Morgunblaðið - 21.10.1962, Qupperneq 24
FRÉTTASÍMAR MBL
— eftir lokun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
LANDIÐ OKKAR
Sjá bls. 10.
235. tbl. — Sunnudagur 21. október 1962
Álit lyfjafræðinga:
Skynsamlegt að
taka í taumana
— Hættulegt að blása svona mál upp
Morgunblaðið sneri sér
til nokkurra lyfjafræð-
inga, til að heyra álit
! þeirra á eiturlyfjaskrif-
unum, sem undanfarið
hefur gætt í nokkrum
blöðum.
Fara hér á eftir um-
sagnir fjögurra lyfja-
fræðinga og apótekara.
Sigurður Ólafsson í
Reykjavíkur apóteki.
í ,Ég álít að það vaeri skyn-
samlegt fyrir heilbrigðisyfir-
völdin að taka þarna eitthvað
í taumana. í apótekunum verð
um við reyndar ekki varir við
neina aukningu frá því sem
hefur verið. Þessar pillur, sem
hefur verið skrifað um eru
ekki eiturlyf, heldur örvunar
lyf. Þau geta hins vegar gert
fólki illt“.
Birgir Einarsson,
Vesturbæjar apótek:
,Málið hefur meira verið
sett upp sem æsifréttir en
raunveruleikanum sam-
kvæmt“.
Kjartan Gunnarsson:
„Það er gert allt of mi'kið
úr þessu, þó það sé vissulega
sjálfsagt að hafa eftirlit. Það
er svo með flest lyf, að ef nóg
er etið af þeim, skapa þau
annarlegt ástand í líkaman-
um. Ástandið hér getur ekki
talizt alvarlegt. Á hinum Norð
urlöndunum eru raUnveruleg
eiturlyf mikið vandamál, en
þess verður ekki vart í apótek
um. hér, að sótzt sé eftir þeim“.
Ólafur Ólafsson,
Holtsapóteki, formaður
félags lyfjafræðinga:
„Þetta hefur verið blásið
upp, því þarna eru ekki um að
ræða raunveruleg eiturlyf,
heldur deyfi- og svefnlyf en
þó aðallega að manni skilst
örvunarlyf, sem eru fengin að
utan. Þau er vitanlega hægt
að misnota engu síður en önn
ur lyf. Reglur hér á landi hafa
verið strangari en víðast hvar
annars staðar, og því ekki mik
il ástæða til að óttast að svo
komnu máli. Það getur líka
oft verið hættulegt að blása
svona mál upp, því það vill
vekja áhuga á efninu“. 1
Stórfelldar vega-
skemmdir á Vestfj.
FRÉTTARITARI Morgunblaðsins
á Flateyri hringdi í gærkvöldi og
sagði frá miklum vegaskemmd-
um, sem hefðu orðið í önundar-
firði og Dýrafirði vegna aur-
skriðna.
í giær byrjuðu stórfelldiar rign-
ingar og stóðu fram eftir degi í
dag. Féllu 17 skriður á veginn út
í Valþjófsdal. Ennfremur hafa
vegir víða spillzt, vegna þess að
ræsi hafa ekki haft undan að
flytja vatnið burt, og víða hefur
hann skorizt sundur af völdum
vatnsins.
Aðeins
Vegurinn í kringum Dýrafjörð
er lokaður vegna aurskriðu, sem
féll norðan megin fjarðarins og
tók þar sundur veginn.
Morgunblaðið fékk þær upplýs
ingar hjá Veðurstofunni að í
Kvígindisdal við Patreksfjörð
hefði úrkoma verið 96 mm frá
4d. 6 í fyrrakvöld til kl. 6 í gær
kvöldi. Á sama tíma var úrkoma
á Galtarvita 58 mm.
AUar líkur eru því á, að stór
kostlegar vegaskemmdir hafi
orðið um alla Vestfirði.
dagar
eftir
Þessi helgi er sú 'sxðasta, sem
hið glæsilega Skyndihapp-
drætti Sjálfstæðisflokksins
stendur. Nú eru aðeins 5 dag-
ar, þar til dregið verður.
Ekki eru nema örfáir miðar
eftir í sölu hjá happdrættinu
en aUmargir, sem fengið hafa
miða scnda heim til sin, eiga
enn eftir að gera skil þótt að
flestir hafi þegar lokið því af.
Þeim sem eiga eftir að gera
skil, er vinsamlega bent á að
gera það nú um helgina.
Skrifstofa happdrættisins í
Sjálfstæðishúsinu er opin til
kl. 10 í kvöld.
Lítið flogið
ILLA viðraði til innanlandsflugs
í gær. Var aðeins flogið til Ak-
ureyrar og Sauðárkróks. Á ísa-
firði var ein af Douglas-vélum
Flugfélagsins biluð, þriðja dag-
inn í röð. Enn hefur ekki viðrað
til að senda viðgerðarmann
vestur.
Kind í tugthúsi
í GÆRMORGUN fengu fanga
verðirnir í hegningarhúsinu
við Skólavörðustíg kind
nokkra til vörzlu. Hún var í
kaupstaðarferð, en barnahóp
ur elti hana um göturnar, unz
lögreglan kom á vettvang og
tók hana úr umferð.
Fréttamaður Mbl. átti þess
kost nð ná stuttu viðtali við
kindina, er hún hafði verið
nokkrar klst. undir eftirliti
Guðbjörns Jóhannessonar
fangavarðar.
— Hvað gerðir þú af þé»,
kindin þín?
— Me-e-e-e.
— Jæja, það var rangt af
þér, en hvernig hafa þeir farið
með þig?
— Me-e-e-e-e-e-e-e.
— Það var nú gott. Hlakkar
þú til að komast aftur til eig
anda þíns?
— Me-e-e-e-e-e-e.
Ekki var unnt að setja kind
ina í klefa, sökum anna stofn
unarinnar og varð að láta
garðinn nægja.
Guðbjörn kvað hegðun roll
unnar með mestu ágætum og
yrði hún bráðlega látin laus.
Mark hennar var sýlt hægra,
fjöður framan og miðhlutað
vinstra. Það mark var tekið
upp á Stóra-Kambi í Breiðu
vík árið 1918 og flutti eigandi
þess, Bragi Kristjánsson, Ár-
túni, það með sér til Reykja-
víkur. Hafðist fljótlega upp á
eigandanum, og sótti hann
kind sína og flutti heimleiðis.
Hann kvaðst ekkert botna í
þessu ferðalagi, þar sem roll
an átti að vera í fjárheldri
girðingu í Hvassahrauni.
Loflmynd af Selfossi
Sjá grein á bls. 10.
Loftmynd af Selfossi.
Kosmos II.
sendur á loft
London, 20. okt. — AP.
Rússar sendu í morgun á loft
nýjan gervihnött til vísindalegra
rannsókna, Kosmos 11, að því er
Moskvu útvarpið tilkynnti. Sagði
útvarpið, að tilraunin hefði tek-
izt mjög veþ gervihnötturinn
væri kominn á tilætlaða braut,
sem hefur jarðfirð 920 km. og
jarðnánd 245 km.
77 gráSu fi/fi
á Akureyri
AKUREYRI, 20. okt. — Mikill
hiti hefur verið hér á Akureyri
og í Eyjafirði að undanförnu, t.
d. fór hitinn á Akureyri upp í
17 gráður í gær, en var kl. 9 x
morgun 14 gráður og fer vax-
andi.
Þetta er jafn mikill hiti og
þegar bezt var í sumar.
Allir vegir í nágrenninu eru
vel færir bifreiðum og einnig
um Austurland. Bifreiðastjórar
frá Raufarhöfn og Vopnafirði
segja, að færðin sé sízt lakari en
sl. sumar. — St. E. Sig.