Morgunblaðið - 23.10.1962, Page 1
24 siður
Yfirlýsing Bandaríkjaforseta í gær
KENNEDY Bandaríkjaforseti skýrði þjóð sinni frá því í útvarps- og sjónvarpsræðu í gær-
kvöldi, að Bandaríkjastjóm hefði óyggjandi sannanir fyrir því, að Sovétríkin hefðu með
leynd byggt árásarstöðvar fyrir kjarnorkueldflaugar á Kúbu. Sagði hann að kommúnistar
hefðu breytt þessu fangelsaða landi í eldflaugastöð, sem öllum Amerikuríkjum stæði ógn
af. Lýsti hann því yfir að bann yrði lagt við öllum flutningum hergagna til Kúbu til þess
að tryggja öryggi Vesturálfu og friðinn í heiminum. „Öllum skipum, hverrar þjóðar sem
þau eru og hvaðan sem þau koma, verður snúið aftur, ef í ljós kemur, að í farmi þeirra eru
árásarvopn“, sagði forseti Bandaríkjanna í ræðu sinni.
Bandaríkjaforseti var mjög harðorður, þegar hann minntist á brigðmælgi Sovét-
stjórnarinnar í sambandi við mál þetta. Hann sagði m. a. að Rússar hefðu lýst því yfir,
bæði opinberlega og í einkasamtölum að hernaðartækin á Kúbu mundu áfram einungis
^verða til varnar og „að þeim væri engin nauðsyn að leita eldflaugastöða út fyrir landa-
mæri Sovétríkjanna“. — Benti hann á að sú yfirlýsing Sovétstjórnarinnar, að Sovétríkj-
unum væri engin þörf á því að senda vopn, t. d. til Kúbu, til að gera hefndarárás á nokkurt
annað ríki, eins og Sovétstjórnin hefur komizt að orði, væri fölsun. ein. Ennfremur lýsti
hann því yfir, að Gromyko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, hefði komið á sinn fund sl.
fimmtudag og ítrekað að herbúnaðurinn á Kúbu væri þar einungis til varnar og Rússar
hefðu aðeins sent þangað sérfræðinga í meðferð varnarvopna. Þessi fullyrðing Gromykos
hefði einnig verið fölsun.
Kennedy sagði að eldflaugastöðvarnar, sem Sovétríkin hefðu byggt á Kúbu væru
ætlaðar fyrir eldflaugar, sem flutt geta kjarnorkusprengjur meira en þúsund milna vega-
lengd og væri með þeim hægt að gera árásir á Mexíkó, Mið-Ameríku og Suðausturhluta
Bandaríkjanna, þar á meðal Canaveralhöfða og Washington. Ennfremur væri ekki annað
séð en unnið væri að nýjum eldflaugastöðvum fyrir langdrægar eldflaugar, sem dregið
gætu til flestra stórborga Vesturálfu.
Kennedy benti á að árásarstöðvarnar hefðu verið byggðar með miklum hraða og
leynd meðan stjórnir Sovétríkjanna og Kúbu hefðu haldið því ákveðið fram að vígbúnað-
urinn á eyjunni væri einungis gerður í varnarskyni.
Forseti Bandaríkjanna tók skýrt fram að Bandaríkin óskuðu ekki eftir styrjöld, en
tilgangur þeirra væri sá að koma í veg fyrir notkun þeirra eldflaugastöðva, sem gerðar
hefðu verið á Kúbu og vinna að því að þeim yrði útrýmt úr Vesturálfu.
Forsetinn ávarpaði kúbönsku þjóðina og sagði, að Bandaríkjastjórn óskaði ekki eft-
ir því að auka þrengingar hennar né neyða hana til að taka upp ákveðið stjórnarfyrir-
komulag. „Við vitum að líf ykkar og land er notað sem peð af þeim, sem neita ykkur um
frelsi“, sagði Kennedy. Hann kvaðst vita að flestir íbúar Kúbu hlökkuðu til þess tíma er
þeir fengju fullt frelsi undan erlendri kúgun, frelsi til að ákveða sjálfir stjórnarfyrirkomu-
lag sitt, frelsi til að velja sér leiðtoga, frelsi til að eiga sitt land sjálfir, frelsi til að tala og
skrifa og trúa án ótta eða lítillækkunar. '
Til þess að mæta ógnunum frá Kúbu tilkynnti forseti Bandaríkjanna að stjóm sín
hefði ákveðið byrjunaraðgerðir og gerði hann grein fyrir þeim í 7 liðum, og fara hér á eft-
ir helztu atriði þeirra:
Sökkva rússnesk-
um skipum, ef...
Talsmaður bandaríska varnarmálaráðu-
neytisins sagði í gærkvöldi, eftir að Kennedy
1 forseti hafði flutt ræðu sína um aðgerðir gegn
Kúbu, að Bandaríkin væru reiðubúin að
sökkva rússneskum skipum ef nauðsyn krefði,
i til að hindra vopnaflutninga til Kúbu.
Moskvuútvarpið minntist ekkert á ræðu
Kennedys í fréttasendingu sinni kl. eitt í nótt,
i en sagði hinsvegar að 45 bandarísk herskip,
þar af eitt flugvélamóðurskip, væru umhverf-
is Kúbu.
•
1) Stöðva verður uppbyggingu árásarstöðva á Kúbu með ströngu aðflutningsbanni
á öll hernaðartæki.
2) Koma verður á auknu og áframhaldandi eftirliti með Kúbu og hervæðingunni
þar.
3) Verði eldflaug skotið frá Kúbu á eitthvert land í vesturálfu, verður litið á það
sem árás Sovétríkjanna á Bandaríkin og svarað með gagnárás á Sovétríkin.
4) Flotastöð Bandaríkjanna við Guantanamoflóa á suðaustur Kúbu verður efld og
fjölskyldur hermannar þar fluttar á brott. Hefur setuliðið þar fengið fyrirskip-
un um að vera vel á varðbergi.
5) Kallaður verður saman fundur þegar í dag (þ. e. þriðjudag) í ráðgjafastjórn
samtaka Ameríkuríkjanna til að ræða þessa ógnun við Vesturálfu.
6) Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna verður beðið um að koma saman til aukafundar
og gera nauðsynlegar gagnráðstafanir gegn þessari nýjustu ógnun Sovétríkjanna
við friðinn í heiminum.
7) Kennedy sendi Krúsjeff forsætisráðherra persónulega áskorun um að hætta við
og afturkalla þessa leynilegu, tillitslausu og ögrandi ógnun við heimsfriðinn og
koma á jafnvægi í sambandinu milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna. Jafn-
framt skoraði forsetinn á Krúsjeff að láta af tilraunum sínum til þess að leggja
undir sig heiminn og reyna heldur ásamt Bandaríkjunum að stöðva vígbúnaðar-
kapphlaupið.
Hér á eftir fer ræða Bandaríkjaforseta í heild í lauslegri þýðingu:
Gott kvöld samborgarar mín-
tr.
Ríkisstjóm mín hefur, eins og
hún hefur lofað, fylgzt rækilega
með hernaðarundirbúningi Sov-
étríkjanna á Kúbu. Síðustu viku
hafa skýlausar sannanir fengizt
fyrir því að nú sé verið að
koma upp eldflaugastöðvum til
árása á þessari fangaeyju. Til-
gangurinn með þessum stöðvum
getur ekki verið annar en sá að
skapa möguleika til kjarnorku-
árása á ríki Vesturálfu. Þegar
ég fékk fyrstu áreiðanlegu fregn
irnar af þessu kl. 9 sl. þriðju-
dagsmorgun, fyrirskipaði ég að
hert skyldi á eftirliti okkar. Og
nú, þegar eftirgrennslan okkar
er lokið, mat okkar liggur fyrir
og við höfum tekið ákvörðun
okkar, þykir ríkisstjórninni skylt
að skýra frá þessu nýja hættu-
ástandi í smáatriðum. Allt bend-
ir til þess að hér sé um að ræða
eldflaugastöðvar af tvenns kon-
ar gerð. Nokkrar þeirra eru
fyrir eldflaugaskeyti sem borið
geta kjarnorkuvopn meira en
1000 mílur. Hver þessara eld-
Framhald á bls. 2.
Norskt skip ferst
25 lík þegar fundin
Oslo og Rörvik, 22 okt. (AP-
NTB)
NORSKA strandferðaskipið
Sanct Svithun strandaði á sunnu
dagskvöld skammt frá Rörvik,
um 150 km fyrir norðan Þránd-
heim. Óttast er að 30-40 af far-
þegum og áhöfn skipsins hafi far-
izt. 48 hafa bjargazt
'
Bardagar á
landamær-
um Ind-
lands og
Kína
Sjá frétt á bls. 2 og grein
og kort á bls. 10
Sanct Svithun var á leið frá
Þrándlheimi til Rörvik á sunnu-
dag er slysið vildi til. Mun sikip-
ið hiafa villzt út af siglingaleið
og lent á skeri fjóra kílómetra
fyrir sunnan vitann á Nordöya
við innsiglinguna til Rörvik i
suðvestan hvassviðri og rigningu
Skipið sendi út neyðarskeyti, en
tilkynnti skömmu'seinna að það
hefði losnað af skerinu, og að
mikill leki væri kominn að því.
Erfitt var um björgunarstörf
vegna veðurs, og ekki bætti það
úr að staðarákvörðun skipsins
reyndist röng
48 bjargað
Fimmtiu manna áhöfn var á
Sanct Svithun og áætlað er að
farþegar hafi verið um 30. Þeg-
ar skipið tók að sö<kkva, fóru
farþegar og áhöfn í björgunar-
báta og hrakti þá upp í hólma
og sker, sem mikið er um í nánd
við strandstaðinn í dag höfðu
fimm björgunarbátár og einn
björgunarfleki fundizt og voru 48
Framhald á bls. 23.