Morgunblaðið - 17.10.1962, Page 1

Morgunblaðið - 17.10.1962, Page 1
I 24 siður 49. árgangur 231. tbl. — Miðvikudagur 17. október 1962 Prentsmiðja Morgunbiaðsins Vopnahié samiö í Norður-Katanga Elisábethville, Sam. þjóöunum, 16. okt. — (NTB-AP) — í D A G var undirritaður í Elisabethville vopnahlés- samningur milli Katanga og Kongóstjórnar. Frá aðalstöðv um Sameinuðu þjóðanna berast þær fregnir, að þar ríki almenn ánægja yfir þessu skrefi, sem stigið hef- ur verið í áttina til samein- ingar Kongó, en þó er óttazt að samkomulag um samein- ingu landsins náist ekki á næstunni. ★ Vopnahléssamningurinn var undirritaður kl. 12 á hádegi í dag eftir staðartíma, af fulltrú- um Sameinuðu þjóðanna, Kongó stjórnar og Katangastjórnar. — Gekk hann samstundis í gildi og áttu herlið Kongóstjórnar og Katangastjórnar, sem eldað hafa grátt silfur í Norður-Kat- anga að undanförnu, þegar að leggja niður vopn. 1 samningn- Byrgi til varnar í kjarnorku- styrjöld Bern 16. okt. (NTB). SVISSNESKA stjórnin skýrði frá því í dag, að gerð hefði verið áætlun um að byggja byrgi til varnar íbúum landsins í kjarn- orkustyrjöld. Verða byggð byrgi, sem rúma alla íbúa landsins, 4 milljónir manna Er áætlað að þessum framkvæmdum ljúki á 12 árum og á að byggja byrgi fyr ir 200 þús. manns árlega. Mun kosnaður nema einum og hálfum milljarði ísl. króna á ári. Nú eru í Sviss byrgi fyrir lVi milljón manna. um var einnig kveðið svo á að allir liðsflutningar í Norður- Katanga hefur verið sameinaður her Kongóstjórnar. Allir vegar- tálmar í Norður-Katanga verða rifnir og báðir aðilar eiga að senda heim fanga þá, sem þeir hafa tekið. Allar matarbirgðir, lyf og annað, sem hermönnum verður sent, verður undir eftir- liti Sameinuðu þjóðanna. Eftir- litsnefndum, sem eiga að sjá um að vopnahléssamningurinn verði haldinn, verður komið á fót. — f nefndunum verða fulltrúar SÞ, Kongó og Katanga. Búinn að gefa tipp alla von, en skipaði skipsijór- anum að fara burt Æfintýraleg björgun úr brimgarð- rætt við skipsbrotsmenn mum FRÉTTAMAÐUR Mbl. hittl í gær að mál Hlöðver Helga- son og Unnsteinn Jónsson, skipbrotsmennina tvo, sem með naumindum björguðust úr brimgarðinum við Selvog. Voru þeir þá nýkomnir heim til Hlöðvers, og farnir að ná sér töluvert. Unnsteinn var þó enn haltur eftir gönguna til Þorlákshafnar kvöldið áð- ur, og bundið var um meiðsli á höfði, sem hann hlaut við að berjast utan í klettana. Frásögn þeirra félaga, sem hér fer á eftir, segir það eitt, að björgun þeirra úr háskan- um hlýtur að teljast með meiri kraftaverkum, sem gerzt hafa við strendur ís- lands, og er þá nokkuð sagt. Sjá ennfremur frétt á bls. 24. — Við vorum um það bil hálifa míliu frá landi þegar við álkvóðum að fara í gúmmí bátinn, saigðd Hlöðver skip- skipstjó'ri. — Vindur var þá orðinn líitáil eti haugabrim við ströndina. Við vildum reyna að komast í Land í björtu, og vissum að skipið rruundi slíta akkerisfestarnar í briminu, enda varð sú raunin á rétt á eftir að við lögðum frá því. Óttuðust að verða á milli skips og lands. — Eftir að við vorum komn ir í gúmmíbátinn og skipið hafði slitnað upp, rak okkur sitt á hvað. Vorum við stund- um fyrir innan skipið en sbundum fyrir utan og vor- um um tíma hræddir um að við myndum lenda á milii skipsins og klettanna. Loks fleygðd brot okkur fró en skipið hélt áfram upp í klett- ana. — Engar árar voru í gúmimí bátnum, sagði Hlöðver, — en þær þyrftu nauðsynlega að vera þar því að ailtaf er hægt að ráða ferð sinni eitthvað. — Við horfðum á skipið reka upp í klettana um eða upp úr klukkan sex. Svarta þoka var yfir, svo dimm að við sáum ekki Selvogsvitann, sem þarna er þó ekki langt undan. Köstuðust úr gúmmíbátnum. — Urn klukkan hálf átta lentum við uppi undir klett- unum. Riðu þá mörg brot yfir bátinn, og ég fór út í fyrsta brotinu. Við hölduim að þá hafi Valgeir líka tekið út, en ekkj vitum við það með vissu. Ég varð aldrei var Þannig lá mb. Helgi Hjálm- arsson mölbrotinn í fjörunni við Selvoginn síðdegis í gær. Báturinn var heill er leitar- menn sáu hann í fyrrinótt en brimið um nóttina brauthann í spón. (Ljósm. Magnús Bjarnason). við hann eftir að ég var kom inn út úr bátnum, sagði Hlöð ver. — Á þriðja broti fór ég upp í klettana og velktist þar til og frá, hélt hann áfram. — Ég náði loks í nibbu neðar- lega í klettunum, gat vegið mig upp og klifið siðan 4—5 metra hátt þverhnýpt bjarg. Kallaði en fékk ekki svar. Vílkur nú sögunni til Unn- steins, sem var einn orðinn eftir í gúmmíbátnum, og seg- ir hann svo frá: — Ég mun sennilega ekki bafa losnað úr bátnum fyrr en um það leyti að skipstjór- inn komst upp. Ég sá ekki þegar þeir fóru út vegna þess að í þeim svifum steyptist bát urinn yfir sig marga hringi í brimrótinu og engin leið var að fylgjast með neinu. Báturinn hafnaði loks á hvolfi og kallaði ég þá að við skyld- um reyna að snúa honum við með því að fara allir út í hliðina, en þá svaraði mér enginn. Sá ég þá að félagar mínir voru báðir horfnir. Framh. á bls. 3 Ben Bella fagnað á Kúbu Havana, 16. okt. (NTB). BEN Bella forsætisráðherra Alsír kom til Kúbu í dag. Fidel Castro forsætisráðherra Kúbu tók á móti honum á flugvellinum í Havana. Sagði hann m. a. í ræðu, sem hann hélt á flugvellinum, að nú væri það Alsírbúar, sem yrðu að vera vel á verði, nú þegar BandarLskir heimsvalda- sinnar hótuðu innrás á Kúbu. MikiU mannfjöldi fagnaði Ben Bella og frá því að Yuri Gagarín geimfari Sovétríkjanna tók þátt í 1. maí hátíðahöldunum á Kúbu (Ll. ár, hefur ekki verið eins mikið um að vera í Havana og I dag. Ben Bella kom til Kúbu, með flugvél, sem send var þaðan til New York til þess að sækja hann. Forseti Kúbu Osvaldo Dorticos var á flugvellinum til að taka á móti honum ásamt Castro. Castro flutti stutt ávarp og Ben Bella svaraði á spænsku. Hann sagðist vera hrifinn af hin um athyglisverða framgangi bylt ingarinnar á Kúbu og lagði áherzlu á að vinátta hefði allt ríkt milli Alsír og Kúbu. Hann sagði, að það gleddi sig mjög að vera staddur á Kúbu og minnti viðstadda á það, að þjóðfrelsis- hreyfingin í Alsír hefði aðeins veitt einum manni heiðursmerki úr gulii og sá maður væri Fidel Castro. Alsír stendur með Kúbu og mun gera það í framtíðinni, sagði Ben Bella. Sagan hefur lát- ið þjóðirnar mætast á leiðinni til frelsis. Frá flugvellinum ók Ben Bella í opinni bifreið ásamt Castro og Dorticos. Mikill mannfjöldi hafði safnazt saman á götum þeim er þeir óku um og frí var gefið á vinnustöðum til þess að sem flestir gætu fagnað Ben Bella. öll blöð á Kúbu birtu myndir af Ben Bella og kvöttu fólk til að veita honum góðar viðtökur. Tilraun með hálofta- sprengju mistókst Honolulu 16. okóber (AP). í MORGUN ætluðu Bandaríkja- menn að sprengja kjarnorku- sprengju í háloftunum yfir til- raunasvæðinu við Johnstoneyju á Kyrrahafi. Tilraunin mistókst og sprengjan og eldflaugin, sem flutti hana voru eyðilagðar skömmu eftir að eldflauginni var skotið á loft. Engin spreng ing varð og eldflaugarpartarnir féllu í hafið og hlutust engin slys j af þeim. Þetta er fimmta tilraunin, sem Bandaríkjamenn gera til að sprengja kjarnorkusprengju í | í háloftunum yfir Johnstoneyju, j en aðeins ein þeirna hefur heppn azt. ) EldfLaugin, sem var af gerð- inni Thor, átti að flytja sprengj- una í um 65 km. hæð, en þar átti hún að springa. Sex mín- útum eftir að eldflauginni var skotið upp, eyðilagði einn al yfirmönnum tilraunastöðvarinn- ar hana, vegna galla, sem í ljós höfðu komið. Hefur ekiki verið skýrt frá hverjir þeir voru. Um þriggja mánaða hlé hefur verið á tilraunum Bandaríkjamanna með háloftasprengjur yfir Jóhn- stoneyju vegna þess að eld- flaugastöðin á eyjunni skemmd- ist töluvert 25. júlí s.l., en þá var eldflaug eyðiiögð er hún tókst á loft. t

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.