Morgunblaðið - 11.10.1962, Side 1
24 síður
Fjárlagafrumvarpið lagt fram á Alþingi:
kattar og tollar hækka ekki
Áfram haldíð til aukinnar
hagkvæmni i ríkisrekstrinum
FRUMVARP til fjárlaga fyrir árið 1963 var fyrsta málið,
sem lagt var fyrir Alþingi að þessu sinni, og var því útbýtt
á fundi Sameinaðs þings í gær. Þrátt fyrir það að rekstrar-
útgjöld muni samkvæmt frumvarpi þessu hækka um 347,5
millj. kr. en því valda m. a. launahækkanirnar, mun ekki
þurfa að grípa til skatta- eða tollahækkana. Stafar það að
nokkru af vaxandi innflutningi til landsins vegna aukinnar
framleiðslu og frjálsari viðskipta. Enn fremur af aukinni
veltu innan lands og hækkandi tekjum landsmanna. Unnið
verður áfram að því að auka hagkvæmni í ríkisrekstrinum
og hefur talsvert áunnizt í því efni. — Gunnar Thoroddsen,
fjármálaráðherra, mun flytja fjárlagaræðu sína væntan-
lega í næstu viku.
Á sjóðsyfirliti fjárlagafrum-
varpsins eru niðurstöðutölur að
þessu sinni 2.126.175 þús. króna,
en á yfirstandandi fjárlögum eru
þær 1752 millj. kr. Niðurstöðu-
tölur á rekstraryfirliti eru hins
vegar 2.123.075 þús. kr., en á
gildandi fjárlögum 1749 millj.
kr. Rekstrarafgangur er áætlað-
ur 137.795.496 kr. og greiðsluaf-
gangur áætlaður 12.778.189 kr.
Helztu tekju- og gjaldaliðir
fjárlaga
Helztu tekjuliðir ríkissjóðs
eru sem fyrr skattar og tollar,
sem nú er áætlað að muni nema
1785,6 millj. kr., en tekjur af
rekstri ríkisstofnana 315,4 millj.
kr.
Stærsti útgjaldaliður fjárlaga
er til félagsmála, 504,4 millj. kr.,
Framh. á bls. 8.
Barizt í Jemen
Fylgismenn A1 Hassan og byltingar-
stjómarinnar eigast við
ar eru sagðir hafa fallið í
bardögunum.
Byltingarstjórnin í Jemen hef-
Hassan prins og manna, sem ur sviP4 r bandarískt olíufélag,
sem starfrækt hefur verið í
Aden, Amman, 10. okt. — NTB
í DAG sló í bardaga í Jemen
milli hirðingja, sem fylgja A1
hollir eru byltingarstjórn
Sallals. — Útvarp byltingar-
stjórnarinnar í Sanaa skýrði
frá þessu í dag og er þetta í
fyrsta skipti, sem byltingar-
stjórnin viðurkennir að hún
njóti ekki fylgis allrar þjóð-
arinnar.
18 hermenn byltingar-
stjórnarinnar og 12 hirðingj-
landinu, réttindum sínum. Er
talið að það hafi verið gert
vegna þess að Bandaríkjastjórn
hefur enn ekki viðurkennt hina
nýju stjórn.
Það var við virkið Maarab í
N-Jemen, sem í brýnu sló milli
hirðingja, sem hollir eru Hassan
prins og manna stjórnarinnar.
Tóku hirðingjarnir virkið, en
stjórnin sendi hermenn sína til
FramhaJd á bls. 2.
Eisenhower
gagnrýnir
Kennedy
EISENHOWER fyrrv. Banda-
ríkjaforseti hefur ráðizt harð
lega á Kennedy núverandi for
seta og stjórn hans, í ræðum,
sem hann hefur haldið í sam-
bandi við kosningabaráttuna,
er nú stendur sem hæst í
Bandarík j unum.
Segir Eisenhower, að ungir
og óreyndir menn sitji við
stjórnvölinn og það, sem hafi
verið að gerast í Washington
undanfarna 20 mánuði beri ’
vitni um reynsluleysi í stjórn-
málum og eigingjarna valda-
baráttu. Einnig einkennast
framikvæmdir stjórnarinnar af
trú hennar á óskeikulleik
hennar sjálfrar en ekki af
vilja til að treysta á skyn-
semi þjóðarinnar.
• GJALDEYRISSVIK
Moskvu 10. okt. (NTB)
Blaðið Pravda Ukrainu hefur
skýrt frá því, að 15 menn hafi ver-
ið teknir til fanga i V.-Ukrainu,
sakaðir um gjaldeyrissvik. Birti
blaðið nöfn allra mannanna og
sagði, að þeir hefðu samtals svik-
ið sér upphæð, sem næmi fleiri
þúsundum rúbla.
Myndin sýnir Bjarna Benediktsson, dómsmálaráðherra, og
Baldur Möller, ráðuneytisstjóra, við setningu fundarins í
-<5> Rómaborg. — (AP)
Sívaxandi þörf aukinnar
réttareiningar lýöræðisþjðða
Frá fundi dómsinálaráðherra ríkja Evropuráðsins í Róm
BJARNI Benediktsson, dóms-1 hafa setið fund dómsmálaráð- . dómsmálaráðherra írétta-
málaráðherra, og Baldur herra aðildarríkja Evrópu-j auka í Ríkisútvarpinu, þar
Möller, ráðuneytisstj., komu ráðsins í Róm dagana 5.—7.
heim í fyrrakvöld eftir að I október. í gærkvöldi flutti
Fá íslenzk sjönarmiö að komast
að á fiskveiöiráöstefnu E.B.E.?
BrOssel 10. okt. (NTB).
FUNDI landbúruaðarmálaráðherra
landa Efnahagsbandalags Evrópu
lauk í Briissel í dag. Var til-
kynnt í lok fundarins, að Dan-
mörk, Noregur og Bretland, sem
beðið hafa um að fá að láta í
Ijós álit sitt varðandi stefmu
E.B.E. I málum, sem snerta fisk-
veiðar, verði veitt leyfi til þess
í sambandi við fiskveiðiráð-
stefnu, sem aðildarríki E.B.E.
hyggjast halda í Briissel. Sagði í
fréttum frá NTB, að þetta myndi
einnig gilda um Island og ír-
land.
Landbú naðarmál aráðherrarni r
Bamþykktu á fundi sínum, að
Uiefmd E.B.E. j Brússel skyldi
leggja fram tillögur um fiskveiða
ráðstefnuna og verða þær lagðar
fyrir ráðherranefnd Bandalags-
ins, þegar hún kemur saman í
byrjun næsta mánaðar.
Nefndin, sem gerir tillögur um
fiskveiðiráðstefnuna lítur þannijg
á, að löndin þrjú, sem óskað hafa
eftir að láta skoðanir sínar í 'ljós
á ráðstefnunni, geti ekki fengið
að hafa fulltrúa á henni og ekki
heldur áheyrnarfulltrúa. Nefndin
leggur til að löndin fái að leggja
greinargerðir fyrir ráðstefnuna
og þau fái upplýsingar um fram-
gang mála þar. Muni þetta einnig
gilda um ísland og írland.
Ekki er ákveðið hvenær fisk-
veiðiráðstefnan verður haldin en
gert er ráð fyrir, að það verðianna myndi fá fulltrúa á ráð-
ekki fyrr en á næsta ári.
★
Morgunblaðið bar frétt þessa
í gærkvöldi undir Jónas Haralz,
forstjóra Efnahagsstofnunarinn-
ar. Sagði hann, að ekki hefði
formlega verið farið fram á, að
við fengjum að fylgjast með um-
ræðunum á hinni væntanlegu
fiskveiðiráðstefnu. Hins vegar
hefði það borið á góma í við-
ræðum viðskiptamálaráðherra er-
lendis í sumar, hvort nokkr-
ir möguleikar væru á að
við gætum komið sjónarmiðum
okkar að. Var þá talið að ekkert
land utan Efnahagsbandalagsrikj
stefnunná, eins og nú er líka kom
ið á daginn.
Góð orð voru höfð um það,
að athugaðir yrðu möguleikar á
því að við fengjum að fylgjast
me þróun mála og láta sjónar-
mið okkar i Ijós.
Það er framúrskarandi þýðing-
armikið, sagði Jónas Haralz, að
við fáum að fylgjast með, þegar
verið er að leggja drögin að
stefniunni í sjávarútvegsmálum,
sem allar helztu fiskveiði- og
fiskneyzluþjóðir V-Evrópu munu
væntanlega eiga aðlid að.
Stefnan í þessum málum hlýtur
augljóslega að hafa mikil áhrif
á okkar aðstöðu á mörkuðunum.
sem hann gerði grein fyrir
fundi þessum, og fara orð
hans hér á eftir:
„Fyrir skemmstu, það er dag-
ana 5. til 7. október, var suður
í Róm haldinn fundur dóms-
málaráðherra aðildarríkja Ev-
rópuráðsins að viðbættum dóms-
málaráðherra Svisslands, og
komum við Baldur Möller, ráðu-
neytisstjóri, heim í gærkvöldi
frá því að sækja fund þennan.
Fundurinn var haldinn að boði
ítölsku ríkisstjórnarinnar og er
hinn annar í röðinni sinnar teg-
undar, sá fyrsti var haldinn í
París í júní í fyrra að boði
frönsku ríkisstjórnarinnar.
Rómarfundurinn bar mjög
merki sívaxandi þarfar aukinnar
réttareiningar meðal lýðræðis-
þjóða Evrópu. Það var gerð
grein fyrir því, sem þegar hefur
áunnizt í þessum efnum, því að
á tólf ára starfsferli Evrópuráðs-
ins hafa verið gerðir 30 samn-
ingar margvíslegs efnis í þessu
skyni milli aðildarríkjanna. fs-
land er ekki aðili nema sumra
þessara samninga, enda fjalla
Framhald á bls. 3