Morgunblaðið - 07.10.1962, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 07.10.1962, Qupperneq 1
44 síður (I. og II.) Pompidou biðst lausnar Stjórn hans mutn sitja þar til kosningar hafa farið fram París, 6. okt. AP — GEORGES Pompidou, for- sætisráðherra Frakklands, baðst í morgun lausnar fyrir sig og stjórn sína. De Gaulle forseti hefur ákveðið að rjúfa þing og efna til kosninga í Frakklandi. Forsetinn fór þess á leit við Pompidou, að hann og stjórn hans sæti við viild þar til kosningarnar hefðu farið fram. Pompidou lagði lausnarbeiðni sína fyrir de Gaulle forseta í Elyseeihöllinni í morg'un. Rædd- ust þeir við um stund og varð að samkomulagi að Pompidou og stjórn hans sætu þar til þing- kosningar hefðu farið fram í landinu. Eins og kunnugt er sam- þykkti franska þingið vantrausts tiilögu á stjórn Pompidous að- faranótt föstudagsins. Allir stjórn málaflokkar Frakklands að flokki de Gaulles forseta undanskildum greiddu tillögunni atkvæði. Eftir að de Gaulie hafði rætt við Pompidou í morgun kallaði hann á sinn fund forseta beggja deilda þingsins, en samkvæmt stjórnarskrá landsins verður for- setinn að ræða við þá áður en hann ákveður að rjúfa þing og efna til nýrra kosninga. Sem kumnugt er verður gengið til þjóðaratkvæðagreiðslu í Frakk landi 2®. þ.m. um stjóirnarskrár- breytingu, sem felur það í sér, að þjóðin öll skuli kjósa forseta, en ekki þar til nefndir kjörmenn. De Gaulle beitti sér fyrir því að atkvæðagreiðsla færi fram um þetta atriði, en allir flokkar landsins nema flokkur hans sjálfs eru á móti því. Teija þeir atkvæðagreiðsluna brot á stjórn arskránni og var það vegna henn ar, sem borin var fram van- trauststillaga á stjórnina. Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær þingkosningar fara fram í Fralkklandi, en nefndir hafa ver Talið er, að ef breytingin á til- ið dagarnir 4. og lil, nóv. högun forsetakosninganna nær fram að ganga, en fylgismenn de Gaulle tapi þingkosningunum verði ástandið í stjórnmálum Frakklands mjög alvarlegt. >.••: ' -b .v ■OÍ :i , i*í ;■ ÍSfe- ^ '•» Þyrla og árabátur, sem tóku þátt í því að ná geimfari Schirra úr sjónum. Geimfarið sést lengst til hægri og er froskmaður að festa taug við það til þess að hægt væri að lyfta því upp úr sjónum. Schirra kom til Hawaii í gær Mikill mannfjöldi íagnaði honum U.S. Kearsarge 6. okt (AP). GEIMFARI Bandaríkjanna — Walter M. Sohirra — er væriit- anlegur til Honolulu á Hawaii í dag og hefur fjöldi manns safnast saman á Hickam flug- velli til að fagna honum. Schirra kemur til Hickam flugvallar með flugvél frá flugvélamóðurskipinu „Kears- arge“, en hanm hefur verið um borö í skipinu frá þvi að hann lenti geimfari sínu á Kyrrahafi sl. fimmtudags- kvöld. Frá Hawaii heldur Schirra til Bandaríkjanna og er gert ráð fyrir að hamii ræði við fréttamenn í Houston í Texas á morgun. Sex aðrir geimfarar Banda- ríkjanna eru með Schirra um borð í „Kearsarge“ og hefur han rætt við þá um geimferð sína einmig hafa geimfararnir rætt við forystumenn Mercury áætlunarinnar um borð í skip- inu. Schirra er fimmti Banda- ríkjamaðurinn, sem senidur er út í geiminn og er talið af niðurstöðunum af þessum geimferðum, að Bandaríkja- menn muni eftir áramótini senda mann í geimfari 18 hringi umhverfis jörðu. KRÚSJEFF ÁRNAR HEILLA Þegar Walter M. Schirra hafði lokið hinni velheppnuðu geimferð sinmi sendi Krúsjeff forsætisráðiherra Sovétríkj- anna Kennedy Bandaríkjafor- seta svohljóðandi heillaóska- skeyti: — Kæri hr. forseti. Fyrir mína hönd og hinnar rússnesku þjóðar óska ég yður til hamingju með hina vel- velheppnuðu geimferð geim- farans Schirra. Flytjið honum vinsamlegast kveðjur mínar og beztu óskir. — Krúsjeff. EINSTÆÐ MYND Eins og skýrt hefur verið frá lenti Schirra geimfari sínu mjög nálægt þeim stað, sem ákveðið hafði verið og tókst að ná mynd af því á niður- leið í fallhlíf. Aðrir geimfarar hafa lent það langt frá fyrir- fram ákveðnum lendingarstað, að ljósmyndarar hafa ekki náð slíkum myndum áður. A.-þýzkir verðir skjóta á V.-Beríínarbúa Sjúkrobifreið fær ekki að koma honum til aðstoðar Hófu þeir verkið í kjallara veitingahúss í V-Berlín og í mmmmmm%mmmm%mmmm morgun höfðu þeir lokið við göngin, sem enduðu í kjallara- íbúð klæðskera eins í A-Berlín. Klæðskerinn og kona hans voru heima, þegar V-Berlínarbúarnir komu inn 1 íbúð þeirra og flýðu Framhald á bls. 2. Berlín, 6. okt. — AP — Austur-þýzkir verðir við múrinn í Berlíu skutu í dag á ungan V-Lj_ n-ja, sem kominn var til A-Berlin__um göng, sem grafin höfðu veri„ undir múrinn. V-Þjóðverjinn særðist og sjúkrabifreið sú, sem staðsett er við varðstöð- i an„Charlie“ á bandaríska svæðinu var send inn í A- Berlín til þess að athuga hvort hinn særði maður hefði notið læknishjálpar. Austur- þýzku verðirnir hleyptu sjúkrabifreiðinni inn í A- Berlín, en stöðvuðu hana þegar hún átti stutt eftir ó- farið til staðarins, þar sem hinn særði maður var. Rauði krossinn í V-Berlín -;íi-ði einnig að senda sjúkra- bi----: manninum til hjálpar, en hún fékk ekki að fara inn í A- Berlín og v-þýzk yfirvöld sögðu, að manninum yrði veitt læknis- hjálp. Maðurinn, sem skotið var á, hafði ásamt átta félögum sínum unnið að því I þrjár vikur að grafa göng undir múrinn í Berlín jKosið í Sjómanna- sambandinu KOSIÐ verður í Sjómanna- sambandinu á eftirtöldum stöðum: Skrifstofu Sjómannafélags Reykjavíkur, Hverfisg. 8—10, skrifstofu Sjómannafélags Hafnarfjarðar, Vesturgötu 10, skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness, í Ungmennafélags húsinu Keflavík (uppi) og í Grindavík í Kvenfélagshús- inu. Félagar í Matsveinafélagi S.S.Í. geta kosið, þar sem kosn ing fer fram á viðkomandi stöðum. Eins geta þeir félagar S.S.f. sem ekki eru staddir í heimabyggð, en á einhverjum framangreinum stöðum. Kosning hefst kl. 10 árdegis framantaldra staða kosið á á laugardag og stendur til kl. 22 og á sama tíma á sunnu- dag og er þá lokið. Upplýsingasímar A-listans eru 18192 og 17807 einnig 15020 og 16724. Sjómenn! Listi ykkar er A-listi. Komið snemma á kjörstað og neytið réttar ykkur X A-listann. Þessi mynid var tekin aí geimfari Schirra á niðurleið í fallhlíf. Er þetta fyrsta skipti, sem slík mynd næst af geimfari. SKRIFSTOFA skyndihappdrætt- isins í Sjátfstæðishúsinu verður opin í dag, sunnudag, kl. 2—6 e.h. — Vinsamlegas* lerið skil sem allra fvrst

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.