Morgunblaðið - 16.10.1962, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.10.1962, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 16. október 1962 MORGUNBLAÐIÐ 13 Jón Kjartansson sýslumaður fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins Minningarorð MORGUNBLAÐIÐ kveður í dag vinsælan og xnikilsvirtan rit- stjóra, fólkið í Skaftafellssýslu ástsælan sýslumann og héraðs- leiðtoga, íslenzka þjóðin sér á bak atorkusömum embættis- manni og stjórnmálamanni. Jón Kjartansson, sýslumaður og fyrrverandi ritstjóri Morgun- blaðsins, verður í dag lagður til hinztu hvíldar heima í ættar- héraði sínu. Hann hefur lokið sinni síðustu för og er nú al- kominn heim, þar sem hvítir jöklar, eldfjöll, stórfljót og víð- ir sandar mynda umgerð um fagrar og gróðursælar sveitir. Þetta er hérað Jóns Kjartans- sonar. Hér gekk hann sín fyrstu spor, hér vann hann merkilegt lífsstarf og við þessi héruð og fólk þeirra var hugur hans tengdur framar öllu öðru. ★ Jón Kjartansson lézt hér í Reykjavík laugardaginn 6. októ- ber sl. Hafði hann sl. 10 ár kennt sjúkdóms þess, sem að lokum leiddi hann til bana. Hann vissi að hverju fór, en hann bar sjúk- dóm sinn af þeirri æðrulausu karlmennsku, sem einkenndi skapgerð hans. Jón Kjartansson var fæddur 20. júlí 1893 í Skál á Síðu og var því rúmlega 69 ára gamall er hann lézt. Foreldrar hans voru merkra bændaætta í Skaftafellssýslu. Faðir hans var Kjartan bóndi í Skál, ólafssonar bónda og alþingismanns á Höfðabrekku Pálssonar, en móð- ir Oddný Runólfsdóttir, bónda í Holti á Síðu Jónssonar. Hann var ungur settur til mennta og lauk gagnfræðaprófi á Akureyri árið 1912. Síðan hóf hann menntaskólanám í Reykja- vík og lauk stúdentsprófi árið 1915. Lagði hann síðan stund á lögfræði við Háskóla íslands og lauk embættisprófi árið 1919. Það sama ár gerðist hann full- trúi lögreglustjórans í Reykja- vík og gegndi því starfi til árs- ins 1923. Hinn 1. apríl 1924 réð- ist hann ritstjóri Morgunblaðs- ins, ásamt Valtý Stefánssyni. Gegndi hann því starfi í tæpan aldarfjórðung, eða til ársins 1947. Hann var jafnfrámt lengi ritstjóri ísafoldar og Varðar. Á miðju ári 1947 var Jón Kjartansson skipaður sýslumað- ur í Skaftafellssýslu og gegndi hann því embætti til dauðadags. Árið 1923 kusu Vestur-Skaft- fellingar Jón Kjartansson á þing. Átti hann þar sæti til ársins 1927. Aftur kusu Vestur-Skaft- fellingar hann til þingsetu árið 1953. Sat hann þá á þingi til árs- ins 1959. Á því kjörtímabili, sem nú er að líða átti hann einnig sæti á tveim þingum sem vara- þingmaður hins nýja Suðurlands kjördæmis. Jón Kjartansson gegndi ýms- um öðrum trúnaðarstörfum, m.a. var hann endurskoðandi Lands- banka íslands frá árinu 1933 til æviloka. Þeir sem unnu með Jóni Kjartanssyni um lengri eða skemmri tíma eiga margs að minnast frá því samstarfi, og alls góðs. Við sem unnum með honum við blaðamennsku og ritstjórn Morgunblaðsins minn- umst hans í senn sem hins góða félaga og dugmikla ritstjóra. í daglegri umgengni mótaði prúð- mennska og Ijúfmennska allt fas hans og framkomu. Þegar þeir Jón Kjartansson og Valtýr Stefánsson tóku við ritstjórn- Morgunblaðsins átti blaðið við ýmsa trfiðleika að etja. öll aðstaða til blaðaútgáfu var þá fábrotnari og erfiðari en nú. En með samhentu starfi og þrotlausri vinnu vax sigrast á þessum erfiðleikum. Þaö kom aöallega í hlut Jóns Kjartanssonar að skrifa um stjórnmál í blaðið. Hann hafði verið kosinn þrítugur að aldri á þing og var mjög vel að sér í stjórnmálum þjóðar sinnar. Hafði hann raunar skrifað all- margar pólitískar greinar í blaðið áður en hann var ráðinn ritstjóri þess. Stjórnmálaskrif Jóns Kjartanssonar voru fyrst og fremst málefnaleg og fræð- andi. Hann lagði jafnan höfuð- kapp á að þekkja staðreyndir hvers máls. Málflutningur hans mótaðist ævinlega af einlægum vdlja til þess að hafa sannleik- ann í heiðri og gæta drengilegra leikreglna í baráttu sinni. Hann gat barizt hart ef svo vildi verk- ast, en til ódrengskaparbragða greip hann aldrei. Þess vegna ávann hann sér almennar vin- sældir meðal starfsbræðra sinna í blaðamannastétt og pólitískra andstæðinga jafnt sem samherja. Hann hvarf með hreinan skjöld frá blaðamennsku og ritstjóra- starfi, enda þótt ritstjóratímabil hans væri eitt hið stórveðrasam- asta sem um getur í íslenzkri stjórnmálabaráttu. ★ Jón Kjartansson var mikill starfs- og vinnumaður. Hann gekk glaður og reifur að hverju verki. Yfirbragð hans var hreint og hressilegt og öll framganga hlý og drengileg. Hann var glæsimenni í sjón og raun, fríð- ur sýnum, spengilegur á velli og vel limaður. Hann var hógvær og í raun og veru hlédrægur, þótt hæfileikar hans skipuðu honum til margvíslegrar forustu á opinberum vettvangi. Hann var sanngjarn og góðviljaður og ævinlega reiðubúinn til þess að finna réttláta lausn á hverjum vanda. Þetta er sú mynd, sem við samstarfsmenn Jóns Kjartansson ar við Morgunblaðið geymum af honum sem manni og rit- stjóra. 22. júní árið 1924 kvæntist Jón Kjartansson Ásu Sigurðar- dóttur Briem. Áttu þau þrjú börn, einn son og tvær dætur, Sigurð lögfræðing, fulltrúa á sýslumannsskrifstofunni í Vík, Guðrúnu, sem gift er Ólafi Agn- ari Jónassyni flugvélavirkja í Reykjavík, og Höllu, gift Skarp- héðni Bjarnasyni, flugumferðar- stjóra í Reykjavík. Frú Ása lézt skömmu eftir að maður hennar tók við sýslumannsembætti í Skaftafellssýslu árið 1947. Var að henni hinn mesti mannskaði. Síðari kona Jóns Kjartansson- ar er Vilborg Stefánsdóttir, sem lifir mann sinn. Áttu þau eina dóttur barna. Bió hún manni sínum hlýtt og aðlaðandi heim- ili. — Morgunblaðið kveður Jón Kjartansson með þökkum fyrir mikið og gott starf í þágu þess. Við samstarfsmenn hans þökk- um honum samstarf og sam- fylgd, langa vináttu og dreng- skap. Við vottum konu hans, börnum og öðrum ástvinum og ættingjum djúpa samúð okkar við fráfall hans. Far þú svo vel, gamli félagi og vinur. Sigurður Bjarnason frá Vigur. JÓN KJARTANSSON lét allt frá æskudögum stjórnmál mjög til sín taka. Á stúdentsárunum studdi hann eindregið Sjálfstæð- isflokkinn gamla. Þingmaður varð hann haustið 1923 einung- is þrítugur að aldri, gerðist 1924 einn af stofnendum íhalds- flokksins og tók hinn 1. apríl 1924 við ritstjórn Morgunblaðs- ins ásamt Valtý Stefánssyni. Verkaskipting þeirra í milli varð. með þeim hætti, að Jón skrifaði flestar stjórnmálagreinar, sem í blaðinu birtust af hálfu ritstjórn arinnar. Aðrir voru að vísu síðar ráðnir til að hlaupa þar undir bagga öðru hvoru, en Jón var aðalstjórnmálaritstjóri Morgun- blaðsins full 23 ár. Þær eru ótaldar greinarnar, sem Jón Kjartansson hefur ritað til sóknar og varnar fyrst fyrir íhaldsflokkinn og síðan Sjálf- stæðisflokkinn. Enginn, sem ekki hefur sjálfur reynt, getur til hlítar gert sér grein fyrir hví- líkur vandi það er að skrifa þann ig, hvernig sem á stendur, dag eftir dag og ár eftir ár. Áhug- inn er að sjálfsögðu ekki ætíð hinn sami og hætta á, að nokk- uð sæki í sama far. En samvizku semi Jóns Kjartanssonar brást aldrei. Hann átti létt með að um gangast aðra og gat því auðveld lega aflað sér upplýsinga og gagna hjá þeim, otaði aldrei sjálf um sér fram heldur lét óeigin- girni og málefni ráða afstöðu sinni. Þessi skapeigind Jóns lýsti sér glöggt í viðhorfi hans til fram- boðs í Vestur-Skaftafellssýslu. Þegar annar, sem áður hafði verið þingmaður, óskaði að bjóða sig fram á ný af flokksins hálfu, studdi Jón hann með ráðum og dáð bæði í héraði og blaði sínu. Fjarri fór þó, að hugur Jóns væri horfinn frá því að vinna fyrir V.- Skaftfellinga. Jafnskjótt og sýslu mannsstaðan þar losnaði sótti Jón um hana og var skipaður í það embætti á miðju ári 1J47. Mun það algert einsdæmi, að maður, sem svo lengi hefur dval- izt í Reykjavík og gegnt þar slíkri trúnaðarstöðu sem Jón, sækist á efri árum eftir amsturs sömu embætti úti á landi,' er út- heimtir löng og erfið ferðalög. En Jón fýsti ætíð austur og hef- ur sennilega aldrei unað sér bet- ur en þar, þrátt fyrir slappa heilsu hin síðari ár. Embættisfærsla Jóns var öll með ágætum. í sýslumannsstarf- inu gafst honum færi á að vera með því fólki, sem honum gast bezt að; þar naut lipurð hans, réttsýni og drengskapur sín til fulls. Svo sem ætíð hlýtur að verða kom fyrir, að öllum líkaði ekki jafnvel við allar ákvarðanir hans og tók það engan sárar en Jón sjálfan, sem sízt vildi á nokkurn halla, þótt hann yrði að veita þá úrlausn, sem sam- vizka hans sagði til um. Við þingkosningarnar 1953 var Jón aftur kjörinn á þing fyrir Vestur-Skaftfellinga og voru þá liðin 30 ár frá því, að hann hafði fyrst verið kosinn, en hafði þá einungis setið eitt kjörtímabil. Á árinu 1956 var hann endurkosinn og sat þá á þingi fram að vor- kosningunum 1959. Fylgi flokk- anna, Sjálfstæðismanna og Fram sóknar, var nokkurn vegin jafnt í kjördæminu og var því nánast undir tilviljun komið, hvor yrði ofan á hverju sinni. Því meira reið á, að þingmaðurinn gerði ekkert, sem hægt væri að nota honum til andróðurs heim í hér- aði. Jón fylgdi hinsvegar ætíð því, sem hann taldi rétt, hvort sem öðrum líkaði betur eða verr. Það kom síðast og bezt fram í afstöðu hans til kjördæmabreyt- ingarinnar 1959. Vitað var, að bað mál mundi verða erfitt i Vestur-Skaftafellssýslu. Jón þurfti þó ekki að skoða hug sinn um nauðsyn nýrrar kjördæma- skipunar, en vildi fá frumvarp- inu um hana breytt á þann veg, sem hann taldi betur tryggja hagsmuni sýslunga sinna. Við meðferð málsins kom í ljós, að sú breyting gæti orðið því öllu að falli og hikaði Jón þá ekki við að setja ofar það, sem meira máli skifti og tryggði þessari mikilsverðu réttarbót þar með framgang. Vafalítið hefur sú at kvæðagreiðsla valdið því, að hann náði ekki endurkjöri 1959 og sat hann þó öðru hvoru á þingi sem varamaður á yfir- standandi kjörtímabili. Atkvæði Jóns Kjartanssonar réði úrslitum á þinginu 1953. Hann sýndi þá enn sem fyrr fá- gæta óeigingirni og sannaði, að hann mat meira málefnið en sinn eigin hag. Sennilega valt aldrei meira á Jóni en að því sinni. Hann tók ákvörðun í sam- ræmi við eðli sitt og allt lífsstarf sem fyrr og síðar miðaði að því að ryðja brautina til hollari stjórnarhátta á fslandi og auk- innar farsældar fslendinga. Bjami Benediktsson. * JÓN KJARTANSSON, sýsl-umað ur Skaftfellinga, verður jarðsett ur í dag frá Víkurkirkju í Mýr- dal. Kirkjuigarðurinn stendur efst í túninu í Suður-Vík o>g ber hátt yfir kauptúnið. Á þessum slóð- um lágiu bernskuspor Jóns Kjart anssonar. Hér átti hann heima uppvaxtanár síin, hingað þráði hann alltaf og hér auðnaðist hon um að starfa allan síðari hluta ævi sinnar. í túninu heima kaus *hann sér leg við hlið fósturbróð ur síns og vi-nar. Jón Kjartansson var Skaftfell ingur í báðar ættir, grein af sterk um stofni „mikilla sanda — mikilla sæva“. Hann var bam að aldri, er 'hann missti föður sinn. Var hann þá tekinn til fósturs af föður- systur sinni, Matthildi Ólafsdótt ur í Suður-Vik g manni henn- ar Halldóri Jónssyni, kaupmanni. Hjó þessum merku hjónum ólst hann upp. Heimilið í Suður-Vík var víð frægt fyrir rausn og myndarskap og störfin þar umfangsmikil og margþætt. Halldór i Vik rak á- samt verzluninni itórbúskap cvg allmikla útgerð. Þar voru venjulega um 30 manns i heimili og oft fleira að vetrinum. Áhrifin, sem Jón Kjartansson var fyrir á þessu mikla menningarheimili urðu honuim haldgott veganesti í marg brotnu lífsstarfi, og í Vík stóðu rætur hans. Ekki verða ævtetriði þessa merka forystumanns rakin af mér. Það gera aðrir. En ég vildi ipega kveðja kæran vir, og góðan dreng með fáum orðum við leið arlok. Samstarf okkar Jóns Kjartans sonar var mikið þann röska ára tug, sem ég átti heima í Vik. Ég kynntist vel starfsháttum hans sem sýslumanns og alþingis- manns. Ég þekkti áhuigamál hans og brennandi lön-gun til þess að vinna að heill héraðsins. Hann hafði ætíð opin augu fyrir öllu þv’, sem til ramfara horfði og barðist fyrir því. Á tiltölulega skömmum þingmannsferli tókst Jóni Kjartanssyni að fó ótrúlega miklu áorkað. Einkum voru það samgöngu- málin, sem áttu hug hans, enda er Vestur- Skaftafellssýsla hafn- laust hérað og vegalengdir mikl ar yfir jökulfljót, hraun og eyði- sanda. Framhald á bls. 17.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.