta komið
sér mjög vel hérna heima,
þar sem ekki er um eigin-
lega danssali að ræða og
þrengsli oft mikil. Svo höfum
við í hyggju að hefja kennslu
í vetur í marnbo, sem við
lærðum í Ameríku.
— Einhverjar fleiri nýjung
ar?
— Ég gæti sagt frá einni,
sem kemur til framkvæmda
í vetur, en hún er sú, að
danskennarasamibönd víðs veg
ar um hei-minn hafa komið
sér saman um alþjóðlegt dans
kerfi, sem kennt verður um
allan heim og hafa danskenn-
arar, sem eru meðlimir þess-
ara samitaka fengið ákveðna
kennsluskrá, sem fara á eft-
ir og er þá verið að reyna
að miða að því, að þeir, sem
lært hafa þetta sarna kerfi
geti óhikað mætt dansfélaiga
með sama stigi. f þessu sam-
bandi verður gefið sams kon-
ar hæfnis merki um gjörvall-
an heim. Fram til þessa hafa
námskrár hinna ýmisu dans-
kennara sambanda verið all
mismunandi, þannig að dans-
kennarar hér heima, sem eru
í sitt hvoru sambandinu hafa
kennt dansa á mismunandi
hátt og það leitt til óþæginda
fyrir nemendur. En nú er
verið að samræma þetta og
verður það til mikilla bóta.
Loftleiðir: í»orfinnur Karlsefni er
væntanlegur frá N.Y. k1. 05.00. Fer til
Oslo og Helsingfors kl. 06.30. Kemur
til baka kl. 24.00. Fer til N.Y. kl.
01.30. Leifur Eiríksson er væmtanleg-
ur frá N.Y. kl. 06.00 fer til Gauta-
borgar, Kauj: mannahafnar og Stafang
urs kl. 07.30. Eiríkur rauði er vænt-
enlegur frá Stafangri, Kaupmanna-
höfn og Gautaborg kl. 23.00. Fer til
N.Y. kl. 00.30.
Hafskip: Rangá er á Akureyri. Laxá
er í Keflavík.
F/imskipafélag Reykjavíkur H.f.:
Katla er í Rauma, Askja er á leið
til Bilbao.
Flugfélag íslands H.f.: Millilandaflug
Millilamdaflugvélin Gullfaxi fer til
Glasgow og Kaupmannahafnar kl. 08:
00 í dag. Væntanleg aftur til Reykja-
víkur kl. 22:40 1 kvöld. Millilanda-
flugvélin Skýfaxi fer til Glasgow
©g Kaupmannahafnar kl. 08:00 í fyrra
málið.
Innanlandsflug: f dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Húsa-
yíkur, ísafjarðar og Vestmannaeyja.
Á morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaða, Kópa
ekers, Vestmannaeyja og Þórshafnar.
Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell er í
Limerick, Arnarfell er væntanlegt tii
Dale á morgun, Jökulfell lestar á
Austfjörðum, Dísarfell fór í gær frá
Antwerpen til Stettin, Litlafell er í
olíuflutningum í Faxaflóa, Helgafell
er á Dalvík, Hamrafell er væntan-
legt á morgun.
H.f. Eimskipafélag íslands: Brúar-
foss er á leið til NY Dettifoss er
á leið til Reykjavíkur. Fjallfoss er í
Reykjavík, Goðafoss er á leið til
Reykjavíkur, Gullfoss er á leið til
Reykjavíkur Lagarfoss er á Akranesi,
Reykjafoss er á leið til Kaupmanna-
hafmar, Selfoss fer frá Hamborg á
morgun til Reykjavíkur, Tröllafoss
er í Vestmannaeyjum, Tungufoss er
á leið til Gautaborgar.
H.f. Jöklar: Drangajökull er í Riga
Langjökull er á leið til íslands, Vatna-
jökull er á leið til Reykiavíkur.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Anna María Sigurð-
ardóttir, Lynghaga 12 og Bern-
hard Petersen, Flókagötu 25.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Ragna Gunn-
arsdóttir, hárgreiðslunemi,
Reykjavíkurvegi 31 og Þorgeir
Baldursson prentnemi, Sigtúni 41
Heilagur himinninn vefur
að hjartanu synduga jörð.
— Mig furðar, hve sætt hún sefur,
og svo halda stjörnurnar vörð,
þangað til sólskinið sæta
segir við dali og fjöll:
„Ég ætla ykkur ekki að græta
og ekki hinn nábleika völl.
Þið verðið að vaka og biðja
og viljann að ástunda minn.
Að kyssa er mín unaðar-iðja
iðrunartárin af kinn“.
Svona hef ég sofnað á stundum
syndum og heiminum frá.
En enginn strauk ástríkum mundum
iðrunartárin af brá.
(Páll Ólafsson: Jörðin og ég)
Það bætir ekkert úr heimskunni
þótt hún sé öskruð upp. — Spurgeon
Spurningunni: Hvað er frelsi? svar-
aði vitur maður þannig: Góð sam-
vizka. — Th. G. Hippel.
Frið, ef unnt er. en sannleikann
umfram allt. — Luther.
Stúlka óskast
til starfa við Heyrnleys-
ingjaskólann. Uppl. I síma
1328i9 eftir kl. 3.
Radíófónn
Til sölu sænskur Marconi
radíófónn. Tækifærisverð.
Uppl. í Húsgagnaverzlun-
unni Þórgötu 15.
Lítil íbúð til leigu
fyrir barnlaust fólk sem
getur látið í té húshjálp
um mánaðartíma. Tilboð
merkt: ,,1200 — 3476“, send
ist fyrir fimmtudagskvöld.
Konur takið eftir
Tek að mér breytingar og
lagfæringar á kjólum, nýj-
um og notuðum. Aðeins
hreinir og vel með farnir
kjólar koma til greina. —
Uppl. í síma 16735.
Myndavél
Voigtlánder 35 mm. með
aðdráttar og gleiðhorna
linsum, ódýrt, til sýnis og
sölu í Hraðmyndum, Lauga
vegi 68, eða í síma 50146
eftir kl. 7.
íbúð óskast
Vantar 3ja herb. íbúð. —
Hjón með barn á 3. ári.
Uppl. í síma 12841.
Barngóð stúlka
óskast strax í vist á heimili
Þorgeirs Þorsteinssonar, —
lögreglufulltrúa, Grensási 3
Njarðvíkum. — Sími um
Keflavíkurflugvöll. — Sími
2176.
Barnlaus
reglusöm hjón óska eftir
íbúð næst Miðbænum. —
Upplýsingar í síma 35357.
BIFREIÐAEIGENDUR
Þvoum, hreinsum, bónum
bíla. Vönduð vinna. Reynið
viðskiptin. Sækjum —
Sendum. Uppl. í síma
38075.
Ytri-Njarðvík
Herbergi óskast. Uppl. í
síma 1369.
Vil kaupa
lítið, gott píanó eða pían-
ettu. Uppl. í síma 19878.
Moskwitch 1955
til sölu. — Simi 32507
eftir kl. 6 e. h.
Keflavík
Til sölu notað sófasett. —
Uppl. á Vatnsnesvegi 15,
niðri. — Sími 1150.
Herbergi óskast
Má vera í kjallara. Uppl.
í sima 22150.
Keflavík
Tapazt hefur kvenarm-
bandsúr, gyllt, á leið frá
Hafnargötu 30 út á Berg.
Fmnendi vinsaml. hringi í
síma. 1916. Fundarlaun.
Keflavík
2 herbergi til leigu. Uppl.
í síma 1905 eftir hádegi.
Herbergi óskast
fyrir tvo námsmenn í 4
mánuði. Uppl. að Hótel
Skjaldbreið, herb. nr. 25.
5 herbergja íbúð
í Drápuhlíð til sölu. Bíl-
skúr fylgir. Uppl. gefur
Sigurður Baldursson, hrl.
Laugavegi 18 — IIII. hæð.
Ung hjón
með lítið barn óska eftir
2ja—3ja herbergja íbúð
nú þegar. Upplýsingar í
síma 34731.
Herbergi
Ung stúlka óskar eftir að
taka á leigu forstofuher-
bergi. Upplýsingar í síma
20902.
Sendiferðabíll
Sendiferðabíll, ný viðgerð-
ur og sprautaður og með
stöðvarplássi, til sölu. Gjald
mælisleiga getur fylgt. —
Uppl. í síma 32455 kl. 12—1
í dag og næstu daga.
Húsgagnasmiður
óskar eftir vinnu. Er vanur
allri vélavinnu. Tilb. send-
ist afgr. Mbl. fyrir föstu-
dagskvöld, mert: „Hús-
gagnasmiður — 3505“.
Óska eftir að kaupa
Wilton gólfteppi. — Sími
35037.
Ung hjón
með árs gamlan son óska
eftir 2ja herb. íbúð. Hús-
hjálp eða barnagæzla kem-
ur til greina. Uppl. í síma
33438.
Fokhelt hús
190 ferm. ein hæð í Silfurtúni til sölu. —
Innbyggður bílskúr.
INÍýja Fasteígnasalan
Bankastræti 7. — Sími 24300 og kl. 7,30
til 8,30 e.h., sími 18546.
Trésmiðir
Trésmíðavélar til sölu. Uppl. í síma 32374 eftir
kl. 7 í kvöld og annað kvöld.